Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.12.2013, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.12.2013, Blaðsíða 38
ríkum þjóðbúningum. Sá áhugi kom mér á óvart. Ég hefði fyrir nokkrum árum talið þjóðbúninga vera síðasta sort enda alin upp í anda femínista í rauðum sokkum. Í þeim brjóstahaldaralausa hópi 1976 voru þjóðbúningar ekki hátt skrifaðir. Það er gaman að koma sjálfum sér á óvart og kannast við að smekkur og áhugi lifi stundum sjálfstæðu lífi innra með manneskjunni. Áttu einhverja dýrmæta flík sem þú tímir ekki að nota? Nei, það er eðli góðs fatnaðar að slitna eins og það er eðli glers að brotna. Hvort tveggja eykur verðmæti og gildi þessara hluta. Mér þykir vænt um vandaðar flíkur úr góðum efnum og ég fer vel með þær og er stolt af þeim, sérstaklega ef einhver önnur kona og ef til vill fleiri en ein hefur átt þær á undan mér. Ef þú fengir aðgang að tímavél sem gæti flutt þig aftur til árs að eigin vali og þú fengir dag til að versla, hvaða ár myndirðu velja og hvert færirðu? Árið 48 fyrir Kristsburð, ég vel mér að vera Kleópatra, drottning Egypta. Hún hafði þá og hefur enn sterk áhrif á tískuna. Sagan segir að hún hafi haft gott vald á dá- leiðslutækni, eins og ég. Hvernig myndir þú lýsa stílnum þínum? Stíllinn minn er litríkur og tímalaus. Ég nýt þess að velja föt sem ýta undir góða líðan og komi dimmir dagar þá reyni ég að vega upp á móti með sterkum litum og óhefðbundnum samsetningum. Ég vona að stíllinn minn sé oftast glaðlegur. Áttu þér uppáhaldsflík eða fylgihlut? Ég á slá sem amma mín prjónaði á mig þegar ég var 11 ára, sú flík er mér afar kær. Ég elska annars góð kaup og skrítna skó eins og bleiku Bruno Magli-skóna mína, rauðu Rocket Dog og súperháu YSL-hælana. Ein- hver sagði mér að það væri ekki hægt að dansa tangó í slíkum skóm en ég var fljót að afsanna það. Mér þykir líka vænt um flíkur og hluti sem kalla fram góðar minningar eins og hringurinn sem við hjónin fundum í San Fransiskó þegar maðurinn minn var að hjálpa gamalli blindri konu yfir götu þar sem var mikil umferð. Hún byrjaði á því að berja hann með hvíta stafnum af því hún treysti því ekki til að byrja með að hann ætlaði að hjálpa henni. Konan komst óhult yfir götuna og nokkrum mínútum síðar fundum við þennan fal- lega hring. Ætlar þú að festa kaup á einhverju sérstöku fyrir jólin? Ég fékk kjól fyrir gamlárskvöld hjá Fríðu frænku, annað verður það ekki. Líf mitt hefur alla tíð flotið áfram í afmörkuðum tímabilum. Nú er tímabil fatasöfnunar að renna sitt skeið á enda. Þegar við mæðgurnar klárum tískubloggsverkefnið í febrúar eða mars þá tek ég 80% af flíkunum og opna stóra bílskúrssölu. Loka þar með 30 ára áhuga á gæðafatnaði. Eitthvað nýtt og spenn- andi tekur við. Ég hef starfað við hjúkrun, gæðamál og starfs- mannastjórnun í 40 ár. Ef ég ætti að velja í dag kæmi hand- verk, listir og dáleiðsla sterkar inn. Ég geri ráð fyrir að næsta tímabil beri þess merki. Dáleiðslan er í fyrsta sæti eins og er. Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða mottó, þegar kemur að klæðaburði? Ég hvet alla til að hafa kjark til að skapa sinn einstaka stíl, það eykur fjölbreytni mannlífsins og auðgar andann. Hvar kaupir þú helst föt? Ég kaupi nær eingöngu föt í second hand búðum og eru Hjálpræðisherinn og Rauði krossinn í efsta sæti. Hver hafa verið bestu kaupin þín fatakyns? Síð 100% kasmírpeysa sem ég fékk fyrir slikk í second hand búð í ítalska hverfinu í Boston. Pels-kápa og blár silkikjóll sem ég notaði síðasta sumar í brúðkaupi dóttur minnar, hvort tveggja keypt hjá Hjálpræðishernum í Garðastræti. Ég gerði líka oft góð kaup á eBay fyrir nokkrum árum þegar krónan var sterk. En þau verstu? Rándýr stígvél með leðurbotni sem ég keypti í Barselóna. Sól- inn varð eins og tyggjó í íslenska saltslabbinu. Síðan þá læt ég alltaf sóla leðursóla. Hvaðan sækir þú innblástur? Fyrstu tíu árin í tískublöð og erlendar tískusýningar á netinu. Nú- orðið læt ég hugmyndarflugið ráða og nýt þess þegar hugurinn tekur mig inn á óvæntar slóðir eins og þegar áhugi minn vaknaði fyrir lit- „Dressið sem myndað var samanstendur af einu sjali og einum trefli. Þegar belti og hálsskrauti er bætt við má ef til vill sjá anda Kleópötru svífa yfir en sé skrautið fjarlægt og silkisvunta sett upp verður búningurinn öllu þjóðlegri.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg EINSTAKUR STÍLL EYKUR FJÖLBREYTNI MANNLÍFSINS Glaðlegur stíll MAGNA BIRNIR HEFUR LENGI HAFT ÁHUGA Á GÆÐAFATN- AÐI. HÚN OG DÆTUR HENNAR STOFNUÐU SKEMMTILEGA TÍSKUBLOGGIÐ WHATMAGNAWORE.TUMBLR.COM SEM SÝNIR ÁKAFLEGA FJÖLBREYTTAN OG FLOTTAN STÍL MÖGNU. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Hringurinn er í uppáhaldi hjáMögnu því hann kallar framgóðar minningar. Magna nýtur þess að klæðast fallegum flíkum. Kleópatra drottning Egypta er mikil tískufyrirmynd. Magna fin nur lífsham ingju með al annars í d aglegum l ífsleikjum eins og kl æðaburði . *Föt og fylgihlutir Sérlega fallegir og fágaðir jólakjólar eru meðal þess sem vert er að athuga fyrir aðfangadag »40
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.