Morgunblaðið - 09.11.2013, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 09.11.2013, Blaðsíða 37
UMRÆÐAN 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2013 Í grein um sjúkra- flutninga í Mbl. sl. föstudag, 1. nóv., sem slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnes- sýslu (BÁ) ritar, eru m.a. tvær fullyrðingar um sjúkraflutninga á Suðurlandi, sem nauð- synlegt er að leiðrétta. Skortur á upplýsingum? Í fyrsta lagi er fullyrt, að aldrei hafi „fengist upp hjá ríkinu hvað flutningarnir hjá HSu kosti utan einu sinni, þá var farin sú leið að biðja þingmann að spyrja eftir þessu á hinu háa Alþingi. Erfitt var að byggja á svörunum“. Þessar upplýsingar hafa alltaf legið fyrir og auðveldara hefði verið að fara aðrar leiðir en í gegnum Alþingi. Bókhald HSu er hluti af bók- haldskerfi ríkisins og endurskoðað árlega af Ríkisendurskoðun. Velferð- arráðuneyti, þingmönnum o.fl. hefur verið bent á árum saman hver þessi kostnaður er. Leitt er að BÁ hafi ekki fengið þessar upplýsingar, en hægð- arleikur hefði verið að leita þeirra. Dýrir sjúkraflutningar? Í öðru lagi er fullyrt, að „rekstur sjúkraflutninga í Árnessýslu er sá langdýrasti á landinu. Það má bara ekki „fréttast“. Reiknimódelið má ekki sýna ….“ Undirritaður hefur óskað eftir skýringum greinarhöf- undar á þessari fullyrðingu. Þær hafa ekki fengist, einungis að málið sé „margþætt“ og dæmi nefnd. Fullyrð- ing sem þessi er alvarleg og ekki síst hver heldur henni fram. Undirrit- uðum er ekki ljóst hvaða upplýsingar liggja að baki slíkri fullyrðingu. Í þessum rekstri er auðvitað hægt að nota ýmsa mælikvarða til að meta ár- angur hagkvæmni. Huga þarf að fjölda út- kalla, tímalengd út- kalla, vegalengdum, íbúafjölda, hvaða heil- brigðisþjónusta er veitt á svæðinu o.fl. Lengri útköll, meiri vega- lengdir, færri íbúar, minni heilbrigðisþjón- usta o.fl. stuðlar að dýr- ari sjúkraflutningum. Þetta o.fl. verða stjórn- völd að meta við ákvörðun fjárveitinga í þessa þjón- ustu. Einfaldur mælikvarði sem sýn- ir kostnað á hverja klst. í útkalli gef- ur t.d. síður en svo til kynna að sjúkraflutningar í Árnessýslu séu þeir „langdýrustu“. Þegar t.d. raun- verulegur kostnaður við sjúkraflutn- inga í Árnessýslu á árinu 2011 er borinn saman við fjárveitingar til sjúkraflutninga til þriggja annarra fjölmennustu svæða landsins kemur í ljós, að kostnaður á hverja klst. í útkalli er næst lægstur í Árnessýslu. Flestum er annt um, að heilbrigð- isþjónusta, og þar með sjúkraflutn- ingar, séu með sem bestum hætti hvar sem er á landinu. Vandséð er hvaða tilgangi fullyrðingar af því tagi, sem hér eru nefndar, þjóna. Þær þjóna a.m.k. tæplega hags- munum Sunnlendinga varðandi heil- brigðisþjónustu. Sjúkraflutningar á Suðurlandi Eftir Magnús Skúlason Magnús Skúlason » Vandséð er hvaða tilgangi fullyrðingar af þessu tagi þjóna. Þær þjóna a.m.k. tæplega hagsmunum Sunnlendinga. Höfundur er forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Íþróttamiðstöðin á Seltjarn- arnesi er heimili Gróttu. Hún hef- ur verið gott heimili um árabil og þar hefur hægt og rólega verið byggð upp aðstaða utan um þær íþróttagreinar sem stundaðar eru innan félagsins. Nú liggja frammi áform um endurbætur á íþróttamiðstöðinni sem fyrirhugað er að framkvæma í áföngum. Mikið hefur verið lagt í áætlanir sem tengjast fram- kvæmdunum og miða þær að því að nýta núverandi aðstæður og húsakost félagsins til hins ýtrasta. Það er alveg ljóst að starfsemin hefur sprengt utan af sér hús- næðið og til að áframhaldandi uppbygging geti átt sér stað inn- an íþróttafélagsins er nauðsynlegt að farið verði í þessar fram- kvæmdir. Sá öri vöxtur sem orðið hefur innan Gróttu á undanförnum árum er til mikils sóma fyrir Seltjarn- arnes. Í þessu sambandi má nefna að af þeim rúmlega 1000 börnum sem stunda íþróttir innan Gróttu er um helmingur í fimleikum. Fyr- ir þá íþróttagrein er almennt að- stöðuleysi eitt vandamál, hitt er að deildin getur illa hlúð að þeim rúmlega 20% iðkenda sem stunda hópfimleika. Hópfimleikar eru sú grein sem vex hvað hraðast og mest og er mjög mikilvæg enda mun betri aðstaða stuðla að minna brottfalli unglingsstúlkna úr íþróttum. Á Seltjarnarnesi er hlut- fall unglinga í íþróttum stúlkum ekki í hag og er það von okkar að þessi betriaðstaða muni hjálpa til við að jafna þann hlut. Hvað svo sem líður aðstöðuleysi eða jafnrétti kynjanna til íþrótta- iðkunar þá má ekki gleyma því að uppbygging íþróttamiðstöðvar Sel- tjarnarness er allra hagur. Með henni verður öryggi og aðgengi að íþróttahúsinu bætt til muna, bún- ingsaðstaða fyrir allar greinar mun batna verulega, lyft- ingaaðstaða fyrir iðkendur allra deilda mun gjörbyltast og aðbún- aður í kringum deildarleiki í hand- bolta verður margfalt betri. En síðast en ekki síst verður upp- bygging íþróttamiðstöðvar Sel- tjarnarness til merkis um grósku- mikið, fjölskylduvænt og litríkt bæjarfélag sem styður og styrkir grunnstoðir samfélagsins af heil- um hug. Við vonumst til að þessar framkvæmdir verði að veruleika sem fyrst og tryggi Seltjarnarnes áfram sem eftirsóknarvert bæj- arfélag fyrir fjölskyldur. Íþróttabærinn Seltjarnarnes Eftir Guðrúnu Eddu Haraldsdóttur, Söndru Sif Morthens, Kristján Mímisson, Önnu Jónsdóttur, Sigrúnu Hallgrímsdóttur og Sigrúnu Jóhannesdóttur »Uppbygging íþróttamiðstöðvar Seltjarnarness er til merkis um gróskumikið, fjölskylduvænt og litríkt bæjarfélag. Íþróttamiðstöð Seltjarnarness. Höfundar eru í stjórn fimleikadeildar Gróttu. Komdu núna og kynntu þér 100 ára afmælistilboð Ford. Gerðu líf þitt þægilegrameð Ford Kuga. Skynvætt fjórhjóladrif er staðalbúnaður ásamt Ford SYNC samskiptakerfinu. Með raddstýringu getur þú hringt og beðið um óskalög. Í neyð hringir kerfið sjálfkrafa eftir aðstoð. Ford Kuga er svo snjall að í raun er hann snjalljeppi. Komdu og prófaðu. MEÐDÍSILVÉL FRÁ MEÐ BENSÍNVÉL FRÁ FORDKUGA 5.790.000 KR. 6.190.000 KR. ford.is AFMÆLISPAKKI AÐVERÐMÆTI 520.000 KR. FYLGIR FORDKUGA Í NÓVEMBER Ford Kuga AWD 2,0 TDCi dísil 140 hö. 6 gíra beinsk./sjálfskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 5,9/6,2 l/100 km. Losun koltvísýrings CO2 154/162 g/km. Ford Kuga AWD 1,6i EcoBoost bensín 182 hö. sjálfskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 7,7 l/100 km. Losun koltvísýrings CO2 179 g/km. Tökum allar tegundir bíla upp í nýja. Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður og gerð getur verið frábrugðin mynd í auglýsingu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.