Morgunblaðið - 28.10.2013, Blaðsíða 26
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2013
VIÐTAL
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
Sævar Guðmundsson er einn af fram-
leiðendum fimmtu sakamálaþáttanna
um Sönn íslensk sakamál sem Skjár
einn hefur hafið sýningar á. Leik-
stjórar þessarar nýju þáttaraðar eru
fimm, Sævar leikstýrir sjálfur fimm
þáttum og þrír leikstjórar einum
þætti hver. Sævar hóf upphaflega
vinnu við þessa þætti sem klippari og
leikstýrði síðan þremur þáttum á ár-
unum 1999-2002 og er einn af fram-
leiðendum fjórðu og fimmtu þáttarað-
arinnar.
„Þrjár seríur voru gerðar á árunum
1999-2002 og svo ein sería í fyrra
þannig að þættirnir verða orðnir í
kringum þrjátíu,“ segir Sævar. „Í
þessari fimmtu þáttaröð eru átta
þættir þar sem fjallað er um alls
kyns sakamál. Fyrsti þátturinn, sem
búið er að sýna, fjallaði um mál frá
árinu 1968. Það er ótrúleg saga sem
fáir undir fimmtugu þekkja og er
tengd komu fyrstu þotu Íslendinga
til landsins. Í þessari þáttaröð er
einnig fjallað um áhugavert mál frá
1991 svonefnt Kúluhamarsmál þar
sem Íslendingur var ákærður fyrir
að reyna að drepa konu á Íslandi á
meðan hann var í útlöndum, í ljós
kom að hann hafði þá smyglað sér
aftur inn í landið. Michelsen-ránið
síðan 2011 er einnig tekið fyrir. En
það er einmitt næsti þáttur þar sem
við fáum innsýn í glæpastarfsemi
austurevrósku mafíunnar. Elsta
málið er hundrað ára núna í nóv-
ember og fjallar um síðasta lífláts-
dóminn sem var kveðinn upp á Ís-
landi. Þetta var fyrsta
æsiblaðamennskumálið á Íslandi.
Morgunblaðið var stofnað þetta
sama ár og birti fyrstu fréttamynd
vegna þessa máls. Þetta er stór og
mikil saga og gríðarlega krefjandi í
allri sviðsetningu þar sem 80 pró-
sent af hverjum þætti eru leikin at-
riði. Þar mæðir mikið á fram-
leiðsludeildinni. Nýjasta málið sem
við fjöllum um í þáttunum er svo um
það bil tveggja ára.
Málin sem við tökum fyrir í þess-
um þáttum hafa yfirleitt komið fyrir
dóm, við byggjum mikið á dómunum
og upplýsingum sem hafa komið
fram í fjölmiðlum sem og nýjum við-
tölum og nýjum upplýsingum. Það
er mikil vinna að gera þáttaröð eins
og þessa. Að henni kemur fjöldi
manns sem vinnur oft sextán tíma á
dag.“
Eftir að gera þætti
um bankaglæpi
Í þáttunum er iðulega fjallað um
viðkvæm efni sem gæti verið sær-
andi og erfitt fyrir ýmsa, eins og til
dæmis aðstandendur, hvernig takið
þið á því?
„Við reynum að stíga eins varlega
til jarðar og hægt er þar sem þetta
er eldfimt efni og getur snert marga.
Oftast erum við í mjög góðum sam-
skiptum við aðstandendur og fórn-
arlömb, þar sem við útskýrum
hvernig við ætlum að fjalla um mál-
ið. Það samstarf gengur alltaf vel. Þó
að við reynum að gera þættina eins
nálægt því sem raunverulega gerðist
þá hikum við ekki við að breyta nöfn-
um ef ástæða þykir til en það þýðir
lítið í málum þar sem flestir þekkja
viðkomandi.“
Er af nógu að taka þegar kemur
að efnisvali?
„Já, alveg furðulega mikið og ég
held að hægt væri að gera að
minnsta kosti eina mjög góða seríu í
viðbót. Það á til dæmis alveg eftir að
gera þætti um alla bankaglæpina“
segir Sævar og brosir.
Sævar er spurður hvaða leið hann
fari í gerð þáttanna. Hann segir: „Til
að byrja með leggjum við mikla
vinnu í handritið og förum ekki af
stað fyrr en við sjáum að það virkar.
Þættirnir eru gerðir með það í huga
að vera aðgengilegir fyrir alla og
áhorfandinn þarf ekki að hafa fyr-
irfram þekkingu á málunum. Hver
þáttur er uppbyggður eins og hver
önnur bíómynd þar sem framvindan
og sagan þarf að vera áhugaverð.
Þetta eru sögur sem komast í fjöl-
miðla þar sem sagt er frá því hvað
hafi gerst og einhverjum mánuðum
seinna er réttað í málinu og fjöl-
miðlar segja lauslega frá því. Al-
menningur fær aldrei heildarsöguna
eins og við segjum hana. Í saka-
málaþáttunum er sögð sagan öll.
Þetta er nánast eins og að búa til bíó-
mynd sem byggð er á sannsögu-
legum atburðum. Þættirnir sýna
mjög vel að raunveruleikinn er oft
eins og skrýtnasti skáldskapur.
Þættirnir njóta svo þess líka að Sig-
ursteinn Másson hefur verið þulur í
þeim frá upphafi. Hann á stóran þátt
í velgengni þeirra sem og Máni
Svavarsson sem er höfundur tónlist-
arinnar. Handritin eru í höndunum á
reynsluboltum eins og Ragnhildi
Sverrisdóttur, Þóri Jónssyni og
Sölva Tryggvasyni. Það sem gerir
þættina líka áhugaverða er að þeir
gerast í nánasta umhverfi okkar. Svo
væri þetta ekki hægt nema vegna
þess hversu hjálpsöm lögreglan er.
Við tölum við lögreglumenn sem
rannsökuðu málin og þeir aðstoða
okkur eins og hægt er. Þannig get-
um við sviðsett atburði nokkuð ná-
kvæmlega. Lögreglan veit að við för-
um vel með efnið og milli okkar og
þeirra ríkir gagnkvæmt traust. Boð-
skapur þáttanna er kannski sá að
menn komast ekki upp með að
fremja alvarlega glæpi á Íslandi.“
Horfin tekjulind
Spurður um viðtökur við þátt-
unum segir Sævar að þær hafi farið
fram úr björtustu vonum. „Einn
þáttur var sýndur í fyrra í opinni
dagskrá og fékk mesta áhorf allra
þátta á öllum sjónvarpsstöðvum
þann mánuðinn. Um 95 prósent af
áhorfendum Skjás Eins horfa á Sönn
Raunveruleikinn eins og
skrýtnasti skáldskapur
Sævar Guðmundsson framleiðir Sönn íslensk sakamál
Vesturvör 32, 200 Kópavogur, Sími 564 1600 islyft@islyft.is - www.islyft.is
DísellyftararMest seldi dísellyftarinn á Íslandi•
Hydrostatic drif•
Gott ökumannshús•
Dempun á mastri•
Örugg og góð þjónusta•
Stigahúsateppi
-mikið úrval
Hágæða
Ármúli 32 - 108 Reykjavík - Sími 533 5060 / 568 1880 parketoggolf@parketoggolf.is www.parketoggolf.is
Slitsterk, afrafmögnuð, ofnæmisprófuð og samþykkt af
Brunamálastofnun. Með góðri óhreinindavörn sem lengir
líftíma teppanna.
Gerum tilboð og mælum stigahús
án skuldbindinga og kostnaðar.