Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.12.2013, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.12.2013, Blaðsíða 57
8.12. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57 Sveinn Einarsson er höfundur bókarinnar Kamban - Líf hans og starf. Í bókinni fjallar Sveinn um ævi Kambans og segir ít- arlega frá verkum hans, fjallar þar um leikrit hans, skáldsögur og önnur verk. Hann fjallar líka um leikhúsmanninn Kamban. Lífsskoðunum Kambans eru einnig gerð skil. Sveinn segir svo vitanlega frá sviplegum dauða Kambans en eins og alkunna er drápu danskir andspyrnumenn hann í stríðslok. Þar dregur Sveinn fram margvísleg gögn sem varpa nýju ljósi á málið. Einn af köflum bókarinnar heitir Hefði Kamban verið sýknaður í rétt- arhöldum? Fjöldi mynda prýðir bókina. Sveinn segir frá Kamban Sjónvarpskokkurinn velþekkti Nigella Lawson er í heims- fréttunum eftir erfiðan skilnað og að hafa ákært aðstoð- arkonur sínar fyrir fjárdrátt en á móti bera þær hana þungum sökum. Nigella er í uppáhaldi hjá mörgum sjónvarpsáhorf- endum enda hefur hún mikla útgeislun og framkoma hennar er fjörleg og skemmtileg. Mat- reiðslubækur Nigella hafa not- ið mikilla vinsælda víða um heim, einnig hér á landi. Nú er komin ný bók, Nigella á ítölskum nótum. Þar er að finna tæplega hundrað upp- skriftir að girnilegum ítölskum mat sem Nigella hefur þróað á sinn sérstaka hátt. Þar er pasta auðvitað fyrirferðarmikið en einnig kjöt, fiskur og fuglar. Grænmeti og meðlæti er á sínum stað og þegar Nigella á í hlut þá er víst að sætir réttir eru einnig á matseðlinum, en hún hræðist ekki sykur og sætindi. Í bókinni er svo einnig að finna fróðleik um ítalska matreiðslu og hagnýt hollráð. NIGELLA ELDAR ÍTALSKA RÉTTI Sir Alex Ferguson, fyrrum knattspyrnustjóri Manchester United, er goð í augum aðdá- enda sinna. Þeir hljóta því að horfa kampakátir til nýrrar bókar um kappann. Hún nefn- ist Sir Alex og hefur undirtit- ilinn Hinn magnaði Fergu- son-tími hjá Manchester United 1986-2013. Fjöl- margir þekktir leikmenn koma við sögu í bókinni og Sir Alex skiptist á að hrósa þeim og skamma, selja þá og kaupa og leggur auk þess á ráðin eins og honum einum er lagið. Höfundur bókarinnar er Guðjón Ingi Eiríksson sem hef- ur skrifað vinsælar knattspyrnubækur. Þetta er bók sem mun örugglega rata í jólapakka fjölmargra stuðningsmanna þess knáa knattspyrnuliðs Manchester United og er reyndar skyldugjöf til þeirra. Ekkert skal hins vegar fullyrt hér um ein- lægan áhuga stuðningsmanna annarra liða, eins og Liverpool, á þessari bók. En sennilega hafa þeir þó gott af að lesa hana. Það er alltaf fróðlegt að vita sem mest um keppinautana. BÓK UM GOÐIÐ Sigrún og Friðgeir - ferðasaga eftir Sigrúnu Pálsdóttur er afar eftirminnileg og vel sögð saga um fjölskyldu sem virðist eiga framtíðina fyrir sér en óblíð örlög ætla annað. Læknishjónin Sigrún og Frið- geir eru fjögur ár í námi í Bandaríkjunum og Kanada en snúa síðan heim til Íslands með Goðafossi árið 1944 ásamt ungum börnum sínum. Loka- kafli bókarinnar er áhrifamikill og átakanlegur. Áhrifamikil og átakanleg saga Setjum bækur í jólapakkana NÝJAR BÆKUR ÞAÐ ER ÁSTÆÐA TIL AÐ MINNA FÓLK Á AÐ GEFA BÆKUR Í JÓLAGJÖF ÞVÍ GÓÐAR BÆKUR ÞROSKA OG GLEÐJA. ÞAÐ ER ÚR NÓGU AÐ VELJA ÞESSI JÓLIN. SKÁLDSÖGUR ERU KANNSKI EKKI EINS FYRIRFERÐARMIKLAR OG OFT ÁÐUR EN MIKIÐ BER Á ÆVISÖGUM OG ENDURMINNINGUM. Blóð hraustra manna er ný spennu- bók eftir Óttar Norðfjörð og er sjálfstætt framhald kvikmyndarinnar Borgríkis. Gunnar situr inni og Hannes, sem er lögreglumaður, læt- ur sig dreyma stóra drauma. Sam- eiginlegt markmið þeirra er að fletta ofan af svikara innan lögregl- unnar sem er grunaður um að vara harðsvíraða glæpamenn við þegar lögreglan er á hælum þeirra. Spennusaga frá Norðfjörð Sagan af leiðangri Vilborgar Örnu Giss- urardóttur á suðurpólinn er sögð í bókinni Ein á enda jarðar sem Sigmundur Ernir Rúnarsson skráir. Flestar myndir bók- arinnar eru eftir Vilborgu Örnu. Þetta er saga stúlku sem var þrisvar rek- in úr skóla en lærði á veikleika sína og nýtti styrkleika sína til fulls og varð þjóðhetja eftir pólgöngu sína. Bók sem margir vilja örugglega lesa. Stúlkan sem varð þjóðhetja * Aðeins andlega dauðir aumingjarþrá rósemi sveitalífsins.Þórbergur Þórðarson BÓKSALA 25. NÓV.-1. DES. Allar bækur Listinn er tekinn saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda 1 Veisluréttir HagkaupsFriðrika Hjördís Geirsdóttir 2 SkuggasundArnaldur Indriðason 3 Vísindabók VillaVilhelm Anton Jónsson 4 LygiYrsa Sigurðardóttir 5 Guðni : léttur í lundGuðni Ágústsson Hemmi Gunn : sonur þjóðar Orri Páll Ormarsson Útkall : lífróður Óttar Sveinsson 8 Rangstæður í ReykjavíkGunnar Helgason 9 Fiskarnir hafa enga fæturJón Kalman Stefánsson 10 Amma glæponDavid Walliams Íslensk skáldverk 1 SkuggasundArnaldur Indriðason 2 LygiYrsa Sigurðardóttir 3 Fiskarnir hafa enga fæturJón Kalman Stefánsson 4 GrimmdStefán Máni 5 SæmdGuðmundur Andri Thorsson 6 DísusagaVigdís Grímsdóttir 7 Glæpurinn ástarsagaÁrni Þórarinsson 8 MánasteinnSjón 9 Til EyjaEdda Andrésdóttir 10 HlustaðJón Óttar Ólafsson 6-7 6-7 MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR Orð í tíma talað er betra en tíu í ótíma. Rangstæður í Reykjavík er ný barnabók eftir Gunnar Helga- son. Hún er framhald tveggja geysivinsælla bóka, Víti í Vest- mannaeyjum og Aukaspyrna á Akureyri. Ekki er að efa að þessi nýja bók muni einnig slá í gegn hjá strákum og stelpum sem áhuga hafa á fótbolta. Bókin er ein af söluhæstu bók- um á Bóksölulistanum þessa vik- una og er í 8. sæti á metsölulista Eymundsson yfir mest seldu bæk- ur vikunnar. Í þessari bók eru Jón Jónsson og félagar hans komnir á ReyCup ásamt stelpum og strákum í 3. og 4. flokki frá öllu landinu og meira að segja frá útlöndum. Þeir sem lásu síðustu bók muna að henni lauk á háspennu þannig að ýmislegt hlýtur að skýrast varðandi örlög persóna. Hvað varð um Ívar? Fór Eivör í atvinnumennskuna? Hvar í veröldinni er Rósa? Unnendur fótboltabóka Gunnars bíða eftir að fá svör við þessum brennandi spurningum í Rang- stæðum í Reykjavík. BARNABÓK SEM BEÐIÐ HEFUR VERIÐ EFTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.