Morgunblaðið - 03.01.2014, Síða 11

Morgunblaðið - 03.01.2014, Síða 11
100% made in Italy www.natuzzi.com Við bjóðum velkomna ítalska hönnun Natuzzi endurspeglar fullkominn samhljóm og kjarna Ítalskrar hönnunar. Það er æðislegt að upplifa hlýja og kósý stemningu í Natuzzi umhverfi. Staður þar sem fólki líður vel. Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is Komið og upplifið Natuzzi gallerýið okkar DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2014 Sit on Iceland Sessur eftir Sigrúnu og Sigríði. Myndirnar eru teknar á Langjökli þar sem sessurnar nýttust vel. Sæti uppi á Langjökli Ævintýrið, sem ef til vill er bara rétt að byrja, hélt áfram og við tóku sýningar í öðrum löndum en sömu- leiðis verkefni hér heima. „Sit on Iceland“ var eitt þeirra. „Við bjugg- um til litlar sessur eða svona mini- gólfteppi. Það er hægt að sitja á þeim, standa á þeim, hafa þær uppi á vegg, úti í bíl, hengja þær á bakpok- ann og setjast á þær hvort sem er sumar eða vetur. Sessurnar voru svo prófaðar uppi á jökli og það var gott að sitja á þeim í snjónum,“ segir Sig- rún Lára. Hönnunarsýningin í Peking Fyrir tilstilli íslenska sendi- ráðsins í Kína var fyrirtæki þeirra vinkvenna, Élivogar, valið sem fulltrúi Íslands á hönnunarsýning- unni í Peking 2013. Skömmu áður hafði Sigríður þurft að hverfa til annarra starfa og því fór Sigrún Lára út ásamt eiginmanni sínum, fyrst til Lundúna og því næst til Peking. Sigrún Lára hefur síðan þá sýnt undir eigin nafni, Shanko Rugs og farið út í eilítið öðruvísi hönnun. Þar nýtir hún bakgrunn sinn í silkimálun. „Ég fór að hugsa hvort ekki mætti nýta nálina, ullarnálina sem maður gerir teppin með, sem pensil með því að skipta um þræði í nálinni og reyna að fá skyggingu og smá þrívídd.“ Verkið er tímafrekt því fjórir til fimm þræðir eru í nálinni og stund- um þarf aðeins að skipta einum þeirra út. Hún stendur uppi á still- ans og þarf að klifra niður til þess að skipta um lit í nálinni svo ljóst er að þolinmæði er dyggð í þessari list- sköpun. Þessi misserin eru það íslensku jöklarnir sem eru teppalagðir eftir vatnslitaskissum Sigrúnar Láru á einstakri íslenskri ull. Eftir allar sýningarnar hefur eftirspurnin verið mikil. Svo mikil að Sigrún Lára gat ekki orðið við pöntun frá Kína því pöntunin var svo stór. Það má því með sanni segja að hún sé í útrás með jöklateppin sem vakið hafa mikla athygli ytra. Nánar um hönnunina á www.shankorugs.com Ljósmynd/Ingimundur Þorsteinsson Sumir segja að maðurinn þurfiað ferðast á milli landa ogjafnvel heimsálfa til að öðl-ast nýja sýn á lífið, safna í reynslubankann og læra að setja sig í spor annarra. Bakpokaferðalag um Evrópu víkki sjóndeildarhringinn og geri mann ófeiminn við að kasta af sér þvagi hvar og hvenær sem er. Það var fallegur mánudagsmorg- unn. Þetta var einn af þessum fáu dögum í sumar þegar sólin ákvað að heiðra landsmenn með nærveru sinni. Rauðavatn hefur sjaldan verið feg- urra og lóan lék listir sínar í Hádeg- ismóunum. Þá dundi áfallið yfir. Sambýlismaður minn færði mér þær fréttir að tveir sveittir og illa lyktandi iðnaðarmenn væru í þann mund að fjarlægja sturtu- klefann minn út úr íbúðinni og að heitt vatn streymdi um stiga- ganginn. Næstu daga reyndi verulega á þolinmæðina. Ég sat og reri fram í gráðið á meðan pípararnir leituðu að orsök lekans. Í fyrstu bar leitin takmark- aðan árangur og sá ég varla milli herbergja í íbúðinni fyrir múrryki sem þyrlaðist upp þeg- ar þeir brutu upp hálft baðherbergið. Mér stökk ekki bros á vör þegar minn heittelskaði ákvað að feta í forspor píparanna og brjóta afganginn af veggjunum til að koma fyrir nýrri innstungu og viftu þar sem þeir voru hvort sem er komnir vel á veg með að leggja heim- ilið í rúst. Hann mundaði múrbrjótinn og brosti út í annað. Í örvæntingu minni færði ég ótal pípurum, málurum og starfs- mönnum tryggingafélagsins kaffi og meðlæti í von um að ég myndi end- urheimta sturtuna sem fyrst. Allt kom fyrir ekki og í staðinn sá ég meira af bakhluta mannanna en ég kærði mig um og fjölda drullugra fót- spora sem lágu um alla íbúð. Sex vikur liðu frá sumardeginum fagra og loksins rann upp langþráður dagur. Málarinn hafði lokið verki sínu og kvöddum við hann með virktum. Í nokkra daga störð- um við á nýmáluðu veggina í von um að þeir skildu sneiðina og þyrðu ekki annað en að þorna á stundinni. Eftir lang- þráða sturtu brosti ég út að eyrum, klæddi mig og valhoppaði aftur inn á baðherbergi. Adam var þó ekki lengi í paradís. Niður veggina rann nýja málningin og sturtan varð aðeins minning ein í hálfan mánuð til við- bótar. Nú, hálfu ári síðar, get ég loks litið um öxl og brosað. Sturtuleysið kostaði blóð, mikinn svita og nokkur tár, en ég lærði svo sannarlega að meta þessi þægindi sem okkur finnst líklega flestum afar sjálfsögð. »Allt kom fyrir ekki og ístaðinn sá ég meira af bakhluta mannanna en ég kærði mig um … Heimur Láru Höllu Lára Halla Sigurðardóttir larahalla@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.