Morgunblaðið - 25.01.2014, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 25.01.2014, Blaðsíða 46
Það verður seint sagt að Dum Dum Girls séu ekki með útlitið á hreinu. Allar myndir af sveitinni, hvort sem þær eru uppstilltar eða teknar á tónleikum, eru stíliseraðar upp í topp. Meðlimir með þennan fjarræna, ofursvala og værukæra svip, klæðnaðurinn svört/hvít gotaklæði sem dansa á mörkum Viktoríu- og pönktímans. Þetta samræmda útlit, þar sem allar lykkjur og blúndur eru kirfilega á sínum stað, er vissulega tilkomumikið og áhrifa- ríkt en því miður er það ekki svo að maður nemi tónlist með aug- unum. Það var því gleðilegt að heyra að hún er heldur ekkert slor; smekk- lega útfært sjöunda áratugar popp með heilnæmum slatta af blómaný- bylgju níunda áratugarins og allt reyrt saman með gaddavír. Jesus & Mary Chain og Shangri-La‘s saman undir sæng. Tyrfið Upphaf sveitarinnar má rekja til svefnherbergisdútls leiðtogans Dee Dee Penny (eða Kirstin Gundred eins og mamma hennar nefndi hana). Fyrsta útgáfan var sam- nefndur fimm laga geisladiskur sem Dee Dee brenndi sjálf í hundrað eintökum árið 2008. Sú plata og önnur stuttskífa sem kom út ári síðar vöktu það mikla athygli að mektarútgáfan Sub Pop gerði samning við Dee Dee. Fyrsta breiðskífan, I Will Be, kom reynd- ar fyrst út árið 2010 á smámerkinu HoZac Records en síðar á því ári gaf Sub Pop sömu plötu út með þeim krafti sem fyrirtæki af slíkri gráðu býr yfir. Önnur breiðskífa, Only in Dreams, kom út strax ári síðar og Dum Dum Girls flugu hátt í kjölfarið, spiluðu á fjölda tónleika og komust inn í flesta þá tónlistar- miðla sem máli skipta. Útgáfusaga Dum Dum Girls er nokkuð tyrfin; alls kyns plötur hjá hinum ýmsu útgáfum og fjöldi laga á hinum ýmsu safnplötum. Dee Dee er iðin við kolann og auk þess að sinna eigin sveit starfar hún reglulega með öðrum tónlist- armönnum og gefur út. Síðasta út- gáfa Dum Dum Girls var fimm laga stuttskífa, hin mjög svo prýði- lega End of Daze (2012). Tals- verðar mannabreytingar hafa og orðið á sveitinni í gegnum tíðina og í dag er það svo að Dee Dee sér al- farið um hljóðvershliðina og bandið því í raun aðeins tónleikaband. Þannig leika bara tveir aðilar inn á nýjustu plötuna, Too True, Dee Dee og upptökustjórnandinn Sune Rose Wagner (The Raveonettes). Dee Dee hefur lýst því að alla ævi hafi hún vanist því að vinna sleitulaust en eftir að End of Daze kom út hafi hún hvílst, nánast án þess að hún vildi það. End of Daze TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Ekki svo vitlaus …  Dum Dum Girls gefa út þriðju breiðskífu sína  Ofurstíliseruð pakkning en innihaldið gjöfult 46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2014 Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Sunnudagur 26. janúar kl. 14: Leiðsögn með Katrínu Elvarsdóttur sýningarhöfundi um sýninguna Betur sjá augu – Ljósmyndun íslenskra kvenna 1872-2013 Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár - grunnsýning Silfur Íslands í Bogasal Silfursmiður í hjáverkum í Horni Ný sýning í Myndasal: Betur sjá augu – Ljósmyndun íslenskra kvenna 1872-2013 Skemmtilegir ratleikir, safnbúð og kaffihús. Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thodminjasafn.is www.facebook.com/thjodminjasafn og www.facebook.com/thjodmenning Opið alla daga nema mánudaga í Þjóðminjasafni 11-17. Listasafn Reykjanesbæjar KRÍA /KLETTUR / MÝ TERN / CLIFFS / SWARM Svava Björnsdóttir 25. jan. - 9. mars Bátasafn Gríms Karlssonar Byggðasafn Reykjanesbæjar Opið virka daga 12-17, helgar 13-17. Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn SKÖPUNARVERK - KRISTÍN GUNNLAUGSDÓTTIR 8.11. 2013 - 9.2. 2014 GERSEMAR - DÝR Í BÚRI 8.11. - 11.5. 2013 Tónleikafyrirlestur 30. jan. kl. 19 - Ketil Björnstad flytur sögu Edvards Munch í tali og tónum. Ókeypis aðgangur. GERSEMAR 8.11. 2013 - 19.1. 2014 SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is Opið daglega kl. 11-17, lokað mánudaga. SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is Safnið opnar 2. febrúar með sýningunni, HÚSAFELL ÁSGRÍMS LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is Safnið opnar 7. febrúar með sýningunni, BÖRN AÐ LEIK Flóra illgresis - sýning Hildar Bjarnadóttur í forkirkju Hallgrímskirkju. Sýningarspjall laugardaginn 25. janúar kl. 14:00. Gunnar J. Árnason listfræðingur mun spjalla við Hildi um verkið. Sýningin stendur til 2. febrúar, opið alla daga 9-17. Aðgangur ókeypis. HALLGRÍMSKIRKJA Listvinafélag Hallgrímskirkju Dvalið hjá djúpu vatni Rúna – Sigrún Guðjónsdóttir Síðasta sýningarhelgi sýningunni lýkur sunnudag 26. janúar H N I T Haraldur Jónsson Opið 12-17, fimmtudaga 12-21, lokað þriðjudaga. www.hafnarborg.is, sími 585 5790 Aðgangur ókeypis Ný sýning verður opnuð 6. febrúar Opið í safnbúð Opið kl. 12-17. Lokað mánud. Verslunin Kraum í anddyri Garðatorg 1, Garðabær www.honnunarsafn.is Starf Nýlistasafnsins á nýju ári hefst formlega með opnun einka- sýningar Bryndísar Hrannar Ragn- arsdóttur myndlistarkonu í dag, laugardag klukkan 17. Kallar hún sýninguna Psychotronics. Í sýningunni teflir Bryndís sam- an tvenns konar reynslu af líkama. Í einu tilviki er manneskjan hlutuð niður í skrásetningu, af nokkrum óháðum aðilum, til þess að hún geti svo sett saman eftirmynd sína í klassíska höggmynd. Í öðru tilviki bregst líkami manneskjunnar við tónlistarflutningi. Dansandi lík- aminn knýr fram ólík form sem or- sakast af samsettri gjörð líkt og í höggmyndinni. Þá gerir hún til- raunir með hljóð-tvístrara í formi lágmynda þar sem hún leikur sér að vísunum í möguleg áhrif á sam- spil skynfæra áhorfandans. Titill sýningarinnar, Psychotro- nics, vísar í hugtak sem varð til árið 1967 og lýsir tilraunakenndum rannsóknum í dulsálarfræði og kenningum sem urðu til á áttunda áratug síðustu aldar um orku sem lifandi verur gefa frá sér. mariamargret@mbl.is Bryndís Hrönn sýnir í Nýlistasafninu Mörk Listakonan fékk listamenn til að teikna af sér myndir. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Það er algjörlega einstakt að vera á tónleikaferðalagi, því þetta er í raun eina skiptið þar sem við erum bara tónlistarmenn. Hér er maður allan daginn að einbeita sér að því hvernig maður komi sér í sitt besta spilaform fyrir kvöldið og það er ekkert að trufla nema maður sjálfur og umhverfið. En ég gæti ekki verið í betra umhverfi en með þessum strákum hérna. Þetta er eins og að vera í lifandi leikhúsi allan daginn. Það er hleg- ið svo mikið að maður er byrjaður að slefa um hádegi. Það erfiðasta við túrinn er að finna tíma til að sofa, því maður er svo fullur af lífi og það er alltaf eitthvað skemmti- legt í gangi,“ segir Óskar Guð- jónsson saxófónleikari sem verið hefur í tónleikaferðalagi um Evr- ópu síðustu vikurnar ásamt fé- lögum sínum í kvartettinum AdHd. Tónleikaferðalaginu lýkur með tónleikum í Gamla bíó mánu- daginn 27. janúar kl. 20.30. Músík snýst um traust Sem kunnugt er skipa kvart- ettinn auk Óskars þeir Ómar Guð- jónsson á gítar og bassa, Magnús Tryggvason Eliassen á trommur og Davíð Þór Jónsson á Hamm- ond-orgel, Moogs, Rhodes, píanó og bassa. „Ég fann það á fyrsta gigginu okkar á Höfn í Hornafirði árið 2008 að ég vildi vinna með þessu bandi það sem eftir væri ævinnar. Við vinirnir erum eins og fjölskylda, því það eru mjög djúp- ar tengingar á milli okkar. Og þegar svona sterk vinabönd mynd- ast þá er hægt að gera allt uppi á sviði,“ segir Óskar og heldur áfram til útskýringar: „Músík snýst um traust, vináttu og vin- semd, en ekki um það hvort þú getir spilað þetta eða hitt. Sé traustið til staðar þannig að mað- ur þori að vera maður sjálfur þá er allt hægt,“ segir Óskar og tek- ur fram að í samstarfi þeirra fé- laga sé hlustunin líka lykilatriði. „Hlustunin skiptir öllu máli, hún er númer eitt, tvö og þrjú,“ segir Óskar og tekur fram að sér finnist að setja megi meiri áherslu á hlustunina í öllu tónlistarnámi. „Ef það er engin hlustun þá ertu í einhverjum arkitektúr að leika með legókubba.“ Að sögn Óskar hófst þrettán tónleika ferðalag AdHd um Evr- ópu 9. janúar. Kvartettinn er nú þegar búinn að koma fram í djass- klúbbum í Düsseldorf, Horn-Bad Meinberg, Bayreuth, Hamburg, Berlín, Neuenburg, Zürich, Kas- sell, Brüssel og Kiel. „Við skildum ekkert í því að Alfreð Gíslason handknattleiksþjálfari skyldi ekki vera á fremsta bekk á tónleik- unum hjá okkur í Kiel og vorum hrikalega svekktir,“ segir Óskar kíminn og bætir jafnharðan við: „En létum hann reyndar ekki vita af komu okkar.“ Lífið er eitt stórt ævintýri Spurður hvort einhverjir tón- leikar úr ferðinni séu eft- irminnilegri en aðrir svarar Óskar því játandi og bendir á að þeir tónleikar hafi reyndar ekki verið á planinu. „Við höfum átt nokkra frídaga í ferðinni sem við höfum nýtt til að æfa ný lög fyrir vænt- anlegar upptökur,“ segir Óskar, en fljótlega eftir heimkomuna til Íslands hyggjast þeir félagar í AdHd eyða þremur dögum í Sund- lauginni og taka upp nýtt efni fyr- ir fimmtu plötu sína. „Frídögum okkar höfum við flestum eytt á sveitabæ sem Jörg Thienelt, „túr- mamma“ okkar hér úti, á í Horn- Bad Meinberg og hefur innréttað að hluta sem djassklúbb,“ segir Óskar og tekur fram að hlutverk „túrmömmunnar“ sé að vera um- boðsmaður AdHd á ferðinni, keyra kvartettinn milli staða og sjá um hljóðfærin. En aftur að eftirminnilegustu tónleikum túrsins. „Við áttum frí- dag og enduðum óvænt á því að spila í árlegu kökuboði á veit- ingastað í Neuenburg, sem haldið er í tengslum við tónleika krakk- anna sem stunda nám í tónlistar- skóla bæjarins. Það var píanó á „Hlustunin skiptir öllu“  AdHd lýkur tæplega þriggja vikna tónleikaferðalagi sínu um Evrópu með tónleikum í Gamla bíói nk. mánudag AdHd Óskar, Davíð Þór, Ómar og Magnús leyfa líf- inu að koma sér á óvart.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.