Morgunblaðið - 25.01.2014, Blaðsíða 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2014
✝ Grétar Guð-finnsson fædd-
ist í Reykjavík 9.
desember 1967.
Hann lést 6. febr-
úar 2013.
Foreldrar Grét-
ars eru Steinfríður
Ólafsdóttir, f. 27.7.
1931, og Guðfinnur
Grétar Að-
alsteinsson, f. 29.9.
1934, d. 27.11.
2004. Systkini Grétars eru Ró-
bert, f. 1957, kvæntur Stein-
unni R. Árnadóttur, Erla
Helga, f. 1959, gift Gunnlaugi
Hinn 22. apríl 2002 kvæntist
Grétar eftirlifandi eiginkonu
sinni Valdísi Maríu Stef-
ánsdóttur, f. 12.3. 1974, og eign-
uðust þau þrjú börn, Stefaníu
Þórdísi, f. 22.4. 1997, unnusti
Guðjón Snær Einarsson, Helga
Rafn, f. 5.4. 2000, og Róbertu
Dís, f. 1.3. 2002.
Grétar ólst upp á Siglufirði
og bjó þar alla sína tíð. Eftir
skólagöngu vann Grétar sem
verkamaður hjá Þormóði
ramma á Siglufirði. Einnig vann
hann hjá Pólar og um tíma sótti
hann sjóinn á Stálvík SI. Árið
2008 hóf hann störf hjá Rauðku
við uppbyggingu og viðhald
gamalla húsa og vann þar til
dauðadags.
Minningarathöfn um Grétar
fer fram í Siglufjarðarkirkju í
dag, 25. janúar 2014, og hefst at-
höfnin kl. 14.
S. Guðleifssyni.
Blóðforeldrar
Grétars eru Rósa
Björnsdóttir, f.
1947, og Magnús
Hjartarson, f. 1948.
Hálfsystkini Grét-
ars sammæðra eru
Jóhann Friðfinnur,
f. 1965, Auður, f.
1967, maki Gunnar
Björn Rögnvalds-
son, Sigfríður, f.
1969, Hermóður, f. 1971, og Sig-
urður Ingi, f. 1981. Hálfsystkini
Grétars samfeðra eru Berglind
Rós, f. 1973, og Teitur, f. 1987.
Elsku Grétar minn. Minning-
arnar eru ljúfsárar er ég hugsa
um þann dag þegar þú komst
inn um dyrnar í litla burðar-
rúminu þínu með alla þá gleði
sem þú gafst okkur litlu fjöl-
skyldunni sem þú varst að
eignast.
Þú varst alltaf svo rólegur og
góður drengur sem fór lítið fyr-
ir. Ég sakna mikið þeirra
stunda sem við áttum í hádeg-
inu og drukkum te og töluðum
saman. En svona er þetta nú.
Það kemur oft fyrir að
Ég gái út um gluggann minn
hvort gangir þú um hliðið inn.
Mér alltaf sýnist ég sjái þig.
Ég rýni út um rifurnar.
Ég reyndar sé þig alls staðar.
(Vilhjálmur Vilhjálmsson)
Elsku Valdís mín, Stefanía,
Helgi, Róberta og aðrir ætt-
ingjar Grétars. Ég bið góðan
Guð að gefa ykkur mikinn, mik-
inn styrk til að ganga áfram
beinan veg.
Elsku Grétar minn, ég veit
að við hittumst aftur en ég
kveð þig með þessari vísu:
Alltaf fjölgar himnakórnum í,
og vinir hverfa, koma mun að því.
En þegar lýkur jarðlífsgöngunni,
aftur hittumst við í blómabrekkunni
(Magnús Eiríksson)
Þín.
Mamma.
Að bíða eftir að lítið systkin
fæðist skapar sérstakt and-
rúmsloft á hverju heimili. Fyrst
skilja börnin ekkert í því af
hverju góða mamma er allt í
einu svona úrill og veik á
morgnana.
Seinna fá þau að vita að von
sé á nýjum fjölskyldumeðlim.
Þannig var það ekki þegar
Grétar varð allt í einu bróðir
okkar Erlu Helgu. Grétar
mætti bara heim á Hlíðarveg 6.
Fyrirvaralítið höfðu foreldrar
okkar fengið tækifæri til að
ættleiða nýfæddan frænda. Það
voru blendnar tilfinningar hjá
mér, tíu ára, að fá grenjandi
krakka inn á heimilið. Því var
öðruvísi farið hjá Erlu Helgu.
Með tilkomu Grétars hélt hún
að loksins væri komið alvöru-
leikfang á heimilið. Ef að við
hefðum verið aðeins eldri þá
hefði nýi bróðirinn ekki komið
okkur á óvart. Að ala upp barn
náins ættingja hefur aldrei ver-
ið neitt tiltökumál í okkar fjöl-
skyldu. Litli bróðir okkar var
alltaf mjög rólegur. Aldrei
neinn gassagangur eða frekja.
Þetta nýtti ég mér óspart sem
áhugaljósmyndari. Grétar varð
mín fyrirsæta.
Eins og margir ungir menn í
sjávarplássi heillaðist Grétar af
sjómennskunni. Réð sig á tog-
ara og upplifði allt það besta og
það versta sem fylgir óreglu-
legu lífi sjómannsins. Þannig
þótti það ekkert tiltökumál að
nota stutta landlegu til drykkju
og skemmtana. Ungi maðurinn
gerði sér ekki strax grein fyrir
að þetta líferni hentaði honum
ekki.
Áfengi og Grétar áttu ekki
samleið. Ákvörðun var síðar
tekin um að yfirgefa sjó-
mennskuna og Bakkus. Það var
erfitt fyrir viðkvæman einstak-
ling að viðurkenna að við sumt
ræður maður en annað ekki.
Innri átök einkenndu baráttu
Grétars við hina erfiðu fíkn.
Fyrir giftan föður með þrjú
gullfalleg börn var þessi
ákvörðun sú eina rétta. Það er
oft flókið að átta sig á hvað fer
fram í mannssálinni. Hugsanir
og vangaveltur eru ekki alltaf
sagðar.
Þannig var Grétar bróðir
minn. Átti erfitt með að tjá til-
finningar sínar. Fæstir gerðu
sér grein fyrir hvað baráttan
við neikvæðar hugsanir var
honum erfið. Margir sem hafa
náð sér eftir erfitt þunglyndi
segja frá því hvernig þeim
fannst að heimurinn yrði betri
án þeirra þegar svartnættið
herjaði á. Þannig var ástand
míns kæra bróður á dimmum
vetrardegi fyrrihluta febrúar á
síðastliðnu ári.
Þrátt fyrir öflugan stuðning
fjölskyldu, lækna og vina tókst
Grétari að nýta sér smá glufu í
tíma til að framkvæma það sem
enginn trúði að myndi gerast.
Hann lét hafið taka sig í firð-
inum sem ól hann upp. Sá
svarti í sálinni hafði náð yf-
irtökum. Góður drengur var
fallinn fyrir manninum með ljá-
inn. Eftir sitjum við með þjak-
aða samvisku og spyrjum
spurninga sem engin svör eru
við. Það er sama hvað við biðj-
um, við fáum hann ekki aftur. Í
slíku uppgjöri lærum við hvað
lífið er dýrmætt og hvað það er
erfitt að sjá á eftir okkar nán-
ustu.
Valdís, Stefanía, Helgi Rafn,
Róberta og allir ættingjar og
vinir Grétars. Við misstum
mikið. Hans er sárt saknað. Við
skulum lifa með minningum um
góðar stundir sem við áttum
með yndislegum dreng og varð-
veita þær vel. Hvíldu í friði í
djúpum hafsins, kæri bróðir.
Róbert Guðfinnsson.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
(Bubbi Morthens.)
Elsku Grétar. Mig langar í
fáum orðum að þakka þér fyrir
öll þessi ár sem þú hefur verið
partur af fjölskyldu okkar.
Takk fyrir allar notalegu
stundirnar á Siglufirði, yndis-
lega heimsókn til Kristiansand
og allar góðu stundirnar í Katt-
holti.
Takk fyrir að vera góður eig-
inmaður og yndislegur pabbi og
sannur sonur og bróðir. Þú
varst samt ekki alveg fullkom-
inn, ekki frekar en við hin. Ævi
þín varð kannski ekki eins löng
og við hefðum óskað, en hún
varð jafn löng og þú óskaðir
þér.
Því miður þurfum við sem
eftir sitjum að læra að sætta
okkur við það. Þú gafst okkur
góðar gjafir og skilur eftir þig
djúp spor.
Elsku Valdís systir, Stefanía
Þórdís, Helgi Rafn og Róberta
Dís, elsku amma Steina, Ró-
bert, Erla Helga og Jói, allir
ættingjar og vinir, hugur minn
er hjá ykkur.
Þó að kali heitur hver,
hylji dali jökull ber,
steinar tali og allt hvað er,
aldrei skal ég gleyma þér.
(Vatnsenda-Rósa.)
„Aldrei missa vonina, því
þegar sólin sest, birtast stjörn-
urnar.“ Þín mágkona.
Í fyrsta sinn sem ég sá þig
var þegar Valdís sagði mér að
mæta í kaffitímanum niður í
Ramma og sjá kærastann sinn.
Þú varst nú ekkert týpan sem
hljópst að fólki til að spjalla
heldur lærði maður á þig með
tímanum og komst að því að
maður gat alltaf á von á ein-
hverjum skotum. En ég vildi
bara segja:
Takk fyrir að taka alltaf á
móti okkur þegar við komum á
Sigló; Takk fyrir gönguferðina
okkar saman á Háahnjúk; Takk
fyrir skautaferðina, ps. þú
varst snillingur á skautum;
Takk fyrir skemmtilegan tíma í
bandý jólin 2012; Takk fyrir að
skutla okkur Villa alla leið í
Kýrholt; Takk fyrir fótbolta-
leikina sem við höfum farið á;
Takk fyrir samverustundirnar í
sumarbústaðnum þeirra
mömmu og pabba; Takk fyrir
að gefa mér þrjú yndisleg
systrabörn; Takk fyrir að hafa
kynnst systur minni og þar af
leiðandi orðið mágur minn;
Takk fyrir að vera besti vinur
Eyju Rósar.
Takk fyrir allt, elsku Grétar,
ég lofa að passa Didduna mína
og ungana ykkar.
Ég skrifaði bæn mína í sandinn
og bar fyrir kveðju til þín
og bað um að fyndir þú friðinn
þá nóg væri óskin mín.
(Rósa Gunnarsd.)
Elsku Valdís, Stefanía,
Helgi, Róberta og amma
Steina, ég sendi ykkur mitt
stærsta og besta knús.
Helga Hallfríður
Stefánsdóttir.
Rósa Guðrún.
Dimm og köld er þokan
ég veit ekki hvar ég er
veit ekki hvert ég fer
en þó held ég áfram.
Ég veit ekki hvort syrtir
veit ekki hvort birtir
en þó held ég áfram.
Dimm og köld er þokan
en þó held ég áfram.
(Snorri Helgason.)
Þú hvarfst inn í myrkrið og
gast ekki haldið áfram. Við því
er ekkert að segja nema minn-
ast góðra stunda. Stundanna í
ferðalögunum um landið og þá
sérstaklega Vestmannaeyja-
ferðinni.
Stunda sem við áttum saman
í Kattholti við smíðavinnu, þá
glumdu hamarshöggin langt
fram á nótt. Allar stundirnar
sem við áttum með þessum
góða dreng ber að þakka með
hlýjum hug.
Þeir segja mig látinn, ég lifi samt
og í ljósinu fæ ég að dafna.
Því ljósi var úthlutað öllum jafnt
og engum bar þar að hafna.
Frá hjarta mínu berst falleg rós,
því lífið ég þurfti að kveðja.
Í sorg og í gleði ég senda mun ljós,
sem ykkur er ætlað að gleðja.
(Höf. ók.)
Fanney og Stefán.
Grétar
Guðfinnsson
HINSTA KVEÐJA
Ég man þegar þú fórst
með okkur til Vestmanna-
eyja og kenndir okkur að
spranga. Það var skemmti-
leg ferð. Takk fyrir stund-
irnar sem ég hef átt með
þér.
Dísa María Sigþórsdóttir.
Ég man svo vel eftir þér,
eftir að þú varst með mér í
Vestmannaeyjum. Þú varst
minn besti vinur, kæri
Grétar. Við vorum vinir og
ég knúsaði þig. Allt sem við
gerðum saman var
skemmtilegt.
Eyja Rós Sigþórsdóttir.
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
útfararstjóri
útfararþjónusta
Önnumst alla þætti útfararinnar
Þegar andlát ber að höndum
Arnór L. Pálsson
framkvæmdastjóri
Ísleifur Jónsson Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Jón Bjarnason
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir uðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
G Þorsteinn Elíasson
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
GUÐRÚN SIGRÍÐUR ÞORSTEINSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Lundi, Hellu,
mánudaginn 20. janúar.
Útför hennar fer fram frá Langholtskirkju
þriðjudaginn 28. janúar kl. 13.30.
Hafsteinn Auðunn Hafsteinsson, Guðlaug Á. Þorkelsdóttir,
Erla Guðrún Hafsteinsdóttir, Garðar Jóhannsson,
Hörður Þór Hafsteinsson, Guðrún Brandsdóttir,
Haukur Hafsteinsson, Ágústa Pálsdóttir,
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubarn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
STEFÁN HALLGRÍMSSON
rafeindavirki,
Kringlumýri 2,
Akureyri,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 21. janúar.
Útförin verður auglýst síðar.
Guðmundur Stefánsson, Sunna Jaroensuk,
Guðrún Hörn Stefánsdóttir, Sverrir Þór Kristjánsson,
Tómas Bergmann, Halla Pálsdóttir,
Hallgrímur Stefánsson.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
SIGURJÓN REYKDAL,
vélstjóri og leigubifreiðastjóri,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
miðvikudaginn 15. janúar.
Útför fór fram í Njarðvíkurkirkju fimmtudaginn
23. janúar í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir vilja aðstandendur færa
starfsfólki á legudeild Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja.
Nakkaew Sara Seelarak,
Eiríkur Hafberg Sigurjónsson, Elín Or Seelarak,
Kristján Reykdal Sigurjónsson, Aðalheiður Bjarnleifsdóttir,
Jóhannes Snævar Harðarson, Unnur Svava Sverrisdóttir,
Hörður Snævar Harðarson, Súsanna Björg Fróðadóttir,
Karl Narong Seelarak, Rathcanee Malai
og barnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn,
HARALDUR RINGSTED,
Hjallalundi 20,
Akureyri,
lést að Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hlíð
fimmtudaginn 23. janúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd vandamanna,
Jakobína Stefánsdóttir.
✝
Ástkær móðir okkar, fósturmóðir, tengda-
mamma, amma og langamma,
GUÐNÝ SIGURJÓNSDÓTTIR,
Strikinu 4,
Garðabæ,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
sunnudaginn 19. janúar.
Útför fer fram þriðjudaginn 28. janúar frá Vídalínskirkju kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á líknardeild Landspítalans.
Jóhanna Jakobsdóttir,
Dagbjört Jakobsdóttir, Pálmi Stefánsson,
Áslaug Jakobsdóttir, Hafsteinn Þorgeirsson,
Sigmundur Haukur Jakobsson, Þórhildur Karlsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elsku hjartans dóttir okkar, systir, mágkona,
barnabarn, barnabarnabarn og frænka,
ANNA JÓNA SIGURBJÖRNSDÓTTIR,
Hólmagrund 7,
Sauðárkróki,
sem lést af slysförum sunnudaginn
12. janúar, verður jarðsungin frá Sauðárkróks-
kirkju í dag, laugardaginn 25. janúar, kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög.
Nánari upplýsingar í Blómabúð Sauðárkróks.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sibbi, Bára og Helga.