Morgunblaðið - 09.11.2013, Blaðsíða 43
MINNINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2013
✝ Grétar PállGuðfinnsson
fæddist á Patreks-
firði 16. desember
1928. Hann lést á
Heilbrigðisstofn-
unni á Patreksfirði
30. október 2013.
Foreldrar hans
voru Guðfinnur
Einarsson, bygg-
ingameistari á Pat-
reksfirði, f. 1. sept-
ember 1883 á Lambleiksstöðum
á Mýrum, d. 30. júlí 1948, og
Markúsína Áslaug Mark-
úsdóttir, húsfrú á Patreksfirði
og síðar í Reykjavík, f. 20. októ-
ber 1905 í Krók, Rauðasands-
hreppi, d. 4. desember 1987. Al-
systkini Páls voru Bára, f. 16.9.
1927, d. 28.10. 1940 og Arnheið-
ur, f. 31.1. 1931, d. 23.8. 2004.
Hálfsystkini samfeðra voru
Hólmfríður Einína Margrét, f.
18.10. 1905, d. 1928 og Páll, f.
24.6. 1908, d. 30.10. 1968, þau
fluttu bæði ung til Vesturheims
börn. 8) Páll, f. 26.4. 1962, maki
Bára Einarsdóttir, hann á fjög-
ur börn. 9) Sigurbjörg, f. 15.5.
1964, maki Helgi Auðunsson,
hún á fjögur börn. 10) Harpa, f.
27.9. 1966, maki Víkingur
Traustason, hún á þrjú börn. 11)
Nanna, 16.12. 1968, maki Egg-
ert Matthíasson, þau eiga tvö
börn. 12) Finnbogi Hilmar, f.
22.3. 1970, maki Nicola Pálsson
þau eiga fjögur börn. 13) Krist-
jana Guðný, f. 15.7. 1972, maki
Guðni Rafnsson, hún á tvö börn.
Afkomendur Páls og Nönnu eru
nú komnir yfir 100 talsins.
Páll bjó alla sína ævi á Vatn-
eyri, Patreksfirði, og nánast í
sama húsinu á Klifinu eða um
60 ár en seinni árin bjó hann í
þjónustuíbúð fyrir aldraða. Páll
var húsasmíðameistari að
mennt og var sjálfstæður at-
vinnurekandi til fjölda ára, var
með mörg stór verk á þeim ár-
um og eftir hann standa mörg
hús sem hann hefur byggt.
Einnig vann hann við Mjólk-
árvirkjum og reisti spennistöðv-
ar víða um land fyrir Rafmagns-
veitur ríkisins.
Útför Páls fer fram frá Pat-
reksfjarðarkirkju í dag 9. nóv-
ember 2013, og hefst athöfnin
klukkan 14.
með móður sinni.
Hinn 26. desem-
ber 1951 kvæntist
Páll konu sinni
Jónu (Nönnu)
Sörladóttur, f. 10.
maí 1931 í Kjós,
Árneshreppi, d. 15.
september 1998.
Páll og Nanna
eignuðust þrettán
börn: 1) Guðfinnur
Davíð, f. 15.5. 1950,
maki Herdís J. Agnarsdóttir, og
eiga þau tvö börn. 2) Kolbrún, f.
23.5. 1951, maki Oddur Guð-
mundsson, hún á fjögur börn. 3)
Bára Margrét, f. 4.2. 1953, maki
Ólafur Magnússon, látinn, hún á
tvö börn. 4) Einar, f. 21.1. 1955,
maki Arndís Harpa Ein-
arsdóttir, þau eiga fimm börn.
5) Áslaug Björg, f. 1.2. 1957,
maki Richard M. Wilson, þau
eiga fjögur börn. 6) Steinunn, f.
15.9. 1958, hún á þrjú börn. 7)
Sigríður, f. 30.9. 1959, maki
Bjarki Pétursson, hún á tvö
Einhvern veginn er og verð-
ur maður alltaf barn í hjartanu
gagnvart foreldrum sínum.
Elskulegi pabbi minn, þá er
kallið komið og þú færð nú
hvíld frá þínum veikindum en
mikill er söknuðurinn að hitta
þig ekki lengur og sjá ekki
brosið þitt og nú heilsar manni
ekki neinn lengur með þínum
hætti og kyssir á handarbakið
og segir „sæl vina mín“. Dengi
varst þú alltaf kallaður á þínum
yngri árum og við vorum kennd
við þig sem Dengabörn. Þær
eru margar minningarnar sem
bregður fyrir nú þegar ég
hugsa til baka og sérstaklega til
æskuáranna, þú að baða okkur
elstu systkinin uppúr bala á
eldhúsgólfinu og klippa neglur
(reyndar notaðir þú oftast vasa-
hnífinn þinn) og að greiða okk-
ur. Þó þú hafir ekki verið mjög
húslegur við almenn heimilis-
störf þá var þetta þitt verk og
mamma sá um allan hinn pakk-
ann, t.d. að rétta þér kaffiboll-
ann og færa þér sokkana (svona
í gríni) því þú varst af þeirri
kynslóð þar sem karlmenn voru
ekki að standa mikið í eldhúsinu
eða öðru sem taldist kven-
mannsverk. Það var oft kátt í
koti með þrettán börn, níu
stelpur og fjóra stráka, en öll
virtum við þig mikils og hlýdd-
um því sem þú sagðir. T.d. þeg-
ar fréttir voru í útvarpinu því af
engum fréttatíma máttir þú
missa og hélst það alveg til
dauðadags. Matur og kaffi varð
að vera á réttum tíma og oft í
seinni tíð höfum við brosað að
þinni sérvisku að geta ekki
drukkið kaffið fyrr en á slaginu
hálffjögur en þar kemur örugg-
lega til Kambara-sérviskan sem
við öll eigum að vera svo fræg
fyrir. Ég man líka þegar ég
keypti mína fyrstu fasteign að-
eins tvítug og þú fórst með mér
í bankann og lán fékk ég.
Þú varst mjög stoltur af öll-
um þínum börnum og afkom-
endum og sagðir oft að þú værir
ríkasti maðurinn á Íslandi. Ég
held að fáir hafi haft eins mikla
trú á mér og hvatt mig áfram í
öllu sem ég hef tekið mér fyrir
hendur eins og þú gerðir alltaf.
Þú fylgdist vel með barnabörn-
um þínum og varst mjög glaður
þegar vel gekk, eins gat líka
vottað fyrir brosi hjá þér þegar
einhverjir dóttur- eða sonarsyn-
irnir urðu of fyrirferðarmiklir
sem stundum gerðist.
Þú varst mikill Vatneyringur
og oft hafði maður gaman af,
eins og þegar ég ákvað að skíra
verslun sem ég átti um tíma
„Geirseyrarbúð“ og bar nafnið
undir þig, þá sagðir þú: „Jú, jú,
ágætt og allt í lagi en mundu að
þú ert og verður alltaf Vatneyr-
ingur.“ Tveir bræður mínir fet-
uðu í þín fótspor og lærðu hjá
þér húsasmíði og urðu þar af
leiðandi þriðja kynslóð trésmiða
hér á Patreksfirði af okkar ætt,
þótt hugur þeirra hafi síðar
beinst í aðrar áttir. Fótbolta-
áhugi þinn var ótrúlegur, ég
minnist sumarsins áður en
mamma lést hvað hún var leið
að komast ekki í „Selið“, sum-
arbústaðinn ykkar, vegna þess
að HM var í sjónvarpinu.
En pabbi minn, takk fyrir
allt, þú varst sannkallaður höfð-
ingi, vanur að hafa fullt af fólki í
vinnu fyrr á árum og hafðir því
lag á að láta okkur, sérstaklega
stelpurnar, stjana við þig allt til
enda en það var líka allt í lagi
því þú áttir það svo sannarlega
skilið. Hvíldu í friði, elsku pabbi
minn, og guð veri þér náðugur.
Þín dóttir,
Kolbrún.
Elsku pabbi, nú er þinni jarð-
vist lokið og er ég viss um að þú
hafir fagnað hvíldinni, síðustu
vikur voru orðnar þér mjög erf-
iðar. Ég veit að mamma hefur
tekið vel á móti þér. Ég hef oft
hugsað síðustu ár hvað það
hlýtur að hafa verið þér erfitt
að missa heilsuna á besta aldri
þegar þú fékkst heilablóðfallið
og lamaðist fyrir tæpum 30 ár-
um. Svo verður þú fyrir miklu
áfalli þegar mamma féll frá fyr-
ir 15 árum.
Við systkinin reyndum okkar
besta að láta þér líða vel eftir
því sem heilsu þinni hrakaði, þú
varst ánægður niðri á Kambi og
okkur fannst gaman að sjá alla
samheldnina hjá þeim eldri
borgurum sem þar búa, það var
oft glatt á hjalla þegar þú, Að-
alheiður Kolbeins og Maggý
voruð sest út og Aðalheiður að
segja brandara. Þú hafðir gam-
an af því að fá barnabörnin,
langafabörnin og börn almennt
í heimsókn og áttir alltaf fleiri
dósir af Mackintosh-nammi til
þess að bjóða þeim, enda voru
þau vön að kalla þig nammi-afa.
Þú varst fæddur og uppalinn
á Patró og það eru öll þín börn
líka, ég minnist æskuáranna
með gleði því við vorum heppin
með ykkur sem foreldra, jafn
ólík sem þið mamma voruð, þú
vildir aga en mamma lét flest
eftir okkur. Ég sé ekki fyrir
mér matarborð í dag með 13
börnum eins og var heima á
Klifi. Við sátum hljóð yfir frétt-
um og borðuðum, svo þegar
fréttatíminn var búinn þá
heyrðist nú í okkur öllum. Þú
kenndir flestum okkar á skíði,
ég man eina páska þá fóruð þið
mamma með krakkaskarann
fram í dal á skíði.
Þú sagðir okkur oft söguna
um það hvar þú sást mömmu
fyrst, þá var hún á 100 km (lík-
legt) hraða niður skíðabrekku á
Ísafirði og þú sást þessa fallegu
stúlku sem þér fannst þú verða
að kynnast betur og skreiðst
inn um glugga á elliheimilinu
sem mamma vann á til þess að
reyna að heilla hana og það
tókst þér svo sannarlega.
Flest okkar eldri barna þinna
fengu vinnu hjá þér þar sem þú
varst alltaf með vinnuflokka að
smíða. Ég fékk vinnu hjá þér
við að hjálpa til í mötuneyti á
Ísafirði. Ég minnist sumranna í
Mjólkárvirkjun, þá var mamma
með okkur öll með sér og sá um
eldamennskuna fyrir vinnu-
flokkinn.
Það var þér mikið áfall þegar
þyrlan fórst 1975 með 7 manns
og móðuramma okkar Sigur-
björg þar á meðal en þyrlan var
á leið til þín upp á Kleifárvelli á
Snæfellsnesi þar sem þú varst
að byggja spennistöð og amma
var ráðskona hjá þér þá.
Ég minnist allra veiðiferð-
anna okkar í Fjarðarhorn eftir
að þú veiktist. Þá varst þú
heima í veiðihúsi en þú sagðir
okkur mömmu hvar væri best
að veiða. Yfirleitt var mamma
duglegri en ég að fá lax og þú
svo stoltur af henni. Þér og
mömmu þótti nú aldeilis gaman
að fara í veiði og var það ykkar
aðaltómstundargaman. Í dag
eru afkomendur þínir, börn,
barnabörn og langafabörnin,
komnir yfir hundrað en þú
hafðir nú ansi gaman af því að
heyra okkur telja allt liðið upp
og fá fréttir þegar nýr fjöl-
skyldumeðlimur fæddist. En
núna er komið að leiðarlokum
hjá þér, pabbi minn, og þakka
ég þér okkar samverustundir.
Hvíl í friði, pabbi minn.
Bára Pálsdóttir.
Þá er nú síðasti hreinræktaði
kambarinn farinn frá firðinum
fagra Patreksfirði, og eftir
stöndum við systkinin 13 sem
erfðum kambara-þrjóskuna frá
pabba, það segja alla vega mak-
ar okkar. Í einum texta er
sungið „pabbi minn er ríkari en
pabbi þinn“, en ég get sagt að
minn pabbi hafi verið ríkastur
allra, hann á orðið yfir 140 af-
komendur, gera aðrir betur.
Ekki get ég sagt að ég komi
nokkurn tíma til með að feta í
hans fótspor, það er alveg á
hreinu. Ég ætla einhverjum
öðrum að rifja upp æviágrip
pabba míns.
Á mínum yngri árum samdi
okkur pabba ekki alltaf vel en
þar kom þá kambara-þrjóskan
best fram í okkur báðum. Ég
hef alltaf haft munninn fyrir
neðan nefið og reifst oft um úti-
vistartíma og pólitík en pabbi
var fæddur krati, hann hætti
svo í Alþýðuflokknum eftir að
hann sameinaðist öðrum flokk-
um en eftir það vildi hann ekk-
ert um flokkinn sinn vita. Núna
síðari árin passaði pabbi vel
upp á að við systkinin hefðum í
nógu að snúast og þá aðallega í
kringum hann, ein var að baka,
önnur að steikja fiskibollur, ein
að skúra gólf en á meðan sat
pabbi og hafði gaman af og
brosti sínu blíðasta. Stundum
fór stjórnsemi pabba langt út
fyrir mörkin, hann passaði vel
upp á nágrannakonu sína að
hún tæki þvottinn inn áður en
það færi að rigna. Hann var
sannur húsbóndi á sínu heimili
og vildi hafa sitt á hreinu, hann
átti alltaf nóg í frystikistunni og
sá til þess að hún væri aldrei
tóm.
Pabbi var ekki sjónvarps-
vænn maður, hann skipti um
stöðvar eins og enginn væri
morgundagurinn og ruglaði í
sjónvarpinu þangað til allt var
farið í skrall, þá kom sér vel að
eiga alla þessa yndislegu afa-
stráka sem voru boðnir og bún-
ir að aðstoða afa sinn. Mamma
og pabbi voru góðir foreldrar,
þau ólu upp sín 13 börn og
víluðu ekki fyrir sér að taka
barnabörnin í fóstur. Þau ólu að
mestu leyti upp annan son
minn. Rúnar Arnar sonur minn
dvaldi líka mikið hjá afa og
ömmu, en þeir voru ekki einu
börnin sem þau voru mikið með.
Hafðu þökk fyrir allt, elsku
besti pabbi minn, og með þess-
um orðum kveð ég þig.
Langt í vestri vakir byggðin mín
vinaleg í faðmi brattra fjalla.
Unaðsleg hún ól upp börnin sín
er þau hlupúum strönd og græna
hjalla.
Roðagylltur Rauðisandur er.
Rís úr hafi landsins ysti vörður.
Ævinlegáer efst í huga mér
æskuslóðin kæra, Patreksfjörður.
(Ómar Ragnarsson)
Sigríður Pálsdóttir.
Grétar Páll
Guðfinnsson
✝ Jóhanna Magn-úsdóttir fædd-
ist 24. júní 1923.
Hún lést 27. október
2013.
Jóhanna var dótt-
ir hjónanna Magn-
úsar Jónsson frá
Brúnarstöðum í
Fljótum og Maríu
Sumarrósar Er-
lendsdóttir frá Ámá
í Héðinsfirði. Eign-
uðust þau þrjú börn sem létust
barnung en önnur börn þeirra
voru: Unnur, f. 7. september
1917, d. 1984, María, f. 22. maí
1920, d. 1979, Haraldur, f. 7.
ágúst 1926, d. 1981, Elínóra Guð-
ar Bergmann, fæddur 25. júní
1948, d. 2000. Ævar Bergmann,
f. 9. mars 1953, kvæntur Guð-
laugu Friðriksdóttur, f. 14. jan-
úar 1958, þau eiga þrjár dætur.
Sigrún Jóhanna, f. 5. janúar
1961, hún á einn son. Barna-
barnabörnin eru 16 talsins.
Jóhanna og Jónas kynntust ár-
ið 1945 og hófu sambúð. Þau
keyptu efri hæð á Grundargötu 6
á Siglufirði og bjuggu þar til
1960. Þá fluttu þau á Hvanneyra-
braut 44 á Siglufirði þar sem þau
bjuggu til æviloka. Sem ung
stúlka var Jóhanna í vist og vann
síðan í síldarsöltun og fisk-
vinnslu. Lengst af var hún
heimavinnandi húsmóðir. Síð-
ustu árin dvaldi hún á Skálahlíð
og Heilbrigðisstofnun Siglu-
fjarðar.
Útför Jóhönnu fer fram frá
Siglufjarðarkirkju í dag, 9. nóv-
ember 2013, og hefst athöfnin kl.
14.
laug, f. 2. apríl 1929,
og Jón Símon, f. 15.
ágúst 1931, d. 1996.
Jóhanna giftist
Jónasi Bergmanni
Guðmundssyni mál-
ara frá Ísafirði f. 9.
mars 1922, d. 27.
september 1991.
Foreldrar hans
voru Guðmundur
Guðjónsson og Mar-
grét Sakaríasdóttir.
Jóhanna og Jónas eignuðust fjög-
ur börn. Þau eru: Magnús Berg-
mann, f. 11. mars 1946, kvæntur
Margréti Dórótheu Mar-
onsdóttir, fædd 24. september
1946, og eiga þau þrjá syni. Óm-
Fyrir um 40 árum kom ég
fyrst til Siglufjarðar ung stúlka
að hitta tilvonandi tengdafor-
eldra mína Jóu og Jónas. Með
okkur tókst góður vinskapur.
Alltaf þegar við komum norður
á Siglufjörð tók Jóa á móti okk-
ur með hangikjöti og seinna
meir á meðan heilsan leyfði
þegar hún var komin upp á
Skálahlíð fór hún niður í íbúð
og beið þar með hangikjötið.
Enda minnast dætur mínar
þess í heimsóknum til ömmu og
afa á Sigló að amma beið alltaf
með hangikjöt.
Jóa var mikil punturófa og
naut þess að klæða sig og gera
sig fína, enda hafði hún aldrei
farið í síðbuxur fyrr en hún
missti heilsuna og dvaldist á
sjúkrahúsinu. Það var ósjaldan
sem ég fór með Jóu í félagsvist
og í bingó. Síðan gátum við set-
ið fram á nótt og spjallað sam-
an. Jóa var mikill gleðipinni og
síðast nú í sumar sátum við hjá
henni á sjúkrahúsinu og var
henni boðið kaffi, nei takk, ég
ætla ekki að fá því ég er að
fara á ball, sagði mín eldhress.
Eftir að Jónas dó árið 1991
flutti Jóa fljótlega í Skálahlíð
en síðustu 6-7 árin hafa verið
henni erfið og dvaldist hún á
Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar
þar sem hún naut einstakrar
umönnunar sem ber að þakka.
Hvíl í friði, elsku tengdamanna.
Guðlaug Friðriksdóttir.
Elsku Jóa mín.
Nú er verið að leita að feg-
ursta orðinu í íslensku og hafa
margir komið með ansi
skemmtilegar tillögur. Mér
finnst júhú vera mjög fallegt
orð vegna þess að það minnir
mig á þig. Þú varst vön að kalla
þessa kveðju til okkar á efri
hæðinni í hvert sinn sem þú
komst heim eftir hinar daglegu
bæjarferðir þínar. Stundum var
oft á dag kallað glaðlega júhú
upp í eldhúsgluggann. Í þessu
orði felst, í mínum huga, gleði
og vingjarnleg kveðja, oftast
fylgt af dillandi hlátri þínum.
Ég var svo heppin að búa í
sama húsi og þú og hef þekkt
þig alla mína ævi. Það var alltaf
mikill samgangur milli hæða og
það mætti segja að þú hafir
verið nokkurs konar auka-
mamma fyrir mig. Þegar ég fór
suður í skóla var ég alveg jafn
spennt að hitta þig eins og fjöl-
skyldu mína þegar ég kom
heim í jóla- og páskafrí. Það
var alltaf jafn dásamlegt að fá
kryddköku og mjólk hjá
mömmu, spjalla við hana og
skjótast svo í kaffi til þín. Þú
hafðir einlægan áhuga á því
sem ég tók mér fyrir hendur og
vildir alltaf fá að vita hvernig
gengi í skólanum og vildir fá að
vita um frammistöðu mína þar
og líðan almennt.
Jóa mín, þú varst fínleg kona
sem alltaf gekk um á háum
hælum og hugsaðir vel um útlit
þitt. Ég minnist þess að einu
sinni gafstu púðurdós á tom-
bólu og mín heitasta ósk var að
ég yrði svo heppin að fá púð-
urdósina. Ég man ekki hvort ég
fékk dósina en að minnsta kosti
fékk ég að púðra mig með fín-
iríinu þínu.
Þegar við stelpurnar vorum
litlar vorum við vanar að liggja
á gólfinu frammi á gangi hjá
þér og lita í litabækur. Þú gafst
okkur einkunn fyrir myndirnar
og varst mjög sanngjörn við þá
iðju því við skiptumst á að vera
hæstar. Við kepptumst allar við
að gera okkar besta og þannig
ýttir þú undir metnað okkar að
gera alltaf eins vel og við get-
um.
Í hvert sinn sem ég skræli
gulrætur verður mér hugsað til
þín. Heima hjá mér var skrælt
beint í ruslafötuna og ég hitti
nú ekki alltaf í fötuna. Ein-
hvern tímann var ég niðri hjá
þér að spjalla þegar þú varst að
flysja gulrætur, beint í vaskinn,
skrapaðir svo öllu saman og
hentir í ruslið. Þvílík hugljóm-
un sem þetta var fyrir mig. Ha-
haha, stundum er maður svo
fastur í vananum að manni
dettur ekki í hug að hægt sé að
gera hlutina öðruvísi en þeir
hafa alltaf verið gerðir. Eftir
þetta hef ég alltaf skrælt gul-
rætur eins og þú og hugsa æv-
inlega til þín í hvert skipti.
Elsku Jóa mín, þú yndislega
kona, ég er þakklát fyrir að
hafa fengið að kynnast þér og
njóta samvista við þig. Ég er
viss um að það urðu fagnaðar-
fundir hjá ykkur mömmu þegar
þú fórst á vit englanna og ég er
viss um að þegar minn tími
kemur þá verðið þið þær fyrstu
sem ég hitti, ásamt ömmu.
Það er alltaf sárt að missa
ástvini og ég vil votta Sigrúnu,
Ævari, Magga og fjölskyldum
mína dýpstu samúð.
Sjáumst seinna,
Alma.
Jóhanna
Magnúsdóttir
virðing reynsla & þjónusta
allan sólarhringinn
www.kvedja.is
571 8222
82o 3939 svafar
82o 3938 hermann
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800