Morgunblaðið - 03.01.2014, Blaðsíða 37
MINNINGAR 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2014
✝ (Aðalbjörg)Sigrún Stef-
ánsdóttir fæddist í
Bakkakoti, Lýt-
ingsstaðahreppi í
Skagafjarðarsýslu,
11. ágúst 1930. Hún
lést á hjúkr-
unarheimilinu Sól-
túni 26. desember
2013.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Stef-
án Jóhannesson, f. 27.12. 1895,
d. 14.8. 1990, og Oddný Sigurrós
Sigurðardóttir, f. 30.9. 1890, d.
15.1. 1984. Sigrún var næst-
yngst sinna systkina. Alsystkini
hennar sem upp komust eru
Hjálmar A. Stefánsson, f. 27.8.
1926, og Dagbjört Hrefna Stef-
ánsdóttir, f. 11.2. 1933, d. 27.1.
2011. Hálfsystkini hennar sam-
mæðra eru Sigurður H. Hjálm-
Björg, f. 13.8. 2000. 2) Ólöf
Berglind Halldórsdóttir, f.
11.12. 1959, var í sambúð með
Jóni Ólafssyni, sonur þeirra er
Halldór Hrafn, f. 13.8. 1981,
kvæntur Huldu Hreiðarsdóttur,
f. 16.7. 1982. Börn þeirra eru
Ólafur Hrafn, f. 9.6. 2000, Hreið-
ar Hrafn, f. 16.1. 2004 og Heiða
Björk, f. 16.8. 2006. Ólöf er gift
Stefáni Erni Betúelssyni, f.
13.10. 1959 og er þeirra sonur
Sindri Hrafn Stefánsson, f. 6.4.
1998.
Sigrún var mikill dýravinur
og starfaði í sjálboðavinnu til
margra ára hjá Dýravernd-
unarfélagi Íslands og Kattholti.
Hún starfaði stuttan tíma á
Grand Hotel í Ósló um tvítugt
og vann við ýmis störf í gegnum
tíðina en lengst af starfaði hún
hjá Háskóla Íslands og Raunvís-
indastofnun Háskólans. Sigrún
ferðaðist mikið um heiminn, fór
í hnattreisur og er varla til það
land sem hún hafði ekki komið
til.
Sigrún verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju í dag, 3. janúar
2014, og hefst athöfnin kl. 13.
arsson, f. 10.3.
1918, d. 9.4. 2001,
Helga Hjálm-
arsdóttir, f. 3.7.
1919, d. 27.2. 2007
og Jón R. Hjálm-
arsson, f. 28.3.
1922.
Sigrún giftist
Halldóri Indr-
iðasyni, múr-
arameistara, f.
29.11. 1933, d. 18.3.
1980. Þau skildu. Börn þeirra
eru: 1) Oddný Björg, f. 11.4.
1956, giftist Bjarna Friðriks-
syni, þau skildu. Dóttir þeirra er
Birgitta, f. 24.11. 1979, gift
Högna Baldvin Jónssyni, f.
12.10. 1979. Þeirra börn eru tví-
burarnir Baldvin Þór og Jón
Oddur, f. 6.10. 2008. Oddný er
gift Helga Kristjánssyni, f. 6.4.
1958. Dóttir þeirra er Helga
Nú er elsku mamma lögð af
stað í sitt síðasta ferðalag. Hún
ferðaðist meira en margur ann-
ar og hafði farið til flestra landa
sem ég kann að nefna. Til
sumra fjarlægra staða hafði hún
farið oftar en einu sinni og var
Hawaii í miklu uppáhaldi hjá
henni. Við vissum til þess að
fararstjórarnir áttu stundum í
mesta basli með hana því hún
fór yfirleitt sínar eigin leiðir og
stakk af ef það var eitthvað
spennandi sem hana langaði að
skoða en hópurinn færi ekki.
Hún lét ekki aðra rugla sig eða
hafa áhrif á það hvernig hún
vildi hafa hlutina, bara brosti og
hélt sínu striki.
Mamma kenndi mér svo
margt, hún var fordómalaus og
samþykkti alla og allt í kringum
sig og af æðruleysi gekk hún í
gegnum lífið.
Góða ferð, mamma mín, og
hafðu það gott þangað til við
hittumst næst.
Þín dóttir,
Oddný Björg.
Þegar Sigrún systir okkar
kvaddi jarðlífið annan dag jóla
kom það ekki svo mjög á óvart.
Hún var komin á níræðisaldur
og hafði átt við ýmis veikindi að
stríða á seinni árum. Engu að
síður fylgir því alltaf sorg og
söknuður að kveðja nákomna
ættingja og vini sem maður hef-
ur þekkt frá morgni æsku ljós-
um og átt samleið með um lang-
an aldur. En þetta er lögmál lífs
og dauða og því verða allir að
lúta.
Frá unga aldri var Sigrún
óvenjutápmikil og dugleg stúlka
að hverju sem hún gekk. Hún
byrjaði snemma að vinna fyrir
sér og kom sér hvarvetna vel.
Fyrst voru það almenn sveita-
störf á æskuslóðum í Skagafirði
og síðan fór hún í vist hjá góðu
fólki á Akureyri. Þar stundaði
hún líka nám um skeið í gagn-
fræðaskóla og síðar lauk hún
skólagöngu í hússtjórnarskólan-
um á Laugalandi í Eyjafirði. En
snemma blundaði með henni
löngun til að sjá sig um í heim-
inum og um tvítugt fór hún til
Noregs, þar sem hún vann ýmis
störf, meðal annars á Grand
hótelinu í Osló. Þar í Osló var
hún löngum til húsa hjá Jónínu
Sæborg, íslenskri konu sem gift
var og búsett í Noregi. Þar átti
hún góða daga og mat þessa
hálfíslensku fjölskyldu ætíð
mikils.
Eftir að Sigrún hélt heim aft-
ur settist hún fljótlega að í
Reykjavík. Þar kynntist hún
Halldóri Indriðasyni, ungum
efnismanni. Þau giftust í fyll-
ingu tímans, stofnuðu heimili og
eignuðust tvær dætur. En jafn-
framt heimilisstörfum stundaði
Sigrún ýmsa vinnu, meðal ann-
ars í þvottahúsi og við ræst-
ingar. Um árabil vann hún til
dæmis við þess háttar störf í
Háskóla Íslands og þá oft í
samstarfi við Hrefnu, systur
sína, en þær voru mjög sam-
rýndar. En þótt Sigrún væri
hörkudugleg og sístarfandi, þá
átti hún líka sínar frístundir. Og
þann tíma notaði hún til ferða-
laga bæði innan lands og utan,
en þó öllu meira erlendis. Hjá
henni var það nánast sem köll-
un að sjá sig um í heiminum og
meðal annars fór hún oftar en
einu sinni umhverfis jörðina í
svokölluðum hnattferðum. Var
mjög skemmtilegt og fróðlegt
að heyra hana segja frá ein-
hverjum þessara ferða, til dæm-
is frá heimsóknum hennar á vit
sérkennilegra skriðdýra á Ga-
lapagoseyjum eða hinna syngj-
andi lemúra á Madagaskar. Og
ekki má gleyma gönguferðum
eftir Kínamúrnum, skoðun á
pýramídunum miklu eða sólbaði
á Balí og öðrum suðrænum eyj-
um og löndum. Ferðalög voru
samt ekki eina áhugamál Sig-
rúnar því að þau voru fjölmörg
og þar á meðal voru til dæmis
dýraverndarmál sem voru henni
afar hugleikin og hún studdi
jafnan með ráðum og dáð.
En nú er þetta allt að baki og
Sigrún systir lögð upp í þá ferð
sem allra bíður fyrr eða síðar. Á
kveðjustund þökkum við henni
fyrir indæl kynni og skemmti-
lega samfylgd um langan aldur
og biðjum henni blessunar á
nýjum leiðum. Við og fjölskyld-
ur okkar sendum dætrum henn-
ar Oddnýju og Ólöfu, tengda-
sonum og afkomendum sem og
öllum öðrum vandamönnum
innilegar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning hennar.
Hjálmar A. Stefánsson,
Jón R. Hjálmarsson.
Elsku amma mín, það var svo
gaman að heimsækja þig. Þú
varst alltaf að segja mér frá öll-
um ferðunum þínum. Tvö lönd
stóðu upp úr en það voru Ga-
lapagoseyjar og Hawaii. Þú átt-
ir stóran þátt í því að ég,
mamma og pabbi fórum til Ga-
lapagoseyja. Þá er það bara
Hawaii sem verður næst á dag-
skrá. Elsku amma mín, ég á eft-
ir að sakna þín.
Þinn
Sindri Hrafn.
Það var algjör heppni að ég
fékk það tækifæri að kynnast
Sigrúnu á þann hátt sem ég
gerði, en hana hafði ég oft hitt í
afmælum frændsystkina minna.
Það var ekki fyrr en ég fór að
kynna mér líf fólks í byrjun 20.
aldar, fyrir verkefni, að ég fór í
mína fyrstu heimsókn til Sig-
rúnar. Öll heimsóknin frá upp-
hafi til enda var ævintýraleg
enda um einstaka konu að
ræða. Allt frá því hún henti til
mín lyklinum úr glugganum á
þriðju hæð og þar til ég kvaddi
hana með sauðskinnsskó, út-
krassað glósublað og eldgamlan
vörulista í poka. Sögur Sigrúnar
úr æsku voru ótrúlegar og gáfu
mér svo sannarlega nýja innsýn
inn í veruleika sem flestum er
gleymdur. Líf ungrar stúlku
sem deildi rúmi með ömmu
sinni, þekkti kuldabólgurnar
sem fylgdu vetrinum og vissi að
best var að sinna lestri og lær-
dómi í fjósinu þar sem hún naut
ylsins frá kúnum. Lýsingarnar
voru svo skýrar að manni gat
fundist maður hafa verið þarna
í fjósinu með henni.
Með ylnum frá kúnum í æsku
virðist Sigrún hafa öðlast virð-
ingu og samhug með dýrum.
Hún var mikill dýravinur og var
til að mynda sjálfboðaliði í Katt-
holti. Þessari ástríðu deildum
við og það var gaman að ræða
við hana um dýr og málefni
þeirra.
Sem barn í sinni afskekktu
sveit fékk Sigrún áhuga á
landafræði og lét sig dreyma
um að sjá heiminn. Á miðjum
aldri ákvað hún að láta drauma
sína rætast og náði með ótrú-
legum viljastyrk og áræðni að
sjá margvíslega hluta heimsins,
upplifa framandi menningar-
heima og náttúrufyrirbæri. Sög-
ur hennar af ferðalögum sínum
voru mér mikill innblástur og
sú staðreynd að hún hafi getað
þetta gaf mér þor til að leggja
sjálf í spennandi ferðalög.
Þegar ég hugsa til Sigrúnar
finn ég til þakklætis fyrir að
hafa fengið að kynnast þessari
yndislegu konu. Minningin um
hana er samofinn tilhlökkun og
von um að að upplifa í framtíð-
inni ferðalög á borð við þau sem
Sigrún talaði um af sínum ein-
staka eldmóði. Megi hún hvíla í
friði.
Bryndís Hreiðarsdóttir.
Nú er hún Sigrún farin á vit
ævintýranna eins og henni einni
var lagið.
Eftir sitjum við þakklát fyrir
samfylgdina og allt sem hún
kenndi okkur. Sigrún var ótrú-
lega merkileg kona og ævi
hennar er efni í heilan bóka-
flokk. Hún ólst upp við þröngan
kost á gamla Íslandi, flutti ung
til Reykjavíkur og sá Ísland
þroskast og breytast. Hún Sig-
rún sá líka heiminn – alveg
nokkru sinnum! Þegar Sigrún
var sjötug og eignaðist sitt
fyrsta langömmubarn þá
skrapp hún að skoða Amazonið
og sagði glöð frá kynnum sínum
af blóðsugum. Svona var hún
mikilvæg fyrirmynd.
Sigrún safnaði fjársjóðum en
fylgdi aldrei tískusveiflum. Hún
vildi frekar sjá heiminn en að
elta efnahyggju hins týpíska Ís-
lendings. Hún átti samt allt
sem hana langaði að eiga. Ég
man svo vel eftir fyrstu heim-
sókninni minni á Hallveigar-
stíginn. Það var eins og að
koma inn í alveg nýjan heim
þar sem ólík menning og tímar
mættust. Heimili þar sem
draumar rættust. Hún hafði
samt svolítið gaman af því hvað
dæturnar eru alltaf flottar á
því. Ég man árið sem þær
fengu sér báðar kristalsljósa-
krónur og Sigrún hló með mér í
laumi að því að þær væru alltaf
í stíl.
Sigrún hafði mikil áhrif á sitt
fólk. Það er svo skemmtilegt að
fylgjast með því hvernig ólíkir
þættir í hennar ótrúlega per-
sónuleika dreifast á þennan
góða hóp af fólki. Þau eiga öll
svolítið erfitt með að halda sig
á Íslandi í lengri tíma og hafa
flest dálæti á skínandi fallegum
hlutum. Öll nema Halldór sem
safnar eins og amma sín
óvenjulegum fjársjóðum. Hann
fékk líka hreinskilnina og sjálf-
stæðið frá ömmu sinni en hvor-
ugt þeirra hefur nokkur tímann
eytt tíma í að hafa áhyggjur af
áliti annarra. Það er ótrúlega
dýrmætur hæfileiki.
Takk, elsku Sigrún mín, fyrir
allt. Ég mun hugsa til þín í
hvert skipti sem Halldór kemur
heim af nytjamarkaðnum næstu
50 árin. Þú ert konan sem af-
komendur okkar munu ennþá
tala um eftir 100 ár.
Sjáumst seinna. Í Hawaii-
kjólum.
Hulda Hreiðarsdóttir.
Sigrún
Stefánsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Elsku mamma mín, nú
ertu farin. Ég er strax farin
að sakna þín en við stjórn-
um víst ekki ferðinni. Ég
hugsa til þín með þakklæti
fyrir svo margt. Ég er viss
um að pabbi hafi tekið á
móti þér og fylgt þér til
allra þeirra sem voru þér
kærir.
Elsku mamma mín, hitt-
umst seinna.
Þín dóttir
Ólöf Berglind.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
BERTA GUÐRÚN ENGILBERTSDÓTTIR,
Sléttuvegi 23,
Reykjavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli 23. desember.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 7. janúar kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hinnar
látnu er bent á FAAS (Félag aðstandenda Alzheimersjúklinga),
sími 533 1088 eða faas.is.
Eyjólfur Davíðsson,
Héðinn Eyjólfsson, Guðrún H. Fjalldal,
Guðrún S. Eyjólfsdóttir, Snjólfur Ólafsson,
Sigríður Eyjólfsdóttir, Ólafur Ó. Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGURLÍN GUNNARSDÓTTIR
frá Þingvöllum,
sem lést hinn 23. desember verður
jarðsungin frá Stykkishólmskirkju
þriðjudaginn 7. janúar kl. 14.00.
Kristín María Hallvarðsdóttir,
Hilmar Hallvarðsson, Astrid Göllnitz,
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir, Sumarliði Ásgeirsson,
Kristján Hallvarðsson, Ágústa Áróra Þórðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÓLAFUR SIGURÐSSON,
Skógarseli 11,
Reykjavík,
lést á Droplaugarstöðum sunnudaginn
22. desember.
Útförin verður frá Dómkirkjunni mánudaginn
6. janúar kl. 11.00.
Einar Oddur Ólafsson,
Guðrún Hanna Ólafsdóttir, Gunnar Jensen,
Sigurður Óli Ólafsson, Björg Harðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
MARGRÉT ÞURÍÐUR FRIÐRIKSDÓTTIR,
Brekkubraut 1,
Keflavík,
sem lést fimmtudaginn 26. desember, verður
jarðsungin frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn
9. janúar kl. 13.00.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Hrafnistu í Hafnarfirði
fyrir hlýlega umönnun.
Davíð Baldursson, Inger Linda Jónsdóttir,
Elínborg Baldursdóttir,
Guðmundur Friðrik Baldursson, Hildur Hafstað,
Hannes Baldursson, Eyrún Jónatansdóttir,
ömmu-, tengda- og langömmubörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTINN GUÐJÓNSSON
framkvæmdastjóri,
Skúlagötu 40B,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 6. janúar kl. 15.00.
Jóhannes Kristinsson, Þorbjörg Jónsdóttir,
Elín Kristinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
BRYNDÍS JÓHANNSDÓTTIR
frá Skriðufelli,
til heimilis
Ásenda 3,
Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum 18. desember,
verður jarðsungin frá Laugarneskirkju
kl. 13.00 mánudaginn 6. janúar.
Þórunn Kristinsdóttir, Garðar Jóhann Guðmundarson,
Þórdís Kristinsdóttir, Ásgeir Magnússon,
Gunnar Kristinsson, Claudia Picenoni,
Jóhann Kristinsson, Sólveig Ólafsdóttir,
ömmubörn og langömmubörn.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má
finna upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má
smella á Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi
lið.
Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að
hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, jafnvel þótt grein
hafi borist innan skilafrests.
Lengd | Hámarkslengd minningargreina er 3.000 slög. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta
kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur.
Minningargreinar