Morgunblaðið - 28.10.2013, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 28.10.2013, Qupperneq 32
MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 301. DAGUR ÁRSINS 2013 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. Ísland vildi ekki sýna mynd af ... 2. Þrír á slysadeild eftir harðan ... 3. Lúxusvél í Nepal 4. Ungi drengurinn á gjörgæslu »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Egill Ólafsson hlaut á laugardags- kvöld æðstu viðurkenningu Félags tónskálda og textahöfunda er hann var sæmdur gullmerki félagsins og gerður að heiðursfélaga FTT. Agli var afhent viðurkenningin á stór- tónleikum hans í troðfullum Eldborg- arsal Hörpu. Egill sæmdur gullmerki FTT  Undiralda er tónleika- röð Hörpu í samstarfi við 12 Tóna í tengslum við Iceland Airwaves. Tvo daga verður sérstakur Undiröldubátur í smábátahöfninni við Hörpu á svokallaðri off-venue dagskrá. Þar koma fram m.a. hljóm- sveitirnar Apparat Organ Quartet og Ghostigital. Aðgangur er ókeypis. Tónleikar um borð í bát í höfninni  Jóhann Sigurðarson hlaut í gær- kvöldi viðurkenningu úr Minning- arsjóði frú Stefaníu Guðmundsdóttur. Viðurkenningin var veitt á litla sviði Borgarleikhússins á lokasýningu verksins Rautt. Sjóðurinn var stofn- aður árið 1938 af hjónunum Önnu Borg og Poul Reumert, hefur því verið starfræktur í 75 ár og „Stefaníubörn“ nú orðin 41 talsins. Markmið sjóðsins er að efla íslenska leik- list og heiðra um leið minningu frú Stefaníu Guðmunds- dóttur, móður Önnu Borg. Haut viðurkenningu úr minningarsjóði Á þriðjudag Norðaustan 5-10 m/s en allt að norðan 15 m/s með austurströndinni. Lítilsháttar él fyrir norðan og austan, en annars bjartviðri. Frost víða 2 til 7 stig, en frostlaust syðst. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 8-18 m/s, hvassast vestast. Dálítil rigning, snjókoma eða slydda á norðanverðu landinu en annars bjart að mestu. Hiti kringum frostmark. VEÐUR Íslandsmeistarar Keflavíkur eru áfram með fullt hús stiga á toppi Dominos- deildar kvenna í körfuknatt- leik eftir níu stiga sigur á grönnum sínum í Njarðvík í gærkvöld, 73:64, í 5. um- ferð. Snæfell vann stórsigur á KR í Vesturbænum og Hamar vann Grindavík 70:65. Á laugardaginn höfðu Haukar lagt Val örugglega í Vodafonehöll- inni. »4 Keflavík áfram á sigurbraut Fernando Torres er kominn í gang. Nægan tíma hefur það tekið en þrjú mörk í síðustu tveimur leikjum kveikja vonandi í Spánverjanum frábæra sem aldrei hefur náð að standa undir verðinu sem Chelsea borgaði fyrir hann á sínum tíma. Torres var al- gjörlega magnaður gegn City í stórleik helgarinnar þegar Chelsea og Man- chester City áttust við. »7 Torres er kominn í gang eftir nokkur mögur ár „Ég er stoltur af liðinu þrátt fyrir tap- ið. Það lék vel við afar erfiðar að- stæður þar sem við vorum með á þriðja þúsund áhorfendur á móti okk- ur. Í slíku umhverfi er auðvelt að fara á taugum,“ sagði Ágúst Jóhannsson, landsliðsþjálfari kvenna í handknatt- leik, eftir eins marks tap, 19:18, fyrir landsliði Slóvaka á útivelli í gær í undankeppni Evrópumótsins. »2 Stoltur þrátt fyrir tap á móti Slóvökum í Sala ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson rithöf- undur vinnur nú að röð myndverka sem byggjast á gamalli þjóðar- íþrótt, fimmauraharki. Verkin eru unnin með blandaðri tækni, vatns- litum, akríl og vaxi á pappír, en síð- an límir Sigmundur fimmeyringa og aðra gamla mynt yfir í anda harks- ins. Forsagan er sú að Sigmundur átti reiðinnar býsn af gamalli smámynt, frá konungstímanum og lýðveld- ispeningum eftir 1944, sem hann vissi ekki hvað hann átti að gera við. „Ég er safnari í eðli mínu og safn- arar henda aldrei neinu. Frúin talar gjarnan um að hún vilji fara á und- an mér svo það komi ekki í hennar hlut að taka til í öllu draslinu,“ segir hann sposkur. Gamlir tímar rifjuðust upp Það var fyrr á þessu ári sem Sig- mundur fór að gefa þessari gersemi gaum en hana var að finna á vísum stað í allmörgum dósum. „Þegar ég fór að handfjatla fimmaurana rifj- uðust upp gamlir og góðir tímar á Grettisgötunni og nágrenni þegar fimmauraharkið var stundað af miklu kappi.“ Þegar Sigmundur fór að velta fyrir sér hvað hann ætti að gera við myntina kom upp sú hugmynd að gera myndir úr henni og kalla seríuna Fimmaurahark. Hann hefur þegar lokið við þrjátíu myndir og á efni í um tíu til viðbótar. Myndirnar eru til sölu. Mynstur myndanna er rammíslenskt; sólarlag og hraunveggur í ýmsum litum, hverir og gufa. Auk fimmeyringanna eru á mynd- unum einseyringar, tvíeyringar, tíeyringar, krónur úr kopar og áli og allt upp í 50 króna mynt. „Með hækkandi verðlagi fóru menn að kasta krónum í stað aura.“ Sigmundur hefur frá unga aldri fengist við myndlist í frístundum og hélt til að mynda sýningu fyrir rúm- um tuttugu árum þar sem verkin seldust upp – áður en sýningin var opnuð. „Eftir að ég fékk 10 í teikn- ingu hjá Jóni Guðmundssyni í Mið- bæjarskólanum fór ég í Myndlista- og handíðaskólann og hef haldið mér við síðan. Ég sinni þessu á kvöldin og um helgar. Myndlistin skapar ró og dreifir huganum.“ Á daginn er Sigmundur úti á rit- vellinum og eru verkefnin marg- vísleg. Síðast sendi hann frá sér sögu Íslandsmótsins í knattspyrnu, tvö bindi. Það má því segja að hann hafi farið úr sparkinu í harkið! Úr sparkinu í harkið  Óður Sigmundar Ó. Steinarssonar til fimmauraharksins Morgunblaðið/Ómar Listaverk Sigmundur Ó. Steinarsson með myndir úr seríunni og sýnishorn af dósunum sem hann geymdi myntina í. Fimmaurahark var geysivinsæl „íþrótt“ meðal ungmenna upp úr miðri síðustu öld. Iðkuð í húsasundum og skólaportum, löngu fyrir tíma spilakassanna og tölvuleikjanna. Sá keppandi sem var næstur striki fékk að kasta öllum pening- unum upp og valdi fimmaurinn eða kórónuna. Fékk þá peninga sem komu upp með hans vali. Síðan var kastað upp koll af kolli þar til allir peningar voru gengnir út. Hófst þá harkið aftur. Hægt var að skipta verðmætari peningum og fá fimm aura í staðinn – til að geta haldið áfram í harkinu, þegar keppnin stóð sem hæst! Menn beittu ýmsum aðferðum í harkinu og voru mislagnir. Spurður hvernig leikmaður hann hafi verið glottir Sigmundur við tönn: „Ég var býsna seigur!“ Ég var býsna seigur! FIMMAURAHARKIÐ NAUT MIKILLA VINSÆLDA Fimmeyringur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.