Morgunblaðið - 25.01.2014, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.01.2014, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2014     Með breyttu hugarfari getur þú öðlast það líf sem þú óskar þér. NLP er notað af fólki um allan heim sem hefur náð frábærum árangri í lífinu. NLP er öflugasta sjálfsstyrking sem völ er á. Námskeið í NLP tækni verður haldið 21.-23. febrúar og 28. feb. - 2.mars Leggjast gegn vegriði á stofnbraut  Í samræmi við áherslur meirihlutans sem kýs frekar gæluverkefni sem tefja umferð eins og við Hofsvallagötu, segir Kjartan Magnússon  Vegrið eiga heima á hraðbrautum, segir Dagur B. Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Það kom mér á óvart að meirihlut- inn skyldi leggjast gegn tillögu um að setja upp vegrið sem mun tví- mælalaust auka umferðaröryggi í Reykjavík,“ segir Kjartan Magn- ússon, borgarfulltrúi Sjálfstæð- isflokks. Meirihluti borgarráðs Reykjavík- ur felldi tillögu Sjálfstæðiflokks, þar sem skorað er á Alþingi og Vega- gerðina að ljúka sem fyrst uppsetn- ingu vegriðs á milli allra stofnbrauta á höfuðborgarsvæðinu með tveimur eða fleiri akreinum í hvora átt, þar sem hámarkshraði er 60 km/klst. eða meira. Sjálfstæðisflokkurinn lagði tillöguna fram 7. nóvember sl. Svæði þar sem óskað er eftir að setja upp vegrið eru m.a. á Sæbraut- inni, Miklubraut, hluta Hring- brautar, Höfðabakka og Gullinbrú. Samgöngustjóri, Ólafur Bjarna- son, skilaði inn umsögn við tillöguna. Þar kemur m.a. fram að ekki er tekið undir hana að öllu leyti en þó stend- ur ennfremur: „Leiðir til að draga enn frekar úr slysahættu eru upp- setning vegriða.“ Bent er á að aðrar aðgerðir komi sterkar til álita eins og aukið eftirlit og minnkun umferð- arhraða. Þá er bent á að vegrið fara ekki vel í þéttu borgarumhverfi. Kjartan bendir á það sé ljóst að tekið verði tillit til þess, að ekki sé skorið á hverfi og tillit tekið til allra samgöngukosta, ef sett yrðu upp vegrið. „Þessi afstaða meirhlutans er í samræmi við stefnu þessara flokka á kjörtímabilinu; að hverfa frá verkefnum í vegagerð í borginni en leggja þess í stað áherslu á gælu- verkefni við Hofsvallagötu og Borg- artún. Þær framkvæmdir auka ekki öryggi heldur tefja fyrir umferð og fækka bílastæðum,“ segir Kjartan. Þegar leitað var svara hjá Degi B. Egggertssyni, formanni borgarráðs, fengust þau svör skriflega, að tillag- an hefði verið felld og vísað til fag- legrar umsagnar samgöngustjóra. Dagur segir að vegrið eigi heima á hraðbrautum en hraðbrautir eigi ekki heima í íbúðahverfum. „Í íbúða- hverfum hefur stefnan verið sú að gera umhverfið öruggara fyrir börn á leið til og frá skólum og gera borg- ina góða fyrir gangandi og hjólandi, hægja á umferð og draga þannig úr hávaða, mengun og svifryki,“ segir Dagur. Þá bendir hann á að fækkun slysa hafi verið mikil í Reykjavík og það megi ekki síst rekja til þessarar stefnu. Morgunblaðið/Þórður Sæbraut Tillaga Sjálfstæðisflokks um vegrið verður ekki að veruleika. Íbúar á Völlum í Hafnarfirði eru orðnir þreyttir á rusli úti um allt og vilja að eigendur fjölbýlishúsa geri við- eigandi ráðstafanir til þess að bláar tunnur eða gámar fjúki ekki um koll með tilheyrandi sóðaskap. Anna María Benediktsdóttir, íbúi í blokk í eigu leigu- félags, segir að í lok nýliðins árs hafi bláum tunnum eða gámum verið komið fyrir á lóð blokkarinnar en eig- andi hússins hafi ekki útbúið rými fyrir gámana. Þeir séu við enda bílaplansins og fjúki á hliðina í miklum vindi. Þá fari allt innihaldið út um allt og sóðaskap- urinn sé eftir því. Allskonar óþægindi „Bílaplönin eru mjög subbuleg og sóðaleg,“ segir hún og bætir við að einnig stafi af þessu hætta fyrir bíla og menn. Anna María segir einnig ónæði af fjúkandi tunn- unum á nóttunni. „Það eru allskonar óþægindi sem fylgja þessu,“ segir hún og vill að eigendur húsnæðisins bregðist við þessu með því að smíða utan um tunnurnar svo þær haldist á sínum stað. Fjarðarpósturinn vekur athygli á málinu í vikunni og skorar á íbúana að taka til hendi. Í blaðinu kemur meðal annars fram að mjólkurfernur, auglýsingablöð og fleira megi sjá á svæðinu, börnum hafi blöskrað sóðaskapurinn og þau farið út og tínt upp drasl í nán- asta umhverfi sínu. Rusl úti um allt á Völlum  Íbúum blöskrar sóðaskap- urinn og skora á eigendur Ljósmynd/Anna María Rusl Bláu tunnurnar fjúka til á Völlunum í Hafnarfirði. „Ég tel að í þessu bréfi komi fram þannig upplýsing- ar og svo alvarleg- ar ásakanir að ég áleit óhjákvæmi- legt að vekja at- hygli stjórnskip- unar- og eftirlits- nefndar Alþingis á því sem þar er að finna og hef því sent nefndinni bréfið og gögnin. Það er svo auðvitað hennar að meta framhaldið og bregðast við því eftir atvikum sem fram kemur í bréfinu og þessum fylgigögnum,“ segir Ein- ar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis. Tilefnið er opið bréf Víglundar Þorsteinssonar til þingforseta í Morgunblaðinu í gær en Víglundur fullyrðir í tilkynningu að stýrinefnd stjórnvalda um samninga við er- lenda kröfuhafa bankanna 2009 hafi gerst sek um „alvarleg lögbrot“. „Ég mun í samræmi við þingsköp tilkynna um erindið á þingfundi og leggja það fram þannig að það sé að- gengilegt þingmönnum,“ segir Ein- ar og bendir á að stjórnskipunar- og eftirlitnefnd sé ætlað skv. þing- skapalögum að hafa eftirlit með framkvæmdavaldinu. Mun skoða „alvarlegar ásakanir“ Einar K. Guðfinnsson  Þingforseti vísar erindi til nefndar Fjölmenni var viðstatt þegar ný stafræn smiðja, Fab Lab Reykjavík, var opnuð formlega í gær að Eddu- felli 2 í Breiðholti. Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðn- aðar- og viðskiptaráðherra, flutti af því tilefni ávarp þar sem hún sagði nýju tæknina einstakt verkfæri til að leysa úr læðingi krafta til ný- sköpunar. Við stafræna framleiðslu er tölva notuð til að hanna hlut og stýra fullkomnum tæknibúnaði til að framleiða hlutinn til enda. Ýmis tæki eru í smiðjunni, þ.m.t. fræsivél til að búa til stóra hluti úr tré og plasti, lítil fræsivél til að fræsa raf- rásir eða í þrívídd til mótagerðar, þrívíddarprentari og leysiskerar. Fab Lab Reykjavík er fimmta smiðjan sinnar tegundar á Íslandi en hún er samstarfsverkefni Ný- sköpunarmiðstöðvar Íslands, Reykjavíkurborgar og Fjölbrauta- skólans í Breiðholti. Stafræn smiðja opnuð í Eddufellinu í Breiðholti Morgunblaðið/Árni Sæberg Skannaðu kóðann til að sjá mynd- skeið frá opnun Fab Lab Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.