Morgunblaðið - 03.01.2014, Síða 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2014
Nýtt tölublað hins breska tímarits
Boat Magazine er helgað menningu
og mannlífi í Reykjavík. Þrátt fyrir
að heiti ritsins vísi í báta, þá segir
það ekkert um innihald og efnistök,
því Boat Magazine er í hópi athygl-
isverðra tímarita sem gefin eru út
víða um heim um þessar mundir,
gjarnan ársfjórðungslega og helg-
uð eru skapandi hugsun og listum,
og hefur hvert sín efnistök.
Reykjavíkurhefti Boat Magazine
er sjötta tölublaðið og er hvert
þeirra helgað einni borg sem rit-
stjórnin telur athyglisverða og
verðskulda að hópur textahöfunda
og ljósmyndara dvelji þar um tíma
og safni efni. Fyrri tölublöð Boat
hafa til að mynda verið helguð
Aþenu, Sarajevo og Kyoto.
Efnistökin í nýja tölublaðinu eru
fjölbreytileg, skapandi skrif og
myndir. Ritstjórinn Erin Spens seg-
ir í leiðara að það Ísland sem hún
kynntist sé annað land en hún bjóst
við að upplifa, en ekki síður dásam-
legt. Heftið, sem er á ensku, hefst á
ljóði eftir Þorstein frá Hamri og
meðal annars efnis eru greinar eft-
ir Andra Snæ Magnason, Ármann
Jakobsson og Gérard Lemarquis,
myndverk eftir W.G. Collingwood
og Einar Fal, viðtöl við Guðrúnu
Jónsdóttur hjá Stígamótum og
hönnuðina Þórunni Árnadóttur og
Sigga Eggertsson. Þá er birt saga
eftir Kristínu Ómarsdóttur.
Borgarmynd Á forsíðu Boat Magaz-
ine er starfsmaður Sægreifans.
Tímarit um
Reykjavík
Walter Mitty (Ben Still-er) er hversdags-maður, kontóristi hjátímaritinu Life sem
gæti vart lifað meira óspennandi
lífi. Hann tekur enga áhættu og
heldur sig á örugga meðalveginum
til meðalmennsku. En í hugarheimi
sínum umbreytist Mitty og verður
að heimskautafara, ofurhetju, eða
hvað sem honum dettur í hug þá
stundina. Í dagdraumum sínum
finnur Mitty nokkurs konar ham-
ingju og útrás fyrir spennuþörf
sína.
Flestir snúast dagdraumarnir að
einhverju leyti um samstarfskonu
Mittys, Cheryl Melhoff (Kristen
Wiig), sem hann er bálskotinn í.
Eini gallinn er sá að hann þorir
ekki að taka af skarið, og þegar
hann loks tekur á sig rögg, reynir
hann að hafa samband í gegnum
internetið, án árangurs.
Ný yfirstjórn tímaritsins hefur
ákveðið að pappírsútgáfa tilheyri
fortíðinni, og að síðasta tímaritið
eigi að koma út með pomp og
prakt. Færasti ljósmyndari tíma-
ritsins (Sean Penn) leggur sitt af
mörkum með því að senda Mitty
bestu ljósmynd sína til þess að fara
á forsíðuna, en þegar til kastanna
kemur finnst filman ekki. Mitty
þarf því að stíga vel út úr þæg-
indaramma sínum og elta ljósmynd-
arann til Grænlands, Íslands og Hi-
malaya-fjalla. En þó að Mitty sé að
leita að filmunni, finnur hann í raun
og veru sjálfan sig í staðinn, og
hversdagsmaðurinn deyr í leiðinni.
Nýjasta mynd Bens Stiller er um
margt ólík fyrri verkum hans.
Ærslafulli húmorinn í Zoolander er
hér víðsfjarri, en í stað hans bygg-
ist gamanið meira upp á þeim að-
stæðum sem Mitty lendir í, bæði í
draum- og raunheimi. Myndin er
fyndnust þegar Mitty er að ímynda
sér betra og meira spennandi líf og
hefðu þau atriði því alveg mátt vera
fleiri. Þá hefði hugsanlega mátt
gera það aðeins augljósara hvenær
Mitty er að ímynda sér hlutina og
hvenær ekki, en líklega er það með
ráðum gert. Myndin bætir hins
vegar vel fyrir þessa ágalla með
söguþræði sínum og með því
hversu myndræn hún er. Hver
rammi myndarinnar er nánast eins
og listaverk. Ef tína á til galla
myndarinnar er það einna helst það
að hún er hugsanlega aðeins of
löng, og jafnvel örlítið fyrirsjáan-
leg.
Stiller er fullkominn í hlutverki
draumóramannsins, sem umbreyt-
ist í ævintýramann. Rétt er í því
samhengi að minnast á hinn ís-
lenska þátt við gerð myndarinnar.
Stór hluti myndarinnar gerist hér
og á Grænlandi, og leika íslenskir
leikarar stór hlutverk, eins og t.d.
Ólafur Darri Ólafsson, sem kemur
sterkur inn sem fullur þyrlu-
flugmaður. Þá eiga Gunnar Helga-
son og Þórhallur Sigurðsson mjög
eftirminnilega spretti. Einhverjum
mun hugsanlega svelgjast á því
skáldaleyfi sem Stiller tekur sér í
staðsetningu Eyjafjallajökuls á
kortinu, en ekki er hægt að segja
annað en að Íslandshluti mynd-
arinnar sé einhver sterkasta land-
kynning sem birst hefur í annan
tíma. Þá ljá Of Monsters and Men
myndinni tónlist sína, og smell-
passar hún við það ægifagra lands-
lag sem er á skjánum.
Ég lifi í draumi Walter Mitty (Ben Stiller) lifir í draumóraheimi og verður því oft fyrir aðkasti samstarfsmanna sinna.
Hversdagsmaður deyr
Smárabíó, Háskólabíó, Laugar-
ásbíó, Kringlubíó og Borgarbíó
Akureyri
The Secret Life of Walter Mitty
bbbbm
Leikstjóri: Ben Stiller. Handrit: Steve
Conrad, byggt á smásögu James Thur-
ber. Aðalhlutverk: Ben Stiller, Kristen
Wiig, Shirley MacLaine, Adam Scott,
Sean Penn og Ólafur Darri Ólafsson.
Bandaríkin, 2013. 114 mínútur.
STEFÁN GUNNAR
SVEINSSON
KVIKMYNDIR
inn á Midi.is og tvö lög eftir rúss-
neska tónskáldið Glinka. Tvö
þekktustu sönglög Chopin verða
flutt af þeim Alínu og Jónasi en
þau gáfu út plötu með sönglögum
Chopins árið 2010. Á fyrri hluta
tónleikanna verða flutt Sígauna-
lögin sjö eftir Dvorák. Alína mun
einnig syngja þrjár ólíkar óp-
eruaríur við píanóleik Jónasar, eft-
ir Gluck, Saint-Saëns og Verdi. Al-
ína syngur verkin á frummálunum,
þ.a. rússnesku, pólsku, tékknesku,
ítölsku og frönsku.
Sveinn Einarsson, leikstjóri og
rithöfundur, mun flytja þýðingar á
öllum textum verkanna en þýðandi
þeirra er Reynir Axelsson. Hann
hefur þýtt yfir tvö þúsund ljóð og
texta úr 16 tungumálum.
Stórtónleikar Rótarý-hreyfing-
arinnar verða haldnir í kvöld kl. 20
í Langholtskirkju. Á þeim flytja
Alina Dubik og Jónas Ingimund-
arson efnisskrá með söngvum eftir
Tsjækovski, Glinka, Chopin og Sí-
gaunalögunum eftir Dvorák.
Tónlistarstyrkur Rótarý verður af-
hentur og hlýtur hann að þessu
sinni Lára Bryndís Eggertsdóttir
organisti. Hún mun leika á orgel
kirkjunnar af því tilefni, verkin
Nun danket alle Gott (op. 65) eftir
Sigfrid Karg-Elert og Ich ruf zu
Dir, Herr Jesu Christ (BWV 639)
og Tokkötu og fúgu í d-moll (BWV
565) eftir J. S. Bach. Fyrsta verkið
á efnisskrá tónleikanna er hins
vegar úr gleymdu verki eftir Tsjæ-
kovski, að því er segir um viðburð-
Styrkþegi Lára Bryndís Eggertsdóttir hlýtur styrk Rótarý í ár.
Stórtónleikar Rótarý