Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.12.2013, Blaðsíða 50
Hetja fallin frá
50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.12. 2013
FRELSISHETJAN
Nelson Mandela árið 1961.
AFP
N
elson Mandela var frelsishetja og alþjóðlegt
tákn um réttsýni og sátt. Hann var ljós Suð-
ur-Afríku á tímum þar sem svartnættið eitt
virtist ríkja. Með brosi sínu og lífsvilja leiddi
hann þjóð sína inn í nýja tíma. Réttlæt-
isganga hans var löng og ströng og er nú á endastöð – þótt
aðrir taki við keflinu.
Mandela var goðsögn í lifandi lífi, snerti hátt sem lágt
setta um allan heim, þjóðhöfðingja og almenning. Mandela
Heimsbyggðin
syrgir
ÁRIÐ 1990 TÓK FRELSISHETJAN NELSON MANDELA BROSANDI VIÐ FRELSINU EFTIR
27 ÁRA FANGELSISVIST, TILBÚINN AÐ FYRIRGEFA ÞEIM SEM HÖFÐU KÚGAÐ HANN OG
ÞJÓÐ HANS Í ÞRJÁR ALDIR. FJÓRUM ÁRUM SÍÐAR VARÐ HANN FYRSTI LÝÐRÆÐISLEGA
KJÖRNI FORSETI SUÐUR-AFRÍKU. MANDELA KVADDI ÞENNAN HEIM Á FIMMTUDAG
OG HEFUR HEIMURINN MISST EINN SINN DÁÐASTA SON.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Júlía Margrét julia@mbl.is
VELKOMINN HEIM
Nelson Mandela ávarpar íbúa Soweto-úthverfisins í Jóhannesarborg
daginn sem nágrannar hans og vinir bjóða hann velkominn heim eftir
27 ára fjarvist, 13. febrúar 1990.
EPA
NÓBELSVERÐLAUNIN
Árið 1989 samþykkti þáverandi forseti Suður-Afríku,
Frederik W. de Klerk, að slaka á kynþáttaaðskiln-
aðarstefnunni. Árið 1993 voru Mandela og de Klerk
báðum veitt friðarverðlaun Nóbels.
EPA
NÍRÆÐUR
Mandela fagnar afmælinu með barna- og barnabarnabörnum sínum, 18. júlí
2008. Mandela eignaðist sex börn um ævina, með fyrstu tveimur eig-
inkonum sínum.
AFP
HJÓNIN
Nelson og Winnie Mandela nýgift árið
1957 en Winnie var önnur eiginkona hans.
Þau skildu árið 1996 en Nelson Mandela
giftist fljótlega aftur eftirlifandi eiginkonu
sinni, Graca Machel.
AFP
FORSETI
Nelson Mandela sver emb-
ættiseið sem fyrsti lýðræð-
islega kjörni forseti Suður-
Afríku, 9. maí 1994.
AFP
HJÓNIN
Nelson Mandela
og Graca Machel
haldast í hendur
árið 2009 þegar
núverandi forseti
Suður-Afríku,
Jacob Zuma, tók
við embætti sínu í
Pretoria.
FANGABÚÐIRNAR
Mandela heimsækir grjótnámuna
sem hann og aðrir fangar á Robb-
en-eyju strituðu í. Stundin, árið
1995, var merkingarþrungin.
AFP
fæddist 18. júlí 1918 og var nefndur Rolihlahla Mandela en
Rolihlahla merkir „friðarspillir“. Barnaskólakennarinn hans
gaf öllum nemendum sínum enskt nafn og eftir það var hann
ávallt kallaður Nelson. 16 ára gamall sá Mandela að í mennt-
un fælist máttur og vakti eftirtekt fyrir óvenjulegt viðhorf til
lífsins.
Mandela gekk fyrst í Fort Hare-háskólann en var rekinn
þaðan fyrir baráttu sína fyrir réttindum stúdenta. Hann kom
til Jóhannesarborgar árið 1941 og útskrifaðist sem lögfræð-