Morgunblaðið - 28.01.2014, Qupperneq 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2014
✝ Guðný Sigur-jónsdóttir
fæddist 19. júní
1936 í Reykjavík.
Hún lést á líkn-
ardeild Landspítal-
ans 19. janúar
2014.
Foreldrar henn-
ar voru Áslaug
Guðmundsdóttir, f.
6. október 1901, d.
29. apríl 1961, og
Sigurjón Pálsson, f. 21. júní
1887, d. 4. júní 1968. Systkini
hennar eru Rósa, látin 2007,
Hansína, Guðfinna, Margrét,
Svavar og Guðmundur, sem lést
sem ungbarn. Samfeðra voru
saman tvö börn; Dagbjört Ingi-
björg Jakobsdóttir, maki Pálmi
Stefánsson og eiga þau saman
eitt barn, Jónína Lára Pálma-
dóttir; Áslaug Jakobsdóttir,
maki Hafsteinn Þorgeirsson, og
eiga þau saman þrjú börn. Kar-
en Lilja, maki Vigfús Adolfsson
og eiga þau saman tvö börn,
Jakob Cecil Hafsteinsson og
Guðný Rut Hafsteinsdóttir,
maki Tómas Tandri Jóhansson.
Fyrr átti Jakob tvo syni, Sig-
mund Hauk, maki Þórhildur
Karlsdóttir og eiga þau saman
þrjú börn og sjö barnabörn.
Ragnar Jakobsson, en hann lést
15. janúar 1978.
Guðný ólst upp í Reykjavík, á
Sölvhólsgötu. Hún vann í Sápu-
gerðinni Frigg, á Vífilsstöðum,
Sólvangi, Kópavogshæli og síð-
ast í sundlaug Garðabæjar.
Guðný verður jarðsungin frá
Vídalínskirkju í dag, 28. janúar
2014, kl. 15.
Björgvin, látinn
1992, Guðmunda
Margrét, látin
1934, og Valgeir,
látinn 1999.
Guðný giftist
Jakobi Cecil Júl-
íussyni 12. maí
1956. Jakob var
fæddur 5. júlí 1932
en hann lést 6. maí
2008. Þau eign-
uðust saman þrjár
dætur, elst er Jóhanna Jakobs-
dóttir, fyrrverandi eiginmaður
hennar er Einar Jóhannes Ein-
arsson og eiga þau saman þrjú
börn; Elva Dögg, maki Torfi
Steinn Stefánsson og eiga þau
Með þessum fáu þakkarorðum
langar mig að minnast tengda-
móður minnar, Guðnýjar Sigur-
jónsdóttur, bestu tengdamömmu í
heimi. Þau orð man ég að hafa
skrifað í jólakort til hennar fyrir
nokkrum árum. Ég hef endurtek-
ið þau síðan og fyrir mér er þau
svo rétt og sönn. Klisjan hefur
gjarnan verið sú að tengdamæður
eigi ekki upp á pallborðið hjá
tengdasonum sínum, en hún á
örugglega ekki við um fjöldann
allan af tengdasonum um víða
veröld og alls ekki við í mínu til-
viki.
Þó leiðir hafi skilið með mér og
dóttur hennar, Jóhönnu, skipaði
hún alla tíð þann sess hjá mér að
vera og hafa verið best og þannig
verður það bara áfram. Fyrir utan
þá góðvild og hlýju sem hún alla
tíð sýndi mér persónulega, þá var
hún svo ákaflega góð amma
barnanna okkar og vil ég þakka
henni þau óteljandi skipti í gegn
um tíðina sem hún var alltaf boðin
og búin til að taka við þeim í pöss-
un eða lofa að gista í lengri eða
skemmri tíma þegar eftir var leit-
að.
Ekki er hægt annað en taka
þar út fyrir sviga, geta og þakka
sérstaklega, þegar hún og Jakob
heitinn tengdapabbi tóku Elvu
Dögg nánast að sér og gengu í
okkar foreldranna hlutverk, vet-
urna hennar fjóra í MR, þegar við
höfðum flutt austur til Hafnar í
Hornafirði.
Það er svo margt annað, gleðj-
andi og minnisstætt sem kemur
upp í hugann þegar sest er niður
til að setja línur á blað um tengda-
mömmu. Ég veit að margir eru
mér sammála ef ég nefni t.d. öll
fjölskylduboðin, tónlistina á spil-
aranum eða í kassettutækinu, víd-
eó-upptökurnar, saumaskapinn,
orgelið, danstímana, enskunámið,
puntið og já, allt skrautið sem hún
á aðventunni týndi uppúr kössun-
um og breytti húsinu í jólaland.
Guðný var eitthvert mesta jóla-
barn sem ég veit. Svona mætti
lengi telja en ég læt þetta nægja
og við tekur hugarflugið og frek-
ari minningar okkar allra um
þessa hlýju og skemmtilegu konu.
Starfsævi Guðnýjar lauk sem
sundlaugarvörður í Sundlaug
Garðabæjar, Ásgarðslaug. Þar
veit ég að hún ræktaði sitt starf af
alúð og nákvæmni, eins og allt
sem hún tók sér fyrir hendur, og
skipti þá ekki máli hvort það var
launavinna, heimilisstörf eða
áhugamálin. Eftir að Guðný hætti
að vinna mætti hún svo gjarnan
daglega í laugina sem hver annar
sundlaugargestur meðan hún
hafði heilsu til.
Ég hef sjálfur verið fastagestur
í Ásgarðslaug um nokkur ár og
eftir sundferð var alltaf stutt til
Guðnýjar í kaffi og spjall, fyrst í
gamla góða húsið við Löngufitina,
meðan hún bjó þar og síðan niður
á Strikið, þar sem hún var búin að
koma sér vel fyrir í fallegri íbúð
og naut sín vel í félagsskap góðs
fólks úr íbúðunum í kring. Í gær-
kvöld kom ég úr einni sundferð-
inni og lét eftir mér að keyra eina
ferð inn í Löngufitina og til baka
niður í byggðina nýju og framhjá
Strikinu, svona bara af því bara.
Veikindin sóttu svo að Guðnýju
af fullu afli í haust og varð hún að
lokum að láta undan fyrir þeim.
sElsku bestu systur, Jonný, Dæja
og Ása, öll ömmubörnin og lang-
ömmubörnin, Magga frænka,
Svavar og allir úr stórfjölskyldu
þeirra Sölvhólsgötusystra, við
syrgjum öll hina síbrosandi ömmu
Guðnýju. Hvíli hún í friði.
Jóhannes Einarsson.
Elsku tengdamamma mín er
farin frá okkur. Það voru margar
stundir sem við áttum saman, þú
og Kobbi heitinn. Við Ása fórum
ekki í ferðalög nema bjóða ykkur
með sem þið þáðuð oft og einnig
upp í sumarbústaðinn okkar góða
og þú elskaðir að vera í miklum
hita, liggja í sólbaði og fara í heita
pottinn.
Efst í minningu minni er þegar
við fórum vestur á Arnarstapa í
nær 15-20 ár og það var svo ynd-
islegt að sjá hvað þið Kobbi nutuð
ykkar vel. Einnig fórum við sam-
an til Akureyrar, Egilsstaða og
hringveginn, já við ferðuðumst
mikið saman.
Við áttum skemmtilegar stund-
ir saman, síðasta mini-golfmótið
sem við fjölskyldan héldum, þá
sagðir þú að þú ættir aldrei eftir
að vinna bikarinn en þín elskulegu
barnabörn þau Karen, Jakob og
Guðný, létu búa til sérstakan bik-
ar fyrir þig, tengdamamma mín,
þér þótti sko vænt um börnin mín
enda vorum við mikið saman,
þetta var svo sannarlega stund
sem maður gleymir ekki.
Þín verður sárt saknað, elsku-
lega tengdamóðir mín.
Þinn tengdasonur,
Hafsteinn.
Elsku amma mín, ef þú vissir
hversu sárt ég sakna þín. Þú varst
ekki bara amma mín heldur
varstu fyrirmynd mín og ég leit
mikið upp til þín. Þú varst ynd-
isleg kona og vildir öllum vel og
maður sá þig ekki öðruvísi en
brosandi eða hlæjandi. Við höfum
átt margar ógleymanlegar stund-
ir saman sem eru mér svo kærar.
Ég man að þú hafðir mjög gam-
an af að rökræða við mig um hvað
gluggaveður væri og svo endaðir
þú alltaf samræðurnar á „þú gef-
ur þig ekki, þú þarft alltaf að hafa
síðasta orðið“ og svo hlóstu.
Það var alltaf svo yndislegt að
hlaupa yfir götuna heim til þín,
elsku amma, og knúsa þig og fá
svo grænt extra tyggjó uppi í eld-
hússkáp, og ekki má gleyma flotta
dúkkuhúsinu sem þú saumaðir úr
plasti handa okkur barnabörnun-
um.
Efst í minningunni eru sund-
ferðirnar okkar yndislegu og ég
sagði alltaf að þú værir með svo
mjúk læri og spurði þig hvort þau
væru gerð úr leir, síðan löbbuðum
við í rólegheitum upp Löngufitina
og þú gafst mér ristað brauð með
miklu smjöri, osti og gúrku.
Ég er svo þakklát fyrir að hafa
fengið að hafa þig hjá mér þín síð-
ustu jól og áramót. Ég er svo
þakklát fyrir að hafa átt þig sem
ömmu, ég elskaði að vera hjá þér
og í kringum þig, þú hafðir svo
góða nærveru enda var ég hjá þér
nánast daglega. Ég vildi að ég
hefði getað sýnt þér betur hvað
mér þótti óendanlega vænt um
þig og mín heitasta ósk væri að fá
að eyða miklu fleiri árum með þér.
Ég elskaði að gefa þér gjafir
því ég vissi að það gladdi þig svo
mikið. Ég veit að við hittumst aft-
ur, elsku yndislega amma mín, en
ég veit núna að þú ert í góðum
höndum hjá afa Kobba og ætt-
ingjum þínum sem tóku vel á móti
þér. Þangað til við sjáumst aftur
þá skal ég lofa þér að njóta lífsins
eins og þú ætlast til að við gerum
öll.
Það var eins og þú vildir ekki
kveðja þennan heim fyrr en ég
kom upp í rúm til þín og hélt utan
um þig, ég er þér ævinlega þakk-
lát fyrir það.
Ég elska þig, amma Guðný.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Þín
Guðný Rut
Hafsteinsdóttir.
Elsku besta amma mín, ég veit
hreinlega ekki hvar ég á að byrja.
Að þú sért farin frá okkur er erf-
itt að sætta sig við. Þú varst ynd-
islegasta manneskja sem ég veit
um. Ég var það lánsöm að fá að
alast upp í sömu götu og þú og afi
í 22 ár. Þetta var eins og mitt
annað heimili. Ég man einu sinni,
ætli ég hafi ekki verið um 6-7 ára
og mátti ekki fara yfir götuna
nema mamma eða pabbi fylgdu
mér yfir. En eitt skiptið stalst ég
yfir, hljóp yfir götuna með hjart-
að alveg á fullu og ég hljóp inn
beint í fangið á þér. Þú tókst mig
að þér, knúsaðir mig og lést
mömmu vita að ég væri hjá þér.
Mér fannst alltaf svo gott að geta
skottast yfir til þín og spjalla
hvort sem það var um erfiða eða
skemmtilega hluti. Þú varst alltaf
til staðar. Við barnabörnin vorum
oft hjá þér og lékum okkur hjá
ykkur afa. Ég man eitt sumarið
varstu að tjalda tjaldinu ykkar
úti í garði. Þú eldaðir pulsur fyrir
mig og Elvu og við fengum að
borða úti í tjaldi. Þú gerðir oft svo
skemmtilega hluti með okkur
sem mörg börn öfunduðu okkur
af. Jólin eru minn uppáhalds tími
og ert þú ástæðan fyrir því, það
var alltaf svo jólalegt hjá þér
amma, þú bakaðir örugglega 15
smákökusortir sem kláruðust yf-
irleitt alltaf. Ég fékk að skreyta
með þér allt húsið löngu fyrir jól
og fannst mér þetta æðislegur og
dýrmætur tími. Í dag er ég að
feta í fótsporin þín, heimilið er vel
skreytt og börnin mín fá að upp-
lifa jólaandann sem ég fékk frá
þér. Mér þótti rosalega vænt um í
desember, þegar ég kom til þín,
að þú baðst mig um að skreyta
hjá þér fyrir jólin. Ég var alltaf
með þér, hvort sem það var
heima hjá þér eða mér, úti á róló
þegar þú varst að vinna eða í
sundlauginni þegar ég var að fara
í skólasund, uppi í bústað hjá
mömmu og pabba eða á ferðalög-
um. Ég fékk að njóta þín allsstað-
ar ásamt svo mörgum öðrum því
þú varst svo mikill gleðigjafi, það
elskuðu þig allir. Við erum búnar
að upplifa svo margt saman,
elsku amma mín, og ég er svo
þakklát fyrir að börnin mín fengu
að kynnast þér og sjá hversu góð-
hjartaða ömmu ég átti sem var
alltaf með bros á vör og stutt í
hláturinn. Enda elskuðu þau þig,
amma mín, og gera enn. Ég á eft-
ir að sakna þín svo mikið að ég
get ekki lýst því. Nú ertu komin
til afa og þið eruð sameinuð á ný.
Hvíldu í friði yndislega amma
mín, ég elska þig meira en orð
geta lýst.
Þín
Karen Lilja.
Guðný
Sigurjónsdóttir
Elsku Kristján,
þá er tíminn kominn
og friðurinn hefur
færst yfir. Ætli það
sé reyndar ekki eitt-
hvað lítið um ró á nýja staðnum.
Líklega ertu farinn að þeysast
um á hvítu drossíunni á ný, segja
sögur og skella upp úr.
Það myndu sennilega fæstir
gleðjast við að fá tvær skellibjöll-
ur, eins árs og þriggja ára gaml-
ar, á efri hæðina með tilheyrandi
gauragangi og látum. Þó var það
raunin með ykkur Ingu haustið
1987 þegar við fjölskyldan flutt-
um inn á Engjaveginn. Frá fyrsta
degi tókuð þið á móti okkur með
opnum örmum og var það upp-
hafið að áralöngum kynnum sem
einkenndust fyrst og fremst af
gleði og hlátri ekki síður en kær-
leika. Kristján, með sinn stóra
faðm, tók alltaf vel á móti faðm-
lagi frá litlum hnátum.
Ófáar eru stundirnar sem við
Kristján J.
Kristjánsson
✝ Kristján J.Kristjánsson
fæddist 28. febrúar
1926. Hann lést 14.
desember 2013. Út-
förin fór fram 4.
janúar 2014.
sátum í eldhúsinu
og hlustuðum á
Kristján segja sög-
ur af sjónum og æv-
intýri frá útlöndum.
Erum ekki í nokkr-
um vafa um að þær
hafi átt sinn þátt í að
kynda undir okkar
eigin ævintýralöng-
un og var gaman að
geta endurgoldið
sögustundirnar með
okkar eigin ævintýrum á seinni
árum.
Þrátt fyrir að hafa aðeins
þekkt eina hlið Kristjáns og í svo
stuttan tíma af allri hans ævi er
það samt svo mikið og minnir
mann á hversu mikið ein mann-
eskja getur snert þá í kringum
sig.
Elsku Inga, við erum innilega
þakklátar fyrir að hafa orðið
þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa
flutt til ykkar Kristjáns á Engja-
veginn og fengið að umgangast
ykkur stærstan hluta æskuár-
anna. Við sendum þér okkar
dýpstu samúðarkveðjur en haltu
í hláturinn og gleðina eins og þér
einni er lagið. Kristján hlær án
efa með.
Sóley og Eygló.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GÍSLI KRISTINN GÍSLASON
frá Hóli í Ólafsfirði,
Suðurtúni 21,
Álftanesi,
andaðist sunnudaginn 19. janúar á Hrafnistu,
Hafnarfirði.
Útförin fer fram frá Garðakirkju föstudaginn
31. janúar kl. 13.00.
Ragnheiður H. Ingólfsdóttir,
Berghildur Gísladóttir,
Gísli Ingólfur Gíslason, Sæunn Eiríksdóttir,
Axel Gíslason, Kolbrún Jóhannesdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkæra móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KRISTÍN JÓNÍNA KOLBEINSDÓTTIR,
lést á öldrunardeild Sjúkrahússins á Ísafirði
22. janúar.
Útför hennar fer fram frá Ísafjarðarkirkju
laugardaginn 1. febrúar kl. 14.00.
Aðstandendur vilja þakka öllu starfsfólki Sjúkrahúss Ísafjarðar
fyrir einstaka aðhlynningu og umönnun.
Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á minningarsjóð
Sjúkrahúss Ísafjarðar.
Sigríður María Gunnarsdóttir, Friðrik Sigurðsson,
Þórdís Elín Gunnarsdóttir, Sigurður Jarlsson,
Brynja Gunnarsdóttir, Haraldur Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
UNNUR ZÓPHÓNÍASDÓTTIR
sjúkraliði,
Engjavegi 34,
Selfossi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
fimmtudaginn 23. janúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Hákon Halldórsson,
Heiðrún Hákonardóttir, Björn Þrastar Þórhallsson,
Sverrir Hákonarson, Sigþrúður Inga Jónsdóttir,
Hörður Hákonarson, Guðlaug Anna Gunnlaugsdóttir
og barnabörn.
✝
Ástkæri eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
GÍSLI KRISTJÁN TRAUSTASON
húsasmíðameistari,
Háseylu 25,
Innri-Njarðvík,
lést föstudaginn 24. janúar.
Útför hans fer fram í Ytri-Njarðvíkurkirkju
föstudaginn 31. janúar klukkan 14.00.
Sigríður Guðrún Ólafsdóttir,
Svanhildur Heiða Gísladóttir, Michael Antony Weaver,
Trausti Gíslason, Kristín Guðmundsdóttir,
Bergrós Gísladóttir
og barnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
VALNÝ BÁRÐARDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Áskirkju í Reykjavík
miðvikudaginn 29. janúar kl. 13.00.
Helgi E. Helgason, Ásdís Ásmundsdóttir,
Gísli Már Helgason,
Gunnar Hans Helgason, Sigrún Þórðardóttir,
Ásdís Stefánsdóttir,
Sigurður Helgason, Anna Ólafsdóttir,
Bárður Helgason, Svanhildur Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna
upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á
Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið
Minningargreinar