Morgunblaðið - 28.10.2013, Blaðsíða 23
Þórarinn stofnaði eigin teiknistofu
1979, var í samvinnu við Björn Krist-
leifsson 1980-83, starfrækti Teikni-
stofuna Túngötu 3, ásamt Agli Guð-
mundssyni arkitekt, 1986-98 og var
arkitekt og verkefnastjóri hjá skipu-
lagi Reykjavíkur 1998-2011.
Þórarinn var gjaldkeri Arkitekta-
félags Íslands 1978-80, sat í gjald-
skrárnefnd félagsins 1986-91 og í
stjórn Lífeyrissjóðs AÍ frá 1991.
Hann hefur setið í dómnefndum
vegna samkeppni arkitekta og um
opinberar byggingar og skipulag.
Þórarinn hefur starfað í Baldri, fé-
lagi áhugamanna um fræði Einars
Pálssonar en þar eru haldin erindi
um málefni, tengd fræðum Einars.
Meðal verka eftir Þórarinn í sam-
vinnu við Egil Guðmundsson má
nefna verslunarhús fyrir Ingvar
Helgason, fjölbýlishús og verslanir á
Ísafirði, Rimaskóla í Grafarvogi og
Smáratorg í Kópvogi, auk þess sem
þeir unnu stúdentaíbúðir fyrir HÍ,
skipulag Húsahverfis og Engjahverfi
og masterplan fyrir Borgarholts-
hverfin þrjú.
Viðfangsefni Einars Pálssonar
séð frá sjónarhóli arkitekts
Helsta áhugamál Þórarins snýst
um skipulag og skilning á íslenska
þjóðveldinu: „Ég hef lengi haft mik-
inn áhuga á rótum íslenskrar menn-
ingar. Ég kynntist vel Einari heitn-
um Pálssyni, vann með honum og
teiknaði nokkrar myndir í síðustu
bækur hans. Ég fékk mikinn áhuga á
verkum hans og hóf sjálfur að skoða
þessi mál. En ég kom að þessu við-
fangsefni frá öðrum sjónarhóli, sjón-
arhóli arkitekts. Engu að síður
komst ég að mörgum sambærilegum
niðurstöðum og hann.
Ég fór að velta fyrir mér og síðan
að rannsaka markvisst skipulag hins
forna þingstaðar á Þingvöllum og hef
komist að raun um að staðurinn var
þaulskipulagður og vel ígrundaður.
Rannsókn á þessu skipulagi hefur
verið mitt aðal áhugamál sl. tvo ára-
tugi.“
Fjölskylda
Þórarinn kvæntist 8.9. 1973, Guð-
rúnu Sigríði Vilhjálmsdóttur, f. 20.8.
1949, þjóðfélagsfræðingi. Hún er
dóttir Vilhjálms Alvars Guðmunds-
sonar, f. 4.6. 1918, d. 14.12. 1969,
efnaverkfræðings og fram-
kvæmdastjóra, og k.h., Birnu Hall-
dórsdóttur, f. 20.4. 1918, d. 15.2.
2008, húsfreyju .
Börn Þórarins og Sigríðar eru
Þórarinn Alvar, f. 15.8. 1976, íþrótta-
fræðingur hjá ÍSÍ, búsettur í
Reykjavík en kona hans er Guðrún
Snorradóttir, mannauðsráðgjafi og
eru dætur þeirra Þóra Laufey, Sig-
rún Birna og Sigríður Lóa; Birna, f.
6.10. 1979, MA í stjórnmálafræði og
forstöðumaður Evrópustofu en sam-
býlismaður hennar er Höskuldur
Hlynsson stærðfræðingur og er son-
ur þeirra Þórarinn; Vilhjálmur Al-
var, f. 13.3. 1985, vélaverkfræðingur
hjá Össuri en sambýliskona hans er
Stella Björk Helgadóttir viðskipta-
fræðingur og er dóttir þeirra Ylfa
Steinunn.
Systkini Þórarins: Ingibjörg, f.
18.7. 1941, fyrrv. ritari á Akureyri;
Stefán, f. 26.3. 1947, héraðslæknir á
Egilsstöðum; Sigurður Þór, f. 17.9.
1948, húsasmíðameistari og kennari í
Reykjavík; Ragnheiður Helga, f. 2.8.
1952, mag.art. og deildarsérfræð-
ingur hjá menntamálaráðuneytinu;
Hjörleifur, f. 30.12. 1959, lyfjafræð-
ingur og framkvæmdastjóri í
Reykjavík; Halldór, f. 25.11. 1962,
matvælaverkfræðingur í Reykjavík.
Foreldrar Þórarins: Þórarinn
Þórarinsson, f. á Valþjófsstað 5.6.
1904, d. 2.8. 1985, guðfræðingur og
skólastjóri á Eiðum, og k.h., Sigrún
Ingibjörg Sigurþórsdóttir, f. 10.1.
1919, d. 18.5. 2006, húsfreyja og
kennari.
Úr frændgarði Þórarins Þórarinssonar
Þórarinn
Þórarinsson
Sigríður Þorkelsdóttir
húsfr. í Eystra-Stokkseyrarseli af Bergsætt
Halldór Halldórsson
form. í Eystra-Stokkseyrarseli
Halldóra Ingibjörg Halldórsdóttir
húsfr. í Rvík
Sigurþór Sigurðsson
kaupm. og matsveinn í Rvík
Sigrún Ingibjörg Sigurþórsdóttir
húsfr. á Eiðum
Sigurður Ólafsson
b. í Snotru
Þuríður Kjartansdóttir
húsfr. á Mosfelli
Jón Jónsson
prófastur áMosfelli í Grímsnesi
Ragnheiður Jónsdóttir
húsfr. á Valþjófsstað
Þórarinn Þórarinsson
pr. á Valþjófsstað
Þórarinn Þórarinsson
guðfræðingur og skólastj. á Eiðum
Þórarinn Stefánsson
b. á Skjöldólfsstöðum, bróður-
sonur Þorbjargar, langömmu
Þórarins, föður Kristjáns
Eldjárn forseta
Einar Hjörleifs-
son Kvaran
rithöfundur
Ragnar H.
Kvaran
landkynnir
Ævar R Kvaran
leikari
Gunnar
Kvaran
selló-
leikari
Matthildur
Arnalds
húsfr.Einar
Arnalds
hæstaréttar-
dómari
Sigurður
Arnalds
ritstjóri
Ragnar
Arnalds
fyrrv. ráðherra
Jósef Kvaran
ritsímastjóri
Karl Kvaran
listmálari
Þórey Einarsdóttir
húsfr. á Skjöldólfsstöðum
Hjörleifur
Einarsson
pr. á
Undirfelli
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2013
Ásgeir Þorsteinn Ólafssondýralæknir fæddist í Kefla-vík 28.10. 1902, sonur Ólafs
V. Ófeigssonar, kaupmanns og út-
gerðarmanns í Keflavík, af Fjallsætt
og Reykjaætt, og s.k.h., Þórdísar
Einarsdóttur húsfreyju.
Bróðir Ólafs var Ófeigur b. í
Leiru, faðir Ólafs skipstjóra, Björns
kaupmanns og Ófeigs læknis, föður
Ragnheiðar Pálu skáldkonu. Ófeigur
var einnig faðir Tryggva útgerð-
armanns, föður Páls Ásgeirs sendi-
herra og Rannveigar þýðanda.
Þórdís var dóttir Einars, b. á
Kletti í Króksfirði Jónssonar, og
Halldóru Jónsdóttur, frá Bakka í
Geiradal.
Eiginkona Ásgeirs var Guðrún
Svava Árnadóttir húsfreyja, dóttir
Árna Eiríkssonar, kaupmanns og
leikara, og Vilborgar Runólfsdóttur
húsfreyju.
Ásgeir og Guðrún Svava eign-
uðust þrjá syni, þá Ólaf Árna, verk-
fræðing í Texas sem lést 2008,
Braga, tannlækni og hestamann, og
Ásgeir, lengst af skrifstofumann í
Borgarnesi.
Ásgeir ólst upp í Keflavík og ná-
grenni. Hann lauk embættisprófi frá
Dýralæknaháskólanum í Hannover
1927 og stundaði síðar framhalds-
námi þar og í Osló 1937-39.
Ásgeir var aðstoðardýralæknir í
Reykjavík 1927-28, var skipaður
dýralæknir í Vestfirðingafjórðungi
1928, var héraðsdýralæknir í Borg-
arfjarðarumdæmi og hluta Vest-
fjarða 1947-60, með búsetu í Borg-
arnesi, en þá náði umdæmi hans frá
Hvalfjarðarbotni og að Ísafjarðar-
djúpi. Hann var síðan héraðsdýra-
læknir í Mýrasýsluumdæmi frá
1960-72 er hann lét af störfum. Auk
þess kenndi hann við Bændaskólann
á Hvanneyri á árunum 1928-51.
Ásgeir þótti glöggur og nærgæt-
inn dýralæknir, var vinsæll og vin-
margur.
Ásgeir var formaður Dýralækna-
félags Íslands um skeið, forseti Rot-
aryklúbbs Borgarness og heiðurs-
félagi norska dýralæknasambands-
ins.
Ásgeir lést 15.7. 1995.
Merkir Íslendingar
Ásgeir Þ.
Ólafsson
90 ára
Ásta Jónsdóttir
Margrét Indriðadóttir
85 ára
Ingveldur H.B.
Húbertsdóttir
Valgarður Baldvinsson
75 ára
Margrét Björgvinsdóttir
Unnur Sigurjónsdóttir
Þórður Jónasson
70 ára
Álfheiður Ósk Einarsdóttir
Ásgeir Gunnarsson
Guðrún Elín
Sigurðardóttir
Guðrún Fanney
Skarphéðinsdóttir
Hlíf Káradóttir
Sigurbjörg Valsdóttir
Valdís Óskarsdóttir
60 ára
Brynjar Eymundsson
Eygló Aðalsteinsdóttir
Jón Finnur Ólafsson
Sigurður Ágúst
Sigurðsson
Þórólfur Guðnason
50 ára
Arndís Hreiðarsdóttir
Atli Ingvarsson
Birna Ýr Thorsdóttir
Guðmundur K.
Gunnlaugsson
Gunnar Hannesson
Haldor Gunnar Haldorsen
Jón Björgvin Sigurðsson
Jón Ingvi Geirsson
Jónína Sóley Snorradóttir
Katrín Phumipraman
Leifur Þorvaldsson
Roelof Smelt
Róbert Hamar
Sigríður Jóhannsdóttir
Siriwan Kristinsson
Snævarr Guðmundsson
Undína Sigríður
Sigmundsdóttir
Vigdís Þórisdóttir
40 ára
Andrés Úlfur Helguson
Elín Þórarinsdóttir
Guðrún Nína Petersen
Helgi Jóhann Brynjarsson
Hlynur Örn Gissurarson
Hrafnkell Smári
Óskarsson
Íris Mjöll Gylfadóttir
Margrét Ákadóttir
Oddný Þóra Logadóttir
Sigurborg Örvarsdóttir
Möller
Sigurður Narfi Rúnarsson
Sveinn Snorri Sveinsson
30 ára
Bjarnlaug Ósk Jónsdóttir
Björg Magnúsdóttir
Halldóra S.O. Johannesen
Heiða Jenny Hreinsdóttir
Hólmberg Þórir
Stefánsson
Katrín Thelma Jónsdóttir
Kristján Guðmundsson
Leslaw Rachwal
Malgorzata Szumowska
Til hamingju með daginn
30 ára Svava er frá
Hverabakka í Hruna-
mannahreppi, lauk MA-
prófi í landslagsarkitektúr
og starfar á teiknistofunni
Landslagi.
Maki: Narfi Þorsteinn
Snorrason, f. 1982, verk-
fræðingur.
Sonur: Þorleifur Kári, f.
2010.
Foreldrar: Þorleifur Jó-
hannesson, f. 1955, garð-
yrkjub. og Sjöfn Sigurð-
ardóttir, f. 1957, kennari.
Svava
Þorleifsdóttir
30 ára Dagný ólst upp á
Siglufirði, lauk MA-prófi í
lögfræði frá HA og er
framkvæmdastjóri Ak-
ureyrarakademíunnar.
Maki: Bjarni Eiríksson, f.
1979, sjávarútvegsfræð-
ingur.
Synir: Haraldur Bjarkan,
f. 2009, og Víkingur
Guðni, f. 2011.
Foreldrar: Karl H. Bjarna-
son, f. 1949, húsasmiður,
og Þuríður Vigfúsdóttir, f.
1951, innheimtufulltrúi.
Dagný Rut
Haraldsdóttir
30 ára Eldjárn ólst upp í
Vesturbænum í Reykjavík,
lauk MA-prófi í lögfræði
frá HÍ og er lögmaður hjá
Lögmönnum, Lækjargötu.
Maki: Karitas Björgúlfs-
dóttir, f. 1983, viðskipta-
fræðingur.
Dóttir: Hallgerður María
Eldjárnsdóttir, f. 2013.
Foreldrar: Árni Hjart-
arson, f. 1949, jarðfr. og
leikritaskáld, og Hall-
gerður Gísladóttir, f. 1952,
d. 2007, þjóðháttafr.
Eldjárn
Árnason
Hægt er að senda
mynd og texta af
nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Börn og
brúðhjón
Brammer Ísland ehf | Steinhella 17a | 221 Hafnarfjörður | Sími: 522 6262 | www.brammer.is
Heimsþekkt vörumerki frá öllum helstu framleiðendum í iðnaðarvörum og þetta er aðeins brot af þeim merkjum sem við bjóðum upp á
Verkfæri og öryggisvörur