Morgunblaðið - 02.01.2014, Blaðsíða 11
fræðingur og saman mynda þau
Heilsufólkið.
Kraftaverkatréð
Ragnheiður er heilluð af því
sem unnið er úr trénu Moringa og
hafði það mikið að segja þegar
Ólafur hafði samband.
„Þetta Moringa er kallað
kraftaverkatré og það hefur haldið
lífinu í heilu þjóðflokkunum síðast-
liðin þúsund ár þegar skort hefur
næringu og auðlindir hafa verið
uppurnar,“ segir Ragnheiður.
„Svo þegar vísindamenn
komast í að rannsaka laufin á
trénu sést hvað gífurleg nær-
ing er í hverju laufi.“
Laufin eru þurrkuð og
því næst mulin.
Andoxunarefni
og amínósýrur
Talið er að Moringa inni-
haldi um 46 mismunandi andox-
unarefni auk þeirra 90 næring-
Ljósmynd/(C) MOTIV, Jón Svavarsson
Heilsufólkið Ragnheiður Guðfinna
Guðnadóttir er ein þeirra.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2014
Í þessum mánuði hefst jóganámskeið
sem bæði verður haldið í Reykjavík
og á Akureyri. Námskeiðið, sem ætl-
að er konum á ýmsum aldri, miðar að
því að kenna undirstöðuatriði jóga til
að þátttakendur geti stundað það
heima.
Námskeiðið kennir Arnbjörg Krist-
ín Konráðsdóttir, Kundalini jógakenn-
ari, jógískur ráðgjafi og höfundur
hugleiðslubókarinnar Hin sanna nátt-
úra sem kom út síðasta sumar.
Á umræddu námskeiði er konum
gefinn kostur á að koma saman í
hæfilega stórum hópi, um þrettán
saman, átta sinnum yfir vorönnina og
læra undirstöðuatriði jógaiðkunar.
Hver og einn þátttakandi fær að
auki þrjá einstaklingsmiðaða tíma í
jógískri ráðgjöf þar sem fundin er
heppileg heimaiðkun hvort sem er
öndun, mantra, hugleiðsla eða jóga-
æfingar.
Allar nánari upplýsingar geta
áhugasamir nálgast á vefsíðu Græna
lótusins, www.graenilotusinn.is
Innri kyrrð og gleði fundin í jóga
AFP
Líkamsrækt Mörgum þykir gott að iðka jóga, bæði fyrir líkamann og sálina.
Jóga stundað heima
Argan-tréð eða Argania spinosa eins og það heitir á latínu er sú jurt sem
gefur Argan-olíuna af sér. Berberar í Marokkó voru fyrstir til að vinna
þessa olíu úr hnetum trjánna og eru aðferðirnar við vinnsluna býsna sér-
stakar. Saga olíunnar er líka sérstök því innsti kjarni hennar var uppgötv-
aður þegar geitur voru að gæða sér á hnetum trjánna en
meltu ekki innsta kjarnann. Það vakti
athygli fólks sem fór fyrir vik-
ið að rannsaka hvað
leyndist í kjarnanum
og þannig fannst ol-
ían sem í dag er
ákaflega dýrmæt
og eftirsótt, bæði í
snyrtivörur og
matvælafram-
leiðslu.
Þökk sé geitunum
ARGAN-OLÍAN GÓÐA
arefni sem greind hafa verið.
„Við erum að tala um jurt
sem inniheldur gífurleg andox-
unarefni, amínósýrur og B-
vítamínstuðla sem hjálpa Íslend-
ingum að glíma við depurð. B-
vítamín var notað sem þunglynd-
islyf í gamla daga. Stuðlarnir í
Moringa eru mjög háir og hafa
margfalt meiri virkni en venjuleg-
ar afurðir sem eru þekktar fyrir
sína virkni,“ segir Ragnheiður.
Aðalástæðan fyrir því að
Ragnheiður vildi gefa viðskipta-
hugmyndinni tækifæri er sú að
hún hefur áhuga á því sem er
náttúrulegt, hreint og gerir ein-
hverjum gott.
Heitast í Hollywood
Þegar verkefni þeirra í
Heilsufólkinu var hafið segir
Ragnheiður að hugmyndin hafi
tekið að vinda upp á sig þegar í
ljós kom að snyrtifræðingurinn
Anna María hafði verið að gera
tilraunir með sjávarsalt og flytja
inn Argan-olíu.
„Argan-olían er í raun það
heitasta í Hollywood í dag en
þessi olía er mjög sérstök og
kemur frá Marokkó. Berber-
konur eru þær einu sem fá að
vinna olíuna og okkar olía er
handunnin. Það tekur eina konu
þrjá daga og 16 kíló af Argan
hnetum að búa til einn lítra af ol-
íu. Þessi olía hefur verið falið
leyndarmál í einhver hundruð ár
og nú er snyrtivöruiðnaðurinn far-
inn að átta sig á hver virkni Arg-
an-olíunnar er,“ segir Ragnheiður.
Það varð úr að Heilsufólkið
fór að flytja olíuna inn í stórum
brúsum, og tappa henni sjálft á
smærri flöskur og selja auk ís-
lensks sjávarsalts sem unnið er á
Reykjanesi og Ragnheiður segir
að sé sérlega steinefnaríkt. „Það
er þurrkað með jarðhita þannig
að við notum náttúruna í alla
vinnslu á vörunni,“ segir hún.
„Svo límum við alla límmiða á
sjálf og notum engin tæki eða vél-
ar til að pakka.“
Ragnheiður segir að mik-
ilvægt sé að hugleiða hvað við
setjum ofan í okkur og að sama
skapi hvað við setjum á okkur.
„Húðin er stærsta líffæri lík-
amans og með því að setja eitt-
hvað sem kemur frá náttúrunnar
hendi, eins og salt sem gefur húð-
inni steinefni og olíu sem endur-
nærir húðina erum við að gera
húðinni gott á náttúrulegan hátt,“
segir Ragnheiður Guðfinna.
Allar nánari upplýsingar er
að finna á www.heilsufolkid.is