Morgunblaðið - 28.01.2014, Síða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2014
Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is
Hægt að velja um lit og áferð að
eigin vali
Verð frá kr. 24.300Íslensk hönnun og framleiðsla
önnun frá 1960
E-6
Klass
0
ísk h
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur með-
al annars balkan- og latintónlist á
tónleikum sem hefjast kl. 20 í kvöld í
Norðurljósasal Hörpu.
Í vetur hafa fimm lúðrasveitir af
suðvesturhorninu sameinast í tón-
leikaröð þar sem hver hljómsveit
leikur á einum tónleikum. Í kvöld er
komið að Lúðrasveit Reykjavíkur og
frumflytur hún tónverkið „Beyglaðir
trompetar III“ eftir Daníel Sigurðs-
son, einn af meðlimum sveitarinnar.
Þá verður balkan- og latintónlist á
efnisskránni, til að mynda tvö tón-
verk eftir suður-ameríska tónskáldið
Arturo Márquez, en hann er best
þekktur fyrir tónverk byggð á kúb-
anskri og mexíkóskri tónlistarhefð.
Af balkan-tónlistinni má nefna tvær
svítur byggðar á armenskum þjóð-
lögum eftir Alfred Reed. Albanskir
dansar fá einnig að hljóma.
Lúðrasveit Reykjavíkur hefur
starfað síðan 1922 og átt höf-
uðstöðvar í Hljómskálanum við
Tjörnina. Nú er hún skipuð um 50
hljóðfæraleikurum undir stjórn Lár-
usar Halldórs Grímssonar.
Blásarar Lúðrasveit Reykjavíkur
heldur tónleika í Hörpu í kvöld.
Lúðraþyt-
ur í Hörpu
Syrpa fimm
ólíkra kvikmynda
sem sýna tengsl
Íslands og Sov-
étríkjanna verður
sýnd í Bæjarbíói,
bíóhúsi Kvik-
myndasafns Ís-
lands, kl. 20 í
kvöld, þriðjudag.
Myndin Niðjar
Ingólfs (1974)
með 1100 ára afmæli Íslands-
byggðar sem útgangspunkt, leitast
við að lýsa landi og þjóð og sam-
skiptum Sovétríkjanna og Íslands.
Þjóðhátíð á Þingvöllum 1974 er heiti
yfir myndir teknar af Gísla Gests-
syni, sem nú koma í fyrsta skipti fyr-
ir augu almennings. Íslendingar í
Moskvu sýnir frá ferð Íslendinga til
Moskvu árið 1974. Erfiðar viðræður
í Reykjavík er hins vegar frá leið-
togafundi þeirra Gorbatsjovs og
Reagans í Höfða 1986 og síðasta
myndin í syrpunni, Steingrímur
Hermannsson í Moskvu, er frá 1987.
Sýna tengsl
þjóðanna
Steingrímur
Hermannsson
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Á fimmtudagskvöld hefst í Hörpu
metnaðarfull hátíð sem er helguð
sjónrænni tónlist og stendur fram á
sunnudag. Þar verða flutt og sýnd
verk sem byggjast á samspili tónlist-
ar og abstrakt myndlistar. Tónskáld
og myndlistarmenn leiða saman
hesta sína, sýndar verða kvikmyndir
sem byggjast á þessu formi, í
tengslum við spænska hátíð er nefn-
ist Punto y Raya, og japanskar
stjörnur í þessum geira listarinnar
koma fram. Friðrik Steinn Krist-
jánsson, lyfjafræðingur og konsúll
Spánar, stofnaði Miðstöð sjón-
rænnar tónlistar árið 2012 og er
maðurinn bak við þessa hátíð.
„Upphafið að þessu liggur í Disn-
eykvikmyndinni Fantasíu sem ég sá
í Gamla bíóí á sjöunda áratugnum,“
segir hann. „Í myndinni heyrist
Tokkata og fúga í d-moll eftir Bach,
við myndverk sem þýski listamað-
urinn Oscar Fischinger (1900-1967)
gerði. Hann flutti ungur til Banda-
ríkjanna og vann um tíma hjá Disn-
ey. Hann fór að gera myndverk í
kringum tónlist og var líka málari og
mörg góð verk eftir hann má sjá í
söfnum víða.
Ég hreifst af þessu verki í Fant-
asíu og hafði síðar áhuga á að leggja
þetta svið fyrir mig, samræmingu
abstraktlistar og tónlistar. Það varð
ekki en ég lærði hinsvegar á píanó í
mörg ár.
Árið 2012 heimsótti ég síðan Tate
Modern-safnið í London og sá þá aft-
ur verk eftir Fischinger, myndverk
með tónlist. Í kjölfarið stofnaði ég
Miðstöð sjónrænnar tónlistar.“
Margt spilaði inn í þá ákvörðun, seg-
ir Friðrik Steinn, og áhrifavaldarnir
eru nokkrir. Meðal annars að árið
2010 fór hann til Japans með fjöl-
skyldunni og kynntist þar japanskri
myndbandalist. Þá hefur starf eig-
inkonu hans, textíllistakonunnar
Ingibjargar Jónsdóttur, haft sín
áhrif.
Alþjóðleg samkeppni
„Þegar við vorum við nám í Kaup-
mannahöfn á sínum tíma, á níunda
áratugnum, var hún með vefstólinn
við hliðina á flyglinum mínum, og
hún óf þar verk sem heitir „Sónata
fyrir vefstól og píanó“. Nóturnar
mínar notaði hún sem ívaf í verkin.
Stærsta verkið var sýnt á Charlot-
tenborg og var keypt af Statens
Kunstfond.“
Eftir að Friðrik Steinn stofnaði
miðstöðina fór hann í samstarf við
Myrka músíkdaga um að hafa hana á
sama tíma í Hörpu, en báðar hátíð-
irnar hefjast þar á fimmtudag.
„Hátíðin samanstefndur af nokkr-
um þáttum og hefst á opnunartón-
leikunum kl. 22 á fimmtudags-
kvöldið,“ segir hann. Miðstöðin
pantaði tvö verk sem verða flutt þar.
Trajectories er heiti samstarfsverk-
efni Önnu Þorvaldsdóttur tónskálds
og Sigurðar Guðjónssonar myndlist-
armanns, en Triptych Unfolding er
eftir tónskáldið Huga Guðmundsson
og bandaríska listamanninn Bret
Battey en Friðrik Steinn leiddi þá
saman.
„Þá fæ ég til landsins tvo Japani
sem starfa báðir í Evrópu. Ryoichi
Kurokawa er mjög áhugaverður og
verður með konsert á föstudags-
kvöldið, og Ryoji Ikeda, sem er mjög
stórt nafn innan þessa geira, verður
með tónleika á laugardagskvöldið.
Punto y Raya er hátíð á vegum
tveggja kvenna sem starfa í Barce-
lona, Nöel Palazzo og Ana Santos.
Þær sjá um alþjóðlega samkeppni
hátíðarinnar, en um 500 listamenn
frá 46 löndum sendu verk inn í hana.
96 verk voru svo valin í úrslit og
hægt er að sjá þau öll á hátíðinni.
Þær sjá einnig um vinnustofur sem
nemendur Listaháskólans sækja,
þar sem listamenn sem vinna innan
þessa geira halda einnig fyrirlestra.“
Þá er ógetið viðmikillar sýningar
sem opnuð verður í Listasafni
Reykjavíkur á laugardaginn kemur
og nefnist „Hljómfall litar og línu“.
Á henni verða verk eftir um 30 inn-
lenda og erlenda listamenn sett upp í
nokkrum sölum safnsins; mynd-
bandsverk, innsetningar og mál-
verk.
„Sú sýning mun gefa áhugaverða
innsýn í sjónræna tónlist og verður
opin fram undir vor. Saga sjón-
rænnar tónlistar hefst strax upp úr
1900 og þessi sýning mun gefa
áhugaverða mynd af ólíkum þáttum
listformsins. Allt síðan á þeim tíma
hafa myndlistarmenn í leit að óhefð-
bundnum tjáningarformum leitað að
fyrirmyndum í tónlist,“ segir hann.
Eingöngu abstrakt myndlist
„Þetta er eingöngu abstrakt
myndlist sem vinnur með tónlist,“
segir Friðrik Steinn um þau verk
sem fólk upplifir á hátíðinni. „Ég
held að þetta sé nýr heimur fyrir
marga. Einn tilgangur þessarar mið-
stöðvar er að vekja áhuga á þessu
merkilega og frjóa listformi. Þetta
er listform framtíðarinnar og hentar
vel vinnu með nýjustu tæknina í dag.
Á hátíðinni munum við án efa upplifa
mörg merkileg og áhrifarík verk.“
„Munum án efa upplifa mörg
merkileg og áhrifarík verk“
Morgunblaðið/Golli
Metnaður Upphaf áhuga Friðriks Steins Kristjánssonar á sjónrænni tónlist er að finna í Disneymyndinni Fantasíu.
„Ég held að þetta sé nýr heimur fyrir marga,“ segir hann og hvetur fólk til að kynna sér verkin á hátíðinni.
Friðrik Steinn
stofnaði hátíð um
sjónræna tónlist
Miðstöð sjónrænnar tónlistar
gengst fyrir hátíðinni Reykjavík Vi-
sual Music – Punto y Raya Festi-
val, í Hörpu frá fimmtudegi til
sunnudags.
Hátíðin hefst með opnunartón-
leikum í Silfurbergi á fimmtudags-
kvöld klukkan 22. Þar verða frum-
flutt tvö ný verk sem sérstaklega
voru gerð fyrir hátíðina; sam-
starfsverkefni tónskáldsins Önnu
Þorvaldsdóttur og myndlist-
armannsins Sigurðar Guðjóns-
sonar og verk eftir tónskáldið
Huga Guðmundsson og banda-
ríska listamanninn Bret Battey.
Frá föstudeginum og fram á
sunnudag verður svo fjölbreytt og
spennandi dagskrá í Hörpu. Ab-
strakt stuttmyndir verða sýndar
alla dagana auk þess sem boðið
verður upp á sjónræna tónleika
með listamönnum sem taka þátt í
svokallaðri Live Cinema-keppni, en
fjögur atriði voru valin til að koma
fram í Hörpu úr yfir 100 inn-
sendum tillögum.
Á föstudagskvöldið kemur fram
hinn japanski Ryoichi Kurokawa,
sem er upprennandi stjarna innan
sjónrænnar tónlistar, og á laug-
ardagskvöld eru tónleikar jap-
anskrar goðsagnar, listamannsins
og raftónskáldsins Ryoji Ikeda.
Sjónræn tónlistarveisla
REYKJAVÍK VISUAL MUSIC – PUNTO Y RAYA FESTIVAL