Morgunblaðið - 09.11.2013, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2013
Morgunblaðið birtir fram til jóla upplýsingar um einhverja þeirra
viðburða sem eru á dagskrá vítt og breitt um landið.
44 dagar til jóla
Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi,
selur jólakort og merkispjöld til að fjármagna starfsemi
sína. Á kortunum í ár er myndin Jólagleði eftir lista-
mennina Sigríði Björgu Haraldsdóttur og Björgvin
Björgvinsson sem unnu myndina sérstaklega fyrir félag-
ið og gáfu til birtingar á kortunum.
Jólakortin eru seld 8 saman í pakka ásamt umslögum
á 1500 krónur. Merkispjöldin eru 8 saman í pakka og eru
seld á 500 krónur. Hægt er að kaupa kortin hjá Blindra-
félaginu, Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík, sími 525 0000
eða senda tölvupóst á netfangið blind@blind.is.
Blindrafélagið selur jólakort
Árlegur jólabasar Kvennadeildar
Rauða krossins í Reykjavík verður
haldinn laugardaginn 9. nóvember
frá kl. 13-16 í húsi Rauða krossins
að Efstaleiti 9.
Ágóði af sölunni rennur til Fjöl-
skyldumiðstöðvar Rauða krossins
sem rekin er með aðkomu Reykja-
víkurborgar og velferðarráðuneyt-
isisins.
Fram kemur í tilkynningu, að á
boðstólum verði fallegir handunnir
munir sem tengjast jólunum og
gómsætar kökur.
Kvennadeild Reykjavíkurdeildar
Rauða krossins var stofnuð árið
1966. Félagar í Kvennadeildinni
eru um 700 en starfandi sjálf-
boðaliðar um það bil 250. Fjáröflun
byggist á rekstri sölubúða í sjúkra-
húsum, föndri, kökubasörum og
sölu minningarkorta.
Á vakt Gyða Gunnarsdóttir stendur vakt-
ina á jólabasarnum í fyrra.
Jólabasar Kvenna-
deildar Rauða krossins
Jólakortasalan er hafin hjá Hjarta-
heillum en samtökin hafa um árabil
verið með jólakortasölu fyrir jólin
til tekjuöflunar.
Jólakortin eru sex í pakka sem
kostar 1.500 krónur. Hönnuður
kortanna er Garðar Pétursson
grafískur hönnuður.
Jólakortin fást á skrifstofu
Hjartaheilla, Síðumúla 6, Reykja-
vík. Einnig er hægt að hringja í
síma 552 5744 og panta kort eða
senda tölvupóst á
hjartaheill@hjartaheill.is
Jólakortasala
Hjartaheilla hafin
Jólakort MS-félagsins í ár skartar
málverki eftir Eddu Heiðrúnu
Backman sem er málað með pensli í
munni.
Verkið ber nafnið Hvert örstutt
spor. Átta kort saman í pakka kosta
1.000 krónur.
Málverk Jólakort MS-félagsins í ár.
Mynd eftir Eddu
Heiðrúnu á jólakorti
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Sruli Recht, hönnuður og listamað-
ur, fullyrðir að leturgerðin sem
prýðir umbúðir á vatnsflöskum Ice-
landic Glacial sé sú sama og hann
hannaði ásamt öðrum og notuð er í
vörum fyrirtækis hans.
Vatnið er á markaði í Bandaríkj-
unum og er í eigu fyrirtækisins Ice-
landic Water Holdings ehf. sem Jón
Ólafsson á.
Hönnuður óskaði eftir að kaupa
en var hafnað
Upphaf málsins er rakið til ársins
2011, þá fékk Sruli Recht tölvupóst
frá Jacklyn Franklin sem titlaði sig
listrænan stjórnanda Team One í
Los Angeles. Hún óskaði eftir því að
kaupa téða leturgerð. Recht sagði að
leturgerðin væri ekki til sölu því
hann vildi ekki að annað fyrirtæki en
sitt eigið notaði hana. Umrædd let-
urgerð var hönnuð fyrir tæpum tíu
árum.
Það var ekki fyrr en ári seinna, í
október 2012, að Scruli Recht fær
senda mynd af vatnsflöskunni frá
Bandaríkjunum. Félagi hans sendi
honum myndina því hann þóttist
kannast við leturgerðina.
Þegar betur var að gáð komst
hann að því að Jacklyn Franklin var
skráð sem hönnuður vatnsflösk-
unnar, sú hin sama og óskaði eftir að
kaupa leturgerðina, og eigandi fram-
leiðslunnar er fyrirtækið Icelandic
Water Holdings ehf.
„Ég var mjög ósáttur þegar ég sá
umbúðirnar. Þetta fer ekki á milli
mála,“ segir Recht. Honum þykir
forkastanlegt að fyrirtækið hrein-
lega steli ákveðinni hönnun. „Þetta
er augljóst, þar sem áður var óskað
eftir að kaupa letrið,“ segir Sruli
Recht.
Eftir þetta hafði hann samband
við lögfræðing.
„Við erum að skoða réttarstöðu
Rechts,“ segir Vihjálmur H. Vil-
hjálmsson, lögfræðingur hans. Ekki
var sótt um einkaleyfi fyrir let-
urgerðinni.
Gamalt letur sem sjá má víða
„Þetta er gamalt letur sem sjá má
víða. Þessi leturgerð er ekki í eigu
hans,“ segir Jón Ólafsson, eigandi
Icelandic Water Holdings ehf., um
leturgerðina í vörumerkinu Ice-
landic Glacial.
Jón kannast ekki við að óskað hafi
verið eftir því að kaupa leturgerðina,
hvorki við hann né einhvern á hans
vegum. Auglýsingaskrifstofan Team
One var fengin til að hanna útlit og
vörumerki fyrir vatnið og alfarið sjá
um það að hans sögn. Sú auglýs-
ingastofa er í eigu Saatchi & Saatchi.
Jón fullyrðir að merkið hafi fengið
vörumerkjavernd. Það sé búið að
fara í gegnum ferli til að tryggja að
það sé löglegt og rétt.
Icelandic Water Holdings ehf.
barst bréf frá lögfræðingi Rechts.
Þar er þess m.a. krafist að fyrir-
tækið hætti þegar í stað notkun á
vörumerkinu og innkalli vörurnar
sem eru í umferð.
Þessu bréfi var svarað og erindinu
hafnað. Vísað var til útskýringa
hönnunarstofunnar, sem hannaði
umbúðirnar, á notkun letursins. Þar
kemur fram að notast hafi verið við
letrið Octavian MT Regular, sem sé
þekkt letur, rétt eins og Times New
Roman. Nokkrum stöfum hafi verið
breytt og það notað fyrir Icelandic
Glacial.
„Það er því alveg ljóst hver upp-
runi letursins er og jafnframt að
ekki er verið að brjóta á höfund-
arrétti Srulis Rechts,“ segir Lovísa
Jónsdóttir, hugverkalögfræðingur
hjá Icelandic Water Holdings.
Recht segir leturgerðina stolna
Sruli Recht fullyrðir að leturgerðin á umbúðum á vatnsflöskum Icelandic Glacial sé stolin
Forsvarsmenn Icelandic Water Holdings vísa því á bug og segja letrið unnið úr þekktu letri
Umbúðir Vatnsflaska Icelandic Glacial sem er á markaði í Bandaríkjunum. Letur Vopnabúrið hýsti áður vinnustofu Srulis Rechts með leturgerðinni.
Sruli Recht Jón Ólafsson
Norræna bókasafnavikan hefst á
mánudag með sameiginlegum upp-
lestri á sama texta á öllum Norð-
urlöndunum og í Eystrasaltsríkj-
unum.
Alls eru rúmlega 1.700 bókasöfn
og stofnanir frá 11 löndum skráð til
leiks, þar af rúmlega 130 á Íslandi.
Þema ársins er „Vetur á Norð-
urlöndum.“
Norræn bókasafna-
vika að hefjast
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Límtil flestra
nota
Skeifunni 11 | Sími 515 1100 www.rekstrarland.is
Hafið samband við sölumenn Rekstrarlands og leitið tilboða.
Rekstrarland er byggt á fyrrum rekstrarvörudeild Olís
og er dótturfyrirtæki Olíuverzlunar Íslands hf.
Samsettir fjáröflunarpakkar eða sérsniðnir eftir óskum hópsins
Öflug fjáröflun
fyrir hópinn