Morgunblaðið - 03.01.2014, Side 33

Morgunblaðið - 03.01.2014, Side 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2014 ✝ Ásta Sigurð-ardóttir fædd- ist í Miklaholti á Mýrum 26.9. 1921. Hún lést að kvöldi aðfangadags, 24.12. 2013. Foreldrar henn- ar voru Sigurður Sigmundsson bóndi í Miklaholti á Mýr- um og síðar í Syðra-Langholti, Hrunamannahreppi, Árn., f. 30.5. 1880, d. 3.11. 1968 og Kristjana Bjarnadóttir, f. 7.12. 1875, d. 8.12. 1966. Systkini Ástu voru 11: Friðjón, Bjarni, Kristín, Lovísa, Ásta Fanney sem öll létust ung. Systkini sem upp komust voru: Sigmundur, f. 8.3. 1903, d. 12.3. 1981, giftur Önnu Jóhannesdóttur, d. 1997. Steinunn Friðborg, f. 30.5. 1904, d. 19.11. 1979, gift Jóni Stef- ánssyni, d. 1946. Margrét Ólöf, f. 15.11. 1906, d. 16.6. 1989, gift Gunnlaugi Magnússyni, d. 1955. Jensína Laufey, f. 15.5. 1913, d. 28.8. 1950, gift Bjarna Krist- jánssyni, d. 1965. Bjarni, f. 18.12. 1919, d. 6.12. 2008, eft- irlifandi eiginkona er Kristín Ólafsdóttir. Hinn 14.8. 1943 giftist Ásta Ásgeiri Þorsteinssyni, f. 9.8. 1920, 9.8. 1996. Foreldrar hans voru Þorsteinn J. Finnsson og Ólafia Einarsdóttir. Ásta og Ás- geir bjuggu lengst af að Skóla- gerði 6 a, Kópavogi en þangað fluttu þau 1950. Börn Ástu og Ásgeirs eru: 1) Ragnar Örn, f. hjónabandi með Ingu Agnars- dóttur, Heiðu Lind, f. 1976, gift Bjarna Á. Sigurðssyni og eiga þau fimm börn, og Hildi Evu, f. 1978, í sambúð með Ásgeiri Ás- geirssyni. 5) Kristjana Laufey, f. 8.3. 1954, var gift Guðmundi I. Gunnarsyni, þau skildu, börn þeirra eru: a) Ásgeir Andri, f. 1974, og á hann einn son með Grímu Jónsdóttur, b) Fanney Lára, f. 1987, í sambúð með Ágústi Guðmundssyni og eiga þau einn son. 6) Ólafía, f. 2.9. 1963, gift Árna Rúnari Sverr- issyni, þeirra börn eru: a) Val- geir Gauti, f. 1986, í sambúð með Díönu Gunnarsdóttur, b) Hugrún, f. 1988, í sambúð með Steinari Berg Bjarnasyni og eiga þau einn son. Ásta flutti sex ára gömul með fjölskyldu sinni að Syðra- Langholti Hrunamannahreppi, þar sem hún ólst upp. Hún fór í Ingi- marsskóla í Reykjavík og út- skrifaðist þaðan með gagn- fræðapróf. Hún vann um tíma á Landspítalanum áður en hún giftist og fór að hugsa um barnaskarann meðan eiginmað- urinn var á sjó. Síðar vann hún hin ýmsu störf , lengi við ræst- ingar í Kársnesskóla, í rækju- vinnslu og afgreiðslustörf, einn- ig sem matráðskona í Kennaraskólanum. Ásta var mikil félagsvera og var lengi í stjórn Borgfirðingafélagsins og lengi formaður kvennadeildar Borgfirðingafélagsins. Hún starfaði mikið með félagi aldr- aðra í Kópavogi, var m.a. for- maður bridgedeildar og í ferða- nefnd. Útför Ástu fer fram frá Kópa- vogskirkju í dag, 3. janúar 2013, og hefst athöfnin kl. 13. 9.1. 1946, d. 8.2. 2001, giftur Jónínu Ágústsdóttur, þeirra börn eru: a) Berglind, f. 1971, gift Ásmundi Edw- ardssyni og eiga þau þrjú börn, b) Ágúst Þór, f. 1979, giftur Hildi Ein- arsdóttur og eiga þau tvö börn, c) Svala, f. 1984. 2) Þorsteinn, f. 28.5. 1947, giftur Ingibjörgu Ásgrímsdóttur, þeirra börn eru: a) Ásta, f. 1970, gift Stefáni Hallgrímssyni og eiga þau þrjú börn, b) Ásgrímur Smári, f. 1974, giftur Elínu E. Ragnarsdóttur og eiga þau tvö börn , Ásgrímur á tvö börn úr fyrri sambúð. c) Ásgeir Örn, f. 1980, giftur Halldóru Harð- ardóttur og eiga þau þrjá syni. 3) Helga, f. 7.2. 1950, gift Einari Thorlacius, þeirra börn eru: a) Nadine Guðrún, f. 1975 sem á tvö börn með fv. eiginmanni, í sambúð með Friðjóni Inga Guð- mundssyni, b) Þórdís Ásta, f. 1983, í sambúð með Karli Jón- atani Kárasyni, c) Steinunn Erla, f. 1984 í sambúð með Bjarna Pálmasyni og eiga þau einn son. 4) Sigurður, f. 2.11. 1951, d. 29.9. 2011, giftur Guð- rúnu B. Zóphaníasdóttur, þeirra börn eru: a) Aldís Sigríður, f. 1983, í sambúð með Ólafi Stein- grímssyni, b) Ásta Fanney, f. 1987, c) Ívar Zóphanías, f. 1991, unnusta Ester Ólafsdóttur. Sig- urður á tvær dætur frá fyrra Ég ólst upp á Ólafsfirði en þær voru ófáar ferðirnar suður í Skólagerði í heimsókn til ömmu og afa og það var alltaf jafn skemmtilegt að koma til þeirra. Þau bjuggu á algjörum drauma- stað í augum barns… nánast á skólalóðinni og því stutt að fara á leiksvæðið. Auk þess sem þau áttu þær bestu rólur sem til voru, að mér fannst. Amma og afi áttu líka kött og svo var fullt af dúkku- dóti á staðnum þar sem það er ekki svo langt á milli mín og Lóu, yngstu föðursystur minnar. Þetta var því algjör ævintýraveröld í mínum huga. Það var oft kátt á hjalla í Skóla- gerðinu og margt um manninn þar á bæ. Ég man eftir Sigga á Sóleyjarbakka sofandi fram yfir hádegi eftir langan rútubíltúr, ég man líka eftir Sigga föðurbróður mínum þegar hann lá inni í her- bergi slasaður eftir að hafa fengið golfkúlu í hausinn. Mér er mjög minnisstætt þegar Lóa fékk gat á hausinn eftir að hún og pabbi voru að keppast um að ná símanum þegar hann hringdi. Sú keppni endaði upp á slysó. Ég man eftir kettinum sem klóraði alltaf í stól- bakið á stólnum í stofunni, fugl- unum hennar Lóu sem hjuggu endalaust í gardínukappann og okkur krökkunum glamrandi á pí- anóið á ganginum en aldrei kippti amma sér upp við neitt af þessu. Svo var það gamli tröppustóllinn hennar ömmu, uppáhaldssætið okkar krakkanna, það var svo gaman að sitja þar og sjalla við ömmu á meðan hún var að stúss- ast í eldhúsinu. Amma var líka mjög dugleg að spila við okkur krakkana og þá var það yfirleitt Hundur eða Veiðimaður sem varð fyrir valinu. Mér fannst mjög gaman að fara með ömmu í leiðangur þegar ég var lítil, þá brunuðum við á grænu bjöllunni og sungum há- stöfum „Bílarnir aka undir brúna“ þegar við fórum undir brúna í Kópavoginum. Þar komst ég líka að því að vélin í bjöllum var aftur í skotti, því amma vissi mik- ið um bíla að mér fannst… hún var jú bílstjórinn á heimilinu þar sem afi var sjómaður og lítið heima. Svo eru ónefndar allar sum- arbústaðaheimsóknirnar í Borg- arsel, en þar þótti ömmu gott að vera og þar var oft kátt á hjalla þegar stórfjölskyldan kom saman á sumrin. Amma var mjög sterk og dug- leg kona. Hún þurfti að sjá um stórt heimili á meðan afi var á sjónum og gerði það vel. Hún sá einnig lengi um afa þegar hann var í sínum veikindum en aldrei heyrði ég hana kvarta. Hún var ákaflega sjálfstæð og félagslynd manneskja, hafði unun af því að spila og ferðast. Síðasta ferðin hennar norður til okkar var síð- astliðið vor þegar hún kom í ferm- ingu hjá syni mínu og er ég ótrú- lega stolt af henni og þakklát fyrir það. Það háði henni ömmu svolítið í seinni tíð hvað hún heyrði illa og oft hef ég brosað í laumi þegar ég spurði hana að einhverju en hún hafði greinilega heyrt eitthvað allt annað og svaraði eftir því. Elsku amma, takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér í gegnum tíðina. Þín verður sár saknað. Ásta. Elsku amma, ég sit hér og skrifa mín hinstu orð til þín og hugsa til baka um allar yndislegu stundirnar okkar saman. Það var svo erfitt að kveðja þig núna á að- fangadagsmorgun eftir að ég tafðist í tvo daga í Halifax, en þú varst svo tillitssöm og beiðst eftir að ég kæmi til að kveðja þig, eins og þú varst alltaf. Ég veit að þú fannst fyrir því að ég var hjá þér þegar ég sagði þér hvað mér þætti vænt um þig. Ég hlakkaði alltaf til að koma í heimsókn til þín, sérstaklega þeg- ar ég og Steina systir fengum að fara einar í pössun til þín í Furu- grundina í Kópavoginum. Þá tókstu alltaf á móti okkur með stóru faðmlagi og fullum disk af nýbökuðum pönnukökum eða þinni frægu hjartaköku, alveg sama hvað klukkan var. Maður mátti aldrei fara svangur í bólið. Ég man líka eftir öllum skemmti- legu sumarbústaðarferðunum okkar saman sem voru farnar al- veg frá því ég man eftir mér, þér fannst svo gaman að vera innan um stórfjölskylduna. Ég man sér- staklega eftir síðustu sumarbú- staðarferðinni minni með þér og frænkunum þegar þú tókst þátt í Partýspilinu sem við vorum að spila og þú lékst jarðskjálfta með eftirminnilegum hætti , hristist öll og skalfst með tilþrifum en við hlógum svo mikið að við gátum ekki giskað á rétta orðið. Þú varst alltaf til í að taka þátt í öllu sprelli með okkur, þú varst sko í fullu fjöri fram á síðasta dag. Ég segi alltaf að ég ætli að vera svona hress og fyndin eins og amma Ásta þegar ég verð gömul, alltaf að spilandi og dansandi. Ég hef alltaf borið virðingu fyrir þér og óendanlegri gjafmildi þinni. Þú varst alltaf svo hjartahlý og góð við alla, máttir aldrei neitt aumt sjá, varst svo góð við alla í kring- um þig. Ég vil sérstaklega þakka þér fyrir allar samverustundirnar og hjálpina þegar ég leigði ein á Tjarnargötunni þegar ég byrjaði í háskólanum, þá bauðstu mér oft í hádegismat og spjall til þín. Fékk þá uppáhaldið mitt, ömmugraut eða kjötsúpu. Ég lærði mikið af þér, bæði um lífið og eldamennsk- una, því þú sýndir væntumþykju með mat. Þú varst líka alltaf tilbú- in að sækja mig ef ég þurfti eitt- hvað að komast á græna skrið- drekanum þínum og þá tókum við oft kaffibolla og spjall eftir rúnt- inn. Elsku amma. Mig langar til að enda á einni lítilli vísu sem ég samdi. Höfðingleg til himna svífur, hafðu góða ferðina. Sama hvað á daga drífur, aldrei mun ég gleyma þér. Ég kveð þig nú með tár og trega, tel nú daga þína hér. Þakka þér nú hjartanlega fyrir góðu stundirnar. Þín Þórdís Ásta. Elsku amma mín. Ég mun aldrei gleyma stundunum sem ég átti með þér, öllum heimsóknun- um og næturgistingunum þegar ég var yngri. Kvöldpönnuköku- bakstur var í uppáhaldi og fá að vaka frameftir. Mér fannst svo ótrúlega gaman að vera hjá ömmu. Hún skammaði okkur systur aldrei, sama hversu mikið við fífluðumst og létum illa. Ég man að ég hugsaði snemma „Svona amma ætla ég að verða“ og sú hugsun hefur ekki breyst. Amma var ein besta kona sem ég þekki, svo ótrúlega hjartahlý, barngóð, stóð alltaf með litla manninum og var frábær gest- gjafi. Hún var alltaf tilbúin að gera allt fyrir mann. Þegar ég var 19 ára og á leið í útskriftarferð til Spánar þá fékk ég að gista hjá ömmu fyrir sunnan og vinkonur mínar þrjár voru að sjálfsögðu velkomnar líka. Við vorum frekar seint á ferð og komum ekki suður fyrr en rétt eftir miðnætti. Ég sagði ömmu að vera ekki með neina fyrirhöfn, við myndum bara læðast inn. Hún samþykkti það en svo þegar við mættum þá var amma búin að baka 10 cm háan pönnukökustafla, þeyta rjóma og sjóða kakó og með engri fyrirhöfn eins og hún lofaði. Þetta fannst okkur ekki slæmt og vinkonur mínar voru himinlifandi með þennan dásamlega gestgjafa, en amma fagnaði því alltaf að fá gesti sama hvað klukkan var. Ég var mjög montin af því að eiga hana ömmu, hún var svo ótrúlega skemmtileg og einstök. Samdi vísur við hvert tækifæri og gerði það listavel. Mér fannst magnað hversu mikið hún amma elskaði skyndibitamat. Ég hef margoft sagt frá því að ég eigi ömmu sem er 92 ára og eitt það besta sem hún fái sé hamborgari með frönskum, kjúklingur úr Suður- veri eða KFC og vekur það mikla lukku. Amma var stuðbolti af guðs náð og vildi alltaf vera í kringum fólk. Hún bjó á Vitatorgi síðustu árin og þar var farið í ýmsar skemmtiferðir. Amma fór í þær nokkrar og þegar ég spurði hvort það hefði ekki verið gaman þá svaraði sú gamla að svo hefði ver- ið en þetta lið væri bara orðið svo gamalt, en þess má geta að amma var sú elsta í ferðinni. Ég spurði hana eitt sinn hvert leyndarmálið á bakvið langlífið væri og hún sagði að það væri bara að vera ánægður og glaður í stað þess að tuða eða nöldra yfir hlutum sem skipta ekki máli og finnst mér það góð lífsspeki til að fara eftir. Ald- ur er afstæður og náði hún amma svo sannarlega að staðfesta það með sinni einstöku persónu. Elsku amma gleðigjafi, ég á eftir að sakna þín svo mikið, þú ert mín fyrirmynd í lífinu. Takk fyrir allt, þín Steinunn Erla Thorlacius (Steina). Þegar ég hugsa til baka til ömmu Ástu, sem nú hefur kvatt okkur, hellast margar minningar yfir mig. Amma var ung í anda og alltaf til í grallaraskap og ævintýr. Hún lék á als oddi þegar voru manna- mót og margir í kringum hana, enda á hún stóran afkomendahóp. Ég man hvað það var alltaf svo mikið fjör þegar ég var lítil og heimsótti ömmu og afa í Skóla- gerði. Þar var margt brallað og í minningunni mátti maður allt og einhvernveginn aldrei skammað- ur fyrir nein prakkarastrik. Við barnabörnin fengum að leika okkur í skartgripaskríninu hennar ömmu, allar hálsfestarn- ar, klemmueyrnalokkarnir, slæð- urnar og jafnvel kjólarnir, allt þetta máttum við leika okkur með því amma treysti okkur – alger paradís fyrir litlar stelpur. Uppi á háalofti fórum við í allskonar leiki, sem voru oftast fjársjóðs- og sjó- ræningjaleikir, við stálumst líka stundum út um gluggann út á þak, en amma vissi einhvernveg- inn um þann leik, þó við héldum ekki. Ófáar ferðirnar voru farnar á Skodanum hennar ömmu upp í Borgarsel, þá oftast með viðkomu í Akraborginni sem var algert æv- intýr. Í bílferðunum var sungið hástöfum og hvergi dregið undan, enda amma mikil söngkona og kunni ógrynni texta sem við barnabörnin lærðum af henni. Amma fræddi okkur líka um land- ið í leiðinni enda elskaði hún að ferðast. Hún kippti sér heldur ekkert upp við það, né leiðrétti litla stelpuskjátu sem kallaði fjall- ið Baulu Búkollu eða fjallið Grá- brók Nærbrók. Svona var hún amma, hló bara að öllu saman og við héldum áfram að syngja. Amma kenndi mér líka að spila, ég man að ég vann þó oftast, spurning hvort úrslitum hafi verið hagrætt því hún vildi að hverjum og einum liði vel með sjálfan sig. Hún bakaði líka bestu pönnsur í heimi. Hörkutólið hún amma mín hratt hún kvaddi sína. Situr uppi, sæt og fín, passar mig og mína. Elsku amma, ég sakna þín sárt, en veit að þú ert komin til afa og farin að plana næstu skemmti- ferð. Hvíl í friði. Þín Nadine Guðrún. Ég minnist Ástu frænku sem konu sem hafði nóg fyrir stafni, var í félagsmálum og hörku dugn- aðarforkur. Hún var mikil fé- lagsvera og þótti gaman að spila. Þótti mér mikið til þess koma að hún kunni bridge, það voru ekki allir sem kunnu það.Og ekki gleyma félagsvistinni. Ég var svo heppin að fá að vera hjá Ástu og Ásgeiri í Skólagerði 6a þegar ég var ung, dvaldi hjá þeim tvo vetur og það var ljúft. Þá átti Ásta Skoda og sá bíll var vel nýttur, Ásta var ótrúlega dugleg að keyra allra sinna ferða, lét ekkert stoppa sig.Reyndar var fátt sem gat stoppað Ástu í því sem hún ætlaði sér, slíkur var kjarkurinn og áræðnin. Mamma hafði stund- um á orði að það væri með ólík- indum þessi kjarkur hennar Ástu, að keyra ein norður í land og setja það bara ekkert fyrir sig. Ásta gaf mér stundum dönsku blöðin þegar hún var búin að lesa þau, hún keypti blöðin og las framhaldssögurnar og gerði krossgáturnar, „það er svo margt spennandi í dönsku blöðunum,“ sagði hún. Jákvæðni og umburðarlyndi gagnvart náunganum er meðal þess sem ég dáði í fari Ástu frænku. Ég þakka samfylgdina og að fá að eiga slíka frænku er ómetanlegt. Þær eru margar góðu og skemmtilegu minning- arnar og þær á ég í hjarta mér áfram. Takk, takk. Margrét Brynjólfsdóttir. Látin er í hárri elli föðursystir mín, Ásta Sigurðardóttir, sem jafnan kenndi sig við Syðra-Lang- holt í Hrunamannahreppi. Ásta var fædd í Hraunhreppi í Mýra- sýslu, en fluttist með foreldrum sínum og systkinum sex ára göm- ul að Syðra-Langholti þar sem hún ólst upp fram um tvítugsald- ur. Hún fór til Reykjavíkur og var tvo vetur í Ingimarsskólanum svonefnda. Í Reykjavík kynntist hún tilvonandi eiginmanni sínum, Ásgeiri Þorsteinssyni, ungum og myndarlegum sjómanni. Ég man vel þegar Ásta kom austur að Syðra-Langholti með kærastann að kynna hann fyrir foreldrum sínum og frændfólki. Þau voru glæsilegt par. Þau hófu búskap í Reykjavík en fluttu fljótlega í Kópavog og bjuggu lengst af í Skólagerði 6a. Ásgeir var lengst af sinni starfsævi togarasjómaður og dró björg í bú, en Ásta ann- aðist uppeldi barnanna sex sem þau eignuðust og sá að mestu um fjármál heimilisins. Ásgeir andað- ist 1996. Síðar varð Ásta fyrir þeirri þungbæru reynslu að tveir sona hennar dóu af völdum krabbameins á besta aldri. Það var mikið áfall fyrir alla fjölskyld- una. Ásta lét þó ekki bugast og bar jafnan höfuðið hátt. Hún var mjög félagslega sinnuð og tók virkan þátt í starfi eldri borgara, spilaði á spil og ferðaðist mikið al- veg fram á hin síðustu ár. Hún var ágætlega hagmælt og orti tals- vert af ljóðum og lausavísum. Ég vil fyrir mína hönd og minn- ar fjölskyldu þakka mikil og góð samskipti fyrr og síðar. Börnum hennar, tengdabörnum og afkom- endum votta ég samúð. Minningin lifir um merka konu. Jóhannes Sigmundsson. Ásta Sigurðardóttir ✝ Elskulegur bróðir okkar, EYJÓLFUR SIGURBJÖRNSSON, Garðbraut 85, Garði, lést á Hjúkrunarheimilinu Garðvangi, Garði, fimmtudaginn 26. desember. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 10. janúar kl. 13.00. Steinunn Sigurbjörnsdóttir, Friðrik Sigurbjörnsson. ✝ Ástkær systir okkar og móðursystir, BJÖRG DAVÍÐSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu mánudaginn 6. janúar kl. 15.00. Margrét Sjöfn Davíðsdóttir, Elín Klara Davíðsdóttir, Svava Ásdís Davíðsdóttir og systrabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR frá Miklaholti, Stórateig 42, Mosfellsbæ, lést á Landspítalanum í Fossvogi á nýársdag. Kristín Magnúsdóttir, Jón Magnússon.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.