Morgunblaðið - 02.01.2014, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 02.01.2014, Blaðsíða 6
Vantar fleiri lífræn kúabú SVIÐSLJÓS Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Eina fyrirtækið hér á landi sem sér- hæfir sig í vinnslu á lífrænum mjólk- urafurðum er orðið tíu ára. Biobú var stofnað í júlí 2002 og hinn 3. júní 2003 hófst sala á lífrænni jógúrt. Stofn- endur og eigendur fyrirtækisins eru hjónin Dóra Ruf og Kristján Odds- son, en þau stunda lífræna mjólk- urframleiðslu á Neðri-Hálsi í Kjós. Auk þeirra er Búland í Landeyjum lífrænt kúabú. Þriðja búið var um skamman tíma með en hætti lífrænni framleiðslu síðastliðið haust. Kristján segir að það skorti lífræna mjólk eins og er til að anna eftirspurn, það vanti þriðja kúabúið í framleiðsluna. „Þróunin á lífræna markaðnum á undanförnum árum hefur miðast við það magn af mjólk sem hefur verið til. Núna erum við komin með yfir tutt- ugu vöruliði í lífrænum mjólk- urvörum, það er mjög gott miðað við stærð og umfang. Annars höfum við farið mjög rólega í að stækka fyr- irtækið, meðal annars til að halda lífi í því.“ Óttast heyskort Nítján ár eru síðan hjónin á Neðri- Hálsi breyttu búskaparháttum sínum og fóru út í lífræna framleiðslu. Þau eru nú með um 38 mjólkandi kýr og hafa keypt kvóta og aðeins stækkað búið síðustu ár til að auka framleiðsl- una og halda í við markaðinn. Kristján segist finna fyrir áhuga hjá kúabændum á að fara út í lífræna framleiðslu en það vaxi sumum í aug- um. „Ég held að hefðbundnir bændur séu almennt jákvæðir gagnvart líf- rænni ræktun en það eru ákveðnir hlutir sem standa í veginum fyrir því að þeir fari út í þetta. Það er kannski fyrst og fremst ótti við það að fá ekki uppskeru. Bannað er að nota tilbúinn áburð á túnin, þá þarf að vera að- gangur að lífrænum áburði og það er stærsta vandamálið í þessu og stend- ur þróuninni fyrir þrifum. Út frá þeim reglum sem eru í gildi er að- gangur að lífrænum áburði erfiður. Menn hætta ekki að nota tilbúinn áburð og eiga á hættu að sitja uppi heylausir.“ Sjálfir hafa bændurnir á Neðri- Hálsi stundum þurft að kaupa hey en eftir því sem lengra líður frá því sem þeir skiptu yfir í lífrænt eykst sjálf- bærnin. „Í dag teljum við að við séum í raun og veru búin að loka hringnum. Sá búfjáráburður sem fellur til hjá okkur dugar fyrir búið og það er orð- in mikil og góð frjósemi í túnunum. Það eru orðin nítján ár síðan við breyttum í lífrænt og þetta stemmir við það sem rannsóknir hafa sýnt, að það geti tekið allt að 20 ár að ná upp frjósemi í túnum eftir langtíma notk- un á tilbúnum áburði. Menn þurfa ákveðinn tíma og svigrúm til að koma sér af stað og við megum ekki hafa reglurnar svo strangar að þróunin stoppi,“ segir Kristján. Spurður hvernig hann sjái fyrir sér framtíðina í lífrænni mjólkurfram- leiðslu á Íslandi segir Kristján að eft- irspurnin eftir lífrænum mat eigi bara eftir að aukast. „Það er bara tímaspursmál hvenær menn átta sig á gildinu og hvað það er í raun hag- kvæmt að snúa sér að lífrænni rækt- un, bæði fyrir bóndann sjálfan og þjóðhagslega. Skilyrðin þurfa samt að vera fyrir hendi, í dag er þetta stopp vegna þess að það er svo erfitt með aðföng eins og lífrænan áburð. Það er búið að sanna að á Íslandi er hægt að stunda lífrænan búskap, það er bara sorglegt hvað þróunin er komin stutt á veg hjá okkur,“ segir Kristján.  Tíu ár eru liðin síðan Biobú setti fyrstu vörurnar á markað Morgunblaðið/RAX Í fjósinu Kristján Oddsson og Dora Ruf eru kúabændur á Neðri-Hálsi. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2014 Ferð nýja ársins 19 daga ævintýraferð á ári Hestsins 5.-23. júní 2014 með KÍNAKLÚBBI UNNAR til KÍNA - TÍBET Farið verður til SHANGHAI, SUZHOU, TONGLI, HANGZHOU, CHENGDU, LHASA og BEIJING. Siglt verður á KEISARASKURÐINUM og gengið á KÍNAMÚRNUM. Heildarverð á mann: Kr. 720 þúsund Kínastund Kínaklúbbur Unnar Njálsgötu 33, 101 Reykjavík sími/símbréf: 551 2596, farsími: 868 2726 Vefsíða: www.simnet.is/kinaklubbur Netfang: kinaklubbur@simnet.is Hópar og einstaklingar geta pantað „Kínastund“, á Njálsgötunni, með mynda- sýningu, sýningu á Tai-Chi og kínverskum listmunum, ásamt veitingum. Kínaklúbburinn sérhannar einnig ferðir fyrir hverja sem er Allt innifalið, þ.e. fullt prógramm skv. ferðaskrá, gisting í tvíbýli á 4-5 stjörnu hótelum (einb. + 98 þ.), fullt fæði með drykkjum, skattar og gjöld, staðarleið- sögumenn og fararstjórn Unnar Guðjónsdóttur, en þetta verður 35. hópferðin sem hún skipuleggur og leiðir um Kína, þar af 5. ferðin til Tíbet. Í haust þegar lífrænu kúabúun- um fækkaði úr þremur í tvö leit rekstur Biobús ekki vel út. „Mjólkursamsalan mat það réttilega svo að það væru meiri hagsmunir fyrir Biobú en MS að fá þá lífrænu mjólk sem það þyrfti og hætti því að markaðs- setja lífrænu drykkjarmjólkina. Biobú fær nú þá mjólk sem MS hefði annars notað. Þegar búið datt út vantaði um 150 þúsund lítra á markaðinn og það var það magn sem MS var að selja í lífrænni drykkjarmjólk. Ef MS hefði haldið áfram með það hefðu Biobú og MS þurft að skipta mjólkinni á milli sín. Þá hefðum við lent í endalausum skorti á mjólk í okkar vörur og hefði það getað orðið dauða- dómur fyrir svona lítið fyrirtæki eins og okkar,“ segir Kristján. Lífræn drykkjarmjólk BIOBÚ OG MS Biobú byrjaði með þrjár tegundir af jógúrt fyrir tíu árum en er nú með tuttugu vörutegundir. Helgi Rafn Gunnarsson, framkvæmdastjóri Bio- bús, segir að það sem standi í vegi fyrir því að fyrirtækið stækki enn frekar sé hversu fá lífrænu kúabúin eru, helsta verkefnið á nýju ári sé að fjölga þeim. „Stefnan er að snúa ein- um kúabónda yfir í lífrænt frekar en að fjölga vörutegundunum á nýju ári.“ Helgi segir að ekkert sé í hendi með það en fyrirtækið sé alltaf að ræða við kúabændur. „Þetta gerist vonandi smátt og smátt og einn bóndi annað hvert ár yrði góð þró- un. Á meðan lífrænu bændunum fjölgar ekki gerist lítið hjá okkur.“ Biobú hefur búið sig undir stækk- un en í fyrra, á tíu ára afmælinu, var vinnslusalurinn tvöfaldaður. „Við tókum í notkun ostatank og nýjan vinnslusal og er það einn liður í því að geta tekið við meiri mjólk í einu. Við erum í stakk búin að taka á móti nýjum bónda og pakka meira af drykkjarmjólk. Í sumar fórum við að prófa okkur áfram með osta, þeir eru til sölu í fjórum búðum án þess að vera komnir í almenna dreif- ingu,“ segir Helgi. Spurður hver sé markhópurinn fyrir lífrænar mjólkurvörur hér á landi segir Helgi það vera foreldra ungra barna og svo auðvitað neyt- endur lífrænna vara. Hafa búið sig undir stækkun Morgunblaðið/Rósa Braga Biobú Guðjón Smári Jónsson, Ingibjörg Steindórsdóttir og Helgi Rafn Gunnarsson starfa hjá fyrirtækinu ásamt fjórum öðrum. Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Áramótagleðin fór almennt vel af stað í höfuðborginni og þurfti Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins ekki að hafa afskipti af áramóta- brennum. Svo virðist sem áramóta- gleðin hafi verið fullmikil hjá mörg- um landsmönnum þegar líða tók á kvöldið og þurfti bæði lögreglan og slökkviliðið að sinna fjölda verk- efna. Fá miðnætti til klukkan átta á nýársdag voru liðsmenn slökkviliðs- ins á höfuðborgarsvæðinu búnir að sinna 51 sjúkraflutningi og 21 út- kalli á dælubílum. Meðal verkefna sem senda þurfti dælubíl í var eldur í Selásskóla en starfsmönnum ör- yggisfyrirtækis hafði sem betur fer tekist að hefta útbreiðslu eldsins áður en að slökkviliðið kom á vett- vang og því fór betur en á horfðist. Nokkuð var um minniháttar atvik en eldur kviknaði í ruslatunnu í borginni og víðsvegar festi eldur sig í pappír og gróðri. Engar tilkynn- ingar bárust um alvarleg slys í höf- uðborginni samkvæmt Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Álag á heilbrigðisstarfsmenn Ekki komu margir á bráðamót- töku eftir óhapp vegna flugelda en þó liggur maður á sextugsaldri á gjörgæslu eftir að flugeldur sprakk í höndunum á honum á Selfossi. Maðurinn er alvarlega slasaður og hlaut áverka á höndum og brunasár í andliti og á brjósti. Mikið var um ölvun í miðbæ Reykjavíkur og svo virðist sem bærinn hafi verið í áfengisvímu að sögn læknis sem ræddi við mbl.is en flestir sem leit- uðu á bráðamóttöku voru með áverka eftir slagsmál. Bauð sjálfum sér í sund Lögreglan hafði í nægu að snúast eftir miðnætti á gamlárskvöld og þurfti að sinna verkefnum um alla borg. Meðal þess sem lögreglan þurfti að sinna var óboðinn gestur í sundlaug einni á höfuðborgarsvæð- inu en svo virðist sem viðkomandi hafi ákveðið að bjóða sjálfum sér í sund og lá hann í makindum í heita pottinum þegar lögreglu bar að garði. Þá stöðvaði lögreglan ölvaðan mann í Hafnarfirðinum eftir stutta eftirför. Ökumaðurinn fór ekki hratt yfir en átti erfitt með að halda sig á réttum vegarhelmingi og var úti um allan veg. Klukkan hálfsjö að morgni nýársdags var svo sjúkralið og lögregla kölluð út að Suður- strönd en þar hafði verið ekið á gangandi vegfaranda. Ökumaður er grunaður um ölvun við akstur og var hann handtekinn og vistaður í fangageymslu. Hinn slasaði var fluttur á slysadeild en ekki er vitað um líðan hans. Fangageymslur voru fullar á ný- ársmorgun en síðustu plássin fyllt- ust rétt eftir klukkan sjö um morg- uninn. Alls voru sjö teknir fyrir ölvunarakstur í höfuðborginni. Gleðin fullmik- il hjá sumum  Fangageymslur fylltust í Reykjavík Morgunblaðið/Kristinn Áramótagleði Hún fór úr böndum hjá sumum þegar líða tók á nóttina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.