Morgunblaðið - 02.10.2013, Page 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2013
56. starfsvetur Kammermús-íkklúbbsins hófst í Norður-ljósasal Hörpu á sunnudagvið fjölmenni. Þótt engar
fengjust upplýsingar um fjölda
seldra miða í þar til gerðri sölu, hvað
þá hvers vegna, var það álit nær-
staddra að KMK hafi að því leyti
varla tapað á vistaskiptunum frá Bú-
staðarkirkju til Hörpu, enda áttu og
eiga t.a.m. erlendir ferðamenn
sjaldnar erindi þar efra en í mið-
borginni. Má því jafnvel gera sér
vonir um að jákvæð smithrif (ef svo
má frónska „spin-off“) auki verulega
aðsókn að þessum aðalvettvangi
kjarna kjarnans úr list listanna þeg-
ar frá líður og víðar spyrst.
Þetta voru óvenjulangir kamm-
ertónleikar. Strengjakvartett
Beethovens og Brahms var hvor um
sig helmingi lengri en venja var á
tímum Haydns og Mozarts, og þegar
við bættist 2. kvartett J. C. Arriagas
náði heildartíminn með hléi vel yfir
meðallengd sinfóníutónleika eða um
2½ klst., jafnvel þótt sá tæki aðeins
rúmlega 20 mínútur. Vakti raunar
undrun að þetta tiltölulega stutta,
lauflétta og leikandi verk skyldi haft
sem 2. atriði í dagskrá mitt á milli
jafnstórra og kröfuharðra bita og
hinna fyrrtöldu, þar til leiðrétt var í
upphafi leiks að Arriaga-kvartettinn
yrði fyrstur að vonum.
Hinir þrír strengjakvartettar
baskneska undrabarnsins frá
Bilbao, er lézt langt fyrir aldur fram
(1806-26), voru samdir þegar höf-
undurinn var aðeins 16 ára og eru í
því ljósi ótrúlegt afrek, jafnvel þótt
numið hafi hjá engum verri en Che-
rubini í París, einu af eftirlætis-
tónskáldum Beethovens. Með tilliti
til þess hvað Arriaga var lengst af
ókunnur utan heimalandsins var
þakkarvert af tónleikaskrá að nefna
að á vegum KMK hefði áður verið
fluttur nr. 2 í Es (1985) og nr. 1 í d
(1999). Slíkt vill ella gleymast og
veitir sízt af þeirri rammaþekkingu í
anda SÍ um „Tónlistina á Íslandi“
A-dúr kvartettinn var bráð-
skemmtilegur í innblásnum einfald-
leika sínum enda vel leikinn og
hvergi að heyra að gegndi hagnýtu
aukahlutverki upphitunar. Einnig
myndaði hann viðeigandi upptakt að
Beethoven með greinilegum áhrifs-
einkennum af sama meistara, fyrir
utan Mozart og Schubert. Glitti víða
í vænlega framtíð piltsins, hefði hon-
um enzt aldur; t.d. í Andante til-
brigðaþættinum (II) og gáskafulla
Menúett-Scherzóinu næst á eftir í
lipurri túlkun flytjenda.
Næstsíðasti kvartett Beethovens,
nr. 15 í a-moll Op. 132 frá 1825, er
meðal djúpsæknustu
tónverka hans og að sama skapi
rækilegur prófsteinn á jafnt tækni
sem þroska hæfustu flytjenda. Ep-
ísk lengd verksins, er nálgast hetju-
hljómkviðuna Eroicu, tekur sinn toll,
einnig hjá hlustendum, og munar
mest um Heiligen Dankgesang (III;
tileinkaðan bata Ludwigs eftir
sjúkralegu), er í miðlungstúlkun
gæti ýmist ært óstöðuga eða svæft.
En svo var ekki í þessu tilviki. Spil-
arar kvöldsins sýndu þvílíka innlifun
og natni í samstillingu, fjölbreyttum
tónalitum og víðum styrkbrigðum að
jafnvel þessi yfirvigtarþáttur náði
arnseygu flugi og setti í frábærri
heyrð Norðurljósasalarins það eft-
irminnilegt mark á upplifun hlust-
enda að slagaði upp í nokkrar
fremstu hljóðritanir verksins.
Kannski ekki sízt fyrir smellandi
hrynskyn þeirra fjórmenninga –
með því að „rytminn er hálfur
Beethoven“.
Í hreinskilni sagt hefur 1. kvartett
Brahms (1873) aldrei höfðað sérlega
til mín og má vera að gildi um fleiri.
Ekki aðeins vegna skringilegs
skorts á eftirminnilegum stefjum frá
sama manni og samdi einn vinsæl-
asta fiðlukonsert allra tíma, heldur
einnig sakir fimbulnjörvaðs rithátt-
ar er útheimtir gífurlega samstill-
ingu í flutningi. Það gekk því undr-
um næst hvað tókst að laða mikinn
skáldskap fram úr þessu marg-
slungna verki. Lá beinast við að
spyrja hvort ekki mætti að ósekju
senda hópinn utan til megintónlist-
arstöðva Evrópu með slíka frammi-
stöðu í farteskinu – hvað sem allri
kreppu og gjaldeyrishöftum líður.
Sé pólitík list hins mögulega, þá lét
nærri að hér færi list hins ómögu-
lega.
Flytjendurnir Sigrún Eðvaldsdóttir og Zbigniew Dubik fiðluleikarar, Ásdís
Valdimarsdóttir víóluleikari og Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari.
List hins ómögulega
Norðurljósum í Hörpu
Kammertónleikarbbbbn
Strengjakvartettar eftir Beethoven í a
Op. 132, Arriaga nr. 2 í A og Brahms nr. 1
í c Op. 51,1. Sigrún Eðvaldsdóttir &
Zbigniew Dubik fiðla, Ásdís Valdimars-
dóttir víóla og Bryndís Halla Gylfadóttir
selló. Sunnudaginn 29.9. kl. 19:30.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
Kringlunni | Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is
Glær 49.000,-
Svartur 49.000,-
Kremaður/Gull 62.000,-
Silfur 74.000,-
BOURGIE
Hönnun: Ferruccio Laviani
Mary Poppins (Stóra sviðið)
Fim 3/10 kl. 19:00 16.k Sun 13/10 kl. 13:00 aukas Fös 25/10 kl. 19:00 23.k
Fös 4/10 kl. 19:00 17.k Mið 16/10 kl. 19:00 20.k Lau 26/10 kl. 13:00 aukas
Lau 5/10 kl. 19:00 18.k Lau 19/10 kl. 13:00 aukas Sun 27/10 kl. 13:00 aukas
Sun 6/10 kl. 13:00 aukas Sun 20/10 kl. 13:00 aukas Fim 31/10 kl. 19:00 aukas
Fim 10/10 kl. 19:00 19.k Mið 23/10 kl. 19:00 21.k Fös 1/11 kl. 19:00 aukas
Lau 12/10 kl. 19:00 aukas Fim 24/10 kl. 19:00 22.k
Súperkallifragilistikexpíallídósum! Leiksýning á nýjum skala.
Hús Bernhörðu Alba (Gamla bíó)
Fös 18/10 kl. 20:00 frums Sun 27/10 kl. 20:00 5.k Sun 10/11 kl. 20:00 8.k
Sun 20/10 kl. 20:00 3.k Sun 3/11 kl. 20:00 6.k Lau 16/11 kl. 20:00 9.k
Lau 26/10 kl. 20:00 4.k Lau 9/11 kl. 20:00 7.k Sun 17/11 kl. 20:00 10.k
Sígilt verk Lorca í kraftmikilli nálgun okkar fremstu listakvenna
Mýs og menn (Stóra sviðið)
Fös 18/10 kl. 20:00 1.k Lau 26/10 kl. 20:00 3.k Lau 9/11 kl. 20:00 5.k
Lau 19/10 kl. 20:00 2.k Lau 2/11 kl. 20:00 4.k Sun 10/11 kl. 20:00 6.k
Meistaraverkið eftir John Steinbeck.
Jeppi á Fjalli (Nýja sviðið)
Mið 2/10 kl. 20:00 fors Sun 20/10 kl. 20:00 12.k Fim 14/11 kl. 20:00 26.k
Fim 3/10 kl. 20:00 fors Þri 22/10 kl. 20:00 aukas Fös 15/11 kl. 20:00 27.k
Fös 4/10 kl. 20:00 frums Mið 23/10 kl. 20:00 13.k Þri 19/11 kl. 20:00 aukas
Lau 5/10 kl. 20:00 2.k Fim 24/10 kl. 20:00 14.k Mið 20/11 kl. 20:00 28.k
Sun 6/10 kl. 20:00 3.k Fös 25/10 kl. 20:00 15.k Fim 21/11 kl. 20:00 29.k
Þri 8/10 kl. 20:00 aukas Lau 26/10 kl. 20:00 16.k Fös 22/11 kl. 20:00 30.k
Mið 9/10 kl. 20:00 aukas Sun 27/10 kl. 20:00 17.k Mið 27/11 kl. 20:00 aukas
Fim 10/10 kl. 20:00 4.k Fös 1/11 kl. 20:00 18.k Fim 28/11 kl. 20:00 31.k
Fös 11/10 kl. 20:00 5.k Lau 2/11 kl. 20:00 19.k Fös 29/11 kl. 20:00 32.k
Lau 12/10 kl. 20:00 6.k Sun 3/11 kl. 20:00 20.k Sun 1/12 kl. 20:00 33.k
Sun 13/10 kl. 20:00 7.k Mið 6/11 kl. 20:00 aukas Fim 5/12 kl. 20:00 34.k
Þri 15/10 kl. 20:00 aukas Fim 7/11 kl. 20:00 23.k Fös 6/12 kl. 20:00 35.k
Mið 16/10 kl. 20:00 8.k Fös 8/11 kl. 20:00 21.k Sun 8/12 kl. 20:00 36.k
Fim 17/10 kl. 20:00 9.k Lau 9/11 kl. 20:00 22.k Fim 12/12 kl. 20:00 37.k
Fös 18/10 kl. 20:00 10.k Sun 10/11 kl. 20:00 24.k Fös 13/12 kl. 20:00 38.k
Lau 19/10 kl. 20:00 11.k Mið 13/11 kl. 20:00 25.k Lau 14/12 kl. 20:00 39.k
Benni Erlings, Bragi Valdimar og Megas seiða epískan tón - sjónleik
Rautt (Litla sviðið)
Mið 2/10 kl. 20:00 14.k Fös 11/10 kl. 20:00 18.k Mið 23/10 kl. 20:00 23.k
Fim 3/10 kl. 20:00 15.k Lau 12/10 kl. 20:00 19.k Fim 24/10 kl. 20:00 24.k
Fös 4/10 kl. 20:00 13.k Sun 13/10 kl. 20:00 20.k Fös 25/10 kl. 20:00 25.k
Lau 5/10 kl. 20:00 16.k Mið 16/10 kl. 20:00 21.k Sun 27/10 kl. 20:00 27.k
Sun 6/10 kl. 20:00 17.k Sun 20/10 kl. 20:00 22.k
Meistaraverk sem hreyfir við, spyr og afhjúpar. Aðeins þessar sýningar!
Mary Poppins – HHHHH – MLÞ, Ftíminn
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
Englar alheimsins (Stóra sviðið)
Fim 3/10 kl. 19:30 aukas. Fös 25/10 kl. 19:30 42.sýn Lau 9/11 kl. 19:30 46.sýn
Fös 4/10 kl. 19:30 38.sýn Lau 26/10 kl. 19:30 43.sýn Fim 14/11 kl. 19:30 47.sýn
Fös 11/10 kl. 19:30 39.sýn Mið 30/10 kl. 19:30 Aukas. Lau 16/11 kl. 19:30 48.sýn
Mið 16/10 kl. 19:30 Aukas. Fim 31/10 kl. 19:30 44.sýn
Fim 17/10 kl. 19:30 41.sýn Fim 7/11 kl. 19:30 45.sýn
Leikrit ársins 2013 - fullkomið leikhús!
Maður að mínu skapi (Stóra sviðið)
Lau 5/10 kl. 19:30 7.sýn Fös 18/10 kl. 19:30 10.sýn Lau 2/11 kl. 19:30 14.sýn
Sun 6/10 kl. 19:30 8.sýn Lau 19/10 kl. 19:30 11.sýn Mið 6/11 kl. 19:30 Aukas.
Lau 12/10 kl. 19:30 9.sýn Fim 24/10 kl. 19:30 12.sýn Fös 8/11 kl. 19:30 16.sýn
Nýtt leikrit eftir Braga Ólafsson. Athugið aðeins þessar sýningar.
ÓVITAR (Stóra sviðið)
Sun 13/10 kl. 13:00 Frums. Sun 27/10 kl. 13:00 5.sýn Sun 10/11 kl. 13:00 9.sýn
Sun 13/10 kl. 16:00 2.sýn Sun 27/10 kl. 16:00 6.sýn Sun 10/11 kl. 16:00 táknm.
Sun 20/10 kl. 13:00 3.sýn Sun 3/11 kl. 13:00 7.sýn Sun 17/11 kl. 13:00 11.sýn
Sun 20/10 kl. 16:00 4.sýn Sun 3/11 kl. 16:00 8.sýn Sun 17/11 kl. 16:00 12.sýn
Pollock? (Kassinn)
Mið 30/10 kl. 19:30 Frums. Sun 10/11 kl. 19:30 5.sýn Lau 23/11 kl. 19:30 9.sýn
Fim 31/10 kl. 19:30 2.sýn Lau 16/11 kl. 19:30 6.sýn Sun 24/11 kl. 19:30 10.sýn
Sun 3/11 kl. 19:30 3.sýn Sun 17/11 kl. 19:30 7.sýn Lau 30/11 kl. 19:30 11.sýn
Lau 9/11 kl. 19:30 4.sýn Mið 20/11 kl. 19:30 Aukas. Sun 1/12 kl. 19:30 12.sýn
Þrælfyndið leikrit byggt á sannsögulegum atburðum.
Harmsaga (Kassinn)
Lau 5/10 kl. 19:30 6.sýn Sun 13/10 kl. 19:30
Lau 12/10 kl. 19:30 Lau 19/10 kl. 19:30
Ofsafengin ástarsaga sótt beint í íslenskan samtíma
Aladdín (Brúðuloftið)
Sun 6/10 kl. 14:00 Frums. Lau 12/10 kl. 16:30 3.sýn Lau 19/10 kl. 16:30 5.sýn
Lau 12/10 kl. 13:30 2.sýn Lau 19/10 kl. 13:30 4.sýn
Brúðusýning fyrir áhorfendur á öllum aldri
Karíus og Baktus (Kúlan)
Lau 5/10 kl. 13:30 95. sýn Lau 12/10 kl. 15:00 98.
sýn
Lau 26/10 kl. 13:30 101. sýn
Lau 5/10 kl. 15:00 96. sýn Lau 19/10 kl. 13:30 99. sýn Lau 26/10 kl. 15:00 102. sýn
Lau 12/10 kl. 13:30 97. sýn Lau 19/10 kl. 15:00 100. sýn
Karíus og Baktus mæta aftur í október!
Skrímslið litla systir mín (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 5/10 kl. 14:00 10. sýn Sun 6/10 kl. 12:00 11. sýn
Barnasýning ársins 2012
Menn - skemmtikvöld (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fös 11/10 kl. 20:00 Fös 18/10 kl. 20:00
Lau 12/10 kl. 20:00 Lau 19/10 kl. 20:00
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/