Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.12.2013, Blaðsíða 39
8.12. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
U
ppáhaldsmánuðurinn minn er genginn í garð. Mánuðurinn
þegar má vera eins og jólatré alla daga án þess að fá
skrýtnar athugasemdir frá þeim sem þora ekki að lifa til
fulls. Þetta er líka mánuðurinn sem maður á að hitta vini
sína meira að kvöldlagi en venjulega. Og þetta er líka mánuðurinn þar
sem má drekka eitthvað örlítið sterkara en Malt og Appelsín … (í hófi
– hitt er svo hryllilega sjoppulegt – við vorum búin að fara yfir það).
Líklega er heppilegast að setja allt glimmerið í baðskápunum á
augnlokin, dökkan blýant inn í
augun og jafnvel rauðan varalit –
bara svona svo maður káli sér ekki
fyrir hádegi í öllu myrkrinu. Svo er
ágætt að vera með bronsgelið við
höndina og dassa létt yfir andlitið
svo maður líti yfir höfuð út fyrir að
vera á lífi. Vandaðar konur eru
náttúrlega löngu búnar að ákveða
hvað þær ætla að gefa fólkinu sínu
í jólagjöf. En stundum eru þessar
sömu konur svo ákaflega bissí eitt-
hvað og þegar þær fara í jóla-
gjafaleiðangur sjá þær ekkert
nema einhver fínheit sem smell-
passa á þær sjálfar.
Átti einmitt svona augnablik í
Kringlunni á dögunum þegar ég
hnaut um dragt sem ég varð að
eignast. Ekki nóg með það held-
ur varð ég að fá toppinn (sem
var á gínunni í búðinni) við og
skó. Þótt ég þjáist ekki af sér-
legum fataskorti þá gerist það
afar sjaldan að ég kaupi heilt
dress á einu bretti. Og yfirleitt
kaupi ég kjóla – ekki dragtir.
Þetta hefði þó ekki átt að
koma á óvart því
dragtirnar eru að detta inn og verða ennþá meira áberandi
á næsta ári. Victoria Beckham hefur verið að vinna dálít-
ið með þennan tískustraum og hefur hún sýnt dálítið góða
spretti, blessunin. Dragtarbuxurnar eru líka örlítið víðari
– ekki alveg sleiktar utan um lærlegginn líkt og búið
væri að dýfa leggnum í málningardós.
Mér finnst þetta skondið því ég hef ekki farið í
dragt síðan um síðustu aldamót. „Millenium-ið“
kallaði dálítið á dragtir og támjóa skó. Þá var ég
einmitt ung og töff og vann í 17 þar sem ég bók-
staflega mokaði út Claude Zana drögtum í öllum
stærðum og gerðum. Skvísurnar sem unnu á
saumastofu fyrirtækisins voru reyndar farnar
að hárreita hver aðra því ég seldi varla dragt nema
láta þrengja strenginn aðeins eða stytta erm-
arnar. Mér fannst það einhvern veginn klæði-
legra og svo ryksugaði ég upp fastakúnna
sem leið eins og það hefði verið sérsaumað á
þær.
Dragtir eru oft og tíðum stimplaðar sem
einkennisfatnaður bankakerfisins og eftir að
allt hrundi duttu þær ósjálfrátt úr tísku. Í
dag er dragtartískan öðruvísi. Buxurnar
eiga að vera svolítið stuttar, eiga að nema
við ökklann svo skótauið fái að njóta sín.
Jakkarnir eru ekki sleiktir þétt að lík-
amanum heldur dálítið beinir í sniðum
með góðri hreyfivídd. Svo er smart að
vera í laus-sniðnum topp innanundir.
Dragtir henta við flest tækifæri –
nema kannski við heimilisþrif, barna-
pössun, jólakortaskrif, gardínuþvott,
skúringar, eldamennsku, smáköku-
bökun og jólainnpökkun …
martamaria@mbl.is
Hver kannast ekki við merkið? Claude
Zana þótti töff merki.
Árið 2000 var
að hringja
Svartir og hvítir skór
úr Zöru smellpassa
við dragtina.
Dragt frá
Malene
Birger.
Það er fínt að
setja smá
bronsing gel
frá Sensai í
andlitið til þess
að líta út fyrir
að vera á lífi.
Hér er hún í
aðeins öðru
sniði en
buxurnar
eru stuttar.
©
Im
ag
in
ec
hi
na
/
R
ex
F
ea
tu
re
s
Smiðjuvegi 4 (Græn gata), 200 Kópavogi, sími 578 3030, gsm 824 0240, laugin.is
Erum með allt fyrir
Góður endir
á góðum degi
Nuddpottar
Hreinsiefni
Síur
Viðgerðarþjónusta
Varahlutir
CRONUT
Frá Bandaríkjunum til Evrópu og nú
hjá Reyni Bakara í Kópavoginum!
CRONUT er snilldar blanda af Crossant og Donut.
Nýbakaður og fylltur með vanillufyllingu.
Opnunartími Dalvegi:
Mánudaga til föstudaga frá 6:00 til 18:00
laugardaga frá 6:00 til 17:00
sunnudaga frá 7:00 til 17:00
Dalvegi 4 - 201 Kópavogur
Hamraborg 14 - 200 Kópavogur
Sími: 564 4700