Morgunblaðið - 03.02.2014, Síða 1
M Á N U D A G U R 3. F E B R Ú A R 2 0 1 4
Stofnað 1913 28. tölublað 102. árgangur
HLUTVERK
STRYMPU AÐEINS
AÐ VERA KONA
HAFDÍS
FIMMFALDUR
MEISTARI
NORDIC ATTIC
TÓNLISTARHÓPUR
REYKJAVÍKUR 2014
ÍÞRÓTTIR LANGHLAUP 26KVIKMYNDIR 10
Gangi áætlanir eftir verður Aðal-
björg II RE-236 og fiskverkun Að-
albjargar s.f. í Reykjavík seld til
Þórsbergs ehf. á Tálknafirði í vik-
unni. Útgerðarfélagið Aðalbjörg var
stofnað 1932 og er eitt það elsta í
Reykjavík en eigendur þess segja
veiðigjöldin hafa verið rothögg fyrir
fyrirtækið.
„Ytri aðstæður koma í veg fyrir
að hægt sé að reka þetta áfram,“
segir Stefán Einarsson, skipstjóri og
einn eigenda Aðalbjargar s.f., um
söluna. Hann segir alla útgerð nú
færast yfir á nokkrar hendur. »4
Veiðigjöldin fóru
með reksturinn
Sjálfstæðisflokkurinn vinnur stór-
sigur og Vestmannaeyjalistinn geld-
ur afhroð í sveitarstjórnarkosning-
unum í Vestmannaeyjum, sam-
kvæmt nýrri skoðanakönnun
Félagsvísindastofnunar Háskóla Ís-
lands fyrir Morgunblaðið. Könnunin
var gerð dagana 15. til 23. janúar.
Sjálfstæðisflokkurinn fær 62,2%
fylgi í könnuninni og bætir við sig
tveimur bæjarfulltrúum, fengi sex af
sjö bæjarfulltrúum í stað fjögurra
fulltrúa sem hann hefur nú. Vest-
mannaeyjalistinn fær 19,5% fylgi og
einn mann kjörinn í stað þriggja
núna.
Aðrir flokkar sem komast á blað
án þess að fá mann kjörinn eru Pír-
atar og Framsóknarflokkurinn með
6,5% fylgi hvor og Björt framtíð með
4,3% fylgi. Tveir þeir síðastnefndu
hyggjast nú ganga til liðs við fram-
boð Vestmannaeyjalistans.
gudmundur@mbl.is »12-13
Sjálfstæðisflokkur með 62,2% fylgi
Fylgi flokka í bæjarstjórn
Samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 15.-23. janúar 2014.
62,2%
4,3%
6,5%
19,5%
6,5%
1,1%
Sjálfstæðisflokkurinn 62,2%
Vestmannaeyjalistinn 19,5%
Framsóknarflokkurinn 6,5%
Píratar 6,5%
Björt framtíð 4,3%
Aðrir 1,1%
Könnun á fylgi flokka í Eyjum
Vestmannaeyjalisti missir tvo fulltrúa
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Við ætlum að leita á ákveðnu svæði
með þyrlu Landhelgisgæslunnar
strax í birtingu,“ sagði Ásgrímur L.
Ásgrímsson, framkvæmdastjóri að-
gerðasviðs LHG, í gærkvöld. Leitar-
svæðið verður skilgreint með tilliti til
reks vegna strauma og vinds í gær og
í nótt. „Að öðru leyti teljum við að
svæðið hafi verið að mestu leyti fín-
kembt,“ sagði Ásgrímur.
Umfangsmikil en árangurslaus leit
var gerð á Faxaflóa í gær eftir að
neyðarkall frá sökkvandi báti heyrð-
ist kl. 14.54. „Okkur vantar aðstoð –
við erum úti við Faxaflóa – Yfir – Bát-
urinn er farinn að leka mikið og við
erum að fara í flotgallana,“ hljómaði
kallið. Ítrekaðar tilraunir til að ná
sambandi við bátinn báru ekki árang-
ur. Strax hófst leit á sjó, úr lofti og á
landi. Laust fyrir kl. 22.00 var ákveðið
að fresta frekari leit.
Engan bát vantaði í gær sam-
kvæmt sjálfvirku tilkynningarskyld-
unni, enginn neyðarsendir fór í gang
og ekki var tilkynnt um neyðarblys,
að sögn Ásgríms.
Morgunblaðið/Kristinn
Leit á Faxaflóa Hinni umfangsmiklu leit á sjó, úr lofti og á landi var stjórnað úr Samhæfingarstöðinni í Skógarhlíð.
Þyrla til leitar á
Faxaflóa í birtingu
Umfangsmikil leit eftir neyðarkall frá sökkvandi báti
Leit á Faxaflóa
Loftmyndir ehf.
Leitarsvæðið nær frá Reykjanestá að vestasta hluta Snæfellsness
Áhersla hefur verið lögð á að leita innarlega í Faxaflóa
Leitarsvæði
finnsku
þyrlnanna
Neyðarkallið heyrðist
í báti við Akranes
Leitarsvæði
TF-GNÁ og TF-LÍF
Leitarsvæði skipa/báta
Suðurn. Hfj.
Rvk.
Akran.
2 þyrlur
LHG
Við leit:
2 finnskar
björgunarþyrlur
5 björgunarskip
10 hrað-
björgunarbátar
190 björgunarsveitarmenn
samtals. Gönguhópar á landi
við útkikk og eftirgrennslan.
Viðbúnaðarstig: RAUTT (sem þýðir að
viðbúnaður verður mikill mjög fljótlega)
Neyðarkallið barst á
rás 16 kl. 14.54 í gær
Lögreglan kannaði í höfnum
hvort báta væri saknað
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Ég skil ekki hvað Norðmenn eru að
fara,“ sagði Þorsteinn Sigurðsson,
sviðsstjóri nytjastofnasviðs Haf-
rannsóknastofnunar, um hugmyndir
Noregs um mak-
rílkvóta. Hann
sagði að ráðgjöf
Alþjóðahafrann-
sóknaráðsins
(ICES) vegna
makrílveiða á
árinu 2014 hljóð-
aði upp á 890 þús-
und tonn.
Þorsteinn
kvaðst ekki hafa aðrar upplýsingar
um kröfur Norðmanna en þær sem
komið hefðu fram í fjölmiðlum um að
þeir vildu taka 1,3 milljónir tonna úr
makrílstofninum og deila því á milli
strandríkjanna og til Rússa. Með
hlut Grænlands gæti þetta þýtt
heildarveiði upp á 1,4-1,5 milljónir
tonna.
„Ráðgjöfin er byggð á bestu upp-
lýsingum sem vísindasamfélagið
hefur. Það að Norðmenn leggi til ein
1.300.000 tonn finnst mér verulega
undarlegt, án þess að hafa þó nokkr-
ar forsendur til að meta það sem
þeir eru að gera, því ég hef ekki séð
það,“ sagði Þorsteinn.
Staðan verður metin
Sigurgeir Þorgeirsson, formaður
íslensku samninganefndarinnar í
makrílviðræðum Íslands, Færeyja,
Noregs og ESB, kvaðst ekki vita
hvors einhvers nýs væri að vænta í
þessari viku. Formaður viðræðn-
anna ætlar að hringja í fulltrúa
samningsaðila og kanna stöðu mála.
Í framhaldi af því verður metið hvort
ástæða þyki til að kalla til fundar.
Síðar í vikunni munu þessar þjóðir
hittast í London til viðræðna um
veiðar á síld og kolmunna. Makríll er
ekki á dagskránni, nema það verði
sérstaklega ákveðið. gudni@mbl.is
Undarleg
makríl-
krafa
Norðmenn vilja
auka makrílveiðar
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Félag framhaldsskólakennara hefur
lagt til við trúnaðarmenn og for-
menn kennarafélaga í framhalds-
skólunum að efna til samstöðufunda
klukkan 11 í dag.
Mælst hefur ver-
ið til þess að
fundirnir standi í
mesta lagi í
klukkutíma en
viðbúið er að ein-
hver röskun
verði á skóla-
starfi.
Aðalheiður
Steingrímsdóttir, formaður Félags
framhaldsskólakennara, segir tilefni
fundarboðsins þá alvarlegu stöðu
sem upp er komin í kjaraviðræðum
við ríkið en ekkert hafi þokast í átt
að efnislegri umræðu um kjör fram-
haldsskólakennara og umbætur í
rekstri skólanna. Hún segir víðtæka
sátt meðal kennara um að ganga
ekki að tilboðinu sem stjórnvöld
hafa lagt fram.
Mikil reiði í skólunum
„Það er mikil reiði í skólunum og
langlundargeð kennara er al-
gjörlega þrotið. Við höfum dregist
aftur úr í langan tíma, bilið hefur sí-
fellt breikkað. Og það hefur verið
gengið mjög harkalega að skól-
unum, niðurskurður verið mikill og
hann byrjaði löngu fyrir 2008,“ seg-
ir hún. Hún segir skólana berjast í
bökkum og sumir þeirra séu hættu-
lega nálægt gjaldþroti.
Viðræðum framhaldsskólakenn-
ara og ríkisins hefur verið vísað til
ríkissáttasemjara og hefur næsti
samningafundur verið boðaður á
miðvikudag. Kjarasamningar runnu
út á föstudag og segir Aðalheiður
brýnt að fá botn í það hvort ríkið
ætli sér í efnislegar og alvarlegar
viðræður. „Það segir sig sjálft að
við getum ekki setið yfir þessu
mjög lengi og þar af leiðandi erum
við að hamast við það núna að fá
skýrar línur í þetta,“ segir hún.
Boða til
samstöðu-
funda
Viðbúið að röskun
verði á skólastarfi