Morgunblaðið - 25.01.2014, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 25.01.2014, Blaðsíða 26
FRÉTTASKÝRING Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Starfsemi tveggja verslana áSelfossi verður hætt ánæstu vikum og að minnstakosti tvö önnur fyrirtæki þar í bæ eru til sölu. Svipaða sögu er að segja frá Akureyri, nokkrum verslunum þar hefur verið lokað að undanförnu og eigendur fleiri þar í bæ ætla að skella í lás á næstunni. Tónastöðin á Akureyri hætti starf- semi fyrir skemmstu og fataversl- unin Indy sömuleiðis. Nyrðra eru ástæðurnar fyrir þessu margar, m.a. hátt leiguverð í verslunarmiðstöð- inni Glerártorgi. En hvað veldur þessu almennt talað? Alkunna er að þegar harðna fer á dalnum þrauka kaupmenn fram yfir jól og áramót og fleyta rjómann af mestu kauptíðinni. Dugi það hins vegar ekki til að komast yf- ir hjallann þykir best að leggja árar í bát. Þetta er gömul saga og ný. Á Selfossi hyggjast eigendur kvenfata- verslunar, búðar sem selur hönn- unarvörur og eigendur ísbúðarinnar rifa seglin. Annars staðar er glæta. Skv. heimildum blaðsins bera sumir kaupmenn sig áætlega, til dæmis þeir sem höndla með raftæki hvers- konar. Netkaup eru hjarðhegðun „Haustverslunin var með ró- legu yfirbragði og jólaverslun fór seinna af staður en áður,“ segir Gísli Björnsson, kaupmaður í herrafata- versluninni Barón á Selfossi. Ástæð- ur þess að nokkrir kaupmenn þar í bæ sjá nú þann kost vænstan að hætta telur hann margar. Í sumum tilvikum séu margir um hituna á litlum markaði. Þá séu ýmsir kostn- aðarliðir of háir miðað við veltu, svo sem húsaleiga. Þá sé stutt til Reykjavíkur, en kaupmenn þar og eystra séu í beinni samkeppni. „Verslun og innkaup frá útlönd- unum yfir netið fóru út í að verða hjarðhegðun. Þetta er bylgja sem gengur yfir þegar fólk fær ekki réttu vöruna eða það sem kemur hentar ekki,“ segir Gísli. Hann segir það hins vegar mundu bæta starfsskil- yrði kaupmanna og almennings ef tekið yrði til í frumskógi skatta, lækkun þeirra myndi bæta allra hag. Sérstaða Samkaupa hf. er að hluta til starfsemi úti á landi. Fyr- irtækið er með um 30 matvöruversl- anir þar sem ganga ágætlega. Allir þurfa daglegt brauð „Á sumum stöðum er ákveðin áskorun að reka verslun sem opin er árið um kring. Með sveigjanleika og að stilla hlutina rétt af gengur þetta vel,“ segir Skúli Skúlason hjá Sam- kaupum. Hann telur að vandinn í landbyggðarversluninni snúi líklega meira að rekstri sérvöru. Fólk geti alltaf sparað við sig í henni, en allir þurfi sitt daglega brauð og því geng- ur rekstur matvörubúða betur, en Samkaup reka um 30 slíkar og það hringinn í kringum landið. Eru til dæmis mjög sterk á Suðurnesjum, Norðurlandi, Vestfjörðum og Aust- urlandi. Skúli Skúlason segir mikilvægt að í verslunarrekstri úti á landi horfi menn á stóru myndina og til lengri tíma. „Búðin er kjölfesta í samfélag- inu; í litlum bæ er matvöruverslun jafn nauðsynleg starfsemi og að hafa til dæmis skóla, lækni, prest og lögreglu. Í þessum búðum eru oft ekki mikil umsvif yfir vet- urinn – en í sumum þeirra tvöfaldast veltan yfir sum- arið. Fyrir vikið skapast grundvöllur fyrir heils- ársstarfsemi. Við erum sáttir við okkar hlut í rekstrinum úti á landi.“ Of margir um hituna á litlum markaði Morgunblaðið/Ómar Verslun Áramótin eru kaflaskil. Eftir kauptíð jólanna leggja sumir árar í bát ef illa hefur gengið og nú sverfur nokkuð að sérvöruverslun úti á landi. 26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Þetta eru núbaraEvrópu- þingskosning- arnar,“ heyrðist víða í Bretlandi sumarið 2009, enda var áhug- inn á þeim takmarkaður. Dugði þar ekki til að sveit- arstjórnarkosningar væru haldnar samhliða í mörgum bæjum og borgum Bretlands, einungis einn af hverjum þremur kjósendum fékkst til þess að greiða atkvæði. En þó að kosningar til Evr- ópuþingsins hafi takmarkaða þýðingu og áhugi almennings sé eftir því gæti að þessu sinni dregið til tíðinda. Ný- legar kannanir sýna að fylgi Íhaldsflokksins, sem jafnan hefur verið stærsti flokk- urinn í Evrópuþingskosning- unum, hefur dalað mjög. Hann mælist nú þriðji stærstur á eftir Verka- mannaflokknum og breska sjálfstæðisflokknum, UKIP, en á stefnuskrá þess flokks er að Bretland yfirgefi Evr- ópusambandið. Hefur UKIP því sótt mikið af fylgi sínu til Íhaldsflokksins, en kjós- endum hans hefur mislíkað mjög hvernig haldið hefur verið á málefnum Bretlands varðandi Evrópu- sambandið. Þó að kosning- arnar sem slíkar skipti hérumbil jafnlitlu máli og Evrópuþingið, byggjast bresk stjórnmál að miklu leyti á slagkrafti og þeirri ímynd að flokkurinn sé með vindinn í bakið en ekki storm í fanginu. Eftir að hafa verið mestallt kjörtímabilið skrefinu á eftir Verka- mannaflokknum í skoð- anakönnunum eru núna að berast vísbendingar úr ýms- um áttum um að staða Íhaldsflokksins fyrir kosn- ingarnar 2015 sé í raun nokk- uð góð, þar sem staða ríkis- stjórnarinnar hefur styrkst eftir því sem nær dregur kosningum. Efnahagur Bret- lands er ágætur og nokkur uppgangur í viðskiptalífinu. Enn er þó langt í land fyrir íhaldsmenn og því gæti þriðja sætið í Evrópuþings- kosningunum verið skilið sem veikleikamerki, sem myndi hleypa öllum vænt- ingum þeirra í uppnám, sér í lagi ef úrslitin yrðu til þess að ýfa enn upp þau gömlu sár sem afstaðan til Evrópusam- bandsins hefur vakið innan flokksins. Evrópuþingskosn- ingarnar gætu skipt máli fyrir Cameron} Tvísýn staða Íhaldsflokksins Nýjar tölur,sem birtar voru í Hagsjá Landsbankans, sýna hvað sam- bandið milli launahækkana og kaup- máttar getur verið svikult. Í fyrra hækkaði launavísitalan um 6%, en kaupmáttur jókst aðeins um 1,7%. Þessar tölur ættu að vera viðsemjendum ofarlega í huga í þeim erfiðu kjara- viðræðum, sem framundan eru eftir að fjöldi aðild- arfélaga ASÍ felldi nýgerða kjarasamninga. Málflutningur um hung- urlýs er ekki til þess gerður að skapa sátt. Um leið er ljóst að ekki er hægt að ætl- ast til þess að aðeins þeir, sem lægst hafa launin hemji sig, á meðan allt annað fer á skrið í samfélaginu. Það seg- ir sína sögu að á svarta list- anum hjá ASÍ yfir fyrirtæki, sem hafa hækkað verð, er helmingurinn í eigu ríkis og sveitarfélaga. Það gæti hafa átt sinn þátt í hve mörg félög innan ASÍ felldu samningana. Í Hagsjá kom einnig fram að á undanförnum tíu árum hefðu laun hækkað um 4-10% á ári eða um 6,7% að meðalatali. Breyting kaupmáttar hefði hins vegar verið „sveiflu- kenndari eða allt frá 3,7% aukningu niður í rúmlega 7% lækkun“. Að meðaltali jókst kaupmáttur um 0,6% á tíma- bilinu, en aukningin hefur verið mun meiri undanfarin ár eða 9% samanlagt síðan vorið 2010 þannig að staða kaupmáttar miðað við launa- vísitölu er nú sambærileg við mitt ár 2005. Nú er ljóst að þessar sveiflur kaupmáttar helg- uðust ekki einvörðungu af launahækkunum, taka verð- ur heimskreppu með í reikn- inginn. Þær sýna hins vegar að launahækkanir geta verið skammgóður vermir og leiði þær til verðbólgubáls er lík- legra að því fylgi hrollur en ylur í lífi flestra. Fleiri krónur þurfa ekki að skila sér í auknum kaupmætti} Hið svikula samband R eglulega berast fréttir af því að húsaleiga á höfuðborgarsvæðinu sé svo há að það sé ekki fyrir venjulegt fólk að leigja sóma- samlegt húsnæði, og því lægra sem póstnúmerið er, því hærri er yfirleitt leig- an. Leigjendur lýsa undrun sinni á spjallsvæðum fyrir leigjendur, þar sem húsnæði í oft mjög mismunandi ástandi er boðið til leigu fyrir ótrú- legar upphæðir. Í kringum 1.000 stúdentar, álíka margir og allir íbúar Ólafsvíkur á Snæ- fellsnesi. Það er því óhætt að segja að leigj- endur séu í erfiðri stöðu. En hvað veldur? Helsta ástæða hás leiguverðs er áreiðanlega ónógt framboð á leiguhúsnæði, sérstaklega í póstnúmerum 101, 105 og 107. Framboð og eftirspurn eru þó ekki einu öflin að verki á leigumarkaðnum, því hið opinbera sér sér leik á borði að skekkja markaðinn aðeins, svona eins og við er að búast. Til þessa beitir það helst tveimur tólum. Annað þeirra er húsaleigubætur, sem greiddar eru af sveitar- félögum. Hitt skekkjutækið er fjármagnstekjuskattar. Samt ekki 20% eins og af öðrum fjármagnstekjum. 30% af húsaleigutekjum eru nefnilega skattfrjáls, en restin af þeim ber 20% skatt. Nettóáhrifin verða því 14% skattur af húsaleigu. Tökum dæmi af leigusala sem leigir út þriggja her- bergja íbúð í 101. Íbúðin er metin á 23.900.000 krónur og er skuldsett upp í rjáfur. Landsbankinn býður lán fyrir 85% af markaðsvirði íbúðarinnar, 20.315.000 krón- um. 70% lánsins eru til 40 ára á 7,6% vöxtum og jöfnum greiðslum, en hin 15% eru til 15 ára á 8,6% vöxtum og með jöfnum afborgunum. Greiðslubyrði af lánunum tveimur er 157.183 krónur fyrsta mánuðinn. Afborgunin er 25.294 krónur, en vextirnir 131.649. Restina af verð- mæti íbúðarinnar, 3.585.000 krónur, leggur leigusalinn til sjálfur. Hann gerir ekki sömu vaxtakröfur og bankinn og lætur sér duga 4% nafnársvexti, 11.950 krónur á mánuði. Fjár- magnskostnaður leigusalans, auk afborgana af lánum, er því 169.133 krónur. Þar með er ekki öll sagan sögð. Leigusalinn greiðir 3.500 krón- ur í fráveitugjöld og 4.000 krónur í fast- eignagjöld. Annan kostnað, s.s. hússjóð, hita og rafmagn, greiða leigjendur. Þessi kostnaður leigusalans af húsnæðinu er því 177.133 kr. og er þá ekki gert ráð fyrir neinu viðhaldi. 180.000 krónur í leigu ættu því að standa undir íbúðinni, er það ekki? Neibb. Til að fá þessar rúmu 177.000 krónur í vasann þarf leigusalinn að krefja leigjendur sína um tæp- lega 206.000 krónur á mánuði, því ríkið hirðir 14% af brúttóleigutekjum, um 28.000 krónur. Fyrir þessa fjárhæð stæði íbúðin rétt svo undir kostnaði, þó með þeim fyrirvara að leigusalinn á 25.000 krónum meira í íbúðinni sinni í lok mánaðar en í upphafi hans. Hærri húsaleiga hefur enn- fremur áhrif til hækkunar verðbólgu. Það væri áhugavert að heyra hvort löggjafinn sé tilbúinn að lækka fjármagns- tekjuskatt til að lækka húsaleigu. gunnardofri@mbl.is Gunnar Dofri Ólafsson Pistill Af hverju er leigan svona há? STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon „Fataverslunin hefur verið í basli,“ segir Emil B. Karlsson, forstöðumaður Rannsóknaset- urs verslunarinnar. Í frétt á vef setursins kemur fram að sala á dagvöru hafi að teknu tilliti til verðlagsþróunar aukist um 6,0% milli ára. Sala á stærri raftækjum jókst nokkuð – einkum á hinum stærri – og telur Emil það benda til að á mörgum heimilum hafi verið komin þörf á að endurnýja slík tæki. Sala á fatnaði stóð í stað. Taka ber fram að Rann- sóknasetur verslunarinnar kannar ekki sérstaklega skiptingu á verslun á höf- uðborgarsvæðinu og úti á landi. Heilt yfir megi þó segja að jólaverslunin hafi gengið ágætlega en menn hafi vel fundið fyrir því að netkaup frá útlönd- um færist í vöxt. Basl í fata- búðunum RANNSÓKNASETRIÐ Emil Karlsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.