Morgunblaðið - 02.01.2014, Síða 16

Morgunblaðið - 02.01.2014, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Áþví árisem nú errunnið upp verður þess minnst að eitt hundrað ár eru síðan fyrri heimsstyrjöldin hófst. Á þeim fjórum árum sem fylgdu dóu nærri tíu millj- ónir manna, þrjú voldug keisaradæmi hrundu til grunna, og grunnurinn var lagður að öllum þeim hörm- ungum sem fylgdu tutt- ugustu öldinni eftir, en þar standa framgangur nasism- ans og kommúnismans fremstir í flokki. Á einu augabragði hrundi sá heim- ur, sem Stefan Zweig lýsti svo vel í bók sinni Veröld sem var, þar sem „öld ör- yggisins“ ríkti. Í þeim heimi réði hnatt- væðing ríkjum, verslun og viðskipti höfðu aukist svo um munaði og tollmúrar höfðu fallið. Jafnvel má segja að nokkurs konar samrunaferli Evrópu hafi verið farið af stað, þar sem myntir voru á föstu gengi innbyrðis, þó að enginn nema hugsanlega Victor Hugo hafi þá séð fyrir sér nokkurs konar Bandaríki Evrópu. Enginn sá fyrir sér að nokkuð gæti hróflað við friðnum. Ef stríð brytist út yrði það stutt, því að rök- rétt hugsun og hið þéttriðna net milliríkjaviðskipta myndu beina mönnum á friðarbraut á ný. En þegar stríðið var hafið hvarf rökrétta hugsunin og viðskiptin sömuleiðis. Allt snerist um að vinna sigur á þeim, sem áður hafði verið helsti viðskiptavinurinn. Heimurinn varð aldrei sam- ur, og það tók nærri því alla 20. öldina að lagfæra þær raunir sem hlutust af völd- um styrjaldarinnar. Það er vel hægt að velta því fyrir sér hversu lengi enn öld ör- yggisins hefði haldið, hefðu stórveldin ekki ofmetið getu sína til þess að takast stríð á hendur. Heimur, þar sem Hitler er misheppnaður listmálari og Lenín situr fastur í Sviss án járnbraut- armiðans til Rússlands sem Þjóðverjar sköffuðu honum af örlæti sínu. Við munum aldrei vita hvernig sú saga hefði þróast, en sagan sem hófst þegar Frans Ferdinand var veginn í Sarajevó, þegar höfuð Evrópu tóku þær ákvarðanir sem leiddu til þess að stríðið hófst er þýðingarmikil. Af henni er nauð- synlegt að menn hafi haft nokkurn lærdóm. Enginn virðist þá hafa gert sér neina grein fyrir því hverjar afleiðingarnar gætu orðið, enda fór það svo að í engu af helstu styrjald- arríkjunum í Evrópu voru sömu aðilar við stjórnvölinn í lok stríðsins og voru í upp- hafi þess. Ef þeir voru ekki kosnir úr embætti var þeim hent í burtu af almenningi í löndunum sem þeir réðu yf- ir. Líklega má draga þann lærdóm helstan af þessari atburðarás allri að aldrei er hægt að ganga að því sem vísu að heimsfriður og vel- megun haldist. Það þarf að vinna að því að friður hald- ist. Sá hefði verið álitinn galinn sem hefði stigið fram í janúarmánuði fyrir eitt hundrað árum og sagt að innan árs yrði allt breytt og að aldrei yrði snúið til baka til þeirrar veraldar sem var. Þrátt fyrir hinar miklu hörmungar stríðsins sem stóð frá 1914 til 1918 og þess sem fylgdi í kjölfarið á árunum 1939 til 1945 hefur mannkynið aldrei lifað jafn- mikla velmegunartíma og nú. Öld öryggisins hefur, í vissum skilningi, snúið aft- ur. Á tímum kjarnorkunnar, þegar kostnaðurinn við óvænt stríð er jafnvel enn geypilegri en hann var fyrir eitt hundrað árum, gæti skaðinn við að lesa skakkt í aðstæður orðið óend- urkræfur. Ef til vill er það ein helsta ástæða þess að tekist hefur að halda lokinu á pottinum þegar útlit hefur verið fyrir að upp úr kynni að sjóða. Mikilvægt er að enginn gleymi því hve eyði- leggingarmáttur mannsins er mikill nú og hversu miklu skiptir að ríki heimsins, einkum þau sem vega þyngst í hernaðarlegu til- liti, hafi mikil og upp- byggileg samskipti sín á milli. Um leið skiptir afar miklu að hindra að hættu- legustu vopnin breiðist út og komist í hendur fleiri ríkja sem kynnu að vilja nota þau til að ógna ná- grönnum sínum og heim- inum öllum. Öld öryggisins hvarf á einu augabragði}Aldarspegill við áramót S tundum opnast fyrir manni nýr heimur í fjölskylduboðum. „Helgi minn,“ sagði frænka mín sem hefur búið á Ítalíu í áratugi, „á Ítalíu myndir þú teljast heppinn; býrð ekki hjá foreldrum þínum og ert í vinnu“. Sannast sagna varð ég nú ekki ýkja snort- inn af þessu láni mínu eftir að hafa dregið and- ann í 30 ár og lokið háskólanámi. Þrátt fyrir mikla þolinmæði myndi Beta, sambýliskona mín, eflaust gefast upp á mér ef hún þyrfti að búa með mér heima hjá mömmu minni og pabba, 37 ára gömul. En svo hélt ferðalagið um heiminn áfram. Þar varð ýmislegt á vegi mínum sem minnti mig á að það er hreint ekki svo slæmt að búa á Íslandi. Samt sem áður verður ekki vikið einu orði að ríkulegum nátt- úruauðlindum landsins í pistlinum. Önnur frænka mín fékk nýverið vinnu í New York og varð vitaskuld að beygja sig undir staðarhætti en meðal Bandaríkjamaður fékk tólf daga í sumarfrí á síðasta ári. Hún samdi um tíu daga frí og þótti það nokkuð vel af sér vikið. Það sem kom mér hvað mest á óvart er að hún gat ekki fullnýtt sumarfríið eins og hana lysti með vinum og fjölskyldu, hún varð nefnilega að hafa borð fyrir báru ef ske kynni að hún yrði veik. Það er óþarfi að tyggja það ofan í lesendur hve vel í sveit settir Íslendingar eru þeg- ar kemur að sumarfríum og veikindaleyfum. Hún býr í göngufæri frá vinnunni, en í boðinu barst talið að því að það tekur Kana að meðaltali 52 mínútur að fara í og úr vinnu á dag. Ég sem hef ekki tölu á því hve oft ég hef bölvað því að það taki mig 15 mínútur að keyra úr Vesturbænum í Hádegismóa. Ef ég ætla í hádegismat í miðbæinn er það hálf- tíma ferðlag, og til að bæta gráu ofan á svart er ég mjög lengi að borða. Og allt gott fólk tekur undir grátstafina. Því næst barst talið að frænda mínum sem býr í Kína í borg sem er nafli heimsins þegar kemur að í stálframleiðslu. Þar er óhemju- mikil mengun og telja borgarbúar hve marga daga á ári sést til sólar. En ekki ætla ég að vorkenna frænda mínum, þetta er hans val. Kærasta hans býr ekki svo vel, og ekki er við frænda minn að sakast. Hún er kínversk en er svo skynsöm að búa í nálægri borg þar sem sést vel til sólar. Stúlkan er enda alvön að ferðast um heiminn, er langskólagengin í Bretlandi og talar lýtalausa ensku. Hjónaleysin ferð- uðust fyrir skömmu til Evrópu en misstu af því að hitta nokkra fjölskyldumeðlimi. Af íslenskri kurteisi flaug skeyti til Asíu þar sem harmað var að hafa misst af döm- unni og var vonast til að sjá hana í næstu ferð til Evrópu. Um hæl barst bréf sem kom bláeygðum Íslendingum verulega á óvart. Sú kínverska mun eflaust ekki snúa aft- ur. Allavega ekki í bráð. Þannig er mál með vexti að hún er einhleyp og í Kína eru alltof margir karlmenn á lausu, þannig yfirvöld brugðu á það ráð að setja hana í farbann – hún er víst búin með ferðakvótann sinn – að minnsta kosti þar til hún giftir sig. helgivifill@mbl.is Helgi Vífill Júlíusson Pistill Ísland er hreint ekki svo slæmt STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon SVIÐSLJÓS Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Fjölgeislamælir nefnist nýj-asta tæki Köfunarþjón-ustunnar ehf. Tækið varkeypt af Ísmar ehf. og kostar nokkra tugi milljóna. Það er hið eina sinnar tegundar á Íslandi og er notað við ýmsar haf- og botnrann- sóknir. „Köfunarþjónustan keypti fyr- irtækið Jarðfræðistofa Kjartans Thors ehf. fyrir ári. Jarðfræðistofan hefur til fjölda ára stundað allskonar rannsóknir á sjó og var með ein- línumæli sem er fyrirrennari fjöl- geislamælisins. Það eru gerðar meiri kröfur til þessara mælinga í dag og því var ákveðið að fjárfesta í nýjustu tækni,“ segir Ómar Hafliðason, at- vinnukafari og rafeindavirki, en hann mun sjá um fjölgeislamælinn hjá Köfunarþjónustunni. „Með þessu útvíkkum við þjón- ustu okkar við alla þá sem hafa ein- hverja hagsmuni af sjó og vötnum landsins. Það er gríðarleg þörf fyrir svona tæki á mörgum stöðum, þarf nýjar og nákvæmar mælingar.“ Góð þjónusta við hafnir Fjölgeislamælirinn mælir sjáv- arbotninn mjög nákvæmlega niður á 300 metra dýpi, í honum eru 512 geislar og nær geislinn 160° út til hliðanna og beint undir bátinn sem hann er fastur við. „Nú get ég skoðað með mikilli nákvæmni, bryggjuþil, brúarstólpa, rafstrengi og vatnslagnir út í eyjar, fundið flök og tækið reynist mjög vel við líkleit. Ég get mælt dýpi á höfn- um landsins og siglingaleiðum og gert mælingar fyrir og eftir dýpk- unarframkvæmdir. Tækið nýtist vel á uppistöðulónum virkjana og öðrum vötnum, til allskonar rannsókna,“ segir Ómar spurður í hvað tækið nýtist. „Við getum boðið höfnum landsins upp á miklu betri þjónustu. Til dæmis hafa þeir á Höfn í Horna- firði mikla þörf fyrir mælingu fyrir höfnina. Þar er sandurinn alltaf á fleygiferð og þarf að fylgjast vel með honum. Þeir eru með áhyggjur af djúpristum skipum sem koma inn og vilja vera með nýjustu mælingar, hvar sandurinn er og hvert dýpið er. Mælirinn er líka notaður til að leita að sandnámum en það getur greint kornastærðina á botninum. Í höfnum erlendis er það notað í neðansjáv- areftirlit en á slíku er ekki þörf hér.“ Léttur og hreyfanlegur Fjölgeislamælirinn kemur til landsins nú fljótlega á nýja árinu og eru þegar farnar að berast pantanir. „Það þarf bara einn mann til að stjórna mælinum og það er stór kostur við hann, fram yfir önnur tæki á markaðnum, að hann er hreyfanlegur. Ég get bara hoppað upp í flugvél með tækið og mælt þar sem þarf. Hingað til hafa þessir mælar verið fastir í bátum og skip- um og þau þurft að sigla á staðinn. Þetta tæki er fyrirferðarlítið og vinnan fljótlegri og ódýrari, ég fer bara á milli báta með það. Ég festi mælinn á borðstokk á bát og neðan á honum er stykki sem horfir ofan í sjóinn.“ Að lokinni mælingunni tekur heilmikil tölvuvinna við að sögn Óm- ars, eyða þarf truflunum og útfæra myndina. „Það sem viðskiptavinurinn fær í hendurnar, er 3 víðar myndir af viðfangsefninu, eða aðrar út- færslur, allt eftir þörfum hans.“ Fjölhæfur fjölgeisla- mælir tekinn í notkun Morgunblaðið/Rósa Braga Við sjóinn Ómar Hafliðason kafari mun hafa umsjón með nýja fjölgeisla- mælinum. Tækið er notað við ýmsar haf- og botnrannsóknir. Fjölgeislamælirinn kemur til landsins á næstu dögum. Eins og áður segir verður hann sá eini sinnar tegundar hér á landi. Siglingastofnun á eldri gerðina af honum sem þykir orðin döpur í dag að sögn Ómars. Þá er Haf- rannsóknastofnun með risa- stóran fjölgeislamæli í einu skipa sinna. „Sá mælir er mjög stór og öflugur, getur séð niður á 1.000 metra dýpi og er notaður til að mæla á úthöfunum. Það er ekki hægt að mæla með honum á sama stað og fjölgeislamæl- inum okkar, hann er á svo litlu dýpi; uppi í fjörum og nálægt landi og er með miklu fínni mynd.“ Eldri og ólíkir mælar til AÐRIR MÆLAR Fjölgeislamælir Ekki fyrirferðarmikill.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.