Morgunblaðið - 09.11.2013, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 09.11.2013, Blaðsíða 45
MINNINGAR 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2013 ✝ Aðalheiður ÁsaGeorgsdóttir fæddist að Stóra- Kambi í Breiðuvík- urhreppi 28. júní 1924. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 31. októ- ber 2013. Ása var dóttir hjónanna Georgs Júlíusar Ásmunds- sonar, f. 8. sept. 1891, d. 6. maí 1983, og Guð- mundu Láru Guðmundsdóttur, f. 11. nóv. 1895, d. 27. nóv. 1973. Hún var þriðja í röðinni af níu systkinum. Af þeim eru nú fjög- ur á lífi. Systkini Ásu eru: Guð- mundur Kristófer, f. 1921, d. 1997. Gunnhildur Ingibjörg, f. 1923, d. 2006. Sigríður Guðný Bjarnveig, f. 1926. Þorbjörg, f. 1928, d. 2010. Sveinn Haukur, f. 1929. Pálína, f. 1932, d. 2010. Guðrún, f. 1933. Reimar, f. 1937. Ása eignaðist tvö börn, faðir þeirra var Alfreð Lárusson, f. 1921, d. 2003. Þau slitu sam- vistum eftir stutta sambúð. Börn Petra, f. 1984, unnusti hennar er Sævar Steinarsson, f. 1980. Með Ásu ársgamla fluttu for- eldrar hennar að Miðhúsum og átti Ása þar heima nánast alla sína ævi utan nokkur ár er hún bjó í Reykjavík. Hún ólst upp við almenn sveitastörf og lærði snemma að taka til hendinni. Árið 1941 fór hún í vist til Reykjavíkur en var alkomin að Miðhúsum aftur 1947. Ása gekk í flest þau verk er annast þurfti og var sveitungum sínum ætíð hjálpleg. Voru þau nokkur heimilin í sveitinni sem nutu hjálpar hennar, t.d. tók hún á móti nokkrum börnum. Mið- húsaheimilið var ætíð mann- margt og eru þau orðin mörg börnin sem þar hafa dvalið um lengri eða skemmri tíma og eiga góðar minningar þaðan. Þar var ætíð tekið vel á móti öllum. Eftir lát foreldra sinna bjó Ása áfram í Miðhúsum og stundaði þar bú- skap. Árið 1989 veiktist Victoría dóttir hennar og þá fór Ása og lagði fjölskyldu hennar lið en Victoría lést 1992. Á efri árum festi Ása kaup á íbúð í Hafn- arfirði þar sem hún dvaldist að vetrum en fór aftur í sveitina fyrir sauðburð. Útför Ásu fer fram frá Búða- kirkju í dag, 9. nóvember 2013, og hefst athöfnin kl. 13. þeirra eru; Guð- mundur Al- freðsson, f. 8. des. 1944, kona hans er Birna Guðmunds- dóttir, f. 12. feb. 1953. Börn þeirra eru Jóhannes Örn, f. 1972, Aðalheiður Lára, f. 1975, hún á þrjú börn. Unnusti hennar er Pétur Már Ólafsson, f. 1969. Georg Kristján, f. 1981, eiginkona hans er Berglind Ýr Sigurðardóttir, f. 1988. Georg á tvær dætur. Sindri Hlífar, f. 1986, unnusta hans er Áslaug Harpa Axelsdóttir, f. 1985. Vic- toría A. Ásmundsson, f. 5. júlí 1947, d. 8. júní 1992, eiginmaður hennar var Axel Kordtsen Bryde, f. 21. júní 1948. Börn þeirra eru: Ása Lára, f. 1972, eiginmaður hennar er Margeir Jóhannesson, f. 1971. Þau eiga einn son. Kristín Elfa, f. 1979. Hún á tvo syni. Páll Vignir, f. 1982, eiginkona hans er Linda Axelsson, f. 1981. Ingibjörg Í dag fylgjum við ömmu „niður frá“ eins og við systkinin kölluð- um hana, síðustu ferðina heim í sveitina. Hún var mikill dugnað- arforkur og sinnti jafnt störfum úti sem inni og fórst það vel úr hendi. Hún tók þátt í heyskap og keyrði traktor sem þótti ekki sjálfsagt fyrir konur af hennar kynslóð. Alltaf var til nóg af góð- um pönnukökum, passað að allir væru saddir og fengju nóg í sig og á. Hún lá ekki á skoðunum sín- um, hafði mikið skap en vildi þó öllum vel og var dugleg að hjálpa þeim sem á þurftu að halda. Hún lagði mikinn metnað í að sinna skepnunum sem voru henni kær- ar, því er hægt að hugsa sér að nú njóti hún sín í Sumarlandinu þar sem hún getur smalað og snúist í kringum féð. Þar getur hún ark- að létt á fæti eftir kindunum, með alla þá smala sem hún þarf. Þar kunna þeir líka að smala. Nú skil- ur enginn fé eftir í Seltaglinu eða á Hærriflötum og nú vita líka all- ir smalar hvar skal staðið fyrir, engin á röngum stað. Og allir þekkja þeir örnefnin rétt og vita hvar þau eru. Féð er líka afburða fallegt og auðvelt í rekstri. Af- tekning verður auðveld, að taka af gemlingunum verður hið ein- faldasta mál, og auðvelt eftir minni. Nú fer amma líka létt með að hnoða í kleinur og baka pönnu- kökur, svo örugglega sé nóg handa öllum. Já, hún kemur til með að njóta sín núna, laus við skrokkinn sem var orðinn lúinn og stirður. Kveðjum við því ömmu í dag og sjáum hana fyrir okkur arkandi á gúmmískónum með prik í hendi á eftir fénu suð- ur Hraunbrún. Hvíl í friði, elsku amma „niður frá“. Jóhannes Örn, Aðalheiður Lára, Georg Kristján og Sindri Hlífar. Elsku amma Ása. Við kveðjum þig með söknuði en um leið gleðj- umst við yfir öllum þeim minn- ingum sem við eigum um þig. Það sem kemur helst upp í hugann á þessari stundu eru Miðhús þar sem við systkinin fengum að dveljast til lengri og skemmri tíma. Alltaf stóðstu þétt við bakið á okkur og varst kletturinn í lífi okkar þegar móðir okkar veiktist og ekki síður eftir að hún lést. Þú bjóst lengi vel hjá okkur í Ljósa- landinu og var sá tími ómetanleg- ur þar sem samband okkar allra við þig styrktist enn frekar. Það var einungis einu sinni sem þú fórst út fyrir landstein- ana og þá alla leið til Flórída með okkur systkinum, pabba og Mar- geiri. Sú ferð gleymist seint og þú hafðir einstaklega gaman af því að rifja upp atvik úr ferðinni og þá einna helst að minna Mar- geir á eitt ákveðið atvik þar sem þú gekkst að sjálfsögðu í að redda málunum. Lopasokkarnir og vettlingarn- ir hafa hlýjað okkur og langömmustrákunum þínum á köldum vetrardögum. Eigum við ófáar minningar um þig með prjónana í fanginu, oft og tíðum dottandi yfir veðurfregnunum. Elsku amma. Nú ertu komin til mömmu eftir langan aðskilnað og þið hafið líklega nóg að spjalla og bralla saman. Við kveðjum þig með sorg í hjarta en höldum um leið minningu þinni á lofti. Við er- um óendanlega þakklát fyrir að hafa átt svona góða konu sem fyrirmynd í lífinu. „Ljóst var út að líta“, Ljómaði fagurt oft Snæfell hrími hvíta Við heiðblátt sumarloft; Skein þar mjöll á hnúkum hæst; „Allt er hreinast“, hugði’ eg þá, „Sem himninum er næst“. (Steingrímur Thorsteinsson) Þín Ása Lára, Kristín Elfa, Páll Vignir og Inga Petra. Elsku langamma eða Ása amma eins og við kölluðum þig alltaf. Það er erfitt og skrýtið að hugsa til þess að við komum ekki til með að hitta þig aftur á næst- unni, hvorki í Hafnarfirði né í sveitinni þinni fyrir vestan. Við erum ótrúlega heppnir að hafa fengið að njóta þín þessi ár sem við áttum saman, alltaf tókstu vel á móti okkur með kök- um og nammi. Iðulega gripum við nú með okkur hlauppoka þeg- ar við kíktum í heimsókn til þín og Arnór Sölvi var nú yfirleitt ekki lengi að sannfæra þig um að opna hann strax þannig að við gætum nú smakkað smá af namminu. Alltaf fannst okkur jafn gaman að koma til þín í sveitina í ró og frið, langt frá öllu atinu í Reykja- vík, það var sama sagan, þú tókst alltaf vel á móti okkur og þá iðu- lega með nýbökuðum pönnukök- um. Síðasta ferðin okkar var ein- mitt í júlí á þessu ári þegar við fórum allir saman til þín með Ásu og Margeiri, sú ferð ásamt öllum hinum ferðunum vestur verður ávallt geymd í minningu okkar. Það er ekki hægt að sleppa því að minnast á alla lopasokkana og vettlingana sem þú hefur prjónað á okkur í gegnum árin, þegar við fórum að æfa fótbolta af kappi þá tókstu einmitt uppá því að prjóna á okkur fótboltaullarsokka sem náðu alveg uppað hnjám, því ekki vildir þú að okkur yrði kalt. Elsku amma, við kveðjum þig með söknuði, en jafnframt erum við óendanlega þakklátir fyrir allt sem þú hefur kennt okkur og gefið í gegnum tíðina. Þínir langömmustrákar, Axel Hreinn, Victor Þór og Arnór Sölvi. Eftir stutt veikindi kvaddi hún þennan heim hún Ása móðursyst- ir mín í Miðhúsum, 89 ára að aldri en samt var eins og ég væri ekki tilbúinn að kveðja, vildi hafa hana áfram í sveitinni þar sem hún var einskonar miðpunktur sem alltaf var hægt að líta inn til, þiggja kaffi, sitja og spjalla um alla heima og geima. Þegar ég minn- ist hennar leitar hugurinn til baka til bernsku minnar þegar ég dvaldi í sveit hjá afa og ömmu í Miðhúsum en þar var ég frá því að ég fór að muna eftir mér og til 15 ára aldurs og svo alltaf eitt- hvað á sumrin fram yfir tvítugt. Á heimilinu mæddi mikið á Ásu, hún sá um matseld, þvotta, bakstur og önnur verk sem til féllu á mannmörgu sveitaheimili jafnt úti sem inni og oft var vinnudagurinn hennar langur en aldrei heyrði ég hana kvarta und- an of mikilli vinnu því að hún var hörkudugleg og ósérhlífin enda var líkaminn orðinn slitinn þegar yfir lauk en andlegri heilsu hélt hún fram í andlátið og fylgdist vel með því sem var að gerast; í bú- skapnum, hjá ættingjum sem voru margir eða því sem var efst á baugi í fréttum. Ása var skap- mikil kona og oft gat hvesst í dagsins önn en það risti nú sjaldnast djúpt því hún vildi öll- um vel enda voru margir í hennar umsjá um lengri og skemmri tíma, börn bæði skyld og óskyld sem minnast hennar nú eins og ég og mín fjölskylda með þakk- læti hlýju. Ung að árum eignaðist Ása börnin sín tvö, Guðmund sem nú er bóndi í Ytri-Tungu og Viktoríu sem lést langt fyrir aldur fram aðeins 44 ára gömul. Guðmundur og Viktoría ólust upp í Miðhúsum við ástríki mömmu sinnar, afa og ömmu. Það var henni mikið áfall þegar dóttir hennar lést frá fjór- um ungum börnum, þá kom hún tengdasyni sínum til hjálpar og dvaldi hjá honum og barnabörn- unum þennan erfiða tíma sem í hönd fór, sýndi hún þá mikið æðruleysi og sálarró. Ása annað- ist líka um afa og ömmu á þeirra efri árum. Lífsstarf hennar var fyrst og fremst helgað Miðhúsa- heimilinu en einnig vissi ég um að hún rétti fram hjálparhönd á öðr- um heimilum í sveitinni þegar þess var þörf og eftir því var leit- að. Þá tók hún einnig mikinn þátt í félagslífi í sveitinni, Kvenfélag- inu, Ungmennafélaginu og kirkj- unni sinni og það veit ég að þar lá hún ekki á liði sínu frekar en í öðru sem hún tók sér fyrir hend- ur. Ása var einungis á sumrin í Miðhúsum síðustu árin og síðasta sumarið hennar var í styttra lagi, heilsan farin að bila, var farin suður fyrir réttir. En nú hefur hún lokað dyrum þar í síðasta sinn og finnst mér að með fráfalli hennar hafi orðið kaflaskil í lífi Miðhúsafjölskyldunnar. Ég þakka henni fyrir fóstrið, vináttuna og traustið sem hún auðsýndi mér alla sína tíð og hennar þátt sem var vissulega mikill í að koma mér til manns. Við Áslaug, börnin okkar og barnabörnin eigum margar góð- ar minningar frá heimsóknum til Ásu þegar dvalið var í sumarbú- staðnum í Miðhúsalandi, minn- ingar sem gott er að eiga og fyrir það ber að þakka. Við vottum afkomendum Ásu og eftirlifandi systkinum hennar okkar innilegustu samúð. Jón Guðmundsson. Elsku Ása frænka. Það er erf- itt að setjast niður og skrifa kveðju til þín. Þú varst fastur punktur í lífi mínu og það er erfitt að hugsa sér Miðhús án þín. Ég var alin upp hjá ömmu, afa og þér til 14 ára aldurs og á þaðan marg- ar góðar minningar. Það var gott að vera barn í Miðhúsum. Sveitin og kindurnar voru líf þitt og áhugamál enda varstu afskap- lega dugleg og sterk kona. Mesta hrós sem þú gast gefið nokkurri manneskju var að vera forkur dugleg og þótti manni mikið í það varið að fá þá umsögn. Oft skemmtum við okkur krakkarnir yfir því þegar þú gast þekkt kind- urnar í margra kílómetra fjar- lægð, það er víst kallað að vera fjárglögg. Og nú ertu keyrð heim í sveitina þína í síðasta sinn. Elsku Ása, takk fyrir alla góð- vildina við mig og mín börn. Við munum geyma minninguna um þig í hjarta okkar. Maggý Dögg. „Nú er hún Snorrabúð stekk- ur“ kvað Jónas forðum. Mér flugu þessar línur í hug við lát hennar Ásu í Miðhúsum. Nú eru fyrir bí kleinurnar hennar góðu og pönnukökurnar og öll önnur veisla í mat og drykk er var á eld- húsborðinu hennar hin fjölmörgu sumur er hún kom vestur í sauð- burðinn á vorin og fór ekki suður aftur fyrr en litlu fyrir jól. Þar áður hafði hún búið með foreldr- um sínum og síðar ein um langa hríð, þar til kringumstæðurnar ollu því að hún varð að fara burtu yfir háveturinn. Lífið hafði jú veitt henni áföll stór á stundum eins og gengur og þá var gamla bernskuheimilið hennar lífhöfn í brotsjó mótlætis og missis. Við Ása höfum lengi þekkst frá því að ég varð ungur tengdasonur í Miðhúsum. Til hennar var gott að koma og dvelja og það getur ótal- inn hópur af smáfólki vitnað um. Alltaf stuð í sveitinni, í sauðburði, heyskap, réttum og sláturtíð. Ég og mín fjölskylda þökkum af heilum hug fyrir að hafa kynnst og notið samvistanna við hana og hennar fólk. Vertu kært kvödd, gamla vinkona, ég veit að þú átt vísa góða heimkomu. Jón Arngrímsson og börn. Aðalheiður Ása Georgsdóttir HINSTA KVEÐJA Kveðja frá langömmu- börnum. Út um græna grundu gakktu hjörðin mín. Yndi vorsins undu, eg skal gæta þín. Sól og vor ég syng um, snerti gleðistreng. Leikið lömb í kring um lítinn smaladreng. (Steingrímur Thorsteinsson) Jónas, Hrönn, Margeir, Anna Birna og Rebekka Rut. erfidrykkjur Sigtúni 38, sími: 514 8000 erfidrykkjur@grand.is / grand.is Hlýlegt og gott viðmót Fjölbreyttar veitingar lagaðar á staðnum Næg bílastæði og gott aðgengi ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is útfararstjóri útfararþjónusta Önnumst alla þætti útfararinnar Þegar andlát ber að höndum Arnór L. Pálsson framkvæmdastjóri Ísleifur Jónsson Frímann Andrésson útfararþjónusta Jón Bjarnason útfararþjónusta Hugrún Jónsdóttir uðmundur Baldvinsson útfararþjónusta G Þorsteinn Elíasson útfararþjónusta Ellert Ingason útfararþjónusta REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTGEIR KRISTINSSON frá Felli, Arnarstapa, Snæfellsnesi, Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík, lést á Landspítalanum þriðjudaginn 5. nóvember. Útförin fer fram frá Háteigskirkju miðvikudaginn 13. nóvember kl. 13.00. Björg Jónsdóttir, Jón Kristgeirsson, Guðjón Kristinn Kristgeirsson, Elín Þ. Egilsdóttir, Sigurgeir B. Kristgeirsson, Andrea E. Atladóttir, Jónína Kristgeirsdóttir, Sigurður J. Bergsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og systir, ÞÓRDÍS HELGA JÓNSDÓTTIR OSTERHORN, sem lést föstudaginn 1. nóvember, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 11. nóvember kl. 13.00. Jochen Osterhorn, Svanhildur Björk Gilles, Bjorn Gilles, Kristjana Osterhorn, Jan Meier, Liv, Thorben og Solvey Gilles, Svanhildur Erna Jónsdóttir, Guðrún Kristín Jónsdóttir, Haukur Bessason og fjölskyldur. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, ALDA GUÐJÓNSDÓTTIR, Birkiteigi 20, Keflavík, sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn 3. nóvember, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 15. nóvember kl. 13.00. Ásgeir Gunnarsson, Þorbjörn Ásgeirsson, Guðrún Sumarliðadóttir, Sigrún B. Ásgeirsdóttir, Trausti Björgvinsson, Gunnar Ásgeirsson, Berglind Bjarnadóttir, Freyja Ásgeirsdóttir, Kristinn H. Einarsson, barnabörn og barnabarnabarn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.