Morgunblaðið - 16.11.2013, Side 56

Morgunblaðið - 16.11.2013, Side 56
56 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2013 Starfsfólkið á veitingahúsinu Gallerí Restaurant á Hótel Holti erönnum kafið þessa dagana enda styttist í jólin. Þess vegna ætl-ar Friðgeir Ingi Eiríksson, yfirkokkur þar, að fresta veislu- höldum í tilefni af 35 ára afmæli sínu þangað til á milli jóla og nýárs. „Ég ætla að halda upp á það þá þegar það er orðið rólegra í vinnunni og halda flotta veislu fyrir vini og vandamenn,“ segir afmælisbarnið. Matreiðslumeistarinn Friðgeir Ingi segir það algerlega skiptast til helminga hvort hann kjósi að elda sjálfur eða fara út að borða við há- tíðleg tilefni eins og afmælið sitt. „Oft hefur maður haldið upp á afmælið heima eða í sumarsbústað til að vera bara í friði og þá vill maður alltaf elda sjálfur. Ég er rosa- lega hrifinn af appelsínuönd, það er yfirleitt hún eða nautaribeye sem verður fyrir valinu. Maður er náttúrlega svolítið sérvitur og hef- ur sína aðferð við þetta,“ segir hann. Kona Friðgeirs Inga og faðir slógu í gegn á þrítugsafmæli hans en þá stóðu þau fyrir óvæntri veislu á Holtinu án þess að hann yrði nokkurs vísari, þrátt fyrir að hafa verið að vinna þar allan daginn. Eftir vaktina borðaði fjölskyldan saman á veitingastaðnum. Þegar pabbi hans rölti svo með hann í koníaksstofuna á eftir beið þar fullt hús af fólki. „Að þau hafi getað leynt þessu fyrir mér í húsinu er mjög sérstakt,“ segir Friðgeir Ingi og hlær. kjartan@mbl.is Friðgeir Ingi Eiríksson er 35 ára í dag Kokkur Matreiðslumeistarinn Friðgeir Ingi hefur verið yfirkokkur á Holtinu frá áramótunum 2007-08. Annasamt er þar fyrir jólin. Földu fullt hús af fólki á hótelinu Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Reykjavík Hildur Sigríður fæddist 11. ágúst kl. 7.37. Hún vó 3.465 g og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Linda Garðarsdóttir og Hreggviður Ingason. Nýir borgarar Jón Skúli sem býr í Salahverfinu í Kópavogi útbjó kókoskúlur og seldi í götunni sinni til styrktar Fjölskyldu- hjálp Íslands. Hann safnaði með fram- taki sínu 2.702 krónum sem hann gaf Fjölskylduhjálpinni. Söfnun L árus fæddist á Ólafs- firði 17.11. 1933 og ólst þar upp. Hann var í Barnaskóla Ólafsfjarðar, stundaði síðan nám við kvöldskóla þar, lauk landsprófi við Héraðsskólann í Reykholti, stundaði nám við MR og lauk stúdentsprófi þaðan 1954, stundaði nám í viðskiptafræði við HÍ og lauk viðskiptafræðiprófi 1960. „Aðalkennararnir í viðskipta- fræðinni voru prófessorarnir Gylfi Þ. Gíslason og Ólafur Björnsson. Þetta voru góðir og eftirminnilegir kennarar og einstakir persón- leikar. Ólafur kenndi þjóðhagfræði en Gylfi rekstrarhagfræði og reikningshald. Þeir höfðu ólíkar áherslur þegar kom að hlutverki ríkisins í efnahagsmálum. Ólafur var frjálshyggjumaður í besta skilningi þess orðs og ég held nú reyndar að hann hafði verið langt á undan sinni samtíð. En Gylfi var jafnaðarmaður þó hann legði áherslu á mikilvægi virkrar sam- keppni. Þeir voru þess vegna oft skemmtilega ósammála þó auðvit- að færi vel á með þeim. Báðir þessir kennarar útbjuggu gott veganesti fyrir marga nemendur sína.“ Lárus var starfsmaður við Veðurstofu Íslands með há- skólanáminu, var bæjargjaldkeri á Ólafsfirði 1960-68, starfsmaður Efnahagsstofnunarinnar með að- setur á Akureyri 1968-70 og fram- kvæmdastjóri Fjórðungssambands Norðlendinga 1970-71, var alþm. fyrir Sjálfstæðisflokkinn á Norð- urlandi eystra 1971-84, var banka- stjóri Útvegsbanka Íslands 1984- 87, sinnti sérfræðistörfum á eigin vegum 1987-88, var framkvæmda- stjóri Félags rækju- og hörpu- Lárus Jónsson, fyrrv. alþm. og bankastjóri – 80 ára Fjölskyldan Lárus og Guðrún með börnum sínum, Jóni Ellert, Jónínu Sigrúnu, Mörtu Kristínu og Unnari Þór. Pólitíkus og laxveiði- maður frá Ólafsfirði Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is HJÁ AÐALSKOÐUN ERT ÞÚ Í GÓÐUM HÖNDUM Snjallt að kíkja á okkur á adal.is Við erummeð fjórar skoðunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu og eina í Reykjanesbæ. Þaulreyndir og þjónustuliprir fagmenn taka á móti þér á þeim öllum. Hlökkum til að sjá þig! H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 3 -0 4 6 7 Aðalskoðun, faggildur skoðunaraðili í 19 ár Reykjavík Grjóthálsi 10 Sími 590 6940 Reykjavík Skeifunni 5 Sími 590 6930 Hafnarfjörður Hjallahrauni 4 (við Helluhraun) Sími 590 6900 Kópavogur Skemmuvegi 6 (bleik gata) Sími 590 6935 Reykjanesbær Holtsgötu 52 (við Njarðarbraut) Sími 590 6970 www.adalskodun.is og www.adal.is Við getum minnt þig á þegar þú þarft að láta skoða bílinn á næsta ári. Skráðu þig á póstlistann hjá okkur þegar þú kemur með bílinn í skoðun og þú gætir unnið 200 lítra eldsneytisúttekt. Opið kl. 8-17 virka daga – sími 590 6900

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.