Morgunblaðið - 02.10.2013, Qupperneq 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Skyndilega hefurðu þörf fyrir að tjá
þig, og vilt helst ræða allar tilfinningar sem
fara um hjarta þitt. Leyfðu þér að slaka á og
eiga ánægjulega kvöldstund með þínum nán-
ustu.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú virðist hafa alla þræðina í hendi þér
svo þú getur ótrauð/ur haldið ætlunarverk-
inu áfram. Þú þolir illa óreiðu, taktu því til og
sæstu við að þú ert ekki fullkomin/n.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Dragðu ekki að ljúka við verkefni,
sem þú hefur tekið að þér. Uppákomur í pen-
ingamálum eru líklegar, bæði til hins betra
eða til hins verra.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Notfærðu þér hæfileika þinn til þess
að láta frásagnir annarra opna þér nýja
heima. Með því að orða drauma þína eykur
þú líkur á að þeir rætist.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú freistast til að eyða of miklum pen-
ingum í dag. Vera kann að um sé að ræða
eitthvað sem tengist einkahögum þínum,
gáðu að því.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Í því félagslega þrepi sem þú tilheyrir
eru vináttubönd bæði náin og stundum lýj-
andi. Skilgreindu hverjum ber hvað í þessu
sambandi.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er mikil spenna í gangi milli þín og
kunningja þíns og þú þarft að komast að því
hvað veldur henni. Ef þú skilur ekki sjálfan
þig, hver gerir það þá?
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Lausn mála er nær en þú heldur.
Skriftir, lestur og fundarsetur taka mikinn
tíma auk þess sem þú þarft að sinna heilsu
þinni og skyldum þínum bæði á heimilinu og í
vinnunni.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Ef það er eitthvað sem þú ert ekki
gefin/n fyrir eru það kreddur. Þér finnst best
að vinna á kvöldin þegar allt er komið í ró í
kringum þig.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Fátt er svo með öllu illt að ekki
boði gott. Hvernig þú hegðar þér hefur líka
mun meiri áhrif en allt sem þú getur sagt.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Afrek þín munu tala fyrir sig sjálf
– að lokum. Vendu þig af því að keyra skoð-
anir þínar ofan í aðra. Það er engum til góðs.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú eru það fjármálin og fjölskyldan
sem þú þarft að beina athyglinni að. Hlustaðu
og taktu eftir pínpússuðum stíl annarra og
lærðu af þeim.
Hjálmar Freysteinsson veltirfyrir sér nýja 10 þúsund
króna seðlinum, en fregnir bárust
af því að þar yrðu þjóðskáldið
Jónas Hallgrímsson og vorboðinn
lóan.
Jónas blankur og brotinn lá
úr bröttum stiga fallinn.
Til hvers er verið að tylla ’onum á
10.000 kallinn?
Að vísu má draga þá ályktun
að vorboðinn ljúfi í kvæðinu Ég
bið að heilsa eftir Jónas sé þröst-
ur, samanber ljóðlínuna: Þröstur
minn góður, það er stúlkan mín.
Ágúst Marinósson leggur út af
því:
Á seðlinum Jónas brosir blítt
hann barðist við margan löstinn
Lóan þar syngur frá hjartanu hlýtt
en hérna vantar samt þröstinn.
Hallmundur Kristinsson bland-
ar sér í orðræðuna:
Veglegur seðillinn vonandi mun
vanda fátækra leysa
enda þótt líklega eyddust við hrun
engill, skúfur og peysa.
Þá Davíð Hjálmar Haraldsson:
Loksins eftir langa bið
lít ég seðil skitinn.
Verst er að á vinstri hlið
vantar græna litinn.
„Á fjöllum“ er yfirskrift vísu
Ólafs Stefánssonar:
Smalar kátir hátt í hlíðum,
hóa sem þeim ber.
Þoka smýgur þétt að síðum,
þannig er það hér.
Og hann bætir við annarri vísu
undir yfirskriftinni: „Í garð-
inum“:
Kular hratt því sól er sigin,
sett er tungl á vörð.
Haustlauf fellur hægt á stíginn,
hjúfrar sig að jörð.
Ármann Þorgrímsson kastar
fram í kersknistón:
Finnast innan Framsóknar
flestir okkar snillingar
mannauður er mikill þar
að minnsta kosti tilsýndar.
Loks skemmtileg haustvísa eft-
ir Höskuld Jónsson:
Vetur bítur, brýnir nart,
blómstrið þrýtur, sölnar.
Fjöllin hvítna, hrímar skart,
hundaskítur fölnar.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af 10 þúsund króna seðli,
Jónasi og hundaskít
Í klípu
„HAFÐU SVÖRIN ÞÍN STUTT,
OG REYNDU AÐ FARA EKKI Í VÖRN.
ÞAÐ ER MITT DJOBB!“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞETTA VERÐUR EINN AF
ÞESSUM DÖGUM, EKKI SATT?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vera í skýjunum.
ROP! VISSARA AÐ FYLLAAFTUR Á TANKINN.
MÁ BJÓÐA YKKUR AÐ
SKILJA AXIRNAR EFTIR
Í FATAHENGINU?
NEI, VIÐ TÖKUM
ÞÆR MEÐ OKKUR
Á BORÐIÐ.
SÍÐAST DUGÐU
STEIKARHNÍFARNIR
YKKAR EKKI Á MATINN.
Víkverji hefur verið að grúska ígömlum eintökum af Morg-
unblaðinu frá þeirri tíð er auglýs-
ingar þöktu forsíðuna og þar mátti
finna allt frá andlátstilkynningum til
tilkynninga um tónleika, kvik-
mynda- og leiksýningar.
x x x
Í umfjöllun blaðsins um tónleikaHljómsveitar Reykjavíkur er að
finna óvænta nálgun: „Á undan-
förnum árum hafa flætt yfir löndin
ódæma-kynstur af amerískri
blökkumannamúsík. – Sú alda hefur
náð hingað, alla leið, og að sjálfsögðu
gert töluverðan usla, enda hefir ver-
ið færra um varnir hjá oss gegn
menningarspjöllum af hennar völd-
um heldur en í flestum öðrum lönd-
um,“ segir í upphafi greinarinnar. „
– Öflugustu virkin – symfóníu-
hljómsveitir – hefir oss vantað, að
heita má. Hjer er hljómsveit að
skapast og er lítils megnug enn þá,
sem von er til. Hefir hún og haft sig
lítt frammi all-lengi, en unnið í kyr-
þey. Nú ljet hún til sín heyra og
hefði mátt vænta meiri aðsóknar en
sveitin fekk, því að hverja viðleitni
hennar ættu höfuðstaðarbúar að
telja sjer skylt að styðja.“
Enn flæða kynstur af alls kyns
tónlist yfir löndin, en þeir eru senni-
lega fáir orðnir, sem telja að sinfóní-
an sé brjóstvörn gegn henni. Vík-
verja hefði hins vegar leikið forvitni
á að vita meira um uslann og menn-
ingarspjöllin, sem talað er um í
greininni.
x x x
Í blaðinu í júlí sama ár er fjallað umúrslitaleikinn á Íslandsmótinu í
knattspyrnu þar sem áttust við Val-
ur og KR. Valur vann tvö eitt og seg-
ir í frásögninni að vel hafi verið leik-
ið, „einkum var samleikur
K.R.-manna dáður og hvatleikur
Vals“. Höfundur leitast við að gæða
frásögnina spennu: „Leið nú óðum
að leikslokum, dómarinn, Þórir
Kjartansson, sem reyndist góður
dómari í leiknum, hefir gát á klukk-
unni, aðeins ein mínúta er eftir.
Skeður nokkuð markvert á henni?
hugsa áhorfendur. Nei, hún er liðin,
dómarinn flautar og leiknum er lok-
ið. Valur vann.“ Sannarlega litrík
frásögn. víkverji@mbl.is
Víkverji
Allra augu vona á þig, þú gefur þeim
fæðu þeirra á réttum tíma, lýkur upp
hendi þinni og seður allt sem lifir með
blessun. (Sálmarnir 145:15-16)
Bættu smá
lit í líf þitt
Vogue flísar
í öllum litum
Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is
Fyrir þá se
m
elska hönnu
n