Morgunblaðið - 16.11.2013, Page 46

Morgunblaðið - 16.11.2013, Page 46
46 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2013 Kjartan Magnússon borgarfulltrúi hefur barist af krafti fyrir hag Reykvíkinga á undanförnum árum. Fáir borgarfulltrúar hafa sinnt málefnum allra hverfa borg- arinnar af viðlíka elju og hann. Og fáir búa yfir eins yfirgripsmik- illi þekkingu á borg- inni okkar. Einmitt slíkt fólk þurf- um við sjálfstæðismenn að velja í forystusveit okkar. Kjartan hefur beðið um stuðning til að skipa áfram 2. sæti lista Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn- arkosningunum næsta vor. Það er að mínum dómi auðvelt að verða við þeirri ósk. Fáir standa honum á sporði þegar kemur að því að gæta hagsmuna Reykvíkinga. Hann stendur vörð um skattfé borgarbúa, er einarður talsmaður ábyrgrar fjármálastjórnar og lágra skatta. Um leið er Kjartan eindreginn talsmaður þess að borgin tryggi góða grunnþjónustu en sé ekki vettvangur gæluverkefna. Kjartan vill jafnframt að öllum hverfum borgarinnar sé gert jafn hátt undir höfði. Kjartan hefur í störfum sínum sýnt að hann er einkar heið- arlegur, duglegur og hreinskiptinn. Í prófkjörsbarátt- unni hefur Kjartan jafnframt sýnt að hann er framsýnn. Hann hefur sett fram hugmyndir um hvernig tryggja megi sem flestum húsnæði á viðráðanlegum kjörum, hvernig lækka megi leiguverð, spara í rekstri borgarinnar, tryggja betri samgöngur í borginni, bæta mennt- un í Reykjavík, bæta aðstæður eldri borgara í samstarfi við þá og svo mætti lengja telja. Þar að auki er hann á móti því að flugvöllurinn verði skipulagður út úr Vatnsmýr- inni. Eftir fjögurra ára meirihluta- samstarf Besta flokksins og Sam- fylkingar mun nýr meirihluti standa frammi fyrir veigamiklum verkefnum. Það er því mikilvægt að tryggja Sjálfstæðisflokknum góða kosningu í borgarstjórn- arkosningunum næsta vor. Það næst ekki nema við náum að stilla upp sigurstranglegum lista sem á er traust fólk með þekkingu og reynslu af borgarmálum. Slíkur maður er Kjartan Magnússon. Ég vil hvetja sjálfstæðismenn til að tryggja Kjartani gott kjör í 2. sæti listans. Eftir Birgi Ármannsson Birgir Ármannsson »Kjartan vill jafn- framt að öllum hverfum borgarinnar sé gert jafn hátt undir höfði. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Veljum Kjartan Magnússon í 2. sætið Ef fólk væri beðið að lýsa orðinu „stjórn- málamaður“ myndu líklegast orð eins og valdagræðgi, spilling, þras, baktjaldamakk og sýndarmennska koma oft fyrir. Sam- félagið virðist ekki hafa mikið álit á stjórnmálum og stjórnmálamönnum um þessar mundir. Það er vel þess virði að velta þessu fyrir sér og leita svara. Ein líkleg skýring á þessum óvinsældum stjórnmálamanna er sú að flestir stjórnmálamenn fara út í stjórnmál á röngum forsendum. Þeir sækja í völd, nota klíkuskap og bak- tjaldamakk til þess að ná mark- miðum sínum – fólk sér í gegnum þetta. Gott dæmi um mann sem er alger andstæða við þessa hugsun er Björn Jón Bragason. Hann er í stjórn- málum á réttum forsendum og hefur ekki áhuga á baktjaldamakki, klíku- skap eða ráðherrastólum. Hann vill einfaldlega betri Reykjavík og fyrir vikið hefur hann boðið fram krafta sína í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Björn Jón hefur skýra framtíð- arsýn á það hvernig hann sér höf- uðborgina okkar vaxa og dafna. Hann þorir að vera ósammála þegar það er óvinsælt og þorir að takast á við erfið vandamál þegar svo ber undir. Sennilega er enginn maður sem hefur rannsakað Reykjavík jafnmikið sl. ár eins og Björn Jón, án þess að vera þar á launaskrá. Fyrir vikið hefur hann ótal margar nýjar og ferskar hugmyndir um að gera góða borg miklu betri. Hugmyndir eins og að reyna að bæta veðrið í Reykjavík gætu minnt fólk á orð Jóns Gnarrs um að fá ísbjörn í hús- dýragarðinn, munurinn er einfald- lega sá að Birni Jóni er fúlasta al- vara og hann hefur sýnt fram á möguleikann. Þannig hugsar Björn Jón, hann lofar ekki upp í ermina á sér einhverju sem getur ekki staðist, heldur færir hann alltaf hnitmiðuð rök fyrir skoðunum sínum – slíka hugsun vantar í borgarstjórn Reykjavíkur. Að lokum þá svarar Björn Jón ekki loðnum svörum, heldur talar hann tæpitungulaust – nokkuð sem stjórnmálamenn verða að fara að læra að gera. Í raun má segja að Björn Jón sé ekkert eins og stjórn- málamaður því allt það sem stjórn- málamennirnir hafa hefur hann ekki og öfugt. Við sem stuðningsmenn hans teljum að það sé jákvætt og þess vegna hvetjum við fólk til þess að setja Björn Jón Bragason í 2.-3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í dag, 16. nóvember. Eftir Erlu Maríu Tölgyes og Jóhann Má Helgason Jóhann Már Helgason » Björn Jón hefur skýra framtíðarsýn á það hvernig hann sér höfuðborgina okkar vaxa og dafna. Erla er meistaranemi í sálfræði og Jóhann Már er framkvæmdastjóri. Erla María Tölgyes Betri mann í betri borg Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi um- ræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höf- unda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar eru á aðra miðla. Að senda grein Kerfið er aðgengilegt undir Morg- unblaðslógóinu efst í hægra horni for- síðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birt- ist felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn grein" er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. fi p y j g p C p i ð lh kl lme va netu-vinaigrette og ettasa ati Grafið lam Villibráðar-paté prikmeð pa Bruchetta tarsmeð tvíreyktu hangikjöti, balsamrauðlauk og piparró Bruchetta með hráskinku, balsam nmog grill uðu Miðjarðarhafsgræ - salat skufer ðbo arðameð Miðj kjRisa-ræ með peppadew iluS ajónmeð japönsku m het Hörpuskeljar má, 3 s Frönsk súkkulaðikaka skum/rjóma og fer Vanillufylltar vatnsdeigsbollur arbSúkkulaðiskeljar með jarð Kjúklingur-satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti R ahörpuskel maríneruð á pinna Túnfiskur í sesamhjúp á spjóti mSími 511 8090 • www.yndisauki.is Veitingar fyrir öll tækifæri, stór og smá, fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Markmið okkar er alltaf það sama, glæsilegar veitingar og ómótstæðilegt bragð. Persónuleg og góð þjónusta. LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383 SPÖNGIN GRAFARVOGI - SÍMI 577 1660 Hálsmen 14K hvítagull, 8 punkta demantur 55.000,- Hálsmen 5 punkta demantur 57.000,- Eyrnalokkar 10 punkta demantur 48.000,- Hálsmen 14K gull, Zircon 22.000,-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.