Morgunblaðið - 28.10.2013, Page 18

Morgunblaðið - 28.10.2013, Page 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2013 Eyðir vondri lykt úr loftkælingunni og miðstöðinni. Þrífur og sótthreinsar þannig að blásturinn verður aftur ferskur. Auðvelt að nota án þess fjarlægja frjókorna-eða loftsíuna Kemur í veg fyrir ofnæmisviðbrögð. Eyðir sýklum, gerlum og fúkkalykt sem koma úr loftkælingunni. Virka efnið í brúsanum dreifist um loftkælinguna með viftunni í miðstöðinn í bílnum. ÞÝSK GÆÐAVARA Innihald: 150 ml Vörunúmer: 4065 Stilling hf. | Sími 520 8000 | www.stilling.is | stilling@stilling.is Eyðir sýklum, gerlum og fúkkalykt í miðstöðinni Klima Fresh i d e x . i s – s í m i 4 1 2 1 7 0 0 Með samsettu Larson álklæðningunum frá Alucoil færð þú það sem þú ert að leita að - slétta álklæðningu sem lítur ekki út eins og sjórekin olíutunna. Larson álklæðningarnar sameina styrk, léttleika og umfram allt eru þær sléttar. Helstu kostir: u Eldþolnar u Léttar og sléttar u Einstakt veður– og efnaþol u Burðarkerfi sem henta mismunandi verkefnum u Hávaða– og hitaeinangrun u Umhverfisvænar ( endurvinnanlegt efni ) u Fjöldi lita og efnisáferða u Allt að 20 ára ábyrgð þegar SLÉTT skal vera SLÉTT Krabbamein. Aðeins orðið sjálft vekur ugg og fáir sjúkdómar valda eins mikilli röskun á daglegu lífi fólks. Miklar framfarir hafa átt sér stað í krabbameins- lækningum hér á landi undanfarna áratugi og hefur árangur krabba- meinsmeðferðar verið með því besta sem þekk- ist og stór hluti krabba- meinssjúklinga læknast. Þetta er ekki síst íslenskum læknum og öðru heilbrigðisstarfsfólki að þakka sem stendur fremst meðal jafningja á heimsvísu hvað fagmennsku og þekk- ingu varðar. En nú eru blikur á lofti. Nær daglega kemur heilbrigðis- starfsfólk fram í fjölmiðlum og lýsir yfir nánast neyðarástandi á Land- spítalanum. Læknar spítalans, þ.e. þeir sem enn þrauka þar í starfi, segja að ástandið hafi ekki verið eins slæmt síðastliðna fjóra áratugi. Á lyflæknisdeild krabbameina eru nú aðeins fjórir sérfræðingar sem sinna starfi sem átta læknar sinntu áður. Alvarlegt ástand er einnig á geislameðferðardeild krabbameina þar sem einn þriggja lækna hættir senn störfum sökum aldurs. Sérfræð- ingar fást ekki lengur til starfa á spít- alanum þar sem þeim bjóðast mun hærri laun erlendis. Þá eru starfs- aðstæður sérfræðilækna ekki aðlað- andi á spítalanum þar sem tæki eru orðin gömul og úrelt – reyndar svo að ekki fást lengur í þau varahlutir. Þeg- ar við bætist tvöfalt álag á lækna er ekki við góðu að búast. Staðan er orð- in þannig að krabbameinssjúklingar þurfa að bíða eftir fyrsta viðtali við krabbameinslækni í nokkrar vikur. Þegar fólk greinist með þennan al- varlega sjúkdóm vill það komast sem fyrst til sérfræðings á sviði krabba- meinslækninga. En ástandið í heil- brigðismálum hefur einnig á sér aðra birtingarmynd fyrir krabbameins- sjúklinga. Kostnaður við meðferð er orðinn óheyrilegur og hefur í mörg- um tilfellum stefnt fjárhagslegri af- komu fjölskyldna í voða. Hann kemur e.t.v. hvað harðast niður á ungum, skuldsettum barnafjöl- skyldum. Þetta unga fólk hefur miklar greiðslubyrðar vegna húsnæðiskaupa og námslána og því kemur lækniskostnaður illa við fjárhaginn. Sá kostnaður hleypur ekki lengur á tugum þúsunda – heldur hundruðum þúsunda. Ung fjölskylda á lands- byggðinni hefur þurft að greiða tæpa milljón í kostnað á einu ári vegna veikinda annars framfærsluaðilans. Við hjá Krafti, stuðningsfélagi ungs fólks sem greinst hefur með krabba- mein og aðstandenda, fáum sann- arlega að heyra hryggilegar sögur af ástandinu á Landspítalanum og þeim kostnaði sem félagsmenn okkar þurfa að bera. Það er mikið áfall þeg- ar fjölskyldumeðlimur veikist af krabbameini og þegar svo háttar er ekki í boði að forgangsraða kostnaði. Margir hafa hreinlega orðið að selja eignir til þess að fjármagna kostn- aðinn sem veikindunum fylgir. Þetta er með öllu ólíðandi. Óheyrilegur kostnaður í heilbrigðisþjónustunni leiðir til þess að fólk veigrar sér við að leita eftir henni. Þegar gífurlegt álag á lækna og annað heilbrigð- isstarfsfólk bætist við, auk úr sér gengins tækjabúnaðar, er aðeins tímaspursmál hvenær enn alvarlegri afleiðingar koma í ljós. Við krefjumst þess að stjórnvöld forgangsraði fjár- munum ríkisins þannig að lífi og heilsu almennings sé ekki stefnt í voða. Heilbrigðisþjónusta innan gæsalappa Eftir Ragnheiði Davíðsdóttur Ragnheiður Davíðsdóttir »Á lyflæknisdeild krabbameina eru nú aðeins fjórir sérfræð- ingar sem sinna starfi sem átta læknar sinntu áður. Höfundur er framkvæmdastjóri Krafts, sem er félag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur. Flestar fjölskyldur kjósa að kaupa tryggingar sem greiða þeim bætur verði heimili þeirra fyrir tjóni t.d. vegna elds, vatns eða annarra at- burða. Flestir bifreiðaeigendur kjósa einnig að kaupa tryggingar er bæta þeim skaða sem kann að verða á bif- reið þeirra eða skaða sem þeir kunna að valda þriðja aðila í umferðarslys- um (sumar þessar tryggingar eru reyndar lögboðnar). Margir foreldrar með ung börn kjósa að kaupa sér líf- tryggingu og jafnvel sjúkdómatrygg- inu til að takmarka efnahagslegt tjón fjölskyldunnar látist annað foreldrið eða verði fyrir óvæntum heilsubresti. Allt eru þetta eðlileg viðskipti og ég hef ekki orðið var við að þegar menn þurfa að sækja sér trygginga- bætur sé litið svo á að bæturnar séu hagnaður viðkomandi tryggingataka, heldur komi þær aðeins á móti því fjárhagslega tjóni sem tryggt var fyr- ir – þær gera ekkert til þess að bæta það tilfinningatjón sem vill fylgja slík- um atburðum. Frá því að bankahrunið varð fyrir rúmum fimm árum hefur hvað eftir annað komið upp sú umræða að fyrir- tæki og einstaklingar sem voru að tryggja sig fyrir gengisáhættu með afleiðusamningum, þ.e. vildu verja sig að hluta eða öllu gegn misvægi í gjald- eyrissamsetningu eigna/tekna annars vegar og skulda/útgjalda hins vegar, hafi tekið stöðu gegn krónunni og gengishrun krónunnar sem varð á árinu 2008 megi rekja til þessara við- skipta. Vilji menn vera sjálfum sér sam- kvæmir þá ætti með sömu rökum að líta svo á að fólk sem kaupir sér fast- eignatryggingu fyrir heimili sitt sé að taka stöðu gegn heimili sínu og verði einhver fyrir því óláni að það reyni t.d. á brunatrygginguna, þá sé full ástæða til þess að koma því til skila í fjölmiðlum að viðkomandi hafi hagn- ast um svo og svo marga tugi milljóna króna þegar það brann ofan af hon- um. Og að sama skapi hlýtur bifreiða- eigandi að vera að taka stöðu gegn bílnum sínum og samferðamönnum með kaupum á bifreiðatryggingu og foreldrar að taka stöðu gegn eigin lífi með kaupum á líftryggingum. Sjálfur átti ég ekki í neinum af- leiðuviðskiptum á árinu 2008 og hef því engra hagsmuna að gæta í þess- um málum, en mér misbýður svona heimskuleg framsetning á upplýs- ingum í fjölmiðlum um viðskipti ann- ars fólks mér annars óviðkomandi. Eftir Erlend Magnússon »Vilji menn vera sjálf- um sér samkvæmir þá ætti með sömu rökum að líta svo á að fólk sem kaupir sér fasteigna- tryggingu fyrir heimili sitt sé að taka stöðu gegn heimili sínu. Að taka stöðu gegn heimili sínu Höfundur er framkvæmdastjóri. Einstefna á Suðurnesjum Oddur Hannesson og Sigurjón Ingibjörnsson hafa nokkuð afgerandi forystu í hausttvímenningnum, eru með yfir 66% skor eftir tvö kvöld. Keppnin er þriggja kvölda og einu kvöldi sleppt í úrslitum þannig að aðr- ir þurfa að slá verulega í klárinn. Garðar Garðarsson og Gunnar Guð- björnsson eru með tæplega 63% og eins og staðan er núna slást þrjú pör um þriðja sætið. Efstu pörin Garðar/ Gunnar og Oddur/Sigurjón voru lang- efstu pörin sl. fimmtudag með 65,7% skor. Svala Pálsdóttir og Karl G. Karlsson voru í þriðja sæti með 58,8% og Guðni Sigurðsson og Garðar Þór Garðarsson fjórðu með 56,5%. Eins og áður sagði lýkur mótinu nk. fimmtudag og er bætt við pörum ef einhverjir hafa gleymt að mæta. Annan fimmtudag hefst sveita- keppni. Spilað er í félagsheimilinu á Mánagrund kl. 19. Bridsdeild Félags eldri borgara Rvík Fimmtudaginn 24. október var spilaður tvímenningur hjá Bridsdeild félags eldri borgara, Stangarhyl 4, Reykjavík. Keppt var á 12 borðum. Meðalskor 216. Efst í N/S: Friðrik Jónss. – Jóhannes Guðmundss. 251 Ingibj. Stefánsd. – Margrét Margeirsd. 249 Bergur Ingimundars. – Ólafur Ingvarss. 238 Örn Ingólfsson – Örn Isebarn 229 A/V Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 270 Bjarni Guðnas. – Guðm. K. Steinbach 248 Magnús Jónss. – Björn E. Péturss. 242 Guðný Ottesen – Guðrún Ásgrímsd. 242 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.