Morgunblaðið - 03.01.2014, Side 43

Morgunblaðið - 03.01.2014, Side 43
lauk hann kennaraprófi frá HA 2004, M.Ed.-prófi frá HA 1913 og stundaði rannsókn í listgreina- kennslu við Konstfack í Stokkhólmi 2013. Guðmundur var sendisveinn í Prentsmiðjunni Eddu á unglingsár- unum og vann síðan í brúarvinnu í nokkur sumur. Er hann kom frá námi í Svíþjóð, vorið 1972, varð hann við þeirri ósk Harðar Ágústssonar, þá skólastjóra Myndíða- og hand- íðaskólans, að fara til Akureyrar og kenna þar myndlist: „Ég fékk nokkra árganga af Birtingi í vega- nestið hjá Herði, en hann hafði rit- stýrt tímaritinu 1955-68. Veganestið varð drjúgt og ég hef verið á Ak- ureyri síðan. Þegar ég kom norður höfðu dug- miklir einstaklingar stofnað Mynd- listarfélag Akureyrar. Ég kenndi við Námsflokka Akureyrar og tók síðan þátt í því, ásamt ýmsum þessara að- ila, að stofna Myndsmiðjuna á Ak- ureyri, sem varð undanfari Mynd- listarskóla Akureyrar. Ég hvarf hins vegar frá kennslunni eftir nokkur ár enda afskaplega reiður og róttækur maður á þessum árum. Ég hafði tek- ið þátt í hugmyndafræðilegri grósku íslenskra námsmanna sem náði há- marki með töku íslenska sendiráðs- ins í Stokkhólmi og ég starfaði með KSML á Akureyri.“ Guðmundur var verkamaður við Slippinn á Akureyri 1976-78, stofn- aði Teiknihönnun KG 1978, ásamt Kristjáni Steingrími Jónssyni, rak síðan teiknistofuna Stíl, ásamt Ragnari Lár og loks með Gunnari Kr. Jónassyni til 1982 er Guð- mundur seldi honum sinn hlut í fyr- irtækinu. Guðmundur kenndi við Myndlist- arskóla Akureyrar 1982-2000 og hef- ur síðan verið fastráðinn kennari við listnámsbraut VMA. Hann er nú að láta af störfum en mun verða laus- ráðinn kennari fram á vor. Guðmundur sat í fyrstu stjórn Gilsins á Akureyri. Hann hefur haldið fjölda einkasýninga á Ak- ureyri, Húsavík, í Reykjavík, Sví- þjóð og Danmörku og tekið þátt í aragrúa samsýninga. Hann þáði starfslaun listamanna 1986 og 1991 og var bæjarlistamaður Akureyrar 1994. Þegar listinni sleppir er Guð- mundur ástríðufullur fluguhnýtari og flugveiðimaður. Fjölskylda Eiginkona Guðmundar er Hildur María Hansdóttir, f. 2.2. 1952, starfsmaður á Hlíð, dvalarheimili aldraðra á Akureyri. Hún er dóttir Hans Pedersen, búfræðings og ráðs- manns í Eyjafirði, og Rósu Rögn- valdsdóttur, húsfreyju og fisk- vinnslukonu, sem bæði eru látin. Börn Guðmundar og Hildar eru Elsa María, f. 23.10. 1973, listþerap- isti á Skógarlundi á Akureyri en maður hennar er Allan Mc.Kay efnaverkfræðingur og á hún þrjú börn; Björn, f. 5.12. 1974, bygg- ingaverkfræðingur í Reykjavík en kona hans er Kolbrún Hlöðvers- dóttir, starfsmaður hjá Reykjavík- urborg og á hann þrjú börn; Pétur Már, f. 13.7. 1976, starfsmaður hjá Bóksölu stúdenta, búsettur í Reykjavík en kona hans er Alda Rose Cartwright grafíklistakona og eiga þau eina dóttur; Ármann, f. 2.11. 1981, fornleifafræðingur í Reykjavík en kona hans er Hulda Ásgeirsdóttir mannfræðingur og eiga þau eina dóttur, og Þorbjörg, f. 9.12. 1982, nemi í bókmenntafræði við háskólann í Osló. Systkini Guðmundar: Sigurrós Margrét, f. 1.10. 1934, d. 31.7. 2010, húsfreyja í Reykjavík; Erla, f. 3.4. 1936, húsfreyja og póstafgreiðslu- maður í Hafnarfirði; Sigurbjörg, f. 19.6. 1937, húsfreyja í Reykjavík; Páll, f. 19.4. 1939, múrarameistari í Reykjavík; Jóhann, dó á fyrsta ári; Birna, f. 17.9. 1946, fyrrv. aðstoð- arskólastjóri, búsett í Kópavogi; Jón Páll, f. 18.12. 1947, endurskoðandi í Kópavogi, og Sigurður, f. 9.9. 1950, offsetprentari í Kópavogi. Foreldrar Guðmundar voru Sig- urjón Björnsson, f. 9.6. 1908, d. 29.6. 2005, póststjóri í Kópavogi, og k.h., Þorbjörg Pálsdóttir, f. 1.1. 1915, d. 14.9. 1987, húsfreyja og starfsmaður við pósthúsið í Kópavogi. Úr frændgarði Guðmundar Ármanns Sigurjónssonar Guðmundur Ármann Sigurjónsson Sigríður Sigurðardóttir húsfr. á Á Þorleifur Guðmundsson b. á Á á Síðu Margrét Þorleifsdóttir húsfr. á Söndum Páll Pálsson b. á Söndum í Meðallandi Þorbjörg Pálsdóttir húsfr. og starfsmaður við Pósthúsið í Kópavogi Jóhanna Jónsdóttir húsfr. á Syðri-Steinsmýri Páll Sigurðsson b. á Syðri-Steinsmýri Jórunn Ólafsdóttir húsfr. í Suður-Vík Dagbjartur Hafliðason b. í Suður-Vík í Mýrdal Sigþrúður Dagbjartsdóttir húsfr. á Hryggjum í Mýrdal Björn Björnsson b. á Hryggjum í Mýrdal Sigurjón Björnsson póststjóri í Kópavogi Anna Björnsdóttir húskona í Vestur-Skaftafellssýslu Björn Jónsson vinnum. í Vestur-Skaftafellssýslu ÍSLENDINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2014 Einar Arnalds fæddist íReykjavík 3.1. 1911. For-eldrar hans voru Ari Jóns- son Arnalds, ritstjóri og alþm. í Reykjavík og síðar sýslumaður og bæjarfógeti á Seyðisfirði, og k.h., Matthildur Einarsdóttir Kvaran, síðar Matthíasson, húsfreyja. Sigurður var sonur Ara Arnalds, alþm. og sýslumanns á Seyðisfirði, Jónssonar, b. á Hjöllum Finnssonar, b. þar Arasonar, bróður Jóns, afa Björns Jónssonar, ritstjóra og ráð- herra, föður Sveins forseta og Ólafs, ritstjóra og stofnanda Morgunblaðs- ins, afa Ólafs B. Thors, fyrrv. forseta borgarstjórnar. Matthildur var systir Ragnars, föður Ævars R. Kvaran, leikara og rithöfundar, föður Gunnars selló- leikara. Annar bróðir Matthildar var Einar, afi Guðrúnar orðabókarit- stjóra og Hjörleifs, fyrrv. borgarlög- manns. Matthildur var dóttir Einars H. Kvaran, rithöfundar og forseta Sálarrannsóknarfélagsins. Eiginkona Einars yngri var Lauf- ey Guðmundsdóttir húsfreyja en dætur þeirra eru Kristín, cand.mag. og fyrrv. skólameistari Fjölbrauta- skólans í Breiðholti, og Matthildur, húsfreyja í Reykjavík. Einar lauk stúdentsprófum frá MR 1930 og embættisprófi í lög- fræði frá HÍ 1935. Hann kynnti sér sjórétt í Englandi, Þýskalandi og Danmörku 1935-38, fékk löggildingu sem niðurjöfnunarmaður sjótjóna og öðlaðist hdl.-réttindi. Einar var fulltrúi hjá lög- reglustjóranum í Reykjavík 1938-44, fulltrúi hjá borgardómaranum í Reykjavík frá 1944, var skipaður borgardómari 1945, skipaður yf- irborgardómari í ársbyrjun 1962, var hæstaréttardómari 1964-76 er hann lét af störfum fyrir aldurs sak- ir. Hann sat auk þess í Félagsdómi, var varasáttasemjari, var formaður Siglingadóms, sat í landskjörstjórn, var kjörinn af ráðgjafaþingi Evr- ópuráðsins í Mannréttindadómstól Evrópu, sat í stjórn Íslandsdeildar norrænu lögmannasamtakanna og sat í stjórn Lögfræðingafélags Ís- lands. Einar lést 24.7. 1997. Merkir Íslendingar Einar Arnalds 95 ára Kristrún Sigurfinnsdóttir 85 ára Guðný Jónasdóttir Halldóra Hjaltadóttir Kristín Brynja Árnadóttir Sigríður Vilhjálmsdóttir Sigurður Jensson Þórunn Gottliebsdóttir 80 ára Anna Baldvinsdóttir Edda Einarsdóttir Hjaltested Gústaf Ólafsson Hilmar Eyjólfsson Sigurveig Sigurjónsdóttir Svava Sveinbjörnsdóttir 75 ára Alda Halldórsdóttir Áslaug Torfadóttir Einar Gíslason Magnea Sigríður Sigurðardóttir 70 ára Baldvin Halldórsson Guðni J. Hannesson Margrét Hinriksdóttir Stefán Þórarinsson 60 ára Guðjón Sverrir Agnarsson Hrefna N. Guðnadóttir Ingibjörg G. Tómasdóttir Jóna Kristbjörnsdóttir Ólafur Helgi Ólafsson Sigríður S. Jónasdóttir Sigurbjörn Hilmarsson 50 ára Agnar Már Jónsson Elín Vigdís Hallvarðsdóttir Eygló Birgisdóttir Finnur Traustason Friðþjófur Thorsteinsson Ruiz Geir Sigurpáll Hlöðversson Jolanta Dauniené Jón Einar Marteinsson Olgeir Olgeirsson Sigríður Viborg Sigurður Garðars Þórey Guðlaugsdóttir 40 ára Borgþór Friðrik Ágústsson Inga Dóra A Gunnarsdóttir Ingólfur Guðjón Steingrímsson Jón Gunnar Kristinsson Kristinn Jósep Gallagher Ósvaldur Kjartan Knudsen Róbert Jónsson Sif Ólafsdóttir 30 ára Aðalbjört María Sigurðardóttir Agnieszka Katarzyna Ugorenko Arndís Ósk Valdimarsdóttir Björgvin Ingi Stefánsson Björgvin Örn Ragnarsson Hafdís Unnsteinsdóttir Jaroslaw Graca Jóna Kristín Heimisdóttir Líf Geirfinnud. Gunnlaugsdóttir Magdalena Trojanowska Rakel Gísladóttir Sigurjón Heiðar Kristjánsson Til hamingju með daginn 30 ára Óttar ólst upp í Reykjavík, er þar búsettur og er flutingabílstjóri. Maki: Ingunn Margrét Óskardóttir, f. 1978, verk- efnastjóri hjá Reykjavík- urborg. Börn: Kristey Lea, f. 2002; Aron Breki, f. 2006; Haraldur Gauti, f. 2008; Lára Ósk, f. 2009, og Sara Líf, f. 2012. Foreldrar: Lárus Þ. Þór- hallsson, f. 1959, og Hild- ur E. Kolbeins, f. 1962. Óttar Freyr Lárusson 30 ára Hugrún ólst upp í Kópavogi og Garðabæ, er búsett á Seltjarnarnesi, lauk prófi í læknisfræði 2011 og er læknir við HSS. Maki: Guðbjartur Ólafs- son, f. 1980, læknir. Sonur: Guðberg Óli Guð- bjartsson, f. 2012. Foreldrar: Sigrún Stef- ánsdóttir, f. 1964, og Guð- berg Þórhallsson, f. 1963. Þau reka Bortækni í Hafn- arfirði. Hugrún Hörn Guðbergsdóttir 30 ára Jómbi ólst upp á Sauðárkróki, er þar bú- settur og hefur verið raf- virki á Sauðárkróki og víð- ar í Skagafirði á undanförnum árum. Systir: Sigrún Elísa Lofts- dóttir, f. 1977, búsett á Sauðárkróki. Foreldrar: Loftur Jóns- son, f. 1950, fyrrv. starfsm. Steypustöðvar Sauðárkróks, og Edda Maríanna Bang, f. 1950, fyrrv. ræstingakona. Jón Bjarni Loftsson mbl.is/islendingar islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón HJÁ AÐALSKOÐUN ERT ÞÚ Í GÓÐUMHÖNDUM Snjallt að kíkja á okkur á adal.is Við erummeð fjórar skoðunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu og eina í Reykjanesbæ. Þaulreyndir og þjónustuliprir fagmenn taka á móti þér á þeim öllum. Hlökkum til að sjá þig! H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 3 -0 4 6 7 Aðalskoðun, faggildur skoðunaraðili í 19 ár Reykjavík Grjóthálsi 10 Sími 590 6940 Reykjavík Skeifunni 5 Sími 590 6930 Hafnarfjörður Hjallahrauni 4 (við Helluhraun) Sími 590 6900 Kópavogur Skemmuvegi 6 (bleik gata) Sími 590 6935 Reykjanesbær Holtsgötu 52 (við Njarðarbraut) Sími 590 6970 www.adalskodun.is og www.adal.is Við getum minnt þig á þegar þú þarft að láta skoða bílinn á næsta ári. Skráðu þig á póstlistann hjá okkur þegar þú kemur með bílinn í skoðun og þú gætir unnið 200 lítra eldsneytisúttekt. Opið kl. 8-17 virka daga – sími 590 6900

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.