Morgunblaðið - 28.01.2014, Page 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2014
✝ Haraldur Eld-on Logason
fæddist 1. júní
1938 í Reykjavík.
Hann lést 18. jan-
úar 2014 á
Heilbrigðisstofnun
Suðurlands.
Foreldrar hans
voru Jónína Helga
Jónsdóttir, f. 29.12.
1910 á Gamla-
Hrauni á Eyrar-
bakka, d. 31.1. 1992, og Logi
Eldon Sveinsson múrarameist-
ari, f. 28.9. 1907 í Reykjavík, d.
10.5. 1986.
Systkini Haraldar eru: Sig-
urbjörn Eldon Logason múr-
arameistari, f. 8. apríl 1934,
Jón Eldon Logason múr-
arameistari, f. 17.12. 1941, og
Ingibjörg Eldon Logadóttir, f.
17.2. 1950, tækniteiknari.
Haraldur kvæntist 29.12.
1960 Kristjönu Ragnarsdóttur,
11.10. 1965, d. 29.10. 2006.
Börn Ragnars eru: 1) Hörður
Þór, f. 28.1. 1983, móðir hans
er Elsa Arnfríðsdóttir, f. 27.11.
1966. 2)Óðinn Eldon, f. 6.1.
1999, móðir hans er Móeiður
Helgadóttir, f. 3.3. 1976.
Haraldur ólst upp í Reykja-
vík. Hann var í sveit nokkur
sumur sem barn á Teygingalæk
í Fljótshverfi hjá Óla og Böggu.
Var vinnumaður á Melgraseyri
við Ísafjarðardjúp. Starfaði við
skógrækt ríkisins í Fossvogi.
Haraldur hafði mikinn áhuga
á flugi og lærði að fljúga.
Síðan starfaði hann við múr-
verk hjá föður sínum og tók
sveinspróf frá Iðnskólanum í
Reykjavík 1971, við múrverkið
vann hann aðallega við flísa-
lagnir og arinhleðslur þangað
til hann komst á eftirlaun. Þeg-
ar hann komst á eftirlaun snéri
hann sér að sínu aðaláhugamáli
sem var jarðfræðin og kenning-
unni sem hann hélt fram og
vildi fá álit á frá jarðfræð-
ingum.
Haraldur verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju í dag, 28.
janúar 2014, og hefst athöfnin
kl. 15.
f. 16.7.1937, hjúkr-
unarfræðingi.
Hennar foreldrar
voru Erlendur
Ragnar Teitsson, f.
17.3. 1909, d.
27.6.1944, og Krist-
jana Magnúsdóttir,
f. 25.11. 1909, d.
20.7. 1937, stjúp-
móðir Kristjönu
var Elín Ingvars-
dóttir, f. 17.9.
1920, d. 17.7.2011. Sonur Har-
aldar er Björn Helgi, f. 26.11.
1957, móðir hans var Peta Ásta
Þorbjörnsdóttir, f. 7.1. 1938,
dáin.
Börn Haraldar og Kristjönu
eru: Ragnar Kristján, f. 8.5.
1960, d. 3.3. 1961. Elín Jóna, f.
8.11. 1961, starfar við verslun.
Ragnar Eldon, f. 5.6. 1963, vél-
virki og rafvirki, sambýliskona
Hólmfríður Jónsdóttir, f. 17.6.
1968. Jóhann rafeindavirki, f.
Elskulegur eiginmaður og
lífsförunautur er leystur frá
fjötrum veikinda. Hann var mik-
ill náttúruunnandi og kom það
snemma fram. Þegar farið var í
ferðalög voru hafðar bækur um
fugla, blóm, sveppi og steina-
bókum mátti ekki gleyma ásamt
kortum svo hægt væri að vita
hvað fjöllin hétu og hvað áfanga-
staðir hefðu áhugavert að sýna.
Hann hafði áhuga á öllu, blóm-
um, alla fugla þekkti hann vel.
Jarðfræðina var mikið áhuga-
mál, hann var sjálfmenntaður í
henni með því að lesa fræðibæk-
ur, tala við jarðfræðinga og
sennilega hefur gráu hárunum
fjölgað á þeim sumum eftir
spjallið, en sumir hlustuðu.
Kenningu um jarðfræðina sem
hann kynnti fyrir þeim var hann
harður á að fylgja eftir og var
staðfastur í trú á hana. Á hverju
hausti var farið í berjamó vítt og
breitt um landið, en oft var
komið við á Læk hjá Óla og
Böggu og tínd krækiber, en þar
hafði hann verið í sveit. Varð sér
úti um dvöl í sveit. Hann heyrði
hjá leikfélaga að honum stæði til
boða að fara á tvo staði, en Halli
spurði hvort hann mætti ekki
fara á verri staðinn. Hann fékk
það, var þar í nokkur sumur og
tvö systkini hans líka og vin-
áttutengsl mynduðust sem hald-
ast enn í dag. Á hverju hausti
var farið að tína sveppi, stund-
um fjallagrös og söl. Þetta var
yndislegur tími sem við áttum
saman, ég mun geyma hann í
minningunni um góðan mann, ég
þakka honum árin sem við átt-
um saman og bið Guð að geyma
hann.
Kristjana Ragnarsdóttir.
Flýg ég og flýg
yfir furuskóg,
yfir mörk og mó,
yfir mosató,
yfir haf og heiði,
yfir hraun og sand,
yfir vötn og vídd,
inn á vorsins land.
Flýg ég og flýg
yfir fjallaskörð,
yfir brekkubörð,
yfir bleikan svörð,
yfir foss í gili,
yfir fuglasveim,
yfir lyng í laut,
inn í ljóssins heim.
(Hugrún.)
Kær bróðir minn er lagður af
stað í hinstu för, ég trúi að leið
hans muni liggja um sólkerfið til
sumarlandsins og tengist þar
nýfundnum alheimsvef. Harald-
ur bróðir minn kunni skil á öllu
sem skiptir máli í tilverunni,
hann var vel lesinn í mörgum
fræðigreinum. Náttúrfræðingur
og vísindamaður af Guðs náð.
Hann vann margskonar störf á
unglingsárum. Réði sig á togara
til veiða í salt á Grænlandsmið-
um. Var í byggingavinnu, vann í
steinsmiðju, vélaverkstæðum og
bifreiðasmiðju. 10 ára réð hann
sig í sveit hjá góðu fólki á Teyg-
ingalæk og var þar nokkur sum-
ur.
Halli fór í flugnám hjá Þyt og
sameinaði flugnám og landkönn-
un. Hann fór könnunarferðir um
landið, útilegur og leiðangra.
Hann notaði hverja stund til að
fræðast. Jarðfræði kunni hann
upp á hár, Halli bróðir þekkti
alla fugla og jurtir, sveppi og
ber. Hann hljóp á fjöll, óð yfir
eldvötn, hljóp um sanda og
sandbleytur. Hann fór sporlétt-
ur um eldhraun. Í steinaríkinu
var hann á heimavelli. Smíðaði
og reri á eigin bát um sund og
voga. Gekk til veiða á rjúpu og
gæs. Frásagnarlist kunni hann.
Braut öll mál til mergjar. Þá
prentaði hann og gaf út sína eig-
in jarðsögukenningu, setti einn-
ig á blað hugleiðingar um tilurð
eldgosa í Heklu. Birti góða
grein um aðskilnað tungls og
jarðar.
Halli gat verið fastur fyrir, en
var sanngjarn, úrræðagóður og
hjálpsamur. Vinur vina sinna.
Margir nutu verkkunnáttu hans
og fagmennsku, eldstæði, stein-
hleðslur og flísalagnir léku í
höndum hans, hann gaf sér tíma
til að vanda vinnu sína. Hinn 30.
desember 1960 kvæntist hann
eftirlifandi eiginkonu sinni,
Kristjönu Ragnarsdóttur hjúkr-
unarfræðingi. Þau byrjuðu bú-
skap í Reykjavík en fluttu aust-
ur á Selfoss með þrjú ung börn.
Þau byggðu traust hús og hafa
búið sér og sínum hlýlegt heim-
ili. Hún Kristjana er einstök
dugnaðarkona, hjá þeim var
gestum tekið fagnandi og af ást-
úð. Kristjana gerði hjúkrun að
ævistarfi. Halli og Jana voru
ákveðin í að njóta efri áranna
saman eftir langa starfsævi og
hættu störfum þegar aldur
leyfði.
Margt fer öðruvísi en ætlað
er. Lífið fór ekki alltaf mildum
höndum um hann Halla bróður
og Jönu, stórar sorgir og áföll
urðu þau að þola. Misstu þau
frumburð sinn, Ragnar Kristján,
10 mánaða gamlan, árið 1961og
Jóhann liðlega 40 ára árið 2006.
Á lífi eru Elín Jóna verslunar-
maður, f. 1961, og Ragnar raf-
eindavirki, f. 1963. Sonur Halla
fyrir hjónaband er Björn Helgi
vélstjóri, f. 1957.
Það var gæfa bróður míns að
eiga þessa góðu konu. Saman
tókust þau á við það sem lífið
færði þeim. Á þriðja ár var Halli
bróðir að berjast við krabba-
mein. Saman unnu þau Jana
margar orrustur. Jana hjúkraði
sínum manni heima af einstakri
alúð. Guð blessi fjölskyldu bróð-
ur míns og minningu hans.
Jón E. Logason.
Elsku bróðir, nú er kallið
komið og þú farinn á vit feðr-
anna, á þessari stundu rifjast
upp ótal góðar minningar frá
liðnum árum, bæði við leik og
störf. Það lék allt í höndum þín-
um og mörg voru áhugamál þín
og hugðarefni. Þú byggðir
traust og fallegt íbúðarhús á
Selfossi sem ber vandvirkni og
þekkingu þinni gott vitni, enda
skemmdist það ekki við stóra
suðurlandsskjálftann. Alltaf var
gott að heimsækja þig og fjöl-
skylduna og iðulega mikið fjör
hjá okkur, á þeim góðu sam-
verustundum sem við minnumst
með gleði og þakklæti.
Elsku Jana, megi Guð styrkja
þig og alla fjölskylduna í sorg-
inni.
Sigurbjörn E. Logason og
Bjarnveig Karlsdóttir.
Haraldur Eldon, frændi og vinur,
múrarameistari, völundarsmiður.
Náttúru unni með fjör í hjarta,
hraustur, fimur með ásjónu bjarta.
Sjaldan heyrðist hann hallmæla
manni,
græðgi og fúsk voru honum víðs
fjærri.
(KRS)
Kæra fjölskylda, okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Karl Rúnar og Jón Karl.
Mig langar að minnast fyrr-
verandi tengdaföður míns með
nokkrum orðum.
Mikið er ég glöð að hafa feng-
ið að kynnast þér, menn eins og
þú lífga upp á tilveru allra sem
koma nálægt þér. Myndarlegur
og skemmtilegur maður, alltaf
miðpunktur athyglinnar. Þú
varst listrænn og vandvirkur við
allt sem þú tókst þér fyrir hend-
ur og ögraðir viðurkenndri
heimsmynd með því að setja
fram jarðfræðikenningu. Fyrir
rúmum tveimur árum hélt ég að
krabbameinið myndi hafa yfir-
höndina, en þú fékkst annað
tækifæri. Tvö góð ár í viðbót til
að sættast við guð og menn.
Jana, Raggi, Ella, Hörður og
Óðinn, hugur minn er hjá ykkur
í dag.
Móeiður Helgadóttir.
Elsku besti Halli afi. Mikið
finnst mér leiðinlegt að þú sért
farinn frá okkur en vonandi líð-
ur þér betur þar sem þú ert
núna. Ég er svo glaður að hafa
verið hjá ykkur ömmu í Reyr-
haganum um jólin því að þetta
voru síðustu jólin þín. Það var
reyndar alltaf svo gott að heim-
sækja ykkur. Afi mun alltaf
skipa stóran sess í hjarta mér
og ég kveð yndislegan mann
með miklum söknuði.
Óðinn Eldon Ragnarsson.
Vorið 1974 komu nokkrir
áhugamenn um flug saman á
Selfossi til að stofna með sér fé-
lagskap. Einn þessara manna
var Haraldur Eldon Logason
múrarameistari sem þá hafði
búið ásamt fjölskyldu sinni á
Selfossi um nokkura ára skeið.
Áhugi Haraldar á öllu sem við-
kom flugi var honum í blóð bor-
inn frá uppvaxtarárunum í
Reykjavik. Öskjuhlíðin, flugvöll-
urinn og nágrenni hans allt nið-
ur í Vatnagarða var leiksvæði
hans, „orustuvöllur“ æskuár-
anna með rústir og minjar styrj-
aldarinnar og hersetunnar allt
um kring. Það leiddi til þess að
hann fékk ungur brennandi
áhuga á hernámsárunum og fór
að leita uppi og skoða flugvéla-
flök þess tíma sem eru ótrúlega
mörg á Reykjanesskaganum,
Hellisheiði og víðar. Sú mikla
þekking sem hann aflaði sér og
þeir munir sem hann átti úr
flökunum varð grundvöllur að
stríðsminjasafni á Selfossflug-
velli.
Fleiri áhugamál og hugðar-
efni á sviði tækni og vísinda
voru honum hugleikin og aldrei
var komið að tómum kofanum
þar sem hann var, umræðuefnin
skorti ekki. Ein margra hug-
mynda hans var hönnun aflvélar
sem myndi slá allar aðrar bíl-
vélar út hvað kraft og eyðslu
varðar. Uppfinningin var á
teikniborðinu stóran hluta ævi
hans og entist okkur sem um-
ræðuefni á góðlegum nótum,
áratugum saman. Síðast þegar
ég heimsótti hann á sjúkrabeðið
fáeinum dögum fyrir andlátið
vorum við sammála um að heim-
urinn hefði farið mikils á mis að
vélin skyldi ekki smíðuð og hlóg-
um við þá saman í síðasta sinn.
Það hugðarefni Haraldar sem
hærra reis í huga hans en flugið
sem ég nefndi í upphafi vegna
sameiginlegs áhuga okkar á
þeim málum, var áhugi hans á
jarðfræði og stjörnufræði. Ný-
lega spurði ég hann hvort hon-
um hefði aldrei dottið í hug að
mennta sig í þessum fræðum.
„Það kom aldrei til greina,“ var
svarið. „Maður fór bara í múr-
verkið eins og pabbi þó manni
langaði annað“. Skýringar Har-
aldar á orsökum og framvindu
landreksins stangast nokkuð á
við viðteknar kenningar og
skrifaði hann töluvert um þau
mál og hugmyndir sínar í blöð
og tímarit og fundaði með jarð-
fræðingum.
Eitt var það sem Haraldur
Eldon hafði lítinn áhuga á og
vildi helst ekki ræða, það voru
peningar. Lífsbaráttan hófst
með erfiðisvinnu sem múrverkið
var og heilsubrestur kom síðar
oft í veg fyrir að hann gæti
sinnt því fagi. Áföll á lífsleiðinni,
missir ungs barns og síðar veik-
indi og missir sonarins Jóhanns
voru erfið áföll fyrir hann og
eiginkonu hans Kristjönu Ragn-
arsdóttur sem var akkeri hans
og stoð alla ævi og burðarás
fjölskyldunnar. Haraldur Loga-
son var um margt sérstakur
maður og í honum tókust á ólík-
ar hliðar og skaphöfn, hugmynd-
ir, ætlanir sigrar og ósigrar eins
og gerist og gengur í lífsins
ólgusjó.
Viðkynning mín við hann frá
stofnun flugklúbbsins, samstarf
og samvinna hin síðari ár við
uppbyggingu flug- og herminja-
safnsins, hefur einkennst af vin-
áttu og góðum samverustund-
um. Afrakstur frístundastarfs
hans á sér mikilsverðan stað í
flugskýli 1. á Selfossflugvelli og
ég mun sakna hans með þakk-
læti í huga og góðar minningar.
Fjölskyldu hans sendi ég
samúðarkveðju,
Einar Elíasson, Selfossi.
Haraldur Eldon
Logason
✝
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGRÚN TORFADÓTTIR,
Álfhólsvegi 104,
Kópavogi,
lést föstudaginn 17. janúar.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Innilegar þakkir til ættingja og vina fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug.
Ásdís Þórarinsdóttir, Kristinn Kristinsson,
Kristinn Gunnar Kristinsson, Margrét Jóna Gestsdóttir,
Sigrún Kristinsdóttir, Hinrik Már Ásgeirsson,
Ásgeir Kristinn Hinriksson, Halla Sigrún Hinriksdóttir.
✝
Elskuleg eiginkona mín, dóttir, tengdadóttir,
systir, mágkona og barnabarn,
INGA RÓSA ARNARDÓTTIR,
Mosarima 7,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítala, Kópavogi,
miðvikudaginn 22. janúar.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 31. janúar kl. 13.00.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna,
Pétur Bóas Jónsson,
Margrét H. Júlíusdóttir, A. Óskar Alfreðsson.
Örn Wilhelm Randrup, Petrína Bára Árnadóttir,
Guðbjörg M. Ásgeirsdóttir, Jón Sigurðsson,
Ingvar Georg Ormsson,
Georg Eiður Arnarson, Matthildur Torshamar,
Júlíus Örn Arnarson, Unnur Guðmundsdóttir,
Davíð Francis Arnarson,
Örn Francis Arnarson.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
ERIC JAMES STEINSSON
lögregluvarðstjóri,
Boðaþingi 22,
Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Boðanum í
Kópavogi föstudaginn 24. janúar.
Útför fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
31. janúar kl. 13.00.
Sigríður Dagmar Oddgeirsdóttir,
Þorkell Ericsson, Kristín Herdís Hilmarsdóttir,
Eric James Ericsson, Kristjana Söebech,
Ingunn Steina Ericsdóttir, Jóhann Jakobsson,
Margrét Dagmar Ericsdóttir, Þorsteinn Guðbrandsson,
Geir Hlöðver Ericsson, Björg Thorberg Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
STEINUNN JÓNSDÓTTIR,
Stella,
áður Víðihvammi 16,
Kópavogi,
lést föstudaginn 17. janúar á hjúkrunar-
heimilinu Sunnuhlíð.
Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju
miðvikudaginn 29. janúar kl. 13.00
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð.
Gunnlaugur Y. Sigfússon, Jóhanna G. Möller,
Hrefna Sigfúsdóttir, Ágúst E. Ágústsson,
Sigfús Gunnlaugsson, Helena D. Haraldsdóttir,
Yngvi P. Gunnlaugsson, Guðrún H. Guðmundsdóttir,
Helga Ágústsdóttir, Jóhannes B. Jónsson
og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
tengdasonur, bróðir, afi og langafi,
ELÍAS HALLDÓR ELÍASSON
vélstjóri,
Kleppsvegi 22,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
miðvikudaginn 22. janúar.
Útför fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 31. janúar kl. 13.00.
Elísa Hjördís Ásgeirsdóttir,
Guðrún Hallfríður Elíasdóttir, Davíð Óli Axelsson,
Ásgeir Elíasson, Jóna Dís Þórisdóttir,
Elías Kristján Elíasson, Ásta Dís Gunnlaugsdóttir,
Margrét Erla Friðjónsdóttir,
systkini, barnabörn og barnabarnabarn.