Morgunblaðið - 09.11.2013, Blaðsíða 50
50 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2013
Hildigunnur Gunnarsdóttir fer í sameiginlega afmælisveislusamstarfsfólks síns í Kvennaskólanum í kvöld, á 55 ára af-mælisdaginn. Hún er gestur en svo vill til að hún er sú eina
sem á afmæli í dag.
„Mér finnst best að vera með fjölskyldunni og elda heima fyrir
börnin,“ segir Hildigunnur Gunnarsdóttir, náms- og starfsráðgjafi
og framhaldsskólakennari, þegar hún er spurð hvernig hún haldi
upp á afmælisdaga. Hún er búsett á Seltjarnarnesi og á þrjú börn.
Maður hennar er Ásbjörn Jónsson.
Hildigunnur á eins og margir sérstaklega eftirminnilega afmælis-
daga. Þegar hún varð þrítug fór hún á tónleika með Kim Larsen og
fimmtug hélt hún veglega afmælisveislu. Sú veisla var skömmu eftir
að almenningi varð ljóst að fjármálakerfið væri hrunið. Hún hætti
ekki við veisluna og segir að fólki hafi þótt gott að geta lyft sér að-
eins upp við þessar erfiðu aðstæður.
Dagurinn í dag gæti einnig orðið eftirminnilegar. Hildigunnur
verður með dóttur sinni á fimleikamóti á Akureyri en mætir í kvöld
á afmælisball sem samstarfsfólk hennar í Kvennaskólanum hefur
boðið til. Margir hafa átt stórafmæli á árinu, ekki síst í nóvember,
og slá saman í eina samkomu. Hildigunnur ætlar að skemmta sér
þar sem gestur, þótt svo vilji til að hún er sú eina úr hópnum sem á
afmæli í dag. helgi@mbl.is
Hildigunnur Gunnarsdóttir 55 ára
Ljósmynd/Erling
Hópur Hildigunnur Gunnarsdóttir með fjölskyldunni, frá vinstri:
Jón Gunnar, Hildigunnur, Arndís, Ásbjörn og Ásbjörn Daníel.
Mætir á afmælis-
ball samstarfsfólks
Íslendingar Pétur Atli Lárusson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
90 ára Hjónin Rannveig Margrét Jónsdóttir og Kristján Hjörtur Gíslason
fagna tvöföldu níutíu ára afmæli í nóvember. Rannveig er níræð í dag, 9. nóv-
ember, en Hjörtur verður níræður 23. nóvember. Þau eru fyrrum ábúendur á
Fossi í Staðarsveit, nú búsett í Kópavogi. Þau verða að heiman á afmælisdegi
Rannveigar, en á afmælisdegi Hjartar, laugardaginn 23. nóvember, verður heitt á
könnunni fyrir vini og vandamenn, frá kl. 14 til 17, á Háaleitisbraut 133, Reykjavík.
Árnað heilla
Guðlaug F.
Bárðardóttir og
Ólafur Þ.
Guðmundsson,
Stekkjargötu 43,
Reykjanesbæ,
eiga fimmtíu ára
brúðkaups-
afmæli í dag, 9.
nóvember. Þau
munu verja deg-
inum í faðmi fjöl-
skyldu sinnar.
Gullbrúðkaup
P
jetur Stefánsson fæddist
í Reykjavík 9. nóv-
ember 1953 og gekk í
Austurbæjarskóla.
Hann hóf nám í Mynd-
lista-og handíðaskóla Íslands 1978,
var í grafíkdeild og nýlistadeild og
útskrifaðist 1984. Hann hóf mast-
ersnám í listkennslu við Listahá-
skóla Íslands 2012 og lýkur því í
vor.
Myndlistarmaðurinn
Pjetur hefur unnið að myndlist
frá 1976 og haldið fjölmargar
einkasýningar og samsýningar
heima og erlendis. „Ég hef starfað
að myndlist og rannsakað birting-
armyndir t.d. expressjónisma með
margbreytilegum aðferðum. Allt
frá teikningu til samsettra mynd-
verka og ljósmynda. Samtíminn er
kominn með margt sem maður sá
fyrir 30 til 40 árum að yrði ofan á í
myndlist. Sennilega er stafræna
hliðin á myndlistinni einhver
merkilegasta nýjung sem fram hef-
ur komið í listum. Eina takmörk-
unin er rafmagnsleysi en þá getur
ímyndunaraflið einfaldlega tekið
við.“
Önnur sjálf
Pjetur starfaði einnig sem leik-
myndateiknari/grafískur hönnuður
hjá Ríkisútvarpinu 1987-2008.
Hann hefur haldið úti sinni eigin
hljómsveit, PS&CO, sem laga- og
textahöfundur, gítarleikari og
söngvari, auk þess að vera gít-
Pjetur Stefánsson, myndlistar- og tónlistarmaður – 60 ára
PS & CO „Mín fyrsta tónlistarupplifun á lifandi músík var í gamla Iðnó á jólaballi með Ólafi Gauki þar sem ég var á
sviðinu og gítartónarnir léku við mig sem andvari eða vindur og víbruðu mig inn að beini.“
Tíminn líður hratt
með aukasjálfunum
Pjetur „Myndlistin er alls staðar.“