Morgunblaðið - 02.01.2014, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2014
Þegar íslenskir stjórnmálamennkoma saman í sjónvarpi eða
útvarpi og ræða
málin er orðið
áberandi hve mikill
tími fer í umræður
um umræður. Á
síðustu dögum hafa
stjórnmálamenn
hist oft vegna ára-
móta og þá hafa
áheyrendur og
áhorfendur mátt þola þessar um-
ræðuumræður í töluverðum mæli.
Allir sem taka þátt í umræðu-umræðunum eru sjálfir að
eigin sögn saklausir af því að
ræða málin á rangan hátt en hafa
miklar áhyggjur af umræðum ann-
arra.
Á gamlársdagsmorgun í þættiGísla Marteins Baldurssonar
var þessu ekki öðru vísi farið. Þar
var fundið að umræðunni og þátt-
takendur voru að eigin mati hátt-
vísari og málefnalegri en ýmsir
aðrir sem tjá sig opinberlega.
Svandís Svavarsdóttir sagðimeðal annars að nú væri tekin
við málefnaleg stjórnarandstaða.
Hún fór þannig fram í þættinum
að Svandís kallaði Framsókn-
arflokkinn „nýhægriflokk“ svip-
aðan þeim sem sjáist í Evrópu með
meiri áherslu á „þjóðernishyggju
og ákveðna svoleiðis tóna“.
Engum blandaðist hugur umhvað Svandís var þarna að
dylgja en samt voru engar at-
hugasemdir gerðar við þessi orð
hennar í þættinum.
En þessi ósvífna umræða umFramsóknarflokkinn er ágæt
áminning um hvað þessi umræðu-
umræða öll getur verið ekki að-
eins innihaldslaus heldur einnig
villandi og beinlínis skálkaskjól
þegar verst lætur.
Svandís
Svavarsdóttir
Umræðuumræðan
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 1.1., kl. 18.00
Reykjavík 2 léttskýjað
Bolungarvík 0 alskýjað
Akureyri 2 rigning
Nuuk 0 skýjað
Þórshöfn 7 skýjað
Ósló 2 alskýjað
Kaupmannahöfn 3 skýjað
Stokkhólmur 2 skýjað
Helsinki 2 alskýjað
Lúxemborg 7 léttskýjað
Brussel 8 skúrir
Dublin 9 skúrir
Glasgow 5 skúrir
London 11 skúrir
París 10 skýjað
Amsterdam 7 léttskýjað
Hamborg 5 heiðskírt
Berlín 3 skýjað
Vín 5 léttskýjað
Moskva -2 heiðskírt
Algarve 16 skýjað
Madríd 8 skúrir
Barcelona 12 heiðskírt
Mallorca 15 léttskýjað
Róm 10 heiðskírt
Aþena 8 skýjað
Winnipeg -31 skýjað
Montreal -17 léttskýjað
New York -2 heiðskírt
Chicago -5 snjókoma
Orlando 17 skúrir
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
2. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:19 15:46
ÍSAFJÖRÐUR 12:00 15:14
SIGLUFJÖRÐUR 11:45 14:55
DJÚPIVOGUR 10:56 15:07
„Moksturinn hefur gengið vel hjá
okkur hérna í bænum og allar götur
eru færar,“ segir Guðjón J. Jónsson,
bæjarverkstjóri hjá Ísafjarðabæ.
Guðjón segir engin vandamál hafa
komið upp við snjómoksturinn í
bænum enda snjórinn minni en oft
áður á þessum árstíma. Íbúar á Ísa-
firði hafa því ekki verið í vandræðum
að komast á milli staða yfir hátíð-
arnar. Þá segir Guðjón ekki mikið
rusl vera í bænum eftir gamlárs-
kvöld. „Ísafjarðabær er í sínum há-
tíðarskrúða og mér sýnist ekki mikið
vera um rusl eftir gamlárskvöldið þó
að íbúar mættu taka upp einstaka
skottertu,“ segir Guðjón.
Á Akureyri hefur snjóða töluvert
og bæjarstarfsmenn haft í nægu að
snúast yfir jól og áramót. Helgi Már
Pálsson bæjartæknifræðingur segir
töluverðan snjó í bænum en götur
séu að mestu færar. „Við höfum
þurft að moka snjó úr götum og út í
sjó þar sem lítið pláss var oðið til að
safna snjónum saman,“ segir Helgi
en að öðru leyti hefur snjómokst-
urinn að hans mati gengið nokkuð
vel og vandræðalaust yfir hátíðarn-
ar.
Akureyringar keyra snjóinn
í sjóinn vegna plássleysis
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Fönn Mikill snjór er á Akureyri.
Snjómokstur gengið vel á Akureyri og Ísafirði
Alls 37 fuglategundir sáust á svæð-
inu frá Geldinganesi í Grafarvog í
hinni árlegu vetrartalningu Nátt-
úrufræðistofnunar Íslands sem fram
fór milli jóla og nýárs. Þeir Einar
Ólafur Þorleifsson náttúrufræð-
ingur og Hannes Þór Hafsteinsson
voru á þessum slóðum og segir Ein-
ar það ekki koma sér á óvart ef þetta
hefði verið tegundaflesta talningin
til þessa. Þarna eru í dæminu ýmsir
algengir fuglar en einnig þeir sem
sjaldséðir hér á landi, svo sem sef-
boði og dversnípa sem raunar er
skyld hrossagauk.
Einar var í gær á ferðinni á Snæ-
fellsnesi og taldi þá um tólf þúsund
súlur og mörg þúsund máva við
Hraun- og Kolgrafafjörð. Annað
eins hefur hingað til ekki sést þar
vestra og er þetta rakið til síld-
artorfanna sem gengið hafa inn í
Kolgrafafjörðinn. Þykir þetta at-
hyglisvert því alla jafna hefur súlan
flogið til hlýrri landa í sumarlok.
Taldi tólf þúsund
súlur í Kolgrafafirði
Snæfellsnes Þúsundir súlna og máva eru
í Kolgrafafirði sem rakið er til síldar þar.
Morgunblaðið/Alfons