Morgunblaðið - 09.11.2013, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2013
Vegasamgöngur á Suðurlandi
þykja góðar. Við hringborðið kemur
fram að þar er þó ekki allt sem sýnist.
Þátttakendur í umræðunum segja að
þörf sé á því að breikka veginn á milli
Hveragerðis og Selfoss, enda sé hann
orðinn hættulegur vegna mikillar um-
ferðar. Þá þurfi að útrýma ein-
breiðum brúm og halda ferða-
mannavegunum við. Vegir í
uppsveitum séu margir farnir að láta
á sjá vegna stóraukinnar umferðar.
„Viðhaldi veganna í uppsveitunum
er mjög ábótavant,“ segir Þorgils
Torfi Jónsson. „Þegar komið er út fyr-
ir þjóðveg 1 er upplifunin alveg skelfi-
leg á köflum. Vont er að þurfa að aka
börnum og unglingum í skólann á
þessum vegum við misjafnar að-
stæður að vetarlagi.“ Hann segir að
þarna þurfi að gera átak sem nýtist
bæði íbúunum og ferðaþjónustunni.
„Strætó er annars eitt það jákvæð-
asta sem gerst hefur í samgöngu-
málum á Suðurlandi,“ segir Aldís
Hafsteinsdóttir. Unga fólkið sem býr
á Selfossi og í Hveragerði tekur
strætisvagninn í skóla í Reykjavík.
Morgunblaðið/Golli
Strætó Auðvelt er fyrir unga fólkið á Selfossi og í Hveragerði að sækja skóla í
Reykjavík. Strætó gengur alla leið.
Viðhaldi vega víða mjög ábótavant
baka. „Á síðustu árum hefur orðið 5%
íbúafjölgun hjá okkur í Mýrdalnum,“
sagði Ásgeir. „Við höfum því ástæðu til
að vera bjartsýn.“ Eygló nefndi að
áberandi væri að ungt fólk sem flutt
hefði brott væri að snúa til baka í sína
heimabyggð.
Betri samgöngur við Eyjar
„Eitt stærsta vandamál á svæðinu
er hve samgöngur til Eyja eru ótraust-
ar,“ sagði Elvar. Meðan svo er sé ekki
hægt að skipuleggja Vestmannaeyjar
og nágrenni sem eitt atvinnusvæði. Öfl-
ugt sjúkrahús þar nýtist til dæmis ekki
öðrum Sunnlendingum. Elvar segir að
það yrði mikið framfaraskref ef hægt
væri að tryggja meiri stöðugleika í sam-
göngum milli lands og Heimaeyjar.
„Blessaðir ferðamennirnir“
„Blessað stríðið“ var sagt í gamla
daga þegar stríðsgróðinn upprætti fá-
tækt á Íslandi. Nú blessa menn erlendu
ferðamennina fyrir að bjarga minni
byggðum frá því að leggjast af. Þeir eru
sannkölluð himnasending. „Það er
ferðamönnum að þakka að við höldum
nauðsynlegu þjónustustigi á
Kirkjubæjarklaustri“ segir Eygló. „Það
er vegna þeirra sem við höfum enn
ágætar verslanir, pósthús og banka. Yf-
ir sumartímann er bankinn opinn allan
daginn, en þegar ferðamönnum fækkar
á haustin er aðeins opið hálfan daginn“
segir hún. Um 200 þúsund ferðamenn
fara árlega um Klaustur. Munar um
minna.
Áhyggjur af löggæslu
Niðurskurður á fjárveitingum til
löggæslu á Suðurlandi er áhyggjuefni.
„Það er bara horft á íbúatöluna en ekki
þörfina,“ segir Eygló og bendir á að
hundruð þúsunda ferðamanna heim-
sæki Suðurland árlega. Þessi mikla um-
ferð kalli á trausta löggæslu. „Hafa þarf
í huga að hér er náttúruhamfarasvæði,“
bætir Elvar við. Hann segir að miklu
skipti að hafa vel þjálfað fólk á vakt sem
kunni að bregðast við ef eitthvað ber út
af. Ásgeir segist fagna því að Hanna
Birna Kristjánsdóttir innanríkis-
ráðherra hafi ákveðið að tveir lög-
reglumenn verði framvegis staðsettir í
Vík í Mýrdal. Áður voru næstu lög-
reglumenn á Klaustri og Hvolsvelli.
Hver og einn skiptir máli
Eftir nokkrar umræður um mik-
ilvægi framtaksmanna og frumkvöðla í
atvinnulífinu er haft orð á því við hring-
borðið að í fámennum byggðarlögum
skipti hver einstaklingur meira máli en
þar sem fjölmenni er. „Við erum hrika-
lega heppinn með fólkið sem vinnur við
heilsugæslu hjá okkur á Klaustri,“ segir
Eygló í því sambandi. „Hjúkrunarfræð-
ingurinn okkar er ljósmóðir með
sjúkraflutningapróf. Og læknirinn er
sérfræðingur í krabbameinslækn-
ingum.“ Hún segir að það sé ekki fyrir
hvern og einn að vinna við aðstæður
eins og Klaustri þar sem heilbrigð-
isstarfsfólkið þarf bæði að geta sinnt
veiku fólki og stórslösuðu.
Við hringborðið er mikill áhugi á
menntamálum. Góðir skólir og öflugt
námsframboð hefur mikla þýðingu. Há-
skólastarfsemin á Hvanneyri er sögð
lyftistöng fyrir landshlutnn. Þar er
meðal annars Landgræðsluháskóli
Sameinuðu þjóðanna sem í haust var að
útskrifa 10 sérfræðinga sem komu frá
Afríku og Mið-Asíu
Aukin bjartsýni
„Ég verð vör við aukna bjartsýni
fólks hér á Suðurlandi,“ segir Eygló.
„Það er einhver gerjun í gangi sem mér
finnst spennandi. Meiri drifkraftur að
brjótast út,“ segir hún. „Ég held að það
sé að myndast stemning fyrir því að
vera Sunnlendingur og vera stoltur af
því,“ segir Aldís. „Fólk segir, já það er
bara gott að búa hérna.“
Suðurlandi
Morgunblaðið/Kristinn
Þátttakendur í hringborðsumræðum
Morgunblaðsins um málefni Suðurlands.
Frá vinstri Elvar Eysteinsson, Eygló Kristjánsdóttir,
Ásgeir Magnússon, Eyþór Arnalds, Þorgils Torfi
Jónsson og Aldís Hafsteinsdóttir.
Hólshraun 3 · 220Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810
Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.isSkútan
www.veislulist.is
jólahlaðborð okkar á
Pantanir fyrir veislur þurfa
að berast tímalega.
Þú getur lesið allt um
Nú fer að líða að jólum þá er gott að
panta tímanlega jólahlaðborðin.
Starfsfólk okkar leggur sig fram um að gera
stundina fallega með góðum veitingum og
persónulegri og góðri þjónustu.
Öll þjónusta er innifalin í verði veitinga.
...tímanlega!
Panta
ðu