Morgunblaðið - 02.01.2014, Page 25

Morgunblaðið - 02.01.2014, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2014 Atvinnublað alla sunnudaga Sendu pöntun á augl@mbl.is eða hafðu samband í síma 569-1100 Allar auglýsingar birtast bæði í Mogganum og ámbl.is ER ATVINNUAUGLÝSINGIN ÞÍN Á BESTA STAÐ? Smáauglýsingar Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara                                  !   "    #$   %  #   &    #   ' ( )( %     *  '&  $ '       +    * ,(  $      #--. /      " 0(  1 ,         ,    %      ##$.  "     #           2 % 0(    4-.3# ) %  5   6 (  ( 7 & 8 (     4    ##-. 6   0(      1 9.. !" #$#%    " %  !3# ': (  &         ##-. /         3     #$-. !   &'  8  '  !9. :      %   ' "     %       ##-.  3      #$-. ;%%     $##3<4. (     6  * (                     % <.#$      ;%%    99$3-$  ===  )   *  6 >    4 ,    4 ?  &@  4#9>#- ,    ##-. A(5   #- A    #$-. Sumarhús Sumarhús - Gestahús - Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla - Endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892 3742 og 483 3693, www.tresmidjan.is Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Bílar VILTU SELJA BÍLINN Í DAG? Sendu okkur upplýsingar í gegnum seldur.is og við sendum þér staðgreiðslutilboð! Bílaþjónusta Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD - árg. 2012. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli is 4 herbergja íbúð til leigu í háhýsi í Kópavogi, leigist í 5-6 mánuði, búslóð fylgir með. Upplýsingar í síma 564 1886 eða 893 0513. Húsnæði íboði Amma Lára hefur kvatt þenn- an heim og heldur nú á vit nýrra ævintýra á nýjum stað. Mikið held ég að afi hafi verið glaður að endurheimta hana og amma glöð að hitta þá feðga, afa og Adda frænda. Hún var stórfengleg kona, hún amma mín, og eftir situr hafsjór af minningum. Síðustu daga hafa margar þeirra sótt fram og kallað fram bros og hlátur. Þær voru ófáar ferðirnar sem við systkinin fórum upp í hús til ömmu og afa þegar við vorum lítil og alltaf var vel tekið á móti okkur. Þeir voru margir fjársjóðirnir sem leynd- ust í litla húsinu þeirra og alltaf mátti maður grúska í þeim. Skáp- arnir í stofunni geymdu t.d. mikið Guðrún Lára Arnfinnsdóttir ✝ Guðrún LáraArnfinnsdóttir fæddist á Vestra- Miðfelli á Hval- fjarðarströnd 28. desember 1919. Hún lést á Dval- arheimilinu Höfða 16. desember 2013. Lára var jarð- sungin frá Hall- grímskirkju í Saurbæ 28. desem- ber 2013. af gömlum mynd- um sem aldrei var hægt að fá nóg af að skoða. Í svefnher- berginu var svo skápurinn með öll- um gömlu kjólun- um hennar ömmu og hælaskónum sem voru mátaðir í tíma og ótíma og þá kom gamla snyrti- borðið hennar ömmu Röggu sér vel því þar voru skúffurnar fullar af alls kyns fylgihlutum við dressin og svo var hægt að skoða útkomuna í stóru speglunum þar á. Gamla hárkollan og hártoppurinn sáust líka oft á kollum okkar systkina, já og kannski sérstaklega á mín- um. Síðan var það búrið, Valda herbergi og geymslan í bílskúrn- um, allir þessir staðir voru sveip- aðir einhverjum ævintýraljóma á þessum tíma og voru svo óskaplega spennandi og skemmtilegir. Þegar ég fór að stálpast fest- ust svo í sessi ákveðnar hefðir fyrir jólin hjá okkur ömmu. Ég hjálpaði henni að þrífa og skrifa jólakortin. Mér fannst þetta kannski ekkert sérstaklega spennandi í fyrstu en lærði að meta þetta og varð þetta fastur hluti af aðventunni. Amma var glæsileg kona og eiginlega bara óttaleg pæja sem vildi alltaf vera vel tilhöfð. Ég man alltaf eftir því þegar hún bjó ennþá í sveitinni að hún fór aldrei af bæ nema vera búin að laga hár- ið og setja upp varalit. Þegar ég komst svo á fullorðinsár spurði hún mig alltaf hvar ég hafði feng- ið hitt og þetta sem ég var í og þá var það alltaf einmitt eitthvað sem hana vantaði. Og alltaf var hún með nýjustu tískustraumana á hreinu. Það eru ekki allir sem heimsækja ömmu sína á elliheim- ili og fá þar upplýsingar um hvað er í tísku og hvað ekki. Svona var þetta alveg fram fram að níræðu sem er ótrúlega skemmtilegt að hugsa til. Amma naut lífsins en hún var södd lífdaga og kvaddi þennan heim sátt og sæl. Takk fyrir að vera þú, elsku amma, og takk fyr- ir að vera amma mín! Þín Sigríður. Bubbi, Lára, Alla, Sigga, Ása, Jónas, Addi, Magga, Raggi! Þessa romsu lærðum við Skraut- hólasyskininin utan að í frum- bernsku. Systkin mömmu í ald- ursröð og allir höfðu svo viðhengið „bróðir“ eða „systir“. Nú kveðjum við Láru „systur“, sem var alveg eins og mamma, nema dekkri yfirlitum og aðeins mildari á manninn. Sagan af því að hún hafði kornung orðið ást- fangin, gifst og flutt að heiman var eins mikið ævintýr og sög- urnar af Mallhvít, og Þyrnirós. Í barnsminninu vorum við alltaf á leiðinni upp á Skaga og alltaf upp að Hrafnabjörgum. Þar voru settir saman tveir hægindastólar í stofunni og búið um mig. Svona var ég nú smá. En minningin að hlusta á mömmu og Láru skrafa, reykja og skellihlæja er ógleym- anleg. Þær voru svo líkar að barninu mér tókst nánast ekki að greina þegar önnur hætti og hin tók við. Meira að segja Sigga Lára dóttir mín á ógleymanlegar minningar af ferðum með ömmu upp á Skaga þar sem næturdvöl á Hrafnabjörgum (reyndar í nýja húsinu) var fastur liður. Lára var mömmu svo kær og okkur um leið, hún var einhvernveginn lím- ið sem hélt öllu saman. Þrátt fyrir skelfilegan harmleik þegar Addi frændi dó kornungur þá var eins og Lára hefði einhverja jarðteng- ingu og rósemd hugans sem var ekki allra. Það var hún sem stillti systurnar sem voru hver annarri „tippilsinnaðri á taugum“. Ég held að mamma hafi sagt henni einni leyndarmálin sín. Ég kveð Láru „systur“ með mikillin eftirsjá og þökk fyrir að hafa alltaf verið til. Frændsystk- inin, börn, barnabörn og tengda- börn fá okkar innilegustu samúð- arkveðjur Fyrir hönd krakkanna hennar Siggu „systur“, Ragnheiður Tryggvadóttir. „Þar sem jökulinn ber við loft hættir landið að vera jarðneskt, en jörðin fær hlutdeild í himninum, þar búa ekki framar neinar sorgir og þessvegna er gleðin ekki nauðsynleg, þar ríkir feg- urðin ein, ofar hverri kröfu.“ (Halldór Laxness) Anna gaf mér ís með dýfu þegar ég hitti hana í fyrsta sinn og þannig var það alla okkar tíð, hún hafði mikið að gefa mér, hún Anna Margrét Guðjónsdóttir ✝ Anna MargrétGuðjónsdóttir fæddist á Stórholti, Saurbæ í Dalasýslu, 22. júlí 1928. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Seljahlíð í Reykja- vík 14. desember 2013. Anna Margrét var jarðsungin frá Fossvogskirkju 30. desember 2013. tengdó. Anna var list- elskur mannvinur með stórt hjarta, hjá henni hét það að vera aumingjagóð- ur. Hún var ekkert að skafa utan af hlutunum og blótaði oft hressilega. Hún hjálpaði okkur Heimi að vera til og ól börnin upp með okkur. Hjá henni átti ég skjól og skilning og hún gerði mig að betri manneskju. Ástvinum öllum votta ég mína dýpstu samúð. Guð blessi minningu um sterka og góða konu. Sigríður Guðmundsdóttir. Í minningu Önnu húsvarðar! Fyrir áratugum þegar við byrjuðum að kenna í Álftamýr- arskóla kynntumst við Önnu, en hún var þá komin á miðjan aldur. Anna var húsvörður skólans, hafði tekið við því starfi árið 1974. En allt frá fyrsta starfsári skólans vann hún við ræstingar en tók síðan við umsjón með því verki. Anna var myndarleg kona og hörkudugleg, ekkja með þrjá uppkomna syni. Við munum ekki eftir mörgum veikinda- eða leyf- isdögum sem Anna tók sér með- an við störfuðum með henni. Ekki vitum við hvort Anna vann eftir útgefinni starfslýsingu, en vinnudagur hennar var langur. Hún opnaði skólann að morgni, hellti upp á kaffi, skráði niður þá nemendur og kennara sem voru veikir og allan daginn var hún á ferðinni um skólahúsið. Á þeim tíma var skólinn ræstur eftir að skóladegi lauk en það var hlut- verk Önnu að taka á móti ræst- ingarkonum og sjá til þess að hver og ein hefði allt sem til þurfti þannig að skólastofur og gangar væru hreinir og glans- andi næsta morgun. Anna lagði mikið upp úr því að halda skól- anum hreinum og þrifalegum, hún lét engan komast upp með að hafa dót út um allt, en ef ein- hver varð uppvís að slælegri um- gengni gat hann átt von á því að Anna gæfi honum orð í eyra. Enda var það mál manna að Álftamýrarskóli væri snyrtilegur skóli. Anna bjó og starfaði áratug- um saman í hverfinu og þekkti íbúa þess mjög vel, bæði full- orðna og börn. Í rauninni var Anna meira en húsvörður skól- ans, hún var meira í ætt við stað- arhaldara sem setti mark sitt á daglegt líf í skólanum. Hún tók vel á móti fólki sem átti erindi í skólann, bauð kaffi og gaf sér tíma til að setjast niður og spjalla. Anna lét af störfum þegar hún náði eftirlaunaaldri og gat þá með stolti og gleði horft yfir starfsár sín í Álftamýrarskóla. Við, sem unnum með Önnu, vilj- um að leiðarlokum þakka henni fyrir gott samstarf og umhyggju hennar í okkar garð. Við minn- umst hennar með virðingu og þakklæti. Sonum hennar og fjölskyldum þeirra sendum við samúðar- kveðju. Blessuð sé minning Önnu Margrétar Guðjónsdóttur. Fanný Gunnarsdóttir, Kristín Axelsdóttir og Þórunn Traustadóttir. Guðrún Sigurjónsdóttir tengdamóðir er látin. Alltof stutt kynni mín af Guðrúnu eru stað- reynd. Ég kynnist henni strax um það leyti sem við Vilborg Stefáns- dóttir, dóttir hennar, förum að rugla saman reytum. Mér fannst Guðrún strax áhugaverð kona sem hafði frá miklu að segja og gat haft fullkomlega stjórn á sér, að geta sagt frá og hlustað, verið allt í senn traustur vinur og félagi Guðrún Sigurjónsdóttir ✝ Guðrún Sig-urjónsdóttir fæddist á Norðfirði 30. maí 1925. Hún lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu í Nes- kaupstað 19. des- ember 2013. Útför Guðrúnar fór fram frá Norð- fjarðarkirkju 28. desember 2013. og verið skemmti- leg. Heimilið mitt varð fljótt heimilið okkar af því að tengdaforeldrarnir búa hér á neðri hæð- inni á Þiljuvöllum. Guðrún var farin að missa sjón en hafði gott minni og gat stjórnast í skreyt- ingum fyrir öll tæki- færi, hvort sem var um jól, páska eða við önnur tæki- færi, og sagt frá því hvar allir hlutir væru geymdir. Hún tók alltaf virkan þátt í þeim fram- kvæmdum sem fram fóru á heim- ilinu og sá allt svo vel fyrir sér hvernig hlutirnir verða að ég varð oft heillaður af því hvernig hún færi að því. En það varð fljótt eitt af okkar áhugamálum að ræða um hönnun. Hennar sterka hlið var að hanna sjálf og skapa sitt heimili. Hún teiknaði sjálf sinn sumarbústað, sitt eldhús. Saum- aði út heilu listaverkin sem prýða veggi hér á Þiljuvöllum og út- saumaðir stólar eru eftir hana hér, heklaðir gardínukappar, heklað utan um stóla, máluð postulínslistaverk í formi klukku, jólaskrauts og leirtaus prýða heimilið. Garðurinn var klárlega þitt áhugamál og hvert horn skipulagt og ræktað eftir þínu höfði og maður heyrði þær mæðg- ur ræða blómin í garðinum þar sem hún vissi svo vel um hvert og eitt að það var oftast heil saga til að hlusta á. Hún var stolt af hæð- inni hér á Þiljuvöllum sem þau hjónin fengu Sigvalda arkitekt til að teikna og létu byggja ofan á húsið og fluttu svo upp á þá hæð með fallegu útsýni yfir fjörðinn. Við ræddum oft þá framkvæmd, sem mér fannst vera svo vel heppnuð. Íbúðin er svo falleg og eftir athyglisverðan og þekktan arkitekt hér á landi, þar sem Guð- rún hefur verið svo mikill þátttak- andi með eiginmanni sínum Stef- áni Þorleifssyni í að gera þá hæð skemmtilega og með sérhönnuð- um húsgögnum sem eru líka teiknuð af Sigvalda og smíðuð af vönduðum aðilum. Þannig kynn- ist ég Guðrúnu svo mikið í gegn- um hennar verk hér á heimilinu, sem eru mér svo heillandi og er allt í senn svo falleg samvinna þeirra hjóna að hafa gert heimilið að því sem það er og skapað heim- ilisbrag. Þau hafa skapað þær hefðir að dansa í kringum jólatré með fjölskyldunni um jólin, kakó- ferð inn í sveit, samverustundir með fjölskyldu á tyllidögum og eiga þessir dagar eftir að lifa með okkur hér í minningum um hana. Takk, Guðrún, það eru forrétt- indi að hafa kynnst þér, þínum störfum, þínum áhuga fyrir þeim fjölmörgu félagsstörfum og íþróttaiðkun sem þú hefur sinnt í gegnum ævina og hvað þú gast sagt mér frá og um leið skilið mig þegar ég var að segja frá mínum áhugamálum og störfum. Það er svo indælt að hafa átt þig að og að hafa kynnst þér. Eiginmanni, Stefán Þorleifs- syni, og fjölskyldu vil ég færa mínar samúðarkveðjur og megi minningarnar um þig fá að lifa með okkur. Stefán Már Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.