Hafnarfjörður - Garðabær - 23.11.2012, Blaðsíða 14
23. nóvember 201214
Arctic Trucks | Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | Sími 540 4900 | www.arctictrucks.is
Vönduð amerísk heilsársdekk
- stærðir 31- 44 tommur
- slitsterk
- neglanleg
- má míkróskera
- frábært veggrip
Gott verð!
fyrir flestar stærðir jeppa og jepplinga
Við eigum dekkin undir bílinn þinn og bjóðum upp á alla dekkjaþjónustu.
Þú kemur þér notalega fyrir með kaffibolla meðan þú bíður.
Bjóðum einnig ástandsskoðanir, smurþjónustu og almenna viðgerðarþjónstu.
Skjót og góð þjónusta!
38x15,5R15
38 tommu dekk
sem er sérstaklega
hannað fyrir
íslenskar aðstæður.
- slitsterkt
- endingargott
- hljóðlátt
- míkróskorið
- neglanlegt
Dekkja-
verkstæði
á staðnum.
Bjóðum alla
almenna
dekkja-
þjónustu.
2012-10 - Dekk 100x150mm.indd 1 23.10.2012 14:24:55
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242
Allan sólarhringinn
Komum heim til
aðstandenda ef óskað erSverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir
Alúð - virðing - traust
Áratuga reynsla
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Þorsteinn Gunnarsson nýr þjálfari Þróttar í Vogum:
„Spennandi verkefni, metnaðarfull
stjórn og aðstaðan virkilega góð“
-segir nýráðinn þjálfari
Þorsteinn Gunnarsson hefur verið ráðinn þjálfari Þróttar Vogum. Þorsteinn er 46
ára Vestmannaeyingur, búsettur í
Grindavík. Hann lék á sínum tíma
með ÍBV og hefur víðtæka reynslu
innan knattspyrnuhreyfingarinnar á
ýmsum vígstöðvum. Í sumar var Þor-
steinn aðstoðarþjálfari HK en áður
var hann formaður knattspyrnu-
deildar Grindavíkur í þrjú ár og
samhliða því markmannsþjálfari hjá
félaginu. Þorsteinn þjálfaði um árabil
í Vestmannaeyjum og gerði 2. flokk
kvenna að Íslandsmeisturum auk
þess að þjálfa meistaraflokk kvenna
og 2. og 3. flokk karla. Þá var hann
framkvæmdastjóri félagsins um tíma.
Þorstienn var íþróttafréttamaður hjá
Stöð 2 í tæpan áratug. Þorsteinn hefur
lokið UEFA B – þjálfaraprófi.
„Við hjá Þrótti Vogum erum hæst
ánægð að fá Þorstein til starfa enda er
hann búinn að vera tengdur knattspyrn-
unni síðustu árin frá öllum vígstöðum
og unnið með mörgum reynslumiklum
þjálfurum. Þróttur Vogum spilar í 4.
deildinni í sumar og það er skemmti-
legt tímabil framundan,“ segir Mart-
einn Ægisson, formaður knattspyrnu-
deildar Þróttar Vogum.
„Þetta er spennandi verkefni, metn-
aðarfull stjórn og aðstaðan virkilega
góð. Framundan er áframhaldandi
uppbyggingarstarf og það verður
gaman að leggja sitt af mörkum,“ segir
Þorsteinn Gunnarsson
Á afmælishátíðinni fengu sjö aðilar heiðursverðlaun fyrir störf í þágu félagsins. Frá vinstri maría Jóna Jónsdóttir,
Guðmundur brynjólfsson, marteinn Ægisson, Gunnar Helgason, Kristinn björgvinsson (fyrir hönd sveitarfélagsins)
og magnús Hauksson. Á myndina vantar Guðmund Franz Jónasson
Ungmennafélagið Þróttur, Vogum 80 ára
Bæjarráð gaf félaginu m.a.
200.000 króna peningagjöf
Mikið var um dýrðir undir lok síðasta mánaðar þegar Ungmennafélagið Þróttur
í Vogum Vatnsleysuströnd fagnaði 80
ára afmæli sínu. Félagið var formlega
stofnað 23. október 1932 en ung-
mennafélagið byggir á langri hefð ung-
mennafélagsstarfs í sveitarfélaginu og á
sú hefð mun lengri sögu því frá því fyrir
aldamótin 1900 hefur verið starfrækt
ungmennafélag í Vogum.
Í tilefni afmælisins samþykkti bæj-
arráð peningagjöf til félagsins að and-
virði 200.000 króna og jafnframt að
bjóða UMFÞ að gera tímaritið Vitann,
sem Ungmennafélagið hefur gefið út
frá árinu 1932, aðgengilegt bæjarbúum.
Verkefnið verður unnið í samstarfi við
ungmennafélagið. Blaðið er í raun bók
sem gekk á milli manna (ritstjóra) sem
skrifuðu í bókina ýmislegt sem þeir
vildu miðla til sveitunga sinna bæði
til gamans og fróðleiks. Vitinn er
mikilvæg heimild um uppbyggingu
samfélagsins í Sveitarfélaginu Vogum
og þann anda sem var ríkjandi í ung-
mennafélaginu á upphafsárum þess.
Meistaraflokkur Þróttar í
knattspyrnu ákvað að vera með laugar-
dagskaffi í vetur, þ.e. Tippklúbbinn
milli klukkan 11 og 13 og ætla með
því að efla félagsandann.
Forseti bæjarstjórnar voga, Inga Sigrún Atladóttir, afhendir hér Kristjáni Árna-
syni, formanni Ungmennafélagsins Þróttar peningagjöfina í tilefni afmælisins.
marteinn Ægisson, formaður knattspyrnudeildar og nýi þjálfarinn Þorsteinn
Gunnarsson takast í hendur að lokinni undirritun samningsins.
HAFNARFJÖRÐUR OG GARÐABÆR
KOMA ÚT ANNAN HVERN FÖSTUDAG
www.hafnarfjordurblad.is