Morgunblaðið - 03.01.2014, Page 52

Morgunblaðið - 03.01.2014, Page 52
FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 3. DAGUR ÁRSINS 2014 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. „Gengur gjörsamlega fram af mér“ 2. Andlát: Rúnar Georgsson 3. Kveikti í sér eftir nauðgun 4. Gerist ráðgjafi við vegagerð í Noregi »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Hross í oss, kvikmynd leikstjórans Benedikts Erlingssonar, er nefnd í út- tekt kvikmyndarýnis breska dag- blaðsins Telegraph, Robbie Collin, yf- ir bestu kvikmyndir ársins 2013. Collin segir myndina eina af tíu frá- bærum kvikmyndum sem ýmist verði sýndar í Bretlandi á þessu ári eða hafi ekki landað dreifingarsamningi. Myndin er ekki í amalegum félags- skap þar því meðal þeirra sem Collin nefnir eru 12 Years a Slave sem þykir líkleg til að hreppa Óskarsverðlaun og Inside Llewyn Davis, nýjasta kvik- mynd Coen-bræðra. Hross í oss meðal þeirra bestu 2013  Hljómsveitin Gullkistan heldur tónleika í kvöld og annað kvöld á Kringlukránni og flytur gestum gamla gullmola rokksögunnar. Í Gullkistunni eru þjóðkunnir tón- listarmenn, þeir Ásgeir Óskarsson, Gunnar Þórðarson, Jón Ólafsson og Óttar Felix Hauksson. Gullkistan flytur gull- mola rokksögunnar  Þrettándagleði Karlakórs Hreppa- manna fer fram í kvöld í félagsheim- ilinu á Flúðum. Á henni koma fram söngvararnir Björg- vin Halldórsson, Matti Matt og Rokkabillý- bandið, eða „Bo & co“ eins og segir á veggspjaldi um viðburðinn. Gleði með Bo & co Á laugardag Norðaustan 15-23 m/s og snjókoma eða slydda á Vestfjörðum, en annars 8-15 og rigning eða slydda með köflum. Úrkomulítið suðvestanlands. Hiti 0 til 7 stig, svalast á Vestfjörðum. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 15-25 m/s norðvestantil en annars víða 8-15. Hvessir við suðausturströndina seinnipartinn, en dregur heldur úr vindi norðvestantil. Úrkoma víða um land. VEÐUR Ole Gunnar Solskjær, fyrr- verandi framherji Man- chester United, er nýr knattspyrnustjóri Arons Einars Gunnarssonar og fé- laga hjá velska liðinu Car- diff sem leikur í ensku úr- valsdeildinni. Solskjær hefur byrjað þjálfaraferilinn frábærlega og unnið þrjá titla á þremur árum með Molde í Noregi, nú síðast bikarmeistaratitilinn eftir sigur á Rosenborg. » 2 Solskjær tekinn við Cardiff Hlynur Bæringsson hefur tekið flest fráköst allra í sænsku úrvals- deildinni í körfubolta í vetur og hann og Jakob Örn Sigurðarson eru áfram á meðal bestu leikmanna hennar. En lið þeirra, Sundsvall Dragons, er í fjárhagsvandræðum og Hlynur segir að það eigi ekki möguleika á að blanda sér í titilbar- áttuna í vetur. »3 Blanda sér ekki í tit- ilbaráttuna í vetur ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Það er segin saga að ef gamall bíll er ekki hreyfður í þrjár vikur fer hann að hökta og jafnvel bila. Þessa reynslu mína færði ég yfir á flugið. Hef þá reglu að láta helst aldrei meira en þrjár vikur líða milli flug- ferða. Núna milli jóla og nýárs tók ég góða rispu með æfingum í nætur- flugi og lenti í stífum hliðarvindi. Allt gekk vel og ég flýg því ótrauður áfram,“ segir Ómar Þ. Ragnarsson fréttamaður. Erum við virkilega lent? Í loggbók sína hefur Ómar skráð alls 7.200 flugtíma á 45 árum. Hann hefur flogið um landið þvert og endi- lagt við allar aðstæður og lent á ótrúlegustu stöðum. Segir slíkt þó ekki mundu hafa gengið upp nema með stöðugri þjálfun og að rækta með sér hæfni til að lesa í aðstæður. „Rannsóknir sýna að í hverjum 500 atvikum sem akstursíþrótta- menn þurfa að meta og bregðast við, gera þeir tvenn mistök og spurn- ingin er sú hvers eðlis þau eru. Þetta má færa yfir á flugið. Fari menn inn í beygju á of lítilli ferð og missa hæð, lesa hæð og fjarlægðir skakkt eða koma of bratt eða á of miklum hraða inn til lendingar getur slíkt verið af- drifaríkt. Mér finnst gott viðmið og keppikefli að sé ég með farþega um borð sé lendingin svo mjúk að þeir spyrji þegar flugvélin er komin nið- ur hvort við séum virkilega lent,“ segir Ómar sem er 73ja ára. Hann þarf að standast tvær læknisskoð- anir árlega og auk þess hæfnispróf í fluginu með vissu millibili og getur því áfram haft loft undir vængjum sínum. Örkin er stopp Síðustu árin hefur Ómar gjarnan flogið um 150 tíma að meðaltali á ári. Reyndar heldur færri stundir í fyrra en þeim mun meira árin þar á undan, svo sem vegna eldgosa í Eyja- fjallajökli og Grímsvötnum. Við þær aðstæður segir hann það hafa verið ómetanlegt að geta náð myndum á lofti, en sú nálgun hefur í tímans rás verið aðalsmerki í efnisöflun hans fyrir sjónvarp í kvikmyndagerð. Í þeim efnum hefur Ómar mörg járn í eldinum og vinnur nú að gerð kvik- myndarinnar Örkin, sem fjallar um landið sem fórnað var undir tvö miðl- unarlón vegna Kárahnjúkavirkjunar og önnur umhverfisáhrif hennar. Alltaf í flug á þriggja vikna fresti  Flýgur um 150 tíma á ári  Með mörg járn í eldi við kvikmyndagerð Morgunblaðið/RAX Flug Ómar Ragnarsson við flugvél sína TF FRU í gær. Í bókum sínum er Ómar með skráða alls 7.200 flugtíma og þeirri þjálfun heldur hann stöðugt við. Í haust lauk Ómar við gerð heimildaþáttarins Akstur í óbyggðum sem er 46 mínútur og RÚV hefur keypt sýning- arrétt á. Þættinum fylgja tvær sjö mínútna myndir; Íslandsljóð og Reykjavíkurljóð. „Það hefur verið fjallað mikið um akstur í óbyggðum og ég átti því von á meiri stuðningi og þátttöku. Mér kom á óvart að bílaleigur og bílaumferð sýndu ekki áhuga. Ætla því að gefa þetta efni út á DVD-diski og höfða til útlend- inga,“ segir Ómar. Til útlend- inga á DVD MYNDAR ÓBYGGÐAAKSTUR „Það er gaman að þessu og ég er mjög stoltur af þessari viðurkenn- ingu. Ég get ekki sagt að ég hafi átt von á þessu en þetta var mjög ánægjulegt,“ segir Alfreð Gíslason en þessi sigursæli þjálfari bætti enn einni skrautfjöðrinni í hatt sinn á ný- ársdag þegar hann var sæmdur heiðursmerki hinnar íslensku fálka- orðu. »1 Mjög stoltur af þessari viðurkenningu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.