Morgunblaðið - 28.01.2014, Qupperneq 16
SKOÐANAKÖNNUN
NÆSTI BORGARSTJÓRI Í REYKJAVÍK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2014
BAKSVIÐ
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Um helmingur kjósenda í Reykja-
vík, 49,4% þeirra sem afstöðu taka,
vill að Dagur B. Eggertsson, oddviti
Samfylkingarinnar, verði næsti
borgarstjóri. Þetta er niðurstaða
nýrrar könnunar Félagsvísinda-
stofnunar Háskóla Íslands fyrir
Morgunblaðið.
Fylgi við Dag hefur aukist veru-
lega frá síðustu könnun sem birt
var 22. nóvember í fyrra. Þá vildu
um 33% kjósenda Dag sem borgar-
stjóra.
Halldór með 20%
Halldór Halldórsson, oddviti
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík,
nýtur stuðnings 19,7% kjósenda.
Það er talsverð fylgisaukning frá
fyrri könnun þegar 11,7% þátttak-
enda nefndu hann. Hafa ber þó í
huga að í þeirri könnun vildu 10,9%
Júlíus Vífil Ingvarsson fráfarandi
oddvita Sjálfstæðisflokksins sem
borgarstjóra, en hann var ekki með
núna. Fylgi Halldórs er því minna
en þeirra beggja í síðustu könnun.
Blöndal með 10,4%
S. Björn Blöndal, aðstoðarmaður
Jóns Gnarr og oddviti Bjartrar
framtíðar, nýtur stuðnings 10,4%
kjósenda. Hann fékk stuðning 6,9%
þátttakenda í síðustu könnun.
Sóley Tómasdóttir, oddviti
Vinstri grænna, nýtur stuðnings
6,5% kjósenda í borgarstjórastarfið.
Fjórir aðrir sem nefndir voru
fengu fylgi sem hér segir: Halldór
Auðar Svansson, formann Pírata í
Reykjavík, nefndu 1,7%, Þorleif
Gunnlaugsson, fyrrverandi borgar-
fulltrúa VG, 1%, Óskar Bergsson,
oddvita Framsóknarflokksins 0,7%,
og Píratann Þórlaugu Höllu Ágústs-
dóttur nefndu 0,2%.
Margir óvissir
Könnunin fór fram dagana 15. til
23. janúar. Spurt var: Hver vilt þú
að gegni embætti borgarstjóra
Reykjavíkur eftir borgarstjórnar-
kosningarnar 31. maí næstkomandi?
Nöfn oddvita og líklegra oddvita
voru síðan talin eða lesin upp. 10,3%
þátttakenda sögðust ekki vilja neinn
þeirra ofangreindra sem nefndir
voru.
Um 40% þátttakenda sögðust
ekki vita hvern þeir vildu sem borg-
arstjóra eða neituðu að svara. „Veit
ekki,“ sögðu 32,3% og 7,8% vildu
ekki svara.
Net- og símakönnun
Tvær leiðir voru notaðar til að ná
til kjósenda. Annars vegar var
hringt í 225 manna tilviljunarúrtak
úr þjóðskrá meðal fólks á aldrinum
18 ára og eldra. Hins vegar var gerð
netkönnun meðal 965 manna úrtaks
úr netpanel Félagsvísindastofnunar.
Samhliða var aflað upplýsinga um
kyn og aldur þátttakenda, menntun
og tekjur. Þá var einnig spurt hvaða
flokk viðkomandi hefði kosið til
borgarstjórnar 2010 og hvaða flokk-
ur yrði kosinn til borgarstjórnar og
alþingis ef kosið yrði á morgun.
Konur hrifnar af Degi
Ef fylgið við Dag B. Eggertsson
er skoðað nánar kemur í ljós að
hann nýtur meiri stuðnings meðal
kvenna en karla, 55% á móti 45%.
Fylgi hans er jafnt meðal aldurs-
hópa en þegar horft er á menntun
reynist stuðningurinn mestur meðal
háskólamenntaðra, 55% á móti 34%
stuðningi meðal þeirra sem aðeins
eiga grunnskólanám að baki. Þegar
tekjur þátttakenda eru skoðaðar
reynist stuðningur við Dag áberandi
mestur meðal fólks með meðal-
tekjur 300 til 400 þúsund krónur á
mánuði.
Utan Samfylkingarinnar er mest-
ur stuðningur við Dag meðal þeirra
sem kusu Vinstri græn og Besta
flokkinn í kosningunum 2010. En at-
hyglisvert er að 9% þeirra sem ætla
að kjósa Sjálfstæðisflokkinn í borg-
arstjórnarkosningunum vilja Dag
sem borgarstjóra.
Nær ekkert fylgi ungra
Sé stuðningur við Halldór Hall-
dórsson, oddvita Sjálfstæðisflokks-
ins, kannaður á sama hátt kemur í
ljós að kynjaskiptingin er jöfn, en
stuðningur mestur meðal eldri kjós-
enda, 45 ára og eldri. Aðeins 3%
kjósenda á aldrinum 18 til 29 ára
vilja hann sem borgarstjóra.
Öndvert við Dag er stuðningur
við Halldór mestur meðal þeirra
Um helmingur kjósenda vill Dag
Ný könnun Félagsvísindastofnunar fyrir Morgunblaðið á fylgi við borgarstjóraefni Veruleg
fylgisaukning oddvita Samfylkingarinnar Um 20% vilja Halldór Halldórsson sem borgarstjóra
Morgunblaðið/Kristinn
Mannaskipti Reykvíkingar fá nýjan borgarstjóra í vor. Jón Gnarr verður ekki í framboði.
„Ég er eiginlega alveg orðlaus,“
sagði Dagur B. Eggertsson, oddviti
Samfylkingarinnar í borgarstjórn
Reykjavíkur, þegar Morgunblaðið
leitaði í gær eftir viðbrögðum hans
við þeim mikla stuðningi sem hann
fékk í borgarstjórakönnun Félags-
vísindastofnunar. „Þetta er auðvitað
mjög ánægjulegt. Þetta er meiri
stuðningur en ég hef séð í langan
tíma,“ bætti hann við.
Dagur sagðist ekki taka þetta að-
eins til sín. „Ég held að þetta sé líka
ákveðin viðurkenning á því góða
samstarfi sem við Jón Gnarr höfum
átt á þessu kjörtímabili. Kannski
finnst fólki bara rökrétt að ég taki
við.“
Sömu flokkar áfram
Dagur kveðst reiðubúinn að taka
við embætti borgarstjóra í vor verði
úrslit kosninganna í samræmi við
nýjustu kannanir. Hann hefur reynd-
ar gegnt embættinu áður. Það var
2007 til 2008.
Dagur segir að flokkarnir sem nú
eru í meirihluta stefni að áframhald-
andi samstarfi. „Jafnvel með fleirum
ef fleiri eru tilbúnir að taka þátt í því
að þóa borgina í þá átt sem við höfum
verið að gera,“ bætti hann við. Það
væri hins vegar býsna snemmt að
fara að spá fyrir um hvernig þau mál
þróuðust. Nú væri aðalatriðið að
halda áfram að vinna að mikilvægum
málum eins og húsnæðismálum og
málefnum barnafjölskyldna í borg-
inni.
„Við í Samfylkingunni ætlum að
vinna okkur inn enn meira traust al-
veg fram á kjördag og reyndar einnig
eftir kosningar.“
Tólf ár í borgarstjórn
Dagur var fyrst kjörinn í borgar-
stjórn fyrir tólf árum, vorið 2002, þá
sem fulltrúi Reykjavíkurlistans.
Hann er 41 árs gamall, fæddur í Osló
19. júní 1972. Hann ólst upp í Ár-
bæjarhverfi, sonur Eggerts Gunn-
arssonar dýralæknis og Bergþóru
Jónsdóttur lífefnafræðings. Maki
Dags er Arna Dögg Einarsdóttir
læknir á Landspítalanum – háskóla-
sjúkrahúsi. Þau eiga tvær dætur og
tvo syni. Dagur er læknir að mennt
og starfaði í nokkur ár á Landspítal-
anum.
„Ég er enn í þeim gír í sambandi
Dagur: „Mjög
ánægjulegt“
Trúi að þetta breytist, segir Halldór
GJÖRIÐ
SVO VEL!Hafðu það hollt
í hádeginu
HAFÐU SAMBAND
OG FÁÐU TILBOÐ!
HEITT & KALT | S: 533 3060 | heittogkalt@heittogkalt.is
HEITT OG KALT býður starfsfólki fyrirtækja hollan og
næringaríkan mat í hádegi.
Matseðill fyrir hverja viku er birtur á: www.heittogkalt.is
Sturla Birgisson er margverðlaunaður matreiðslumeistari
og er í dómnefnd fyrir Bocuse d’Or sem er ein virtasta
matreiðslukeppni heims.