Morgunblaðið - 03.01.2014, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2014
Skotbómulyftarar
mest seldi
skotbómulyftarinn
2012
Vesturvör 32, 200 Kópavogur, Sími 564 1600 islyft@islyft.is - www.islyft.is
Lyftigeta 2.5 til 12 tonn
Fáanlegir með
• Vinnukörfum
• Skekkingju á bómu
• Bómu með lengd allt að 18 metrum
• Roto útfærsla með bómu
allt að 25 metrum
Mótaðu líkamann
á fljótvirkan og öflugan hátt með tækni
sem samþættir fitubrennslu, uppbygg-
ingu vöðva og teygjur.
Markmiðið
er að bæta líkamsstöðu og auka líkams-
vitund og þokka.
Aukið þol og meiri orka
með markvissri, lifandi og skemmtilegri
þjálfun fyrir allar konur, jafnt þær sem
eru nú þegar í góðu formi sem þær
sem vilja bæta formið.
Einnig frábærar æfingar fyrir hlaupara
og skokkara.
FRÍIR
Eitt nýjasta og vinsælasta æfingakerfið
frá Bandaríkjunum loks í boði á Íslandi
Þrek og Þokki
Kennsla að Suðurlandsbraut 6b, 2 hæð og í Sporthúsinu. Upplýsingar og skráning
í síma 822 7772 og 892 1598. soley@studiosoleyjar.is, www.studiosoleyjar.is
www.facebook.com/studiosoleyjar.is
Námskeiðin hefjast 6. janúar.
Suðurlandsbraut Sex og tólf vikna námskeið Tímar kl. 9.00 -15.30 -16.30 - 17.30
Sporthúsið Tólf vikna námskeið Tímar kl. 8.45
Rúnar Georgsson,
tónlistarmaður, lést
hinn 30. janúar síð-
astliðinn á líknardeild
LSH, sjötugur að
aldri.
Rúnar fæddist 14.
september 1943 í
Reykjavík, sonur
George Gomez og
Guðlaugar Sveins-
dóttur, hárgreiðslu-
meistara. Rúnar hóf
barnungur að leika á
hljóðfæri opin-
berlega, fyrst á
munnhörpu sex ára
gamall á skemmtun í Vest-
mannaeyjum. Síðan lærði hann á
trompet, en skipti síðan fimmtán
ára gamall yfir í saxófón og nam
síðar einnig flautuleik. Þekktastur
var Rúnar sem einn fremsti saxó-
fónleikari landsins og varð sem
slíkur fyrirmynd margra íslenskra
saxófónleikara af yngri kynslóð-
inni.
Rúnar hóf feril sinn sem at-
vinnutónlistarmaður aðeins sextán
ára gamall með hljómsveit Guð-
mundar Ingólfssonar og spilaði
síðan ýmsar tegundir tónlistar á
ferli sínum. Hann lék með öllum
helstu danshljómsveitum landsins
á sínum tíma; KK sextettinum,
hljómsveit Björns R. Einarssonar,
Lúdó-sextettinum,
Hauki Morthens,
hljómsveit Ragnars
Bjarnasonar, hljóm-
sveit Þóris Bald-
urssonar, hljómsveit
Pálma Gunnarssonar,
Júdasi o.fl. sveitum.
Þá spilaði hann einn-
ig með erlendum
sveitum, s.s. sem ein-
leikari í Danmarks
Radio Big Band. En
fyrst og fremst var
Rúnar djassleikari
og kom fram sem
slíkur á fjölda djass-
tónleika um ævina. Rúnar lék inn
á fjölda hljómplatna á ferli sínum,
spilaði kvikmyndatónlist og kom
fram í útvarps- og sjónvarpsþátt-
um. Þá gaf hann sjálfur út hljóm-
plötuna „Til eru fræ“, ásamt Þóri
Baldurssyni. Loks kenndi Rúnar
saxófónleik við þrjá tónlistarskóla
og jafnframt kenndi hann við jazz-
deild FÍH á fyrstu árum deild-
arinnar.
Eftirlifandi sambýliskona Rún-
ars er Arndís Jóhannesdóttir,
söðlasmiður og hönnuður. Rúnar
lætur eftir sig þrjú börn og tvö
stjúpbörn; þau Björgu, Ketil Nic-
las, Elfu Björk, Guðmund og
Fróða. Barnabörnin eru fimm tals-
ins og barnabarnabörnin tvö.
Andlát
Rúnar Georgsson
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Þjónustuver ríkisskattstjóra var um áramótin
flutt alfarið til Akureyrar og Siglufjarðar. Á
annað hundrað manns sótti um fimm störf sem
auglýst voru þar. Þeir starfsmenn sem unnu
við þjónustuverið í höfðstöðvunum í Reykjavík
halda áfram að starfa í afgreiðslu eða hverfa til
annarra starfa innan embættisins að sögn
Gunnars Karlssonar, sviðsstjóra einstaklings-
sviðs ríkisskattstjóra.
„Við höfum frá sameiningunni [níu embætta
ríkisskattstjóra árið 2010] verið að endurskoða
og endurskipuleggja reksturinn. Frá upphafi
hefur verið lögð áhersla á að viðhalda starfsemi
þar sem skattstofurnar voru áður og markvisst
stefnt að því að tryggja stöðu landsbyggðar-
innar svo störf færist ekki þaðan,“ segir hann.
Fjórir starfsmenn voru ráðnir til þjónustu-
versins á Akureyri og einn til Siglufjarðar. Eft-
ir flutninginn starfa því alls sex manns í þjón-
ustuverinu á Akureyri og fimm á Siglufirði, þar
af tveir í hálfu starfi á síðarnefnda staðnum.
Með breytingunni á þjónustuverið að anna
hærra hlutfalli fyrirspurna innan þess. Þannig
verði símaálagi létt af öðrum starfsmönnum
auk þess sem afgreiðslutími viðskiptavina
styttist.
Mikil eftirspurn var eftir störfunum í þjón-
ustuverinu fyrir norðan þegar þau voru aug-
lýst í október. Þannig sóttu 108 manns um
störfin fimm. Meirihluti þeirra var fólk með há-
skólapróf og var valið erfitt að sögn Gunnars
enda margt hæft fólk sem sótti um. Langflestir
voru frá Eyjafjarðarsvæðinu en einnig bárust
umsóknir frá fólki á höfuðborgarsvæðinu og
annars staðar af landinu.
Flutt á Norðurland
Þjónustuver ríkisskattstjóra er nú alfarið á
Akureyri og Siglufirði 108 sóttu um fimm störf
Ljósmynd/Tíund
Ráðin Nýir starfsmenn ríkisskattstjóra fyrir norðan ásamt nokkrum þeirra sem fyrir voru.