Morgunblaðið - 03.01.2014, Síða 10

Morgunblaðið - 03.01.2014, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2014 Við sérhæfum okkur í vatnskössum og bensíntönkum. Gerum við og eigum nýja til á lager. Á vefsíðunni www.animatedknots- .com er að finna allt um hnúta og les- endum kennt að hnýta þá á sem auð- veldastan máta. Síðan nýtur nokkurra vinsælda enda sniðug með eindæmum. Auk þess er hægt að hlaða niður snjall- símaforriti til að lenda ekki í klandri þegar til kastanna kemur. Almennir hnútar, siglingatengdir hnútar, fjallamennskuhnútar, björg- unarhnútar og svo mætti lengi telja. Allt um það á þessari síðu sem er vel til þess fallin að fræða fólk örlítið um það sem sannarlega getur komið að gagni við ólíklegustu aðstæður. Á systursíðu þessarar er eitt og annað að finna um hvernig brjóta má saman servíettur á skemmtilegan hátt. Vefsíðan www.animatedknots.com/ Hnútar Allt um hnúta er að finna á síðunni. Stórir, smáir, þykkir og mjóir. Lærðu að hnýta hnúta Karlakórinn Heimir heldur sína árlegu Þrettándahátíð á morg- un, laugardaginn 4. janúar, í Menningarhúsinu Miðgarði í Skagafirði. Hefst hátíðin klukkan 20.30 og hefur kórinn fengið til liðs við sig einvalalið tónlistar- manna. Þar má nefna þá Garðar Thór Cortes, Ara Jóhann Sig- urðsson og Stefán R. Gíslason. Á dagskrá verður allt frá ís- lenskum kórverkum til óp- eruaría. Ræðumaður kvöldsins verður Bjarni Marinósson. Að söng loknum leikur Grétar Örvarsson fyrir dansi í Mið- garði. Endilega … … gleðjist með karlakór Morgunblaðið/Þorkell Gestur Garðar Thór Cortes mætir. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Malín Brand malin@mbl.is Sigrún Lára komst að þvíþegar hún bjó í Bretlandiað ekki væri sjálfgefið aðgeta skroppið út í hann- yrðabúð og keypt eins og nokkra ull- arhnykla. „Ég var að sauma sessur í borðstofustóla og vantaði ull. Á þeim tíma voru hannyrðaverslanir ekki aðgengilegar, nema helst á Suður- Englandi,“ útskýrir Sigrún Lára sem sjálf bjó í norðurhluta landsins. „Þannig að ég þurfti að fara alla leið til London á hannyrðasýningu í Olympia til að fá ull,“ segir hún en það var einmitt á hannyrðasýning- unni sem hún fékk innsýn í heim silkimálunar og litunar og þá varð ekki aftur snúið. Ullina fékk hún og meira til. Að nema silkimálun Silkimálun er kennd á fáum stöðum og ekki hér á landi og því sökkti Sigrún Lára sér í nám sem krefst sjálfsaga og skipulags. „Ég keypti bækur eftir góða listamenn í faginu, breska, þýska og bandaríska og lærði af þeim. Ég tók mér sjö ár í það,“ segir hún. Eftir að hún fluttist heim til Íslands árið 1996 var hún í fullu starfi en litaði silki á kvöldin. Hún var með vinnustofu á Skóla- vörðustígnum, Shanko Silki, til árs- ins 2009. „Eftir hrunið var þetta það fyrsta sem fólk hætti að kaupa: dýr- indis silkislæður og teppi,“ segir Sig- rún Lára sem hélt þó ótrauð áfram og opnaði vinnustofu annars staðar, fyrst að Álafossi, Korpúlfsstöðum og síðar í Gufunesi. Hún og vinkona hennar, Sigríður Ólafsdóttir, stofn- uðu félag til að búa til gólfteppi og það hefur vakið mikla athygli, eink- um og sér í lagi utan landsteinanna. Opinberunin 2012 Hönnunarmars árið 2012 var tilvalinn vettvangur til að sýna hvað þær stöllur höfðu verið að bralla og þar sýndu þær fyrstu teppin. Skömmu síðar birtist mynd af teppi eftir Sigrúnu Láru í tísku- tímaritinu Elle Interriör. „Þar not- uðum við árnar á teppin og gerðum þær annað hvort eftir minni, landa- kortum, loftmyndum eða google map.“ Boltinn var farinn af stað og fór að rúlla fremur hratt. Ekki leið á löngu þar til virtur tískuvefur, www.wgsn.com, Fashion Trend For- casting & Analysis, valdi hönnun þeirra Sigrúnar Láru og Sigríðar eina af tíu bestu af þeim 500 hönn- uðum sem fram komu á Hönn- unarmars árið 2012. „Eftir sýningu á teppunum í Helsinki varð sendiherra Íslendinga þar svo hrifinn af teppunum að hún vildi fá að hafa þau áfram því hún vildi setja upp sýningu heima hjá sér sem hún kallaði Dialogue sem er þá samtal finnskra og íslenskra hönn- uða,“ segir Sigrún Lára. Teppaleggur jöklana með einstakri ull Sigrún Lára Shanko hefur síðastliðin tuttugu ár unnið við textíllist. Hún býr til ullarteppi sem vakið hafa mikla athygli erlendis. Þau skarta meðal annars ís- lenskum jöklum og voru sýnd á sýningunni The Sleep Event sem haldin er í Lund- únum fyrir evrópsk lúxushótel. Í framhaldi var fjallað um teppin hjá RIBA, Royal Institute of British Architects, sem þykir gríðarmikill heiður. Sýningar Sigrún Lára Shanko við sýningarbásinn sinn á Sleep Event. Tíska Umfjöllun og mynd af teppinu „Stökk“ í tímaritinu Elle. Ljósmynd/Finnbogi Þormóðsson Q, félag hinsegin stúdenta, heldur fyrsta Q-partí ársins áður en önnin hefst. Það verður haldið í kvöld í húsakynnum Samtakanna 7́8, Laug- arvegi 3 í Reykjavík, og hefst klukkan 20.30. Félag hinsegin stúdenta er hags- munafélag innan háskólasamfé- lagsins. Það vinnur að félagsstarfi og að virðing sé borin fyrir margbreyti- leika innan háskólasamfélagsins. Hinsegin teiti stúdenta Fyrsta Q-partí ársins haldið Q Hinsegin stúdentar blása til teitis í kvöld í húsakynnum Samtakanna 7́8.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.