Morgunblaðið - 09.11.2013, Blaðsíða 28
BAKSVIÐ
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Íslenska félagið Klappir Develop-
ment vill ráðast í uppbyggingu
120.000 tonna álvers á iðnaðarsvæð-
inu á Bakka við Húsavík. Gert er ráð
fyrir því að heildarfjárfesting verk-
efnisins verði um 350 milljónir
Bandaríkjadala, jafnvirði um 43
milljarða íslenskra króna, og að
starfsemi geti hafist á árunum 2016
og 2017. Áformað er að eignarhaldið
á álverinu verði að stórum hluta í
eigu íslenskra fjárfesta.
Framkvæmdastjóri félagsins,
Ingvar Unnsteinn Skúlason, fullyrð-
ir í samtali við Morgunblaðið að Kín-
verski þróunarbankinn (e. Chinese
Development Bank) hafi nú þegar
gefið vilyrði sitt fyrir að hann sé
reiðubúinn að veita alla lánsfjár-
mögnun vegna verkefnisins. Sú fjár-
mögnun sé veitt gegn því skilyrði að
álverið verði byggt á tækni – svo-
nefndri NEUI kertækni – frá kín-
verska fyrirtækinu NFC. Á þriðja
tug álvera, bæði innan og utan Kína,
byggist á þessari tækni í dag, að
sögn Ingvars, en með þessum hætti
segir hann að hægt sé að lækka
verulega fjárfestingarkostnað við
uppbyggingu álversins.
Geti greitt hærra raforkuverð
Álverið mun þurfa um 210 mega-
vött af raforku og hefur Landsvirkj-
un skrifað undir viljayfirlýsingu um
að fyrirtækið sé tilbúið að hefja við-
ræður við forsvarsmenn Klappa
vegna afhendingar á 100 megavött-
um fyrir árið 2016. Eftir þann tíma
sé möguleiki á að afhenda 50 mega-
vött til viðbótar. Í viljayfirlýsingunni
kemur hins vegar einnig fram að það
sé stefna Landsvirkjunar að minnka
hlutfallslegt vægi raforkusölu til fyr-
irtækja í áliðnaði – hún nemur nú um
75% af allri raforkusölu – og sú stað-
reynd muni hafa áhrif á hugsanlegt
samkomulag um verð á raforkunni.
„Við höfum litið þannig á það,“ út-
skýrir Ingvar, „að raforkan sem yrði
seld til álversins yrði ekki seld á
neinum afsláttarkjörum og ekki far-
ið fram á tengingu við þróun ál-
verðs. Miðað við okkar rekstrar-
áætlanir teljum við að álverið gæti
greitt hærra raforkuverð en þau
sem nú eru starfrækt á Íslandi
greiða til Landsvirkjunar.“ Á síð-
asta ári nam raforkuverðið sem
Landsvirkjun seldi til álfyrirtækja
að meðaltali um 26 dölum á hvert
megavatt.
Erfiðleikar á álmörkuðum
Áliðnaðurinn á Vesturlöndum hef-
ur glímt við mikla erfiðleika á um-
liðnum árum og er talið að stór hluti
álvera sé rekinn með tapi um þessar
mundir. Álverð hefur lækkað um
hátt í 30% á síðustu tveimur árum
og hefur ekki verið lægra í fjögur ár.
Á meðan ekki tekst að vinda veru-
lega ofan af þeim miklu umfram-
birgðum af áli sem eru í vöruhúsum
utan Kína telja greinendur ólíklegt
að vænta megi mikilla hækkana á ál-
verði næstu árin.
Ingvar segir að það sé ekkert
launungarmál að ástandið á álmörk-
uðum sé erfitt um þessar mundir.
„Okkar áætlanir gera engu að síður
ráð fyrir því að álverið eigi að geta
staðið undir sér miðað við núverandi
verð – staðgreiðsluverð í LME-
kauphöllinni er nú um 1.800 dalir – á
álmörkuðum.“ Hann bendir enn-
fremur á að í áætlunum Klappa sé
gert ráð fyrir að framleiða virðis-
aukandi álafurðir sem hægt verði að
selja með talsverðu viðbótarálagi (e.
premium price) ofan á skráð álverð
á LME-markaðnum – en þannig
megi betur tryggja rekstur álvers-
ins og minnka áhrif heimsmarkaðs-
verðs á afkomu félagsins.
Aðspurður hvernig mögulegur
fjárfestahópur muni líta út segir
Ingvar að það muni skýrast betur
eftir því sem verkefnið þróast en
áætlanir gera ráð fyrir því að eig-
endur álversins þurfi að leggja fram
um 15 milljarða króna í eigið fé.
Stefnt sé að því að fjárfestahópurinn
verði að stórum hluta innlendir að-
ilar – bæði lífeyrissjóðir og fagfjár-
festar – ásamt erlendum álframleið-
anda sem hefur þegar staðfest
áhuga sinn. Um þriðjungur af eig-
infjárframlaginu þyrfti að koma í er-
lendum gjaldeyri.
Verkefnið kynnt lífeyrissjóðum
„Við höfum kynnt verkefnið fyrir
lífeyrissjóðum,“ segir Ingvar, sem
telur að í ljósi þess að verkefnið sé
hlutfallslega ekki mjög stórt þá geti
það hentað ýmsum fjárfestum á ís-
lenskum fjármálamarkaði – ekki síst
þeim sem vilji fá tekjur í erlendri
mynt. Áætlaðar árlegar útflutnings-
tekjur eru um 30 milljarðar króna.
Að sögn Ingvars standa vonir til
að hægt verði að taka endanlega
ákvörðun um hvort ráðist verði í
uppbyggingu álversins á fyrri hluta
ársins 2014. Forsvarsmenn Klappa
hafa unnið að undirbúningi að upp-
setningu og rekstri á álverinu síð-
ustu tvö ár. Að verkefninu hafa
komið bæði innlendir og erlendir
ráðgjafar. Lögmaður félagsins er
Lárus Blöndal hæstaréttarlögmað-
ur.
Verði uppbygging álversins að
veruleika er áætlað að 280 heilsárs-
störf skapist. Ingvar tekur fram að
áætlað sé að framkvæmdin verði í
tveimur áföngum – 60 þúsund tonn í
hvorum áfanga – en slíkt sé nauð-
synlegt svo hægt sé að nýta háhita-
svæðin á svæðinu á ábyrgan hátt.
Áður hefur verið greint frá því í
fjölmiðlum að bæjarráð Norður-
þings sé áhugasamt um verkefnið og
vilji taka upp viðræður um lóðaút-
hlutun takist félaginu að skrifa und-
ir samkomulag við Landsvirkjun um
orkuafhendingu.
Vilja reisa álver í eigu Íslendinga
Áliðnaður Talið er að stór hluti álvera sé nú rekinn með tapi en álverð hefur ekki verið lægra í fjögur ár.
Forsvarsmaður Klappa Development segir Kínverska þróunarbankann reiðubúinn að fjármagna
verkefnið Landsvirkjun undirritað viljayfirlýsingu um viðræður um mögulega afhendingu á 100 MW
Álver á Bakka
» Íslenska félagið Klappar
Development vill reisa
120.000 tonna álver sem
verði starfrækt á árunum
2016 og 2017. Heildarfjárfest-
ing yrði 350 milljónir Banda-
ríkjadala.
» Álverið mun þurfa 210
megavött en Landsvirkjun
hefur skrifað undir viljayfirlýs-
ingu um að hefja viðræður um
mögulega afhendingu á 100
megavöttum fyrir árslok 2016.
» Forsvarsmaður Klappa full-
yrðir að Kínverski þróun-
arbankinn sé reiðubúinn að
fjármagna uppbyggingu ál-
versins að fullu. Stefnt sé að
því að eigendur verði að
stórum hluta innlendir aðilar.
28 FRÉTTIRViðskipti | atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2013
S&P lækkaði Frakkland úr AA+ í AA.
● Lækkun varð við opnun markaða í
Evrópu í gærmorgun í kjölfar ákvörð-
unar matsfyrirtækisins S&P að lækka
lánshæfiseinkunn franska ríkisins úr
AA+ í AA.
Franska CAC-vísitalan lækkaði mest
um 1,19%, en jafnaði sig svo í 0,39%
lækkun og sú þýska, Dax, og FTSE í
London lækkuðu framan af degi en
hækkuðu svo aftur. Í greinargerð S&P
segir að skattaáform ríkisstjórnarinnar
hafi áhrif sem og mikið atvinnuleysi.
Mat S&P hafði áhrif til
lækkunar í Evrópu
● Landsbankinn hefur úthlutað 15
milljónum króna í nýsköpunarstyrki til
nítján verkefna úr Samfélagssjóði
Landsbankans. Nýsköpunarstyrkjum
bankans er ætlað að styðja við frum-
kvöðla til að þróa nýjar viðskipta-
hugmyndir, nýta eldri viðskipta-
hugmynd á nýju markaðssvæði eða
skapa nýja vöru. Hæsta styrkinn fékk
Rögg ehf., en fyrirtækið hannar leit-
arkerfi fyrir GSM síma. Nánar á mbl.is
15 milljónir í nýsköpun
● IFS greining telur að rekstur
Tryggingamiðstöðvarinnar hafi gengið
með ágætum á þriðja ársfjórðungi. Í
spá IFS er gert ráð fyrir að félagið
hagnist um tæpar 900 milljónir
króna fyrir skatt á fjórðunginum og
að samsett hlutfall rekstrar nemi
tæpum 83%. Hagnaður fyrirtækisins
fyrir skatta á fyrri helmingi ársins
nam 1.388 milljónum króna og var
samsetta hlutfallið, sem er skilgreint
sem tjónakostnaður og rekstrar-
kostnaður sem hlutfall af iðgjöldum,
86,3%.
Nánar á mbl.is
Telur rekstur TM góðan
STUTTAR FRÉTTIR
!"# $% " &'( )* '$*
+,,-./
+01-+0
++1-20
,+-02
,.-.3/
+4-225
+55-.0
+-,3,,
+41-22
+15-/5
+,,-51
+01-1/
++1-05
,,-.+3
,.-+.1
+4-1./
+55-31
+-,324
+4/-++
+13-+0
,+0-//.4
+,,-12
+0/-+2
++/-,/
,,-./4
,.-+12
+4-11+
+55-45
+-,303
+4/-1/
+13-12
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Laugarásvegi 1 • 104 Reykjavík
Sími: 553 1620 • laugaas.is
KÓNGABORGARI
(120 g safaríkt nautakjöt)
með osti, iceberg,
sósu, frönskum og
kokkteilsósu
Árin segja sitt