Morgunblaðið - 02.01.2014, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 2. J A N Ú A R 2 0 1 4
TÍMAMÓTUM
FAGNAÐ Á
ÝMSAN HÁTT
VANTAR
LÍFRÆN
KÚABÚ
KÁRI STEINN
VANN TÍUNDA
ÁRIÐ Í RÖÐ
BIOBÚ Í ÁRATUG 6 GAMLÁRSHLAUP ÍÞRÓTTIRÁRAMÓT 30
ÁRA
STOFNAÐ
1913
Það er gott að byrja árið með áhlaupi og gleði. Það gerði sjó-
sundsfólk í Reykjavík sem klæddist skrautlegum búningum
og þrammaði niður flæðarmálið í Nauthólsvík á hádegi í gær
og lagði á djúpið. Sannarlega var hrollur í sumum þátttak-
enda sem létu það þó ekki á sig fá enda er sjósundið nokkuð
sem bæðir bætir og kætir. Sú var tíðin að lögregluþjónar létu
sérstaklega að sér kveða í sjósundi á nýársdag. Nú gera það
hins vegar fleiri, enda nýtur þetta heilsubótarsport stöðugt
vaxandi vinsælda og aðstaðan til iðkunar er orðin býsna góð.
Skrautlegt sundfólk í Nauthólsvík í byrjun nýja ársins
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bæði biskup Ís-
lands og forseti
Íslands fjölluðu
um neikvæðar
hliðar umræð-
unnar á netinu í
nýársræðum sín-
um í gær.
Andrés Magn-
ússon, blaðamað-
ur og fjölmiðlarýnir, bendir á að
fjölmiðlar séu ekki lengur hliðverð-
ir umræðunnar. Salvör Nordal, for-
stöðumaður Siðfræðistofnunar HÍ,
telur að hætta á persónulegum
árásum geti fælt fólk frá því að
taka þátt í opinberri umræðu. »4
Neikvæð umræða
á netinu var rædd
í nýársræðum
Netið Umræðan er
oft hörð og óvægin.
Óvissustigi vegna snjóflóðahættu
á norðanverðum Vestfjörðum var
lýst yfir í gærkvöldi.
Mikill snjór er til fjalla og gert er
ráð fyrir úrkomu næstu daga, sam-
kvæmt upplýsingum frá snjóflóða-
vakt Veðurstofunnar. Sem stendur
er ekki talin ástæða til að rýma hús-
næði en óvissustig þýðir að fylgst
er náið með ástandi snjóalaga og
verður gripið til aðgerða ef þurfa
þykir. Á norðan- og austanverðu
landinu hefur einnig snjóað mikið
og má búast við að snjóflóð geti fall-
ið til fjalla. Þar er ekki talin hætta í
byggð sem stendur.
Snjóflóðahætta á
Vestfjörðum
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Gjaldeyrisstaða þjóðarbúsins lítur
betur út en hún gerði á fyrri hluta árs
2013, ef frá er talin gjaldeyrisþörf
vegna svonefndrar snjóhengju.
Skuldatryggingarálag á erlend lán til
ríkisins og fyrirtækja gæti því lækk-
að og vaxtakjör því batnað.
Þetta er mat Friðriks Más Bald-
urssonar, prófessors við viðskipta-
deild Háskólans í Reykjavík.
Tilefnið er tvíþætt. Annars vegar
50 milljarða fyrirframgreiðsla
Landsbankans inn á 300 milljarða
króna skuld við gamla Landsbank-
ann í erlendri mynt. Hins vegar þær
fréttir að Orkuveita Reykjavíkur
þurfi ekki að kaupa erlendan gjald-
eyri á þessu ári til að mæta gjald-
dögum.
„Næstu tvö ár líta nú betur út
varðandi greiðslur af erlendum lán-
um en þær tölur sem fyrir lágu gefa
til kynna. Það er jákvætt og gefur til-
efni til þess að auka bjartsýni um að
erlend fjármögn-
un fyrirtækja-
rekstrar komist í
eðlilegt horf.
Skuldatrygg-
ingarálag ætti að
lækka. Vandinn
vegna föllnu bank-
anna stendur hins
vegar óleystur,“
segir Friðrik Már
og vísar til snjó-
hengjunnar.
Þarf ekki að kaupa gjaldeyri
Tölurnar sem Friðrik Már vísar til
er m.a. að finna í nýjasta eintaki
Fjármálastöðugleika, rits Seðla-
banka Íslands. Þar kemur fram að
Landsbankinn þarf að greiða 77
milljarða af skuldabréfinu árin 2014
og 2015 en 50 milljarðar af því eru
þegar greiddir. Þá er gert ráð fyrir
37 milljarða afborgunum fyrirtækja í
eigu sveitarfélaga, stærstur hlutinn
OR í erlendri mynt á þessum tveimur
árum. Þar af er tæplega helmingur af
gjaldeyrisþörf OR tryggður í ár. OR
á þannig gjaldeyrissjóð og mun afla
7-8 milljarða tekna í gjaldeyri á þessu
ári og þarf því ekki að kaupa gjald-
eyri vegna gjalddaga í ár. Afborganir
af skuldabréfi Landsbankans eru
áætlaðar 73 milljarðar 2016, 2017 og
2018, alls 219 milljarðar. Er það ríf-
lega helmingur af gjaldeyrisþörf
sveitarfélaga, ýmissa lánastofnana,
fyrirtækja með ríkisábyrgð, fyrir-
tækja sveitarfélaga, annarra aðila og
vegna skulda innlendra aðila, án
Landsbankans, við föllnu bankana í
erlendri mynt. Má minna á að Lands-
virkjun hefur tekjur í erlendri mynt.
Telur Friðrik Már aðspurður að
ofangreindar jákvæðar fréttir af OR
og Landsbankanum kunni að liðka
fyrir endurfjármögnun skuldabréfs
bankans, þannig að greiðslurnar
dreifist á fleiri ár.
Hann ítrekar að vandi vegna er-
lends gjaldeyris innan haftanna sé
eftir sem áður óleystur. Hann vilji því
ekki spá um gengisþróun á næstu
misserum.
Gjaldeyrisstaða
þjóðarbúsins betri
Góð gjaldeyrisstaða OR vitnar um umskipti fyrirtækisins
Skuldatryggingarálag á erlend lán gæti farið að lækka
Friðrik Már
Baldursson
Karlmaður á sextugsaldri liggur al-
varlega slasaður á gjörgæslu Land-
spítalans í Fossvogi eftir að flug-
eldur sprakk í höndunum á honum á
Selfossi aðfaranótt nýársdags. Mað-
urinn hlaut alvarlega áverka á hönd-
um og brunasár í andliti og á brjósti.
Töluverður erill var á bráða-
móttöku Landspítalans í Fossvog-
inum á gamlárskvöld en mikið var
um ölvun í miðbæ Reykjavík og
margir sóttu á bráðamóttökuna
vegna áverka sökum slagsmála. Því
var einnig töluvert að gera hjá lög-
reglunni sem þurfti að hafa afskipti
af mörgum. Eins var fjöldi útkalla
hjá slökkviliðinu sem sendi dælubíl í
21 útkall. »6
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Áramót Áfengisneysla var mikil.
Erilsöm
nýársnótt
Karlmaður liggur
alvarlega slasaður
304. tölublað 102. árgangur