Morgunblaðið - 02.10.2013, Síða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2013
Það leggst mjög vel í mig að verða fertugur,“ sagði Ólafur Teit-ur Guðnason, upplýsingafulltrúi Rio Tinto Alcan á Íslandi.Hann ætlar að fara út að borða með fjölskyldunni í tilefni
dagsins. En eru einhverjir afmælisdagar hans eftirminnilegri en
aðrir?
„Þrítugsafmælið er eftirminnilegt. Þá bauð ég vinum og vanda-
mönnum heim til mín og það var mjög skemmtilegt. Ég man líka vel
eftir fimm ára afmælinu. Þá fékk ég fótstiginn bíl í afmælisgjöf frá
mömmu og pabba. Ég þurfti að finna gjöfina með því að elta þráð.
Það þótti mér mikið ævintýri og það lifir í minningunni.“
Ólafur Teitur starfaði sem blaðamaður og gaf út bækur með fjöl-
miðlapistlum sínum. Fæst hann enn við skriftir?
„Já, öðru vísi skriftir en áður. Ég vinn svolítið við að skrifa hér í
Straumsvík. Það er alveg jafnskemmtilegt en aðeins öðruvísi en
blaðamennskan,“ sagði Ólafur Teitur. Hann sagði að ekki væri von
á bók frá sér alveg í bráð. „Kannski maður fari seinna að skrifa um
eitthvað allt annað!“ En gengur hann með skáldsögu í maganum?
„Það er von þú spyrjir miðað við hvað belgurinn hefur stækkað,“
sagði Ólafur Teitur og hló. „Ég ætti kannski að prófa að skrifa eina
og sjá hvort ég grennist eitthvað. Það eru alla vega meiri líkur á að
mér takist það en að fara í ræktina og hætta að borða súkkulaði.“
gudni@mbl.is
Ólafur Teitur Guðnason er fertugur í dag
Fertugur í dag Ólafur Teitur Guðnason, upplýsingafulltrúi Rio Tinto
Alcan á Íslandi og fyrrverandi blaðamaður.
Fimm ára afmælið
er eftirminnilegt
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Halldóra Bjarna-
dóttir frá Önd-
verðarnesi, lengst
af búsett á Sel-
fossi, nú Eyrar-
bakka, er 95 ára í
dag, 2. október.
Hún tekur á móti
vinum og vandamönnum á Hótel Sel-
fossi sunnudaginn 6. október kl. 15.
Gjafir vinsamlegast afþakkaðar.
Árnað heilla
95 ára
Neskaupstaður Emma Sólveig fædd-
ist 14. apríl kl. 14.35. Hún vó 15 merk-
ur og var 50,5 cm löng. Foreldrar
hennar eru Helga Ingibjörg Gunn-
arsdóttir og Loftur Gíslason.
Nýir borgarar
Brúðhjón Heiðrún Eiríksdóttir og
Árni Friðriksson voru gefin saman 24.
ágúst í Grafarvogskirkju, af sr. Guð-
rúnu Karlsdóttur. Með þeim á mynd-
inni eru synir þeirra, Björn Steinar 8
ára og Birgir Örn 4 ára.
Brúðkaup
B
jörk fæddist í Reykja-
vík 2.10. 1963 og ólst
þar upp, í Árbænum,
til tíu ára aldurs en
flutti þá með fjölskyld-
unni á Blönduós: „Unglingsárin
fyrir norðan festust í mér og gerðu
mig að Blönduósbúa og utanbæj-
arstelpu. Mér finnst ég stundum
fulltrúi Blönduóss í borgarstjórn. Á
Blönduósi á ég enn svo tryggan
vinahóp og þar er saumaklúbburinn
minn.“
Björk sinnti almennum sveita-
störfum á Snæringsstöðum í Svína-
dal í þrjú sumur, var í grunnskóla
á Blönduósi, fór 17 ára aftur suður
í FB og lauk þaðan stúdentsprófum
en vann á Héraðshælinu heima á
Blönduósi á sumrin. Hún lauk BA-
prófum í uppeldisfræði og starfs-
réttindanámi í félagsráðgjöf frá HÍ
1990 og 2007 diplómanámi í op-
inberri stjórnsýslu.
Björk var háseti á bátnum Lyng-
ey SF-61 eina vertíð að loknu stúd-
entsprófi, fyrst á línu en síðan á
netum. Hún var svínahirðir í Dan-
mörku 1984 og fangavörður í
Hegningarhúsinu við Skólavörðu-
stíg 1985-87.
Björk var félagsráðgjafi hjá
Stígamótum 1990-91, félagsráðgjafi
á kvennadeild Landspítalans 1992-
97 og jafnframt framkvæmdastýra
Kvennaráðgjafarinnar, og fé-
lagsráðgjafi hjá Blindrafélaginu
1997-2002.
Björk Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi – 50 ára
Barna- og bókafólk Björk og Sveinn Rúnar með börnum sínum og barnbörnum heima í Depluhólum.
Jákvætt náttúrubarn
og velferðarkerling
Í eldhúshorninu Björk á öðru árinu
í eldhúsverkunum. Takið eftir
mjólkurhyrnunni.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem
hefur hafið göngu sína í Morgun-
blaðinu. Þar er meðal annars sagt
frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæð-
ingum eða öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta
af slóðinnimbl.is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Suðurver | Mjódd | Glæsibær | Húsgagnahöllin | Smáratorg | Austurver
Komdu inn í hlýjuna
í súpu dagsins
Mundu eftir súpukortinu
FR
Í
súp
a d
ag
sin
s
Súpukort
hægt að fá súpu
í brauðkollu
eða í skál.
Verð kr. 835
Súpu dagsins
sérðu á Facebook
síðunni okkar