Morgunblaðið - 02.01.2014, Page 9

Morgunblaðið - 02.01.2014, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2014 ÚTSALAN HAFIN 50% afsláttur Bæjarlind 6, sími 554 7030 www.rita.is Kringlunni 4 | Sími 568 4900 ÚTSALAN hefst í dag 40% afsláttur af öllum vörum Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Verslunin hér í Eyjum virðist vera algjör afgangsstærð hjá stjórnend- um Krónunnar fyrir sunnan. Mér finnst slakt að bera því við að ferðir Herjólfs falli stundum niður og því sé vöruskortur. Sendingarnar hing- að þurfa einfaldlega að vera stærri enda er afleitt fyrir fólk hér að koma í einu lágvöruverðsverslunina hér á Þorláksmessu eða daginn fyrir gamlársdag og grípa nánast í tómt,“ segir Aldís Atladóttir, veitingamað- ur í Vestmannaeyjum. Uppselt undir hádegi Óánægja er meðal margra Eyja- manna með þjónustu í verslun Krón- unnar þar. „Ég veit um fólk sem kom í Krónuna rétt fyrir jól og þá vantaði æði margt sem talist geta nauðsynj- ar,“ segir Aldís. „Hingað kom send- ing með Herjólfi daginn fyrir gaml- ársdag. Það hefur þó varla verið mikið því undir hádegi á gamlársdag var brauð, grænmeti og ávextir nán- ast uppselt og mjólkin sömuleiðis.“ Aldís undirstrikar að þetta afleita ástand sé ekki einsdæmi. Sjálf rekur hún veitingastaðinn Café Varmó í miðbæ Vestmannaeyja. Hún segist jafnan skipuleggja matseðilinn þar nokkra daga fram í tímann og þurfi að haga innkaupum eftir því. Afleitt sé því að í lágvöruverðsverslun bæj- arins séu ekki tiltækar þær dagvörur sem þurfi. Vissulega bæti úr skák að Ingimar Georgsson, kaupmaður í Vöruvali, geti oft bjargað málum, verð í verslun hans sé þó nokkru hærra en í Krónunni. „Einhver pirringur“ Kristinn Skúlason, rekstrarstjóri Krónunnar, segir stopular sam- göngur til Eyja fyrst og fremst or- sökina ef vörur vantar í verslun fyr- irtækisins þar. Augljóslega setji það strik í reikninginn þegar ferðir Herj- ólfs falli niður eða skipinu seinki. Það hafi t.d. gerst 30. desember. Þá átti skipið að koma til Eyja um miðjan dag, en náði ekki í höfn fyrr en undir miðnætti. „Skiljanlega varð einhver pirring- ur vegna þess. En þegar við vorum að senda vörur í verslanir okkar fyr- ir jól og áramót fórum við yfir sölu- tölur þessara sömu daga í fyrra og höfðum þær sem viðmið. Þegar vörur eru uppseldar reynum við líka alltaf að koma þeim skilaboðum til Eyjamanna að meira sé væntanlegt og þeir ættu, hefði ég haldið, að vera vanir því sakir staðhátta að stundum þarf að sýna biðlund,“ segir Krist- inn. Ávextirnir komu seint Hvað ferskvöru áhrærir segir Kristinn áherslu lagða á að hún sé ekki að komast á síðasta söludag við útsendingu í búðirnar. Til dæmis hafi jólasendingin af ávöxtum, sem að mestu leyti koma frá Kaliforníu, tafist sakir þess að þungt var í sjó- inn. Ameríkuskip Eimskipa á leið til landsins hafi verið um þremur sólar- hringum lengur á leiðinni til landsins vegna þess. Þetta, ásamt öðru, hafi flækt málin almennt. „Fyrir þessi jól lögðum við síðan meiri áherslu en áður á að bjóða kal- kún sem hátíðarmat – og það virðist hafa fallið fólki vel í geð, enda seldist hann nánast upp í mörgum verslana okkar – þar með talið í Eyjum.“ Ljósmynd/Aldís Atladóttir Tómt Svona var staðan í verslun Krónunnar í Eyjum um miðjan dag 30. desember. Allt í brauðrekkanum var búið og meira var ekki að hafa þann daginn og Herjólfur, sem flytur varninginn, náði ekki í höfn fyrr en síðla kvölds. Herjólfi seinkaði og hillurnar voru tómar  Vestmannaeyingar voru vonsviknir vegna vöruskorts Aldís Atladóttir Kristinn Skúlason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.