Morgunblaðið - 16.11.2013, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2013
Kringlunni 4 | Sími 568 4900
Glæsileg föt frá Gelco
eru þær áætlaðar um 429 milljónir
sem er svipað og fyrir árið 2013.
Helsta skýringin á þessu er senni-
lega lægra fiskverð, sem leiðir til
minni útsvarstekna sjómanna. Áætl-
að er að framkvæma fyrir 30 millj-
ónir króna og greiða niður skuldir
um 14 milljónir króna.
Síldin er óútreiknanleg. Hún
hefur verið merki um haustkomuna
frá 2007 er hún fyrst lét sjá sig. Í
fyrra bar helst til tíðinda óvæntur
síldardauði í Kolgrafafirði. Nú er
annað upp á teningnum. Lítið er um
síld og er hún á grunnu vatni upp í
landsteinum. Stóru síldarskipin eru
að kasta nótinni á allt að þriggja
faðma dýpi. Síldin er á mjög tak-
mörkuðu svæði, nær eingöngu á
Hofstaðavogi en finnst ekki á þeim
svæðum þar sem veiði var góð síð-
ustu haust.
Margir smábátar hafa stundað
síldveiðar í lagnet frá Stykkishólmi í
haust. Þeim var úthlutað 500 tonn-
um til veiða. Sá kvóti var fljótt upp-
urinn. Þrýst hefur verið á stjórnvöld
um aukinn kvóta. Í vikunni var 200
tonnum bætt við og skiptist hann á
milli 30 – 40 báta sem hafa fengið
leyfi til síldveiða. Úthlutað er 8
tonnum á hvern bát á viku svo
aukningin dugar í viku.
Viðhald gamalla húsa er eitt af
einkennum Stykkishólms. Nú bæt-
ist eitt hús enn í þann hóp. Gamla
sýslumannshúsið hefur skipt um
eigendur og hafa þeir ráðist strax í
miklar endurbætur á húsinu. Skipt
verður um klæðningu á húsinu,
klætt með sambærilegum panel og
þeim sem settur var á það 1896,
sem er kúlupanell. Framkvæmdir
annast Baldur Þorleifsson sem hef-
ur komið að endurbótum margra
húsa í bænum og kann því vel hand-
tökin.
Íslenskur æðardúnn ehf hefur
starfað í bænum í nokkur ár. Fyr-
irtækið er að færa út kvíarnar og er
að hefja byggingu á nýju húsi við
Frúarstíg í elsta hluta bæjarins.
Húsið mun hýsa Æðarsetur Íslands.
Þar verður sagt í máli og myndum
frá öllu því er varðar æðarfuglinn
og dúninn sem hann gefur af sér.
Þar er um verðmæta hágæðavöru
að ræða.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Verndun Gamla sýslumannshúsið var byggt 1896 sem læknisbústaður. Það þjónaði síðan sýslumanni í 69 ár.
„Síldin er óútreiknanleg“
ÚR BÆJARLÍFINU
Gunnlaugur Auðunn Árnason
Stykkishólmur
Ýmislegt er um að vera í Hólm-
inum þrátt fyrir að veturinn sé
mættur. Fyrstu snjókornin komu í
vikunni og sólarhring síðar voru þau
horfin í hvassri sunnanátt. Með
vetrarkomunni verður breyting á
ferðamannastað eins og Stykk-
ishólmi. Í haust var mun meira um
erlenda ferðamenn en áður. Ferða-
mannatíminn er að lengjast. Því
verða gististaðir og veitingastaðir
opnir í vetur og Sæferðir bjóða upp
á siglingar um Breiðafjörð.
Slökkvilið Stykkishólms hefur
fengið nýjan yfirmann. Guðmundur
Kristinsson hefur verið ráðinn
slökkviliðsstjóri og tekur við af Þor-
bergi Bæringssyni sem senn lætur
af störfum. Þorbergur hefur starfað
í slökkviliðinu frá 1965 í tæp 50 ár.
Gerð fjárhagsáætlunar
Stykkishólmsbæjar fyrir næsta ár
er langt komin. Lítil breyting verð-
ur á útsvarstekjum á milli ára og
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Embætti umboðsmanns skuldara
hefur fengið athugasemdir frá fyrr-
verandi viðskiptavinum Lýsingar
vegna þeirrar ákvörðunar fjármögn-
unarfyrirtækisins að endurreikna
hvorki gengislán sem voru upp-
greidd við fyrri endurreikning né
þau lán þar sem lántaki átti inneign
á veltureikningi við síðari endur-
reikning. Umboðsmaður getur hins
vegar lítið aðhafst, að sögn Svan-
borgar Sigmarsdóttur, upplýsinga-
fulltrúa umboðsmanns skuldara.
Fulltrúar Lýsingar hafa lýst því
við umboðsmann skuldara að þeir
muni ekki endurreikna lán við-
skiptavina í þessum tilfellum nema
að gegnum dómsmálum sem segi til
að þeir þurfi að gera það.
Ósammála túlkuninni
Að sögn Svanborgar virðist Lýs-
ing byggja afstöðu sína á svo-
nefndum Plastiðjudómi og álíti að
hann með honum sé komin ný túlkun
á endurreikningum. Þessu er um-
boðsmaður skuldara algerlega
ósammála og telur Plastiðjudóminn
staðfesta endurreikningsaðferðir
fyrri dóma Hæstaréttar. Embættið
hefur hins vegar engar valdheimildir
til að grípa inn í.
Viðskiptavinir Lýsingar sem eru
ósáttir við þessa afstöðu fyrirtæk-
isins geta annaðhvort leitað til úr-
skurðarnefndar um viðskipti við
fjármálafyrirtæki eða höfðað dóms-
mál. Svanborg segir að sér sé ekki
kunnugt um að slík málaferli sem
gætu skýrt þessi álitaefni séu í und-
irbúningi.
„Það er voðalega lítið sem við get-
um gert,“ segir hún.
Geta lítið gert í
afstöðu Lýsingar
Athugasemdir berast umboðsmanni
Morgunblaðið/Ómar
Gengislán Lýsing lánaði m.a. fyrir
bílakaupum með gengislánum.
Bónus var oftast með lægsta verðið
og Samkaup-Úrval oftast með hæsta
verðið í nýrri verðkönnun á bökunar-
vörum sem verðlagseftirlit ASÍ gerði
í lágvöruverðsverslunum og stór-
mörkuðum víða um land, miðviku-
daginn 13. nóvember. Kannað var
verð á 106 algengum vörum til bakst-
urs.
Samkaup-Úrval var með hæsta
verðið í 43 tilvikum af 106 og Nóatún í
26 tilvikum. Bónus var oftast með
lægsta verðið eða í 41 tilviki af 106,
Krónan í 26 tilvikum og Iceland í 25. Í
næstum þriðjungi tilfella var um eða
undir tveggja króna verðmunur á
Bónus og Krónunni. Mesta vöruúr-
valið var í Fjarðarkaupum en þar
fengust 103 af þeim 106 vörum sem
skoðaðar voru. Víðir var með næst-
mesta úrvalið eða 97 af 106.
Minnsta úrvalið hjá Bónus
Minnsta úrvalið var hjá Bónus eða
aðeins 66 og af þeim voru fimm óverð-
merktar, segir í frétt ASÍ.
Af einstaka vörum í könnuninni
sem voru fáanlegar í öllum verslun-
um má nefna að 250 g af ósöltuðu
smjöri frá MS var ódýrast á 175 kr.
hjá Bónus, en dýrast á 209 kr. hjá
Nóatúni sem er 19% verðmunur.
Dökku hjúpdroparnir frá Odense,
100 g, voru dýrastir á 268 kr. hjá Ice-
land en ódýrastir á 198 kr. hjá Krón-
unni sem er 35% verðmunur. Þurrk-
aðar apríkósur frá Hagveri, 250 g,
voru dýrastar á 258 kr. hjá Iceland en
ódýrastar á 198 kr. hjá Bónus sem er
30% verðmunur. Flórsykurinn frá
Dansukker, 500 g, var dýrastur á 299
kr. hjá Iceland, Samkaupum-Úrvali,
Hagkaupum og Nóatúni en ódýrast-
ur á 229 kr. hjá Bónus sem er 31%
verðmunur. Mikill verðmunur var
einnig á 100 g af rauðum kokteil-
berjum frá Dr. Oetker, þau voru dýr-
ust á 579 kr. hjá Nóatúni en ódýrust á
459 kr. hjá Bónus sem er 26% verð-
munur.
Í könnuninni var skráð niður hillu-
verð vöru eða það verð sem neytand-
inn hefur upplýsingar um inni í búð-
inni að hann eigi að greiða fyrir
vöruna. Þegar skýrt er gefið til kynna
að veittur sé afsláttur af merktu verði
við kassa var skráð afsláttarverð.
Til að auðvelda verðsamanburð er
skráð mælieiningaverð vöru, þar sem
pakkastærðir eru mismunandi eftir
verslunum, segir í frétt ASÍ um könn-
unina.
Allt að 78% verð-
munur var á
bökunarvörum
Bónus var oftast með lægsta verðið
Morgunblaðið/Sverrir
Mesti og minnsti munur
» Mestur verðmunur var á
möluðum negul frá Príma sem
var dýrastur á 461 kr. hjá Fjarð-
arkaupum en ódýrastur á 259
kr. hjá Krónunni sem er 202 kr.
verðmunur eða 78%.
» Minnstur verðmunur var á
100 g af H-Berg pecan-hnetum
sem voru ódýrastar á 457 kr.
hjá Iceland en dýrastar á 460
kr. hjá Fjarðarkaupum sem er
1% verðmunur.