Morgunblaðið - 02.01.2014, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2014
Hjá Parka færðu gullfallegar innihurðir.
Mikið úrval, sjón er sögu ríkari!
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
Dalvegi 10-14 • Kópavogi
Margar gerðir
af innihurðum
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Árinu 2013 lauk á jákvæðu nótunum á
Wall Street. Dow Jones-vísitalan
styrktist um 0,4% og endaði í 16.576,66
stigum sem er nýtt met. Er það í 52.
skiptið á árinu sem vísitalan nær met-
hæðum. Á árinu sem nú er liðið styrkt-
ist Dow Jones-vísitalan um 26,5% sem
er mesta hlutfallslega hækkun vísitöl-
unnar síðan 1995.
Dow Jones-vísitalan samanstendur af
þrjátíu stöndugum bandarískum fyrir-
tækjum úr ýmsum geirum. Er þar að
finna fyrirtæki á borð við 3M og John-
son & Johnson, McDonalds og Coca-
Cola, Boeing, Disney og Pfizer.
Standard & Poor’s 500-vísitalan
hækkaði sömuleiðis um 0,4% á þriðju-
dag og endaði árið í 1.848,36 stigum
sem einnig er nýtt met. S&P 500 hefur
hækkað um 29,6% á árinu og hefur ekki
átt betra ár síðan 1997. Nasdaq vísital-
an styrktist um 0,5% og endaði í
4.176,59 stigum og hefur ekki mælst
hærri síðan í september 2000. Nasdaq
bætti við sig 38% á árinu og hefur ekki
hækkað svo mikið á einu ári síðan 2009,
að því er MarketWatch Greinir frá.
Bjartsýni og inngrip
Reuters segir gott gengi bandaríska
hlutabréfamarkaðarins einkum geta
skrifast á örvunaraðgerðir Seðlabanka
Bandaríkjanna og væntingar um
áframhaldandi vöxt. Það bætti við töl-
urnar á þriðjudag að birtar voru nýjar
tölur um aukna bjartsýni meðal neyt-
enda. Bandaríska bjartsýnivísitalan fór
úr 72 stigum í nóvember upp í 78.1 stig
nú. Gefa kannanir til kynna að neyt-
endur séu almennt jákvæðir um horfur
í efnahagslífinu og á atvinnumarkaði.
Neytendur voru þó hæfilega bölsýnir
varðandi eigin möguleika á auknum
tekjum. Mælist bjartsýni bandarísks al-
mennings meiri nú en á sama tíma fyrir
ári.
Þegar nánar er rýnt í hlutabréfatölur
ársins sést að framleiðendur almennrar
neysluvöru hækkuðu mest, og fór
neysluvöru-undirvísitala S&P upp um
40,4% á árinu. Fjarskiptageirinn hækk-
aði aftur á móti minna, eða um aðeins
6,6%. Hástökkvari ársins í í S&P 500
var Netflix sem styrktist um 295,6%
frá því í janúar, en árið var verst hjá
námafyrirtækinu Newmont Mining
sem rýrnaði um 50,6%. Aðeins 38 fyr-
irtæki af 500 í S&P-vísitölunni lækkuðu
yfir árið.
Bandarísk hlutabréf enda
árið með nýjum metum
Besta árið hjá Dow Jones síðan 1995 Nasdaq ekki verið hærri síðan í september
2000 Netflix var hástökkvari ársins í S&P-vísitölunni og styrktist um 295,6%
AFP
Sveifla Dansarar frá Balletthópi New York-borgar heimsóttu NYSE á dögunum og tóku spor úr Hnotu-
brjótnum. Helstu vísitölur hafa styrkst mjög á nýliðnu ári og ný met voru slegin 31. desember.
Almennt endaði árið á jákvæðum
nótum á hlutabréfamörkuðum í
Evrópu og hafa vísitölur styrkst
töluvert á árinu 2013. MarketWatch
segir frá að Stoxx Europe 600-
vísitalan hækkaði um 0,3% á síðasta
viðskiptadegi ársins og endaði í
328.01 stigum. Vísitalan hefur eflst
um 17,3% á árinu.
Af sterkustu hagkerfum Evrópu
var það þýski markaðurinn sem
stóð sig best á liðnu ári. Hækkaði
þýska DAX 30-vísitalan um 25% yf-
ir síðustu 12 mánuðina. FTSE 100-
vísitalan í London bætti við sig 0,3%
á þriðjudag og endaði árið í
6.749,09 stigum. Nemur hækkunin
samtals 14% árið 2013. Franska
CAC 40-vísitalan styrktist um 0,5%
á þriðjudag og endaði í 4.294,95
stigum og hefur því hækkað um
18% yfir árið.
ai@mbl.is
EPA
Fögnuður Miðlarar skála í kampa-
víni á síðasta viðskiptadegi ársins í
kauphöllinni í Frankfurt.
Árið gott á
evrópskum
mörkuðum
Stoxx Europe
600 fór upp um
17,3% árið 2013
Hagstofa Kínverja birti á mánudag
innkaupastjóravísitölu desem-
bermánaðar. Bloomberg segir töl-
urnar nokkuð undir væntingum
þeirra hagfræðinga sem fréttastof-
an hafði rætt við.
Innkaupastjóravísitalan mældist
51 stig og hefur lækkað þónokkuð
frá í nóvember þegar vísitalan
mældist 51,4. Kínverska inn-
kaupastjóravísitalan er mæld á
skala þar sem gildi yfir 50 er til
marks um vöxt en gildi undir 50 til
marks um samdrátt. Hagfræðing-
arnir sem Bloomberg leitaði til
höfðu spáð 51,2 stigum.
Hagvöxtur í Kína árið 2013 var
um 7,6% skv. bráðabirgðatölum og
hlutabréfavísitalan í Shanghæ
lækkaði um 6,8% á árinu, og hefur
þar með lækkað þrjú af síðustu fjór-
um árum. ai@mbl.is
Ögn daprari
tölur í Kína
í desember
Innkaupastjóra-
vísitalan lækkar
Skráðu þig
í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Nú geta
allir fengið
iPad-áskrift