Morgunblaðið - 09.11.2013, Page 54
Menning
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2013
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Lady Gaga fór mikinn um og eftir út-
gáfuna á sinni fyrstu plötu, The Fame
(2008) og rætt var um hana sem hinn
eina sanna arftaka Madonnu. Ekki
síðan að sá mikli popplistamaður var
upp á sitt besta hafði annars eins
ugluspegill komið fram; list Lady
Gaga var fjölþætt eins og svo gjarnan
hjá farsælustu dægurtónlistarmönn-
unum í dag, snerist bara að hluta til
um tónlist og jafn mikil vigt (jafnvel
meiri myndi einhver segja) var sett á
ímyndarsköpun og fjölmiðlafimleika.
Lady Gaga hagaði sér oft og tíðum
eins og gjörningalistamaður og mörk-
in á milli ruslkenndrar, einnota hvers-
dagslistar og framsækinnar nútíma-
listar óskýr á köflum.
Warhol-ískt ferðalag
Lady Gaga hefur haldið þessari
stöðu sinni, eiginlega rétt svo, þar
sem önnur plata hennar, Born this
Way (2011), reyndist ekki það drottn-
unartæki sem listamaðurinn var
greinilega að reyna að sníða til. Ei er
Gaga þó af baki dottin, og nú eftir
helgi kemur þriðja breiðskífan, Art-
pop, út. Titillinn er stórkarlalegur og
virkar eins og yfirlýsing; ýjað er að
því að list Gaga risti dýpra en hefð-
bundið, fjöldaframleitt popp samtím-
ans og er ýmsum brögðum beitt til að
undirstrika þetta. Umslag plötunnar
er t.a.m. hannað af Jeff Koons og plöt-
unni lýsir Gaga sjálf sem „ljóðrænu
tónlistarferðalagi.“ Þá lýsti hún því
yfir í bloggi sínu að platan yrði „war-
hol-ískt ferðalag með öfugum for-
merkjum,“ hvað sem það nú þýðir.
Gaga vann plötuna með fjölda upp-
tökustjóra; Madeon og Zedd koma við
sögu en einnig RedOne og DJ White
Shadow sem hafa unnið þónokkuð
með henni áður. Gestir eru m.a. R.
Kelly, T.I., Twista og Too Short. Plöt-
unni hefur verið seinkað nokkuð en í
febrúar á þessu ári fór Gaga í mjaðm-
araðgerð sem hafði þónokkur áhrif á
alla framvindu. Hún útskýrði sköp-
unarferlið í viðtali við Women’s Wear
Daily, þar sem hún rýndi í bók-
menntir sem og tónlist ásamt teymi
sínu í drykklangan tíma og dýrkaði
upp andagiftina sem aldrei fyrr: „Ég
fór yfir plötuna á nýjan leik og tíminn
eftir aðgerðina var vel nýttur í að
melta plötuna og stara rækilega inn í
það sem ég hafði gert upp að þeim
tíma,“ lýsir hún. „Svo kom að því að
þessi dásamlega tilfinning, sem segir
manni að maður sé á réttri leið með
eitthvað, helltist yfir mig.“
Húðflúrað app
Eins og lög gera ráð fyrir hefur
markaðssetning plötunnar ekki verið
með eðlilegum hætti. Fyrir það fyrsta
er söngkonan búin að húðflúra heiti
hennar á sig og auk hefðbundinnar
plötuútgáfu kemur Artpop einnig út
sem app sem hannað hefur verið af
tæknideild Haus of Gaga, en Haus of
Gaga er nokkurs konar listiðju/
hugmyndateymi sem vinnur í anda
Verksmiðju Andy Warhol. Enn eitt
dæmið um hversu upptekin Gaga er
af því að krossa yfir í „alvöru“ list
með popplist sína eins og Warhol
sjálfur gerði á sínum tíma. Haus of
Gaga er giska áhugavert fyrirbæri;
samsafn ljósmyndara, hönnuða,
myndlistarmanna o.s.frv. og sér um
fatnað, muni, förðun, myndbönd og
annað sem tengist Gaga. Kjötkjóllinn
frægi er t.d. runninn undan rifjum
þessa batterís. Einn af meðlimum
Haus of Gaga er t.d. ljósmyndarinn
umdeildi Terry Richardson og er
hann með heimildarmynd í smíðum
sem varpar ljósi á vinnsluferlið í
kringum Artpop.
Gaga hefur þá verið að troða upp á
ýmsum stöðum að undanförnu til að
kynna gripinn. M.a. kom hún fram á
G-A-Y næturklúbbnum í London þar
sem hún afklæddist óforvarandis,
fólki til hrellingar sem og ánægju.
Nekt nútíma kvenpoppstjarna hefur
verið nokkuð til umræðu að und-
anförnu en í tilfelli Gaga hlýtur að
vera dýpra á slíkum æfingum. Verð-
um við ekki að gefa okkur það, eða
vona það a.m.k.?
Eru klærnar
enn á krúnunni?
Lady Gaga
gefur út plötuna
Artpop Alvöru
poppdrottning
eða loddari?
Einstök Vegir Lady Gaga eru svo gott sem órannsakanlegir.
Ögrandi Artpop prýðir stytta af
Lady Gaga eftir Jeff Koons.
» Lady Gaga hagaðisér oft og tíðum eins
og gjörningalistamaður
og mörkin á milli rusl-
kenndrar, einnota
hversdagslistar og
framsækinnar nútíma-
listar óskýr á köflum.
Unnur Ýrr Helgadóttir opnar ell-
eftu einkasýningu sína, Tímaflóð, í
Galleríi Fold í dag kl. 15, en þar
getur að líta verk sem unnin eru á
árunum 2012-2013.
Samkvæmt upplýsingum frá
Unni Ýrr fela verkin í sér sjálfs-
könnun listakonunnar. Í þeim birt-
ast viðbrögð hennar við því að eld-
ast með reisn. „Minn sálarheimur,
mínar minningar og dagdraumar,
það er mitt haf sem ég svo auðveld-
lega týnist í, sökkvi mér í dýpt þess
og á meðan flýgur tíminn áfram. Á
vissum aldri er auðvelt að gleyma
sér í eftirsjá eða syrgja gamlar
hugmyndir um framtíðina sem ekki
hafa ræst. Hlutir fara að síga,
krumpast og gefa sig, en svo má
ekki gleyma að með aldrinum öðl-
ast maður visku og hugarró ef mað-
ur leyfir því að gerast,“ segir lista-
konan og tekur fram að hún hafi
lofað sjálfri sér að taka því sem ger-
ist í núinu með húmor, ró og brosi.
Unnur Ýrr lauk B.A.-námi frá
LHÍ 2005. „Þá hefur hún lokið víð-
tæku listanámi bæði frá listaskólum
í Bandaríkjunum sem og hér heima.
Unnur er grafískur hönnuður og
hefur starfað á auglýsingastofum
hér á landi og í Svíþjóð. Undanfarið
ár hefur hún helgað sig ástríðu
sinni fyrir málverkinu.“
Tímaflóð opnað í Galleríi Fold
Listakonan Unnur Ýrr Helgadóttir.
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
Þjóðminjasafn Íslands:
Sunnudagur 10. nóvember kl. 14: Leiðsögn á pólsku
Þriðjudagur 12. nóvember kl. 12: Hádegisfyrirlestur í tilefni af aldarafmæli
Heimilisiðnaðarfélagsins
Sigfús Eymundsson myndasmiður - Frumkvöðull íslenskrar ljósmyndunar í Myndasal
Silfur Íslands í Bogasal
Silfursmiður í hjáverkum í Horni
Skemmtilegir ratleikir, safnbúð og kaffihús.
Þjóðmenningarhúsið við Hverfisgötu:
Í tilefni af 350 ára afmæli Árna Magnússonar:
Handritin til sýnis fyrir almenning til 17. nóvember
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is og www.thjodmenning.is
www.facebook.com/thjodminjasafn og www.facebook.com/thjodmenning
Opið alla daga nema mánudaga í Þjóðminjasafni 11-17,
Þjóðmenningarhúsi alla daga 11-17.
Listasafn Reykjanesbæjar
ENDURFUNDIR/REUNION
Samsýning: Þórður Hall og
Kristbergur Ó. Pétursson
1. nóv. – 15. des.
Bátasafn Gríms Karlssonar
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Listasafn Erlings Jónssonar
Opið virka daga 12-17, helgar 13-17.
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
SKÖPUNARVERK - Kristín Gunnlaugsdóttir
8.11. 2013 - 19.1. 2014
GERSEMAR 18.5. - 7.11. 2013
SAMSÆTI HEILAGRA 11.10. - 8.12. 2013
SAFNBÚÐ - Listaverkabækur, gjafakort og listrænar gjafavörur.
KAFFISTOFA - Heit súpa í hádeginu, úrval kaffidrykkja og heimabakað meðlæti.
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600. Opið daglega kl. 10-17, lokað mánud.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
FORYNJUR - Sýning á verkum af tröllum, draugum og ófreskjum eftir Ásgrím.
Safnið er opið sun. kl. 14-17. Bergstaðastræti 74, sími 561 9616 • www.listasafn.is
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
ÚR DJÚPUNUM - Samsýning Listasafns Sigurjóns Ólafssonar og Listasafns Íslands
Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17.
VATN - sýning Guðrúnar
Kristjánsdóttur í Hallgrímskirkju
16. ágúst - 24. nóvember.
Opið 9-17 alla daga,
ókeypis aðgangur.
Hallgrímskirkjuturn:
BEATING TIME.
Jo Yarrington myndlistarmaður
frá New York
sýnir í klukkugluggum í
Hallgrímskirkjuturni.
Opið alla daga kl. 9-17.
Aðgangseyrir að turni: 700 kr.
HALLGRÍMSKIRKJA
Listvinafélag Hallgrímskirkju
31. starfsár
Óvænt kynni
- Innreið nútímans í íslenska hönnun
(7.6.-5.1.2014)
Opið kl. 12-17. Lokað mánud.
Verslunin Kraum í anddyri
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
Dvalið hjá djúpu vatni
Rúna – Sigrún Guðjónsdóttir
Þinn staður
– okkar umhverfi
Skipulag – verkefni í vinnslu
Sunnudag 10. nóvember kl. 15
Í fótspor Guðjóns Samúelssonar
í Hafnarfirði
Pétur H. Ármannsson
Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri.
hafnarborg.is, sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
GULLIN SKÝ
www.holabok.is/holar@holabok.is
Ævisaga Helenu Eyjólfsdóttur
er komin út og af því tilefni mætir
hún með stórhljómsveit í Súlnasal
Hótel Sögu í kvöld og fer yfir 60
ára söngferil sinn í tali og tónum.
Skemmtunin hefst kl. 21 og að
sjálfsögðu verður bókin til
sölu á staðnum.