Morgunblaðið - 09.11.2013, Side 51

Morgunblaðið - 09.11.2013, Side 51
ÍSLENDINGAR 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2013 arleikari í BluesAkademíunni frá 2007. Hann var gítarleikari hjá Megasi á eftirminnilegum tón- leikum í Austurbæjarbíói 1984 sem var sjónvarpað á RÚV, og í Þjóðleikhúskjallaranum 9.11. 1996 í tilefni af útkomu plötunnar „Til hamingju með fallið“ en Pjetur sá um útsetningar á þeirri plötu ásamt Tryggva Hübner og Megasi. Ári síðar sá Pjetur einnig um út- setningar ásamt Megasi á plötu þess síðarnefnda, „Fláa veröld“. Fyrsta hljómplatan frá Pjetri kom út 1983 og var hún með hljóm- sveitinni Big nós Band og nefndist Tvöfalt siðgæði. „Platan var hugsuð sem grafíkverk og var hljómsveitin aukasjálf mitt í myndlistaskól- anum.“ Síðan hafa komið út fimm plötur með hljómsveitinni PS & CO: Í léttum dúr, (1985) en á henni var lagið Ung og rík, PS & Bjóla voru með plötuna Góðir hlutir gerast hægt. (1987), Öfgar göfga kom út 1988. Platan var gefin út í 350 ein- tökum og var hvert umslag málað sérstaklega. Erkitýpur, streitarar og frík kom út 1993 og Ham- ingjuvélin 2007. Félagsstörf Pjetur sat í stjórn Félags ís- lenskra myndlistarmanna, FÍM, 1997-2000 og stjórn SÍM, Sam- bands íslenskra myndlistarmanna einnig 1997-2000. 2000-2002 var hann formaður SÍM. Árið 2000-2002 sat hann í stjórn Evrópudeildar Alþjóðasamtaka myndlistarmanna, IAA, Þann tíma var hann forseti Íslandsdeildar IAA. 2002-2005 var hann í þriggja manna starfsstjórn IAA á al- þjóðavettvangi. 2002-2004 sat Pjet- ur í nefnd á vegum Reykjavík- urborgar fyrir hönd Bandalags íslenskra listamanna, BÍL, um mót- un byggingastefnu Reykjavíkur. Pjetur var formaður Íslenskrar grafíkur 2003-2007 og 2008-2010 var hann í verkstæðisnefnd Ís- lenskrar grafíkur. Fjölskylda Eiginkona Pjeturs er María Árnadóttir, f. 8.6. 1963, launa- fulltrúi. Dóttir þeirra er Ásta Kristín, f. 18.1. 1996, tónlistarnemi. Sonur Pjeturs með fyrri eigin- konu sinni, Guðbjörgu Sesselju Jónsdóttur, f. 3.12. 1950, er Hring- ur, f. 17.11. 1976, flugumferð- arstjóri. Maki hans er Dröfn Sig- urðardóttir, f. 17.11. 1978. Dætur þeirra eru Hrafntinna og Myrra, f. 12.3. 2010. Systkini Pjeturs eru Dóra Thor- steinsson, f. 24.2. 1965, hjúkr- unarfræðingur; Geir Thorsteinsson, f. 26.3. 1967, læknir; Sigurður Jó- hann Thorsteinsson, f. 22.3. 1973, d. 6.1. 2010.; Ragnar Thor- steinsson, f. 6.12. 1974, d. 27.12. 1974; Þórarinn Thorsteinsson, f. 6.12. 1974, d. 18.12. 1974. Móðir Pjeturs er Guðbjörg Elín Þórarinsdóttir, f. 18.9. 1930, húsfrú í Reykjavík. Eiginmaður hennar og fósturfaðir Pjeturs var Þorsteinn Thorsteinsson, f. 14.7. 1919, d. 10.4. 2006, verkfræðingur í Reykjavík. Faðir Pjeturs var Stefán Jónsson, f. 4.7. 1927, d. 19.9. 1995, bifvéla- virki í Hafnarfirði.Eiginkona hans var Björk Jónasdóttir, f. 12.12. 1930, d. 28.1. 1993. Úr frændgarði Pjeturs Stefánssonar Pjetur Stefánsson Guðmundur Júlíus Jónsson útvegsbóndi í Görðum í Önundarfirði Gróa Finnsdóttir húsfreyja í Görðum í Önundarfirði Jón Guðmundur Guðmundsson bóndi á Ytri-Veðrará í Önundarfirði Jóna Guðrún Jónsdóttir húsfreyja á Ytri-Veðrará í Önundarfirði Stefán Jónsson bifvélavirki í Hafnarfirði Jón Guðmundsson bóndi á Ytri-Veðrará í Önundarfirði Guðrún Ingibjörg Jónsdóttir húsfreyja á Ytri-Veðrará Þórður „yngri“ Halldórsson bóndi í Hraunkoti í Biskupstungum Ólafía Þórarinsdóttir húsfreyja í Hraunkoti Þórarinn Þórðarson verkamaður í Reykjavík Jóhanna Elín Ólafsdóttir húsfreyja í Reykjavík Guðbjörg Elín Þórarinsdóttir húsfrú í Reykjavík Ólafur Pjetursson bóndi í Stóru-Tungu á Fellsströnd Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir húsfreyja í Stóru-Tungu Skipulag Verk afmælisbarnsins. Bragi Sigurjónsson, alþing-ismaður og ráðherra, fædd-ist á Einarsstöðum í Reykja- dal, S-Þing. 9. nóvember 1910. Foreldrar hans voru Sigurjón Frið- jónsson alþingismaður, og k.h. Kristín Jónsdóttir. Foreldrar Sig- urjóns voru Friðjón Jónsson, bóndi á Sandi í Aðaldal, og k.h. Sigurbjörg Guðmundsdóttir. Foreldrar Krist- ínar voru Jón Ólafsson og k.h. Hall- dóra Ásmundsdóttir. Bragi lauk stúdentsprófi frá MA 1935, að loknu kennaraskólaprófi, og varð cand.phil. frá HÍ 1936. Hann fékkst við kennslu 1936-47 en varð þá tryggingafulltrúi við sýslu- mannsembætti Eyjafjarðarsýslu og bæjarfógetaembættið á Akureyri til 1964. Hann starfaði sem útibússtjóri Útvegsbanka Íslands 1964-79. Bragi sat lengi í bæjarráði og bæjarstjórn og var forseti hennar 1956-70. Hann var þingmaður 1967- 71 og 1978-79. Hann var í fjárveitinganefnd og varð forseti efri deildar 1978 en sagði sig frá því starfi vegna ágreinings um stefnu ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum. Hann var iðnaðar- og landbún- aðarráðherra í ríkisstjórn Benedikts Gröndals 1979-80. Bragi gegndi fjölda trúnaðar- starfa fyrir Alþýðuflokkinn, sat m.a. í hafísnefnd og endurskoðunarnefnd laga um stofnlánadeild landbúnaðar- ins. Hann var fulltrúi á þingi Evr- ópuráðsins 1967-1973 og formaður tryggingaráðs 1979. Bragi sendi frá sér margar ljóða- bækur, þar á meðal ljóðasöfnin Hver er kominn út? (1947), Hraunkvíslar (1951), og Undir Svörtuloftum (1954), safn smásagna og þýðinga. Hann ritstýrði tímaritinu Stíganda og Vikublaði alþýðumannsins. Eiginkona Braga var Helga Jóns- dóttir, f. 28.1. 1909, d. 18.8. 1996. Foreldrar hennar voru Jón Jón- atansson, járnsmiður á Akureyri, og Þórunn Friðjónsdóttir. Börn þeirra: Sigurjón, Hrafn, Þórunn, Gunn- hildur, Ragnhildur og Úlfar. Auk þeirra átti Bragi tvo syni, Helga Ómar og Kormák Braga. Bragi lést á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri 29.10. 1995. Merkir Íslendingar Bragi Sigur- jónsson Laugardagur 90 ára Kristjana Þorgrímsdóttir Magnús Pálsson Rannveig Margrét Jóns- dóttir 85 ára Haukur Sveinbjarnarson Kristín Gunnlaugsdóttir Unnur Marteinsdóttir 80 ára Bergrún Jóhannsdóttir Ólafía Þorsteinsdóttir Sigríður Ágústsdóttir 75 ára Ívar Geirsson Sighvatur Eiríksson 70 ára Anna S. Helgadóttir Erna Grétarsdóttir Gunnar B. Gunnarsson Ingveldur Ingvadóttir Kristín Sjöfn Helgadóttir Stefanía E. Guðmunds- dóttir Svanhildur Stefánsdóttir Vilhjálmur K. Jónsson 60 ára Anna Árnadóttir Arndís Jónsdóttir Arnfríður Ólafsdóttir Ásta Björnsdóttir Hulda Sólborg Haralds- dóttir Kristín Alfreðsdóttir María Guðrún Gísladóttir Pjetur Stefánsson Ragnhildur Elín Ágústs- dóttir Svava Friðþjófsdóttir Tor Einarsson 50 ára Hafdís Gunnarsdóttir Hildigunnur M. Friðriks- dóttir Ingigerður Lára Daðadóttir Jósep Sigurðsson Sigríður G. Gísladóttir Steven Mason Sveinbjörn Hilmarsson Sverrir Þorsteinsson Tina Hjorth Olsen Örn Helgason 40 ára Dalia Zakarauskiene Elzbieta Kamilia Uryn-Pawelczyk Guðrún Gísladóttir Gunnleif Sandra Lárusdóttir Hafdís Dögg Sveinbjarnardóttir Hilda Ólafsdóttir Kristín Ólöf Steinþórsdóttir Sigurður Sveinn Nikulásson Soffía Hreinsdóttir 30 ára Harpa Soffía Einarsdóttir Hiep Thi Le Margrét Rósa Haraldsdóttir Ófeigur Orri Victorsson Sara Jamí Arnarsdóttir Sebastienne Bernard Conradie Sunna Guðbjartsdóttir Tinna Guðbjartsdóttir Tone Maria Breinholt Sunnudagur 104 ára Jensína Andrésdóttir 95 ára Fjóla Kristjánsdóttir Inga V. Einarsdóttir 90 ára Helga Hansdóttir Hörður Adolfsson Valborg Hallgrímsdóttir 85 ára Elsa Kristín Jónsdóttir Ólafía Jónsdóttir Sigbjörn Brynjólfsson 80 ára Elísabet Kemp Guðmundsdóttir Erla Þórðardóttir Guðný S. Sigurðardóttir Sigurður F. Mar Sigurgestur Ingvarsson 75 ára Guðbjörg Sigurðardóttir Jónas Ingimundarson Laufey Alda Ólafsdóttir Sigurður Jónsson Valdís K.M. Valgeirsdóttir 70 ára Björg Björnsdóttir Guðmundur Helgason Tómas John Hounslow 60 ára Anna Soffía Björnsdóttir Anna Torfadóttir Atli Guðlaugsson Guðni Bernharð Guðnason Guðný S. Þorsteinsdóttir Halldór R. Á Reynisson Hildur Baldvinsdóttir Jóna Sigríður Runólfsdóttir Katrín Guðmundsdóttir Sæmundur Pálsson 50 ára Birna Jóhanna Ólafsdóttir Brynjar Jóhannesson Bunchom Janyalert Jóhann Vilhjálmsson Kormákur Geirharðsson Kristín Guðnadóttir Óskar Stanley Sigurðsson Sigurður Bjarki Magnússon Sólveig Magnúsdóttir Olsen Örn Ottósson 40 ára Agnes Lilja Jósefsdóttir Anna Gísladóttir Ágúst Örn Jóhannesson Fjóla Jónsdóttir Fjölnir Ásbjörnsson Guðjón Andri Guðjónsson Hulda Birgisdóttir Hörður Vilberg Lárusson Kolbrún Rut Pálmadóttir Kristín Jónsdóttir Róbert Freyr Gunnarsson Sæmundur Sæmundsson Þórarinn Guðni Sveinsson 30 ára Gunnar Ingi Gunnarsson Kristín Hartmannsdóttir Magnús Bjarni Geirsson Sigmundur Einar Másson Sigríður Pálmarsdóttir Stefán Fróðason Thelma Kristín Þrastardóttir Tryggvi Rafnsson Til hamingju með daginn Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Bæjarlind 16 I 201 Kópavogur I sími 553 7100 I www.linan.is Opið mánudaga til föstudaga 12 - 18 I laugardaga 11 - 16 GYRO tímalaus hönnun & þægindi sameinuð í einum stól kr. 152.000

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.