Morgunblaðið - 02.01.2014, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Skíðaferð tilMadonna
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
V
IT
67
19
3
12
/2
01
3
VITA er lífiðVITA
Suðurlandsbraut 2
Sími 570 4444
Skráðu þig
í netklúbbinn -VITA.isVITA er í eigu
Icelandair Group.
Vikudvöl á Hótel St.Hubertus 18. janúar.
*Verð án Vildarpunkta 129.900 kr.
Verð frá 119.900kr.
og 12.500Vildarpunktar*
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Fjöldi ferðamanna kvaddi gamla
árið með Íslendingum á gamlárs-
kvöld en Ísland er orðið einn
áhugaverðasti staðurinn til að
heimsækja yfir jól og áramót að
sögn Sveins Sigurðar Kjart-
anssonar, eiganda Iceland Luxury
Tours. „Það er ekki spurning að
Ísland er eftirsótt um jól og ára-
mót og það er eftirspurn eftir ára-
mótaferðum þar sem sóst er eftir
því að upplifa íslensku áramótin,“
segir Sveinn en Iceland Luxury
Tours er með sérsniðnar ferðir eft-
ir óskum ferðamanna. Hjá Allra-
handa var mikið að gera á gaml-
árskvöld en fyrirtækið býður upp á
ferðir bæði á brennur og flug-
eldasýningar. Þær upplýsingar
fengust hjá fyrirtækinu að hátt í
500 ferðamenn hefðu sótt ferðir
þess á gamlárskvöld.
Fjöldi ferðamanna kom einnig
saman á Skólavörðuholti og segir
Hannes Pálsson, einn þriggja eig-
enda Pink Iceland, fjöldann hafa
verið svipaðan og undanfarin ár.
„Ég var sjálfur með ferðamenn á
Skólavörðuholtinu að skjóta upp
flugeldum en við erum með öðru-
vísi ferðir en kannski almennt ger-
ist. Ferðamennirnir héldu áramót-
in með okkur, þ.e. við fórum
saman í mat, skutum upp flug-
eldum saman og þeir komu með
okkur í áramótapartí með vinum
okkar,“ segir Hannes og bendir á
að Skólavörðuholtið sé vinsæll
staður fyrir ferðamenn á gamlárs-
kvöldi.
Ánægja með flugeldasölu
Sala á flugeldum um þessi
áramót var mjög svipuð og í fyrra,
að sögn Jóns Inga Sigvaldasonar,
markaðs- og sölustjóra Lands-
bjargar. „Salan gekk bara mjög
vel. Við erum mjög sáttir og þökk-
um þjóðinni fyrir stuðninginn.“
Hjá KR-flugeldum gekk salan
einnig vel en Kristinn Kjærnested
hjá KR-flugeldum segir söluna
hafa verið meiri í ár en í fyrra.
„Þetta gekk vel í ár og við erum
ánægðir með söluna.“
Flugeldum og ferðamönnum fjölgar
Fjöldi ferðamanna sótti áramótabrennur og margir komu saman á Skólavörðuholtinu til að
kveðja gamla árið og fagna því nýja Flugeldasala hjálparsveita og íþróttafélaga gekk vel í ár
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gamlárskvöld Ferðamenn fögnuðu áramótunum með Íslendingum að íslenskum sið á Skólavörðuholti.
„Það voru 38 sms sem biðu mín fljót-
lega eftir miðnætti, þegar ég loksins
þorði að kíkja á símann minn, og þau
voru öll á jákvæðum nótum,“ segir
Kristófer Dignus leikstjóri um við-
brögðin við Áramótaskaupinu 2013
þar sem hann var við stjórnvölinn.
„Áherslan var aðallega á að vera á
léttu nótunum, vera ekki rætinn og
vera ekki að nota Skaupið til að stinga
á einhverjum kýlum í samfélaginu,“
segir hann. „Bara gera grín að þjóð-
inni og hvað við erum öll klikkuð.“
Upphafleg útgáfa Áramótaskaups-
ins var 78 mínútur að lengd og Krist-
ófer segir að það hafi verið góður skóli
að stytta hana niður í umbeðnar 50
mínútur. Öllum hitamálum ársins,
sem ekki tókst að afgreiða, voru gerð
skil á einu bretti í næstsíðasta atriði
Skaupsins, sem var að sögn Arnar
Árnasonar leikara ágætishugmynd.
„Mér fannst þetta takast ljómandi
vel. Þetta var faglegt og flott og prýði-
lega gert og bara skrambi fyndið á
köflum,“ segir Örn um Áramóta-
skaupið en sjálfur hefur hann komið
að gerð yfir tíu Skaupa. Örn segir
framleiðslu Áramótaskaupsins fyrst
og fremst snúast um skemmtilegt og
gott grín, þar sem minnisstæðir at-
burðir síðasta árs eru teknir saman,
en í gegnum tíðina hafi formið stund-
um verið fyrir.
„Stundum hefur maður hugsað að
útfærslan á Skaupinu hafi þvælst fyr-
ir efninu, menn eru að reyna að toppa
sig og búa til einhvern ramma, sem
gengur svo kannski ekki upp,“ segir
hann en þannig hafi það ekki verið að
þessu sinni. holmfridur@mbl.is
Fengið góð viðbrögð
Fyndið Kristófer segir að áhersla hafi
verið lögð á að vera á léttum nótum.
Leikstjóri Áramótaskaupsins segir móttökur Skaupsins hafa
verið góðar Skrambi fyndið á köflum, segir Örn Árnason
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson sæmdi
ellefu Íslendinga riddarakrossi, það er heið-
ursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Þeir eru:
Alfreð Gíslason handknattleiksþjálfari, Þýska-
landi, fyrir framlag til íþrótta; Ingileif Jóns-
dóttir prófessor fyrir kennslu og rannsóknir á
sviði ónæmisfræða; Ingvar E. Sigurðsson leikari
fyrir framlag til íslenskrar leiklistar; Kolbrún
Björgólfsdóttir myndlistarmaður fyrir framlag
til íslenskrar myndlistar; Magnús Eiríksson tón-
listarmaður fyrir framlag til íslenskrar tónlistar;
Ólafur B. Thors fyrir framlag til menningar og
þjóðlífs; Smári Geirsson, framhaldsskólakennari
og rithöfundur, fyrir framlag til sögu og fram-
fara á Austurlandi; Soffía Vagnsdóttir skóla-
stjóri, Bolungarvík, fyrir framlag til félagsmála
og menningar í heimabyggð; Stefán Eiríksson
lögreglustjóri riddarakross fyrir frumkvæði og
forystu á sviði löggæslu; Svanfríður Jónasdóttir
bæjarstjóri, Dalvík, riddarakross fyrir störf að
sveitarstjórnarmálum; Unnur Kolbrún Karls-
dóttir, formaður líknar- og vinafélagsins Berg-
máls, riddarakross fyrir framlag til mann-
úðarmála.
Myndin var tekin á Bessastöðum í gær en
þangað mættu níu af ellefu orðuhöfum í boð til
forsetahjónanna.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ellefu voru sæmdir heiðursmerkinu
Forseti Íslands afhenti fálkaorðuna á Bessastöðum á nýársdag
Fyrsta barn árs-
ins 2014 er
stúlka sem fædd-
ist í heimahúsi í
Garðabæ kl. 5.34
á nýársnótt.
Þetta er í fyrsta
sinn frá árinu
2009 sem nýárs-
barnið fæðist ut-
an sjúkrahúss.
Stúlkan var
þrettán merkur.
Að sögn Kristbjargar Magn-
úsdóttur ljósmóður, sem tók á móti
stúlkunni, heilsast bæði móður og
barni vel.
Fyrsta barn ársins á fæðing-
argangi Landspítalans var stúlka,
sem kom í heiminn kl. 7.05. Rúm-
lega klukkustund síðar fæddist svo
drengur í Hreiðrinu á Landspít-
alanum og undir kvöld í gær höfðu
á deginum alls átta konur alið börn
sín á LSH.
Fyrstu börnin sem fæddust á
Sjúkrahúsinu á Akureyri voru tveir
drengir sem fæddust með fimm
mínútna millibili. Annar þeirra
fæddist kl. 8.17 en hinn kom í
heiminn fimm mínútum síðar.
sbs@mbl.is
Nýársbarn
í Garðabæ
Barn Nýársbörnin
boða bjartsýni.
Átta á Landspítala